Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Óveðrið á Norðurlandi:
Húsavík:
Þakgluggi fauk
í gegn um úti-
hurð á íbúðarhúsi
Straumnesi í Aðaldal.
í ÓVEÐRINU, sem gekk yfir
Norðausturland á þriðjudags-
kvöldið, fauk þakgiuggi af
nýbyggðu verkstæðishúsi véla-
verkstæðisins Foss á Húsavík á
nærliggjandi íbúðarhús. Fór
hann í gegnum útidyrahurð og
hafnaði þar inni á gangi. Enginn
varð fyrir glugganum, en
skemmdir urðu nokkrar.
Óveðrið, sem brast á á þriðju-
„Sæluvikuveðrið“
bregst ekki:
Tvær Norður-
leiðarrútur
veðurtepptar
í Varmahlíð
Varmahlíð.
TVÆR rútur frá Norðurleið á
leið til Akureyrar stöðvuðust hér
í Varmahlíð í vonskuveðri í
fyrradag. Voru þær fullar af
farþegum, mest nemendum á leið
til skóla á Akureyri eftir verk-
fall kennara. Fólkið fékk gist-
ingu í Hótel Varmahlíð, á
Óöngximýri og í heimahúsum.
Um miðjan dag í gær var óvíst
hvenær tækist að opna veginn
til Akureyrar.
Vonskuveður hefur geysað hér í
Skagafirði síðan í fyrradag og í gær
var enn hávaðarok og mikil snjó-
koma, sem reyndar er óvenjulegt
hér í miðju héraði. Fært er hér um
vel flesta vegi og komu öll börn í
skóla í Varmahlíð í gærmorgun á
venjulegum tíma.
Sæluvika Skagfirðinga stendur
nú yfir og segja gárungarnir að það
bregðist ekki sæluvikuveðrið. Svo
sem undanfarin ár ætla kórarnir í
héraðinu, Karlakórinn Heur.ir og
Rökkurkórinn að halda mikla söng-
sfcemmtun í Miðgarði næstkomandi
laugardagskvöld í tilefni af Sælu-
viku. Nú fá þeir til liðsauka tvo
kóra. Karlakór Selfoss kemur hér
við á söngferð og síðast en ekki
síst verður hér staddur blandaður
kór frá Osló. Svo með sanni má
segja að hér verður hálfgert kóra-
mót nk. laugardagskvöld ef veður-
guðirnir setja ekki strik í reikning-
inn. pD
dagsmorguninn, var norðvestan
stórhríð og stóð það linnulaust fram
yfir miðnættið. Veðurhæðin var
gífurleg. Á Mánárbakka á Tjömesi
fór vindhæðin langt yfír 12 vindstig
í verstu kviðunum. Þar fuku þak-
plötur af fjósi og heyhleðsluvagn
tókst á loft og brotnaði í spón.
Sagði Aðalgeir Egilsson bóndi þar
að hann myndi ekki eftir svona
langstæðu ofsaroki af norðvestri.
Tjón í óveðrinu varð mest á
Húsavík. En eftir því sem best er
vitað verulega minna annars staðar
í sýslunni. Á Húsavík fauk þakið
af umferðarmiðstöð kaupfélagsins
og hafnaði á húsum bókaverslunar
Þórarins Stefánssonar. Tjón á hús-
unum virðist ekki vera mikið.
Þá slitnaði frá bryggju danskt
flutningaskip, Lousea, sem er leigu-
skip í saltflutningum. Rak það inn
í höfnina og strandaði þar. I leið-
inni rakst skipið á tvo báta og braut
bólverkið á gömlu timburbryggj-
unni. Stefnið á skipinu er mikið
dældað og sjálft er skipið vélar-
vana. Enn er ekki Ijóst hvað tjónið
er mikið. Skipið var enn á strand-
stað síðdegis í gær og verður það
ekki hreyft fyrr en í betra veðri.
Einnig slitnaði upp dæluprammi frá
Slippstöðinni en honum tókst að
bjarga án skemmda. Þakið fauk af
sorpeyðingarstöðinni og minnihátt-
ar tjón varð af foki lausra muna
víða í bænum.
