Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Sjónvarpsturninn hái. Þar er
liægt að fá sér kaffi í veitinga-
stað, sem er i tæplega 140 m hæð
og snýst í heilan hring á hveijum
klukkutíma.
Frá Hamborg. Innra Alster-vatn fjær. Ráðhúsið til vinstri í forgrunni.
Hamborgaireisa
líta þessa dugnaðarlegu snyrti-
mennsku, sem einkennir borgina.
Það er fátt um gamlar og sögu-
legar byggingar. Þær elstu eru
flestar frá ofanverðri síðustu öld
eða öndverðri þessari. Hamborg
hefur orðið fyrir tveimur stóráföll-
um, sem valda því. Árið 1842 varð
þar stórbruni, sem eyddi mestalla
miðborgina. Og í heimsstyijöldinni
síðari voru um 300.000 hús jöfnuð
við jörðu í loftárásum Bandamanna
1943-45. Um 50.000 borgarbúa
létu þá lífið.
Þó getur enn að líta nokkra
virðulega öldunga meðal húsa þess-
arar ungu borgar.
Alstervatn, djásn miðborgarinnar.
ar taka við, strax og vorar.
Frá síðari tímum er þá ógetið
allra þeirra íslensku farskipa og
veiðiskipa, sem siglt hafa til Ham-
borgar í því skyni að heimta vörur
og flytja þangað fiskmeti. Þeir eru
því orðnir margir sjómennimir okk-
ar, sem gengið hafa um götur og
stræti í þessari borg.
☆
Því fer þannig fjarri, að áætlun-
arferðir Amarflugs til Hamborgar
séu fyrstu beinu tengslin milli Ham-
borgara og íslendinga. Það er miklu
fremur undmnarefni, hvers vegna
slíkt samband var ekki orðið að
veruleika fyrir löngu.
Menningarborg
Borgin, sem við fengum að kynn-
ast í svip í góubyijun, er nútímaleg
verslunarborg, gróskumikil iðnað-
arborg og ein mesta hafnarborg
Evrópu. En þar er eftir mörgu fleira
að slægjast en verslun og viðskipt-
um eða fjölskrúðugu næturlífi.
Hamborg, sem fóstrað hefur tón-
skáldin Brahms og Hándel og
orðlistarmennina Heine, Klopstock
og Lessing er einnig mikil menning-
arborg. Þar er tvö óperahús, tvær
sinfóníuhljómsveitir, tuttugu leik-
hús (þar af eitt sem hefur daglegar
sýningar á enskri tungu), auk þess
sem þar era starfandi fjölmargir
sjálfstæðir leikhópar. I borginni era
vel búin listasöfn, gallerí, sérsöfn
af ýmsu tæi, sérstæður dýragarður
(Hagenbeck) og margs konar
grasa-, plöntu- og skrúðgarðar og
Þegar það er á ís morar þar allt af
græn svæði (um þriðjungur Ham-
borgarsvæðisins er gróið land).
Borgin er paradís fyrir sælkera (yfír
2000 veitingastaðir) og ekkert lát
á hvers kyns skemmtunum og uppá-
komum. Þá era Hamborgarar
þekktir fyrir að hafa gaman af að
gera sér dagamun, enda setja
margvísleg hátíðahöld sterkan svip
á borgarlífíð allan ársins hring.
Samgöngur innan borgarinnar
era með sérstökum ágætum, bæði
ofan- og neðanjarðar, svo að auð-
velt er að komast á milli borgar-
hluta. Auk þess liggur borgin vel
við ferðalögum í allar áttir og í
næsta nágrenni er fjöldi hnýsilegra
staða.
Ung eftir aldri
Þegar við komum til Hamborgar
á fímmtudeginum, eftir millilend-
ingu í Amsterdam, er milt veður,
en fremur svalt að mati okkar, sem
komum úr vorinu heima á Islandi.
Þó er lofthitinn aðeins sjónarmun
neðan við frostmarkið. Halldór Sig-
urðsson, deildarstjóri hjá Amar-
flugi, er leiðtogi hópsins og kynnir
okkur fyrir leiðsögumanninum,
Helgu Haas, sem á eftir að hafa
veg og vanda af dvöl okkar í borg-
inni.
Á föstudagsmorguninn er hlýrra
í veðri og þokuslæðingur liggur
yfír borginni. Þetta era ekki heppi-
legustu aðstæður til skoðunarferð-
ar. Við ökum umhverfis Alstervatn,
djásn miðborgarinnar. Þegar það
Hjarta efnahags-
lífs borgarinnar
Áð er á veitingahúsinu Úbersee-
briicke við höfnina, og gott tækifæri
gefst til að horfa á skipin, sem líða
hjá. Höfnin er hjarta efnahagslífs
borgarinnar og er sér kapítuli út
af fyrir sig. Þetta er risavaxin al-
þjóðahöfn og þangað koma allt að
18.000 skip ár hvert. Um 20% af
öllum innflutningi Sambandslýð-
veldisins fara þama um. Höfnin
tekur yfír 16 km svæði beggja
vegna Saxelfar, og hafnarbakkamir
eru um 64 km langir. En það sem
gerir þetta sérstakt, er, að þessi
höfn er meira en hundrað kílómetra
inni í landinu. Siglingin upp Saxelfí
frá Norðursjó tekur um 5-6 klukku-
stundir.
