Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 9 ÁRLEGA 1.008.000 kr. SKATTFRJÁLSAR TEKJUR SÖLUGENGI LÍFEYRISBRÉFA 2. APRÍL 1987: Lífeyrisbréf kr. 1.002,- SÖLUGENGI EININGABRÉFA 2. APRÍL 1987: Einingabréf 1 kr. 1.992,- Einingabréf 2 kr. 1.191,- Einingabréf 3 kr. 1.225,- KAUPÞiNG HF Húsi verslunarinnar • sími 68 69 88 Sölustaður Lífeyrisbréfanna er hjá Kaupþing hf. Landsmenn ótt- ast vinstri stefnu segir forsætisráðherra Kína Prkinjf, R«ut«r. ZHAO Zhiyang, forsætísráðherra Kina, hét þvf í gær að Kínverjar yrðu ekki leiddir aftur inn á veg vinstrimennsku og að pólitiskar fjðldahreyftngar yrðu ekki mynd- aðar þvi allir væru á mótí þeim. Zhao tjáði fulltrúum frá Hong Kong og Macao, sem eru í heimsókn í Peking, að sú atlaga, sem nú væri gerð að vestrænum hugmyndum, myndi ekki þróast upp í Qöldahreyf- ingu. Hefðu Kínvetjar lært af reynslunni í baráttunni gegn „and- legri mengun" [vestrænu lífemi] árið 1983. „Almennur stuðningur við vinstri stefnuna er hverfandi í Kína vegna þess að við höfum flestir verið fóm- arlömb hennar,“ sagði Zhao, og mun þar hafa átt við menningarbylting- una á árunum 1966-76 er tugþús- undir manna voru ofsóttar. „Vinir okkar f ríkjum kapítalista, félagar okkar f Hong Kong og Macao, verkamenn og aðrir, sem þátt taka f umbótum, óttast allir stjómmálabaráttu. Ég get ekki full- yrt að allt verði slétt og fellt meðan á umbótum stendur. En því get ég lofað að Kína stafar ekki lengur hætta af vinstri mönnum, því allir óttast þá,“ sagði Zhao. Tékkóslóvakia: Krefjast afsagnar Husaks „Það kvað vera fallegt fKína . . .“ „Almennur stuðningur við vinstri stefn- una er hverfandi í Kína vegna þess að við höfum flestir verið fórnarlömb hennar." Það er sjálfur Zhao Zhiyang, forsætisráðherra Kína, sem þannig kemst að orði þegar hann ávarpar fulltrúa frá Hong Kong og Macao (sem senn verða hluti af kínverska ríkinu). Frétt af þessu tagi hlýtur að koma við hjart- að á íslenzkum vinstri mönnum. Reynslan af vinstri stefnu er ein og söm, hvort heldur er á austur- eða norðurhveli jarðar. Staksteinar fjalla í dag annars vegar um loforð kínversks forsætisráðherra en hins vegar um heimaslóðir. Loforð Zhao Zhiyang! Samkvæmt Reuters- frétt í Morgunblaðinu í gær leggur Zhao Zhiy- ang, forsætisráðherra Kína, áherzlu á tvennt, þegar hann ávarpar full- trúa frá tveimur velmeg- unarsvæðum i S-Asíu; smárflgum, sem til stend- ur að sameinist Kina. * í fyrsta lagi: „Stuðn- ingur við vinstri stefnu sé hverfandi i Kína, vegna þess að við höfum flestir verið fómarlömb hennar.“ * í annan stað: „Þvi get ég lofað að Kina stafar ekki lengur hætta af vinstri mönnum, þvi allir óttast þá.“ Reynslan af róttækum sósialisma hefur hvar- vetna verið ein og söm, skert mannréttindi og lakari lífskjör en i sam- keppnisrflgum. Það gildir einu hvort borið er niður i Sovétrflgunum, „leppríkjum" A-Evrópu, Kina, Víet-Nam, Eþíopíu eða Kúbu. Allir tala að vísu um „öðru visi sósialisma", þvi fáum geðjast að þeim sem blasir við augum, en niðurstaðan er ein og söm, hver sem útsetning stefsins hefur veríð: mínus á mannlega ham- ingju. Loforð Zho Zhiyang koma þvi engum á óvart, hvað sem um efndirnar verður. Ríkisforsjá og einstaklings- frelsi Allir þekkja söguna um kommúnistaflokk sem varð að sósialista- flokki og siðar að AJþýðubandalagi. í þessu þrínafna fyrirbæri og i jöðrum þess hafa lengi þrifist fjölskrúðug þjörð brotabrota: maó-istar, troský-istar osvfv. Lítið eitt tíl hliðar við þetta þrínafna fyrirbæri hafa kviknað flokkar (Þjóð- vamarflokkur, Frjáls- lyndir og vinstrí menn), sem týrði á skamman tíma. Ógæfa islenzkrar vinstrí mennsku er tvíþætt. I fyrsta lagi að hún hefur jafnan verið margklofinn i brotabrot. í annan stað að reynslan af vinstri stjóraum (1956-58, 1971-1974, 1978-83) hefur ætíð ve- rið hin sanuu verðbólga, erlendar skuldir, saman- skroppin króna að kaupmættí, hrun inn- lends sparnaðar o.sv.fv. Róttækur sósialismi hefur að vísu aldrei veríð einn um hituna i rflds- stjóra hér. Einkennin hafa engu að síður sagt til sín. Rfldsforsjársjón- armiðið hefur þrengt að einstaklingsfrelsinu. Eft- ir þvi sem flokkaflóran verður fjölskrúðugrí vaxa líkur á einhverskon- ar vinstrí- eða fjölflokka- stjóm, þar sem glundroðinn rfldr en festan er látín lönd og leið. Samstaða eða sundrung Sjálfstæðisflokkurinn hefur, a.m.k. til skamms tima, sameinað borgara- leg öfl innan sinna vébanda. Af þessum sök- um hafa borgaraleg öfl verið áhrifaríkari hér á landi en sums staðar er- lendis, þar sem þau hafa skipzt á fleiri en einn flokk. Ef marka má skoðana- kannanir stendur Sjálf- stæðisflokkurinn nú frammi fyrir atburðarás, sem máske er liklegrí til að bijóta upp borgara- lega samstöðu hér en eldri tilraunir. Spurning- in er hvort borgaraleg öfl ætla að falla í sömu sundrungar- og veik- leikagryfjuna og vinstrí menn? Hér verður ekki fjallað sérstaklega um rök- stuðning Borgaraflokks fyrir sinu. Ýmsir velta því hinsvegar fyrir sér hvort framboð Alberts Guðmundssonar á landsvisu geti réttlætzt af sömu meintu „for- sendum“ og framboð hans í Reykjavík. Fram- boð á landsvisu getur trauðla túlkast á annan veg en sem aðför að Sjálf stæðisflokknum og stefnu hans. Eg kýs Sjálfstædis- flokkinn Dagný Davíðsdóttir, nemi, Mosfellssveit: „Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að ég vil vera sjálfstæð manneskja í frjálsu landi.“ X-D á Rtrm ibð RVALSVARA VER síma 1621566 Og nú erum við í Borgartúni 28 BJORNINN HF Borgartún 28 — sími 621566 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.