St.Sk.
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Raflínustaurarnir kubbuðust í sundur og línan liggur á jörðinni, eins og sést á þessari mynd sem tekin var
í gær.
Jökulsárhlíð:
68 rafmagnsstaurar
kubbuðust í sundur
Tjónið 10-15 milljónir kr.
Egilsstöðum.
í OVEÐRINU sem gekk yfir stæður, 68 staurar alls, í
landið brotnuðu 34 staurasam- háspennulínunni sem liggur frá
Hríðarteppt við Ljósavatn:
Biðin í bílunum
var fólkinu erfið
Straumnesi í Aðaldal.
ÓTTAST var um fólk á leiðinni
á milli Húsavíkur og Akureyrar
í stórhríðinni á þriðjudagskvöld-
ið. Björgunarsveitir í Suður-
Þingeyjarsýslu voru kallaðar út
til leitar og fundust bílarnir við
Ljósavatn upp úr klukkan 23, og
var hluti fólksins þá búinn að
vera þar i tæpar 9 klukkustund-
Ofsaveður í Öxarfirði:
Rafmagnslaust í
tíu klukkustundir
Skinnastad, Öxarfirdi.
OFSAVEÐUR af vestsuðvestan
með ofanhríð og skafbyl gekk
yfir Oxarfjörð frá hádegi á
þriðjudag framundir hádegi á
miðvikudag, en fór þá að slota
nokkuð. Rafmagnslaust varð í
um 10 klukkustundir og síma-
samband slitrótt um tíma.
Nokkrir skaðar munu hafa orðið
á mannvirkjum en ekki eru öll
kurl komin til grafar.
Veður var stillt að morgni þriðju-
dags en brast á um hádegi á með
ofsaroki og blindbyl. Þetta var
vest-suð-vestan veður. Rafmagn fór
um kl. 3.00 aðfaranótt miðvikudags
og var rafmagnslaust í öllu hérað-
inu til kl. 13.00. ísingu í spennistöð
vegna sjóroks er kennt um. Var
víða mjög kalt í húsum þar eð frost
var 5-8 gráður og Ijóslaust um nótt-
ina.
Allnokkrir skaðar munu hafa
orðið, meðal annars munu þakplöt-
ur hafa fokið af húsum, gluggar
brotnað og trillubátur skemmst eða
sokkið. Skaðar eru ekki enn full-
kannaðir. Um hádegi á miðvikudag
fór veðrinu að slota. Ennþá er þó
VNV hríðarveður með vægu frosti.
Snjó hefur dregið saman í háa
skafla en lítið er vitað um færð á
vegum. Þetta er versta stórviðri
sem hér hefur komið í mörg ár.
Sigurvin.
ir. Biðin í bílunum var fólkinu
erfið og var það orðið kalt og
hrakið þegar björgunarmenn á
snjóbíl úr Fnjóskadal fundu það.
Umræddir bílar voru fóðurflutn-
ingabíll frá kaupfélaginu á Húsavík
á leið frá Akureyri og jeppabifreið
sem snúið hafði við á leiðinni til
Akureyrar. Báðir þessir bílar lentu
út af veginum og voru bílstjórarnir
einir í þeim. Þriðji bíllinn var
Bronco-jeppi, sem í voru ung hjón
á leið frá Ákureyri austur í Aðaldal.
Þau fóru frá Akureyri klukkan
14.30 um daginn. í samtali við
fréttaritara sögðust þau hafa kom-
ist við illan leik yfir Víkurskarð,
eftir tveggja tíma ferð og héldu þá
að nú væri björninn unninn. Þau
létu vita af sér á Víðivöllum, sem
er fyrsti bær sem komið er að aust-
an Víkurskarðs. Þeim gekk nokkuð
vel austur Ljósavatnsskarðið, þrátt
fyrir stórhríðina. Þegar kom að
Ljósavatninu var veðurhæðin og
hríðin svo mikil að engin leið var
að sja niður á þjóðveginn úr bílnum,
að sögn þeirra hjóna og urðu þau
því að láta fyrirberast þar sem þau
voru niðurkomin. Þá var klukkan
um 18.30 um kvöldið.
