Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Úrslitakeppnin íkörfu:
Meistarataktar er
UMFINI sigraði Val
NJARÐVÍKINGAR unnu örugg-
lega fyrsta lelkinn af þremur
mögulegum gegn Val f úrslitum
um íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik, 84:71, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 41:36.
Leikurinn fór fram f íþróttahúsinu
í Njarðvík í gœrkvöldi og var hrað-
—ur og skemmtilegur, en samt var
~ ieikurinn þrúgaður spennu, sem
setti mark sitt á leikinn.
Valur Ingimundarson, þjálfari
UMFN, var að vonum ánægður
með sigurinn og sagði að hann
hefði verið auðveldur. „Næsti leik-
ur verður örugglega ekki eins
léttur, en við ættum samt að geta
gert betur, því ísak lék ekki méð,
þar sem hann er nýstaðinn upp
úr veikindum og Helgi Rafnsson
lenti fljótt í villuvandræðum og
spilaði því lítið. Við gerum hins
fyrir 1.390.- krónur j
Álafoss værðarvoðir
í fjölbreyttum litum.
Ódýr og skemmtileg gjöf
Verð frá krónum 1.270,-
'
/fllafossbúöin
Vesturgötu 2, Reykjavík S 13404
ULLARFATNAÐUR, GJAFAVÖRUR, GARN
UMFN-Valur
84:71 (41:36)
Iþróttahúsið í Njarðvik, 1. apríl
1987. Fyrsti leikur í úrslitum 1.
deildar i körfubolta.
0:4, 2:4, 2:6, 6:10, 10:10, 12:12,
18:14, 18:18, 24:23, 28:23, 38:26,
41:31, 41:36, 46:44, 68:48, 72:63,
78:63, 80:69, 84:71.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjömsson
25, Valur Ingimundarson 18, Helgi
Rafnsson 10, Kristinn Einarsson 10,
Teitur Örlygsson 10, Hreiðar Hreið-
arsson 9, Friðrik Rúnarsson 2.
Stig Vals: Leifur Gústafsson 17, Torfi
Magnússon 15, Tómas Holton 11,
Sturla Örlygsson 8, Einar Ólafsson
8, Páll Amar 6, Bjöm Zoega 6.
vegar út um mótið í næsta leik ef
við náum upp sömu baráttu,"
sagði Valur brosandi.
Jon West, þjálfari Vals, var ekki
jafnánægður, en benti á að búið
hefði veriö að afskrifa þá í úrslitin
í leikjunum á móti Keflavík og því
skildi varast að afskrifa þá nú.
„Þetta var ekki okkar dagur. Við
vorum óheppnir með skotin og
eins unnu Njarðvíkingar mörg frá-
köst og gerði það út um leikinn.
Eitt er víst að við gefumst ekki
auðveldlega upp og því verður
næsti leikur mikill baráttuleikur."
Valsmenn byrjuðu af meiri krafti
og réðu Njarðvíkingar illa við hraða
Tómasar Holton, sem spilaði fé-
laga sína vel upp. Valsmenn
komust í 4:0 áður en Helgi Rafns-
son kom Njarövíkingum á blað.
Helgi var harður í vörninni og tók
mörg fráköst í byrjum leiksins og
dreif Njarðvíkinga í gang ásamt
Jóhannesi Kristbjörnssyni, en þeim
tókst að jafna 10:10 á 13. mínútu.
Helgi skoraði síðan úr tveimur víta-
köstum og eftir það leiddu
Njarðvíkingar.
Mikil barátta var hjá báðum lið-
um, en er sex mínútur voru eftir
Morgunblaöiö/Kr.Ben.
# Hinn ungi og efnilegi Njarðvíkingur, Teitur Örlygsson, skorar hér
eina af körfum sínum í !<riknum í gærkvöldi. Björn Zoega kemur eng-
um vörnum við.
af hálfleiknum, náðu Njarðvíkingar
góðum kafla, náðu 12 stiga forystu
á þremur mínútum.