Höfnin gegnir veigamiklu hlut-
verki fyrir Austur-Evrópuríkin. T.d.
umskipa Sovétmenn þar öllu
Bandaríkjakominu, og höfnin er
aðalútflutningshöfnTékkóslóvakíu.
Ekki verður annað sagt en þessi
gamla höfn beri aldurinn vel, því
að hún á 798 ára afmæli í maímán-
uði næstkomandi.
Við ökum um hafnarsvæðið og
ftíhöfnina og föram í stutta sigl-
ingu.
Á leiðinni heim skoðum við ráð-
stefnumiðstöð borgarinnar, geysi-
stórt hús, og í nokkurra tuga metra
fjarlægð þaðan er fimamikil vöra-
sýningahöll.
Cutton Club
Um kvöldið er snætt í veitinga-
húsinu Fleetenkieker. Það á að vera
skautafólki, en siglingaríþróttirn-
er á ís, morar þar allt af skauta-
fólki, segir leiðsögumaðurinn. En
siglingaíþróttimar taka við strax
og vorar. Vatnið er aldagamalt
stíflulón frá ánni Alster, þverá Sax-
elfar, og skiptist í Innra og Ytra
Alster.
Tijágróður er áberandi. Víða má
sjá vinaleg síki og skurði, en þau
eru þó fá miðað við það sem var
fyrir stríð. Brýr era hreint um allt,
enda er okkur sagt, að þær séu
yfir 2100 talsins, fleiri en í nokk-
urri borg í Evrópu, þar af tæplega
helmingur yfír vatn. Og það er sama
hvert litið er, alls staðar getur að
ARNARFLUG hefur
beinar áætlunarferðir
til Hamborgar núna í
aprílmánuði. Af því
tilefni bauð félagið níu
íslenskum blaða- og
sjónvarpsmönnum í
fjögurra daga
kynnisferð - frá 26.
febrúar til 2. mars - til
þessarar aldagömlu
Hansaborgar við
Saxelfi. Ferðamálaráð
borgarinnar sá um
uppihald og leiðsögn.
HHH
»’ i-i’i-ri i
Trúboðsmiðstöð
og biskupssetur
Hamborg rekur byggðasögu sína
jafnlangt aftur og Island, eða til
öndverðrar 9. aldar, en þá lét Karl
mikli Frankakonungur reisa virki
eitt mikið á hæðardraginu milli
ánna Saxelfar og Alsters og nefndi
Hammaburg (vegna skóglendisins
sem umlukti staðinn, segja sumir,
af Hamme=skógur). Hammaburg
var varnarvirki gegn Slövum, og
þar var komið á fót trúboðsmiðstöð
og biskupssetri í því skyni að
kristna Dani og Saxa.
Hamborgarar um
svifamiklir hér
á landi fyrr meir
Hamborg varð ein helsta við-
skipta- og athafnaborg Norður-
Evrópu á blómaskeiði Hansabanda-
lagsins á 14. og 15. öld. í þessum
félagsskap norður- þýskra borga
var Hamborg í fararbroddi ásamt
Liibeck og Bremen.
A áranum 1420-40 héldu Ham-
borgarar uppi beinum og reglu-
bundnum siglingum til Íslands, og
síðan aftur, eftir nokkurt hlé, frá
1475 og allt þar til einokunarversl-
un Dana hófst hér á landi 1602.
Jafnframt umfangsmikilli versl-
un stunduðu Hamborgarar einnig
útgerð hér á landi (í samvinnu við
íslendinga) og höfðu aðalbækí-
stöðvar sínar í Hafnarfirði og á
Rifi á Snæfellsnesi. Öttu þeir löng-
um kappi við Englendinga, sem
gerðu sig heimakomna hér bæði í
verslun og veiðiskap.
Hamborgarar seldu Islendingum
margvíslegan vaming, m.a. mat-
vörur, kom, smjör, bjór og vín, alls
kyns fatnað, jámvörur og veiðar-
færi. I staðinn keyptu þeir skreið,
vaðmál, skinn, brennistein og fálka.
Hamborgarar urðu einna fyrstir
til að flytja Islendingum lúterskan
sið. Enn fremur stunduðu margir
íslenskir siðaskiptafrömuðir nám í
Hamborg og fluttu með sér áhrifín
út til íslands. í þessum hópi var
Gissur Einarsson, fyrsti lúterski
biskupinn í Skálholti.
Hamborgarar reistu kirkju á
Háagranda í Hafnarfírði, og var
hún við lýði fram yfír aldamótin
1600.
í góubyrjun