Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 13 Ævisaga Thorbjarnar læknis Thorlaksonar Bækur Finnbogi Guðmundsson Höfundur: T.A.J. Cunnings: The Saga of Doctor Thor Útgefandi: University of Man- itoba 1986 Á sl. ári kom út á vegum Man- itoba-háskóla í Winnipeg ævisaga Thorbjamar læknis Thorlaksonar eftir T.A.J. Cunnings. Hér er um mikið rit að ræða, alls 635 blaðsíður, og fjallar svo sem vænta má mest um fjölþætt störf hans að heilbrigðismálum. Amold Naimark, rektor Manitoba-háskóla, segir í formála fyrir ritinu svo m.a.: „Líklega hefur enginn maður í sögu læknisfræðinnar í Manitoba haft önnur eins áhrif og dr. Paul H.T. Thorlakson — „Doctor Thor“, eins og mönnum er ljúft að kalla hann. Margir hafa þar skarað fram úr í einstökum greinum, en enginn haft víðari yfírsýn en hann, traust- ari skilning á mikilvægi félagslegr- ar þróunar læknaþjónustunnar né verið betur lagið að hrinda stór- brotnum áætlunum í framkvæmd." Ljóst dæmi um þetta er þáttur Thorbjarnar í Winnipeg Clinic, kunnri læknamiðstöð í Winnipeg. Hún var stofnuð 1938 og kom sér upp fyrstu byggingu sinni 1942. Fimm árum síðar, þegar reist var fímm hæða viðbygging, réð Thor- bjöm því, að undirstöður hennar væru hafðar svo sterkar, að bæta mætti síðar sjö hæðum ofan á hana, en því verki var lokið 1962. Þó að ævisaga Thorbjarnar sé að vonum, sem fyrr segir, mest helguð störfum hans að heilbrigðis- málum, er til fróðleiks og tilbreyt- ingar fléttað saman við hana persónusögu, sem rakin er eftir bréfum, ræðum, greinum og öðmm gögnum, sem ævisöguritarinn hefur haft aðgang að og unnið mjög vel úr. í 1. kapítula, t.a.m., er birt ræða, er Thorbjöm flutti á móti, er niðjar foreldra hans, sr. Níelsar Stein- gríms Thorlákssonar og Eriku Rynning, efndu til í september 1977 vestur í Seattle á Kyrrahafsströnd. Mót þetta sóttu 85 manns af 104, sem til greina komu, og em þá tal- in með makar og börn, alls 61 niðji þeirra hjóna. Fólk þetta kom víðs vegar að, bæði frá Kanada og Bandaríkjunum. Thorbjörn rifjar í ræðu sinni upp feril foreldra sinna, lýsir hvernig fundum þeirra bar fyrst saman í Noregi sumarið 1885, þar sem Níels var þá við nám í guðfræði, en hann hafði 1881 lokið BA-prófi í Luther College í Decorah í Iowa-ríki. Hann hafði 1873 flutzt vestur uum haf með foreldmm sínum, Þorláki Jóns- syni á Stóm-Tjörnum í Ljósavatns- skarði og Henríettu Lovísu Nielsen, en Erika Rynning var frá Eiðsvelli (Eidsvold) og átti heima í Ósló, þegar hér var komið sögu. Að loknu guðfræðinámi í Ósló 1887 hélt Níels aftur vestur um haf og vígðist prestur í íslendingabyggðinni í og umhverfis bæinn Minneota í Minne- sota-ríki. Erika Rynning fór vestur ári síðar, og vom þau Níels gefín saman í hjónaband 18. maí 1888. Þau eignuðust sex börn, fjóra syni, Octavíus, Thorbjörn, Friðrik og Hálfdan, og tvær dætur, Margréti og Eriku. Löngu síðar í ævisögunni er rifj- aður upp kafli úr bréfí, er Margrét, kona sr. Haralds Sigmars, ritaði Thorbirni bróður sínum fyrir fáein- um ámm, þar sem hún segir m.a.: „Manstu, að mamma var vön að láta okkur setjast kringum stóra borðstofuborðið á laugardags- morgnum, hvert með sitt spjald og blýant, og skrifa norsku eftir því sem hvert okkar hafði aldur til, og kenndi okkur síðan að lesa norsku og fara með utanbókar eftirlætis- vísur og söngva? Ég held, að þú 40WM Thorbjörn Thorlakson flytur kveðju Kanadamanna og kanadísku stjómarinnar á 11 alda afmæli íslandsbyggðar á Þingvöllum 28. júlí 1974. hafír geymt þitt spjald í skríninu þínu. Vegna þessara kennslustunda skrifaði ég bréf mín jafnan á norsku, eftir að ég fór að heiman, og hún gat skrifað okkur á móður- máli sínu. Og svo urðum við að læra kverið á íslenzku, og pabbi fermdi okkur á því máli. Það varð því engin þraut að læra þrjú tungumál, og það hef- ur komið okkur að góðu haldi. Þá höfum við numið margt af foreldr- um okkar um Noreg og ísland, menningu þeirra og erfðir." Vegna þess að Islendingar voru miklu fjölmennari í Manitoba en Norðmenn, var eðlilegt að Thor- bjöm beitti sér einkum fyrir málefnum þeirra. Er þar kunnust forganga hans um stofnun kenn- arastóls í íslenzkum fræðum við Manitoba-háskóla, en hann var formaður nefndar þeirrar, er safn- aði fé til þess fyrirtækis, og lagði þar sjálfur ríflega af mörkum. Thorbjöm hefur þó engan veginn látið staðar numið við íslenzkuna, heldur jafnframt gerzt einn af tals- mönnum eflingar hinnar ijölþjóð- legu kanadísku menningar, hreyfingar, sem eignazt hefur marga formæ'.endur í Kanada á síðari ámm. Hér er ekki rúm til að skýra nánar frá sögunni af Thorbirni lækni, en þess skal getið að lokum, að sagan er tileinkuð eiginkonu Thorbjarnar, Gladys Maree Thor- lakson, sem verið hefur honum stoð og stytta á langri og athafnasamri ævi, en þau gengu í hjónaband í nóvember 1920. Höfundur er landsbóka vörður. KVARTETTIW ásamt stórhljómsveitinni PAPERLACE skemmta á stórdansleik ungra sjáifstæðismanna í Reykjaneskjördæmi í Glaumbergi föstudaginn 3. apríl kl. 21:00 - 03:00 Hljómsveitin PÓNIK leikur fyrir dansi. Skemmtistjóri: ELLERT EIRÍKSSON Gestir kvöldsins: VÍGLUNDUR ÞORSTEINSSON ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN Miðaverð kr. 600.- Fríar rútuferðir kl. 20:30 frá sjálfstæðishúsunum í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. TOSHIBA Ný og betri MSX tölva Kr. 10.700.- • Tölvunni fylgir leiðbeiningabók á íslensku • Innbyggð ritvinnsla 10 - 50 % afsláttur af MSX tölvuleikjum Góð tölva - á góðu verði HANS PETERSEN HF GLÆSIBÆ SÍMI 82590
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.