Þau sögðu að biðin í bílunum
hefði verið fólkinu erfið, þar sem
illa gekk að halda bílunum gang-
andi, en snjór skóf stöðugt inn á
vélarnar. Fólkið var því kalt og
hrakið þegar það fannst. Þegar
snjóbíllinn fann bílana voru ekki
nema 10 metrar á milli þeirra, en
svo hafði hríðir. verið þétt að þeir
vissu aldrei hveijir af öðrum.
Fólkið í bílunum biður fyrir þakk-
ir til allra þeirra sem tóku þátt í
leitinni.
St.Sk.
Lagarfossvirkjun til Vopna-
fjarðar. Staurar þessir brotn-
uðu þar sem línan liggur um
Jökulsárhlíð, frá Héraði til
Vopnafjarðar. Staurarnir
þverkubbuðust í sundur, frá
mannhæð og upp eftir staurun-
um. Línan liggur á jörðinni á
löngum kafla og hangir brakið
af efsta hluta stauranna á
línunni.
Lína þessi er tiltölulega ný og
þar sem staurarnir brotnuðu er
láglent. Er veðurhæð kennt um
en ekki ísingu, eins og þó er al-
gengast þegar raflínustaurar
brotna.
Að sögn Erlings Garðars Jónas-
sonar, umdæmisstjóra RARIK á
Austurlandi, er áætlað að viðgerð
taki um 10—12 daga, og kostnað-
ur verði 10—15 milljónir. Vararaf-
stöð er á Vopnafirði og fullnægir
hún raforkuþörf Vopnfirðinga.
Björn
Bflalest í hrakniiignm
á Vatnsskarði eystra
Egilsslöðuni.
BÍLALEST með fjórum vörubíl-
um sem voru að flylja bensín,
olíuvörur og ýmsar aðrar vörur
til Borgarfjarðar eystri, ásamt
einum jeppa, lenti i hrakningum
á Vatnsskarði í óveðrinu sem
gekk hér yfir á þriðjudag.
Vegurinn til Borgarfjarðar er
opnaður á þriðjudögum og er það
jarðýta sem Vegagerðin hefur
staðsett í Borgarfirði, sem annast
snjóruðning á þessari leið. Vegna
mikillar ófærðar nú ákvað Vega-
gerðin á Egilsstöðum að senda
vörubíl með plóg frá Egilsstöðum
á móti Borgarfjarðarýtunni. Þessi
snjóruðningstæki mættust um
klukkan 16. I sama mund gerði
aftakaveður á þessum slóðum og
urðu bílar og snjóruðningstæki
viðskila. Bíllinn með plóginn komst
ásamt tveimur vörubílum til Borg-
arfjarðar, en ýtan, vörubíll ogjeppi
tepptust Héraðsmegin við Vatns-
skarð. Þegar vörubílstjórarnir
voru búnir að ljúka erindi sinu í
Borgarfirði héldu þeir aftur á
Skarðið, en festu sig í Sprengi-
brekkum. Skildu þeir tvo bíla eftir
en sneri við á einum og gistu í
Borgarfirði í fyrrinótt.
Bílarnir sem urðu eftir Héraðs-
megin voru sambandslausir í 5
klukkustundir. Klukkan 21 var
björgunarsveitin á Egilsstöðum
kölluð út og náði hún sambandi
við vörubílinn. Var hann þá orðinn
viðskila við jeppann en í honum
voru tveir menn. Björgunarsveit-
armennirnir fundu jeppann og
mennina heila á húfi og kom þeim
í húsaskjól á Unaósi, en það er
næsti bær við Vatnsskarð Héraðs-
megin. í gær gekk veðrið niður
og var byijað á að opna ieiðina á
ný, svo allir kæmust til síns heima.
Mennirnir sem gistu á Unaósi ko-
must yfir Skarðið í gær.
Björn