Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
43
Eldi menn muna ekki eftir eins miklu hvassvirði á Þórshöfn
og- Þistilfirði eins og var á þriðjudag. Björgunarsveitarmenn á
Þórshöfn hófu leit að fólki á Ieið í Svalbarð, en það kom þó
fram skömmu seinna. Myndin af þessum kuldalega hesti var
tekin við Svalbarð á dögunum.
Rafmagns-
leysi á
Kópaskeri
Á KÓPASKERI fór að hvessa
upp úr hádeginu á þriðjudag
síðdegis var komið aftakaveður.
Veðrið var verst í nágrenni
kauptúnsins, þar sem þrír bátar
eyðilögðust og útihús skemmd-
ust. Rafmagnið fór af Kópaskeri
og nágrenni um klukkan þrjú á
þriðjudag. Unnið var að viðgerð,
en rafmagnið var ekki komið á
siðdegis í gær. Vonir stóðu þó
til að það tækist fyrir kvöldið.
Litlu munaði að stórtjón yrði í
laxeldisstöð Árlax hf. í Kelduhverfi
vegna rafmagnsleysisins þar sem
illa gekk að koma vararafstöð í
gang. Það tókst þó um síðir. At-
vinnulíf staðarins var meira og
minna lamað vegna rafmagnsleys-
isins og kalt var orðið í húsum.
Árni Sigurðsson á Kópaskeri
sagði að jámplötur hefðu fokið af
hluta af slátur- og frystihúsi Kaup-
félags Norður-Þingeyinga á
Kópaskeri. Einnig hefðu brotnað
rúður á sláturhúsbyggingunni.
Sagði hann að tjóni væri ekki full-
kannað, en það gæti verið um 100
þúsund krónur.
Að sögn Ama varð mikið tjón á
svokölluðum Leirhafnarbæjum á
Melrakkasléttu. Fjárhús skemmdist
mikið á Miðtúni, þakið fauk alveg
af því meðal annars. Heimilisfólkinu
tókst að bjarga kindunum inn í
hlöðu. Einnig fauk fjárhús í Reistar-
nesi, en þar var ekkert fé inni. Þá
fuku öll hús á eyðibýlinu Sæbergi,
íbúðarhús, stór skemma og verk-
stæðishús. Tvær trillur af þremur
í bátalæginu í Leirhöfn ráku upp í
fjöm og eyðilögðust. Einnig hvolfdi
minni bát. Fjórði báturinn stóð
veðurofsann af sér. Þá varð tjón á
húsum hjá laxeldisstöð ÍSNÓ hf. í
Lónum í Kelduhverfi.
Kuldalegt í Þistilfirðinum
Skagafjörður:
Eitt allra versta
veður sem ég man
- segir Jón K. Ólafsson í Haganesi í Fljótum
Hofsósi.
í FLJÓTUM var hið versta veður
í fyrradag, það versta í mörg ár.
Oft er vitnað til veðurs sem gekk
yfir 1966, en þá var veðrið ekki
eins vont og nú, að sögn Önnu
Jónsdóttur á Stóru-Þverá i Fljót-
um. Þakjárn fauk af hlöðu á
Stóru-Þverá, en olli ekki tjóni á
öðrum eignum svo vitað sé. í gær
var þar öskubylur og ekki farið
að kanna neitt um færðina þar
fremra.
Mjög slæmt símasamband er í
Fljótum og sagðist Anna vita að
rafmagnslaust væri á fremstu bæj-
unum, Stíflubæjunum svokölluðu,
sem tengdir eru Ólafsfjarðarlínu.
En ekki er neitt vitað um hvaða
bilanir er þar að ræða.
Að sögn Jóns K. Ólafssonar í
Haganesi í Fljótum var veðrið í
fyrradag eitt það allra versta sem
hann man. Búið var að taka alla
bátana upp áður en veðrið skall á
og vissi hann ekki um neitt tjón á
næstu bæjum. Leiðindaveður hefur
vérið í Fljótum allan liðinn mánuð
og hafa menn ekki enn komist til
að vitja um öll grásleppunet sem
lögð voru 10. mars síðastliðinn. Um
miðjan dag í gær sást ekki út úr
augum í Haganesi og skaflar sem
byijuðu að myndast í fyrradag voru
þá komnir á fjórða metrann.
