Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 5

Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 5 Á von á að við stöndum upp með samning eftir tvo daga segir Einar Olafsson formaður Starfsmannafélags ríkisstofana „ÉG á von á því að eftir þennan dag og tvo í viðbót stöndum við upp með samning sem við leggj- um fyrir okkar félagsmenn," sagði Einar Ólafsson formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana í samtali við Morgunblaðið í gær. Þá stóð yfir samningafundur fé- lagsins við fjármálaráðuneytið um heildarkjarasamning félags- ins á þeim grundvelli sem , Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra bauð á þriðjudagskvöldið þar sem tekið var sérstaklega tillit til mála sjúkraliða innan félagsins. Sjúkraliðar frestuðu uppsögnum , sínum á ríkisspítulunum, sem tóku gildi á miðnætti aðfaranótt mið- vikudags, um 3 daga að tilmælum Einars Ólafssonar og Haralds Hannessonar formanns Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar en starfsmannafélögin fara með samn- 1 ingsrétt Sjúkraliðafélagsins. Starfs- mannafélag ríkistofnana samþykkti f síðan að freista þess að gera heild- arkjarasamning við ríkið á grund- velli tilboðsins á þeim þremur dögum sem frestur uppsagnanna náði til. Tilboð fjármálaráðherra gekk út á að setja fram ramma um sam- komulag við Starfsmannafélag ríkisstofnana sem yrði til tveggja ára og meðallaunahækkun til fé- lagsmanna yrði í kringum 20% á samningstímanum svipað og þau félög sem ríkið hefur samið við unanfarið hafa fengið. Innan þessa ramma er síðan gert ráð fyrir ýms- um úrbótum og meiri launahækkun til sjúkraliða en annara félags- manna SFR, meðal annars er þeim boðin 34.250 króna lágmarkslaun en krafa sjúkraliða var um 35.000 króna lágmarkslaun. Með því að samþykkja viðræður á þessum nót- um voru bæði SFR og ríkið að viðurkenna sérstöðu sjúkraliða inn- an félagsins. Verið að bera saman bækur við Reykjavíkurborg og Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar um gerð svipaðs samnings en formaður starfsmannafélagsins fylgdist með viðræðunum á þriðju- dagsnóttina. Einar Ólafsson sagði að Starfs- mannafélag ríkisstofnana sæi auðvitað vissa agnúa á að taka sjúkraliðana út úr á þennan hátt. Hinsvegar heyrðist sér á sinni samninganefnd að hún væri nokkuð sátt við samkomulagið í heild og því rétt að færa grunninn þannig út að hægt sé að gera samning úr honum og leggja hann svo í dóm félagsmanna. Einar sagði að heildartilboðið væri mun hærra en áður hefði ve- rið tekið í mál af ríkisins hálfu og launataflan gæfi dágóða hækkun. „Ég er ekki að segja að allir verði ánægðir með hana en við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að það er ekki hægt að gera samning sem sprengir allt upp í þjóðfélag- inu,“ sagði Einar Ólafsson formað- ur Starfsmannafélags ríkisstofnana að lokum. Morgunblaflið/Júlíus Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og Sigriður Kristinsdóttir fulltrúi sjúkraliða í samninganefnd SFR, takast í hendur klukkan 3.15 aðfaranótt þriðjudagsins þegar sjúkraliðar höfðu fallist á að fresta upp- sögnum sínum um 3 daga. ‘óW&m FACITsmDl \ y Ú’rr -'c • * ' :r 'r- •• > »•* .*•' .*.•' 'i' v-.'- ^ v-*.. \ \ V ' • 1, : cccc-:: 1 \ Já, það komast fáir í fótspor Facit. Enn er Facit feti framar, nú með nýja ritvél. Sérfræðingar Facit hafa hannað þessa afburða ritvél sem byggð er á langri hefö og nýjustu tækni. Líttu við því sjón er sögu ríkari. Við fullyrðum að verð og gæði koma svo sannarlega á óvart. Okkar þekking í þína þágu. GISLI J. JOHNSEN SF. Nýbýlavegi 16. Sími 641222 H 1 ERICSSON * Information Systems

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.