Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1987
55
leiksgildi þessara sagna. Við vorum
þá að horfa á nútímasöltun í frétta-
tíma sjónvarps og ég spurði:
„Hvernig líst þér á þessi vinnu-
brögð?“ „Það er hörmung að sjá,“
svaraði hann, „þetta verður aldrei
matur.“ Það hefur eftir gengið, því
íslenska saltsíldin er ekki lengur
eftirsótt gæðavara eins og hún einu
sinni var.
Lífshlaup Guðbjarna verður ekki
rakið nema getið sé um leið hennar
Guðnýjar sem var hans lífsföru-
nautur. Hún er látin fyrir nokkrum
árum. Þau lifðu í hamingjusömu
hjónabandi í 60 ár og eignuðust
ellefu böm, en af þeim létust tvö
þeirra ung. Hin níu uxu úr grasi
og tengjast þau og þeirra niðjar
flestum stéttum þjóðfélagsins.
Það var ekki alltaf auðvelt að sjá
fyrir svo stómm barnahópi þegar
heimilisfaðirinn er langdvölum fjar-
verandi í tekjuleit. Á síldarleysis-
árum voru tekjur rýrar eins og eitt
árið þegar húsbóndinn kom aðeins
heim með 25 krónur eftir allt sum-
arið. Þá var engin tekjutrygging. Á
slíkum erfiðleikaárum reyndi mikið
á hagsýni og þrek húsmæðranna.
Á Akranesi áttu flestar stórar fjöl-
skyldur bústofn sem nærði fjöl-
skylduna og svo kartöflugarða sem
voru flestum tekjustofn.
Guðný stjómaði búskapnum af
miklum myndarskap í löngum flar-
verum bónda síns. Það var erfitt
starf við slíkar aðstæður en Guðný
var líka einstök. Eins og maður
hennar vom þau bæði sístarfandi
umhyggjusamir foreldrar sem létu
sér ætíð mjög annt um velferð
bama sinna, tengdabarna og af-
komenda allra.
Jafnræði var með þeim hjónum,
Kennaraháskóli íslands:
Fyrirlestur
Kennaraháskólinn gengst fyr-
ir umræðufundi í dag, fimmtu-
dag, 2. apríl, i stofu 201 í
Kennaraháskólanum. Þar verður
fluttur fyrirlestur: „Úr kennara-
skóla í kennarastarf — úr
öskunni i eldinn. Hvernig skila
kennaranemar sér til kennslu-
starfa að námi loknu? Hvers
konar leiðsögn og stuðning fá
kennarar, sem hefja störf í
íslenskum skólum?“ og er frum-
mælandi Siguijón Mýrdal
kennslustjóri.
ESAB
Rafsuðutæki
vír og
fylgihlutir
Nánast allt til
rafsuðu.
Forysta ESAB
ertrygging
fyrirgæðum
og góðri þjónustu.
Allartækni-
upplýsingar
eru fyrirliggjandi
ísöludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2,
SlMI24260
ESAB
þau voru ákveðin í skoðunum og
höfðu mikinn áhuga á landsmálum,
en í stjórnmálum voru þau ekki allt-
af sammála. Bóndinn í Guðbjarna
laðaði hann að framsóknarstefn-
unni og er ég ekki frá því að honum
hafi stundum þótt miður hve rök
hans fyrir þeirri stefnu fengu lítinn
hljómgrunn í jafnaðarmanninum
henni Guðnýju.
Þau hjón voru samrýnd mjög þó
ekki hefðu þau sömu stjómmála-
skoðun. Þannig treystu umræða og
skoðanaskipti fólks við sjávarsíðuna
andlegt sjálfstæði einstaklingsins
og hjálpaði honum að halda reisn
sinni þrátt fyrir erfíðleika og fá-
tækt. En það er einmitt þetta
andlega sjálfstæði sem hjálpað hef-
ur Islendingum að halda reisn sinni,
því þó þeir byggju oft við sárustu
neyð létu þeir ekki bugast.
Guðbjarni er sannur fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem aldrei lét
bugast og barðist af elju fyrir betri
atvinnutækifærum og þeim félags-
legum umbótum sem við njótum öll
í dag.
Við hyllum í dag baráttumann
framfaraþjóðfélags okkar á níræð-
isafmæli hans.
Margrét Þorvaldsdóttir
maaBBmt
626 GLX SEDAN
Allir MAZDA 626 af árgerð 1987 voru uppseldir, en okkur
hefur tekist aö fá til viðbótar nokkra af þessum úrvalsbílum
og verða þeir til afgreiðslu í byrjun maí.
Eftirfarandi gerðir koma:
626 1. 6L LX 4 dyra Sedan 5 gíra
626 1.6L LX 5 dyra Hatchback 5 gíra
626 2,OL GLX4 dyra Sedan 5 gíra/vökvastýri/rafm.rúður
626 2,OL GLX 4 dyra Sedan sjálfsk./vökvastýri/rafm.rúður
626 2.0LGLX 5dyra Hatchback 5gíra/vökvastýri/rafm.rúður
626 2.0L GLX 5dyra Hatchback sjálfsk/vökvastýri/rafm.rúður
Athugið að aðeins kemur takmarkað magn af hverrigerð.
TRYGGIÐ YKKUR ÞVÍ BÍL STRAXH
Nýfustu ftétörU
Það linnir ekki verðlaununum, sem MAZDA 626 fær út í
hinum stóra heimi. NÚ FJÓRÐA ÁRID í RÖÐ kusu
lesendur hins virta þýska bílatímarits ,,AUTO MOTOR
UND SPORT" MAZDA 626 „HEIMSINS BESTA BÍL“ í
sínum flokki. Á annað hundrað þúsund lesendur tóku
þátt í þessari árlegu kosningu. Betri meðmæli fást því
ekki!!
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 1—5
BlLABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 68-12-99