Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
John Speight, baritonsöngvari:
Mér finnst þetta
svo fín tónlist
HJÓNIN John Speight, bariton-
söngvari og Sveinbjörg’ Vil-
hjálmsdóttir, pianóleikari, halda
ljóðatónleika i Bústaðakirkju í
kvöld og hefjast þeir klukkan
20.30. A efnisskrá tónleikanna
eru verk eftir Ludwig van Beet-
hoven, Ich Liebe Dich, Adelaide
og ljóðaflokkurinn An die ferne
geliebte, og verk eftir Ralph
Vaughan Williams, Linden Lea,
Silent Noon og ljóðaflokkurinn
Songs of travel.
Þau hjónin kenna bæði við Tón-
skó'a Sigursveins, auk þess sem
Sveinbjörg rekur tónlistarskóla á
Álftanesi. Þau hafa haldið tónleika
víða um land, nú síðast á Akranesi
og í Njarðvík. Blaðamaður Morgun-
blaðsins átti við þau stutt spjall um
(Morgunblaðið/Bára)
Hjónin John Speight og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir
fyrirhugaða tónleika í Bústaða-
kirkju.
„Ég setti þetta prógram svona
saman vegna þess að hvorki Beet-
hoven né Vaughan Williams eru
taldir fyrsta flokks sönghöfundar,"
sagði John. „Mér finnst þetta svo
fín tónlist og vil sanna fyrir fólki
að þetta er fyrsta flokks tónlist.
Þar fyrir utan eru tengsl á milli
verka Beethovens og Williams. Við
flytjum Beethoven verkin fyrir hlé
og verkin eftir Williams eftir hlé.
Ljóð beggja höfundanna eru mik-
ið tengd náttúrunni. Hjá Beethoven
fjalla þau um mann sem liggur úti
í náttúrunni og hugsar um ástina
sína sem er fjarri. Hann hugsar sér
allskonar leiðir til að koma hugsun-
um sínum til hennar. í ljóðum
Williams er um flakkara að ræða
og hann er líka í ástarsambandi við
stúlku. Hann er haldinn þessari
ferðaþrá og fer frá henni. Þar erum
við afatur komin með fjarlægð milli
elskendanna.
Svo er það kannski tilviljun að
milli Beethovens og Williams eru
viss tengsl. Þeir sömdu báðir níu
sinfóníur. Níunda sinfónía Beetho-
vens er samin fyrir kór, einsöngvara
og hljómsveit. Þannig er 1. sinfónía
Williams líka. Þriðja sinfónía Will-
iams heitir Pastoral sinfónían en
það er líka nafnið á 6. sinfóníu
Beethovens."
#■
/ /
NYJUNG A ISLANDI
KYNNUM
Marie Sohl heimilislínan hefur fariö sigurför um Noröurlönd.
Dönsk gæðavara í sérflokki. Nú getum við boðið upp á þessa fallegu og
vönduðu framleiðslu hér á íslandi.
Sölustaðir: Z-brautir og gluggatjöld, Ármúla 32. Hannyrðaverslunin íris, Selfossi.
Amaro, Akureyri. Versl. Einars Guðfinnssonar, Bolungarvik.
Femina, Keflavík. Nýja línan, Akranesi.
t
Sunnudaga-
skóli Há-
teigskirkju
SUNNUDAGASKÓLI Háteigs-
kirkju stendur fyrir fjölskyldu-
ferð til Útskálasóknar
sunnudaginn 5. apríl nk. Brottför
verður kl. 9.30 og áætlaður
komutími verður kl. 15.30.
Skráning er á viðtalstíma sóknar-
presta Háteigskirkju (mánudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga kl.
11.00-12.00 og þriðjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga kl.
17.00-18.30).
Böm yngri en 7 ára þurfa að
vera í fylgd fullorðinna eða eldri
systkina. Kostnaður mun verða 150
kr. á marin.
Matreiðslu-
bækur frá AB
BÆKURNAR Ofnréttir og Kök-
ur með kaffinu eru komnar út
hjá Matreiðsluklúbbi Almenna
bókafélagsins.
í frétt frá bókafélaginu segir: „í
bókinni Ofnréttir eiga allir réttimir
það sameiginlegt að þeim er stung-
ið í ofninn. Að öðru leyti eru þeir
mjög ólíkir því hráefnin em frá-
bmgðin; fiskur, kjöt, grænmeti og
ávextir. f Kökum með kaffinu er
að fínna uppskriftir að safaríkum
kökum með ávöxtum og berjum,
hnetum og möndlum í deiginu svo
eitthvað sé nefnt. Báðar bækurnar
em ríkulega skreyttar með litmynd-
um af girnilegum kökum og rétt-
um.“
Með þessum tveimur nýju bókum
fylgir til áskrifenda eintak af Hjálp-
arkokknum sem er blað matreiðslu-
klúbbsins með húsráðum og
uppskriftum.
f<onica
C0L0UR-SLIDES
FILNIUR 135x36
AÐEINS
KR. 295.-
# # Dreifing;
TOLVIISPIL HF.
simi: 68-72-70