í seinni hálfleik komu Valsmenn
grimmlr til leiks og byrjuðu að saxa
á forskot Njarðvíkinga. Munurinn
Evrópukeppni landsliða:
Rush gaf tóninn
IAN Rush gaf Wales tóninn á
8. mínútu, þegar hann skoraði
fyrsta markið í 4:0 sigri gegn
Finnlandi í Wrexham f gær-
kvöldi. Wales skaust þar með á
toppinn í 6. riðli, en Finnland
sftur á botninum.
Wales lék skemmtilega sókn-
arknattspyrnu og Rush skoraði
sitt 13 mark í 31 landsleik. Glyn
Hodges skoraði sitt fyrsta, en
David Phillips og Andy Jones
skoruðu í seinni hálfleik.
Lið Wales: Southall, Blackmore, Van
Den Hauwe (Aizlewood), Ratcliffe, Jac-
kett, Phillips, Nicholas, James, Hodges,
Rush, Jones.
Lið Finnlands: Laukkanen, Pekonen,
Ikalainen, Europaeus, Petaja, Turunen,
Holmgren, Taurainen, Rantenen, Tiain-
en, Hjelm.
varð minnstur tvö stig, 46:44. Eft-
ir það keyrðu Njarðvíkingar upp
hraðann og með góðri vörn og
hittni skóp liðsheildin forskot, sem
Valsmenn réðu ekki við.
Kr.Ben.
Evrópukeppnin:
Staðan
Skíði:
Unglingameistara-
mótið sett í kvöld
UNGLINGAMEISTARAMÓT fs-
lands á skíðum verður haldið í
Hliðarfjalli við Akureyri um helg-
ina. Mótið verður sett í Akur-
eyrarkirkju f kvöld kl. 19.00 og
keppni hefst svo kl. 9.30 f fyrra-
málið.
Keppendur á mótinu verða um
150 og er þetta því næst stærsta
skíðamót sem haldið er hér á landi,
á eftir Andrósar-andar leikunum.
Flestir eru frá Reykjavík, 36, 33
keppendur eru frá Akureyri og 30
frá Isafiröi.
Eins og áður sagði hefst keppnl
í fyrramálið kl. 9.30 með keppni í
stórsvigi drengja 15-16 ára. Síöan
keppa stúlkur í sama flokki í svigi,
þá stúlkur í 13-14 ára flokki í svigi
og síðan kl. 11.00 hefst fyrri ferð
í stórsvigi drengja 13-14 ára.
Klukkan 11.00 á morgun hefst
keppni í göngu. Keppni heldur
áfram á laugardag og sunnudag
og mótsslit veröa kl. 15.00 á
sunnudag í veitingahúsinu Svart-
fugli.
1. riðill: Spánn 3 3 t 0 C I 6: 3 6
Rúmenía 3 2 i 0 1 9: 2 4
Austurríki 3 1 0 2 I 5: 7 2
Albanía 3 C i 0 3 i 2:10 0
2. riðill: Ítalía 4 4 0 0 11: 2 8
Svíþjóð 3 2 1 0 8: 1 5
Portúgal 4 0 3 : 1 4: 5 3
Sviss 3 0 1 2 3: 6 1
Malta 4 0 1 3 2:14 1
3. riðill: Sovétríkin 3 2 1 0 7:1 5
A-Þýskal. 3 . 1 2 0 2:0 4
ísland 3 0 2 1 1:3 2
Frakkland 3 0 2 1 0:2 2
Noregur 2 0 1 1 0:4 1
4. riðill: England 3 3 0 0 7:0 6
Júgóslavía 2 1 0 1 4:2 2
Tyrkland 2 0 1 1 0:4 1
N-írland 3 0 1 2 0:5 1
5. riðill: Grikkland 4 3 0 1 10:6 6
Holland 3 2 1 0 3:0 5
Pólland 2 1 1 0 2:1 3
Ungverjal. 2 0 0 2 1:3 0
Kýpur 3 0 0 3 3:9 0
6. riðill: Wales 2 1 1 5:1 3
Tékkóslóv. 2 1 1 0 3:0 3
Danmörk 2 1 1 0 1:0 3
Finnland 4 0 1 3 1:9 1
7. riðill: Belgía 4 2 2 0 13:4 6
Búlgaría 3 1 2 0 3:2 4
frland 4 1 2 1 4:4 4
Skotland 5 1 2 2 ‘4:5 4
Lúxemb. 2 0 0 2 0:9 0