Illviðrið sem gekk yfir norðan-
vert landið í fyrradag olli ekki tjóni
á Hofsósi. Um miðjan dag versnaði
veður með hvassri norðvestanátt
og snjókomu. í Hofsóshöfn voru
nokkrar trillur og 55 tonna bátur.
Talsverð alda var á flóðinu og
þurfti að binda alla bátana ræki-
lega, þannig að engar skemmdir
urðu í höfninni.
Að sögn Bjöms Mikkaelssonar,
yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki, er
ekki kunnugt um neinar skemmdir
þar og var rólegt hjá lögreglu.
Þungfært var á götum Sauðárkróks
í gær, en allir aðalvegir í héraðinu
færir og einnig var sæmilega fært
frá Sauðárkróki út að Ketilási í
Fljótum.
Ófeigur
Trillubátur sökk í
höfmnni í Þórshöfn
Þórshöfn.
MIKIÐ hvassviðri skall hér á upp
úr hádeginu í fyrradag. Seint um
kvöldið var björgunarsveitin og
lögreglan kölluð út vegna trillu-
bátsins Vals SU, sem var að
sökkva i höfninni. Sökk hann
skömmu eftir að þeir voru komnir
á vettvang. Lögreglan segist ekki
vita um ástæðuna, en ládautt var
í höfninni og ekki mikil ísing þeg-
ar óhappið varð. Eigendur flestra
bátanna voru i bátum sínum um
nóttina. Um hádegið i gær vann
björgunarsveitin við að ná bátmun
upp úr höfninni.
Að sögn lögreglunnar á Þórshöfn
var mjög annasamt hjá lögreglu og
björgunarsveit vegna foks á plötum
og ýmsu lauslegu, en ekki urðu nein
slys á mönnum. Rafmagnið fór af
þorpinu klukkan 16 vegna mikillar
seltu og hefur ÞistilQörður verið raf-
magnslaus síðan. Varavélar voru
keyrðar og var rafmagn komið á
mest allt þorpið um klukkan 4 í fyrri-
nótt. í gær var vonast til.að rafmagn
kæmist á allt svæðið síðdegis.
Klukkan 16.30 var björgunarsveit-
in kölluð út að húsinu Langanesvegur
19, þar sem plötur voru famar að
fjúka af þakinu. Varla var stætt við
húsið, en björgunarsveitinni tókst að
koma í veg fyrir að þakið færi allt
af, en það var farið að losna.
Klukkan 20 var björgunarsveitin
kölluð út til leitar að hjónum sem
fóru frá Þórshöfn rétt fyrir klukkan
16 og ætluðu í Svalbarð sem er um
27 km leið. Veghefill fór á undan
bíl björgunarsveitarinnar, en stuttu
seinna komu hjónin fram í Sval-
barði, heil á húfí.
Vakt var á lögreglustöðinni til
klukkan 5.30 í gærmorgun, en þá
hafði lægt mikið. Eldri menn segjast
ekki muna eftir svona miklu hvas-
sviðri hér um árabil.
Þorkell
Grímsey:
Vindhrað-
inn fór yfir
100 hnúta
Grímsey.
OFSAVEÐUR gekk hér yfir á
þriðjudag. Vindhraðinn sló nokkr-
um sinnum yfir 100 hnúta markið,
sem mun vera um 16 vindstig, á
vindmælinum á flugstöðinni. Þeg-
ar veðrið var sem verst, á milli
klukkan 2 og 3 um daginn, fór
vindhraðinn aldrei niður fyrir 70
hnúta og var þá ekki stætt úti við.
Lítið tjón varð í fárviðrinu. Eitt-
hvað jám fór af gömlum útihúsum.
Rafmagnið fór af vegna þess að
margar heimtaugar slitnuðu. í gær
var unnið að viðgerð, og komst raf-
magnið aftur á hjá flestum.
Alfreð
SIEMENS
SlWAMAT 276
Góð og hagkvæm
þvottavél
#18 þvottakerfi.
# Sparnaðarhnappu r.
•Frjáist hitaval.
•Vinduhraði 600 og 800
sn./mín.
• íslenskur leiðarvísir.
•Gömlu góðu Siemens-
gæðin.
Komið íheimsókn tíl okkar:
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
Nýtt símanúmer:
H)
689900
á Éaílandi, Vatnagörðum 24.