Morgunblaðið - 02.04.1987, Side 14

Morgunblaðið - 02.04.1987, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 Þjóðsögnr Sig- fúsar Sigfússonar Bókmenntir Sigurjón Björnsson Sigfús Sigfússon: íslenskar þjóðsögur og sagnir VI-VII. bindi, 362+294 bls. Grímur M. Helgason og Helgi Grimsson bjuggu til prentunar. Reykjavík. Bókaútgáfan Þjóð- saga. 1986. Nýlega eru út komin tvö bindi, hið sjötta og hið sjöunda, af hinni prýðilegu útgáfu á Þjóðsögum og sögnum Sigfúsar Sigfússonar frá Eyvindará. Útgefendur hafa tjáð mér að safnið allt fullprentað verði að líkindum ellefu bindi alls, þrjú bindi til viðbótar með sögnum og eitt, hið ellefta og síðasta, lyklar og skrár. Fer því ekki á milli mála að safn þetta verður stærsta íslenska þjóðsagnasafnið. Kemst raunar einungis eitt safn annað nálægt því að stærð til, Þjóðsögur Jóns Amasonar. Þau sjö bindi sem nú eru út komin eru rúmlega 2.600 bls. og er því líklegt að útgáfan öll nálgist 4.000 bls. Þjóðsagnasafn Sigfúsar Sigfús- sonar hefur einu sinni áður verið gefið út. Sú útgáfa hófst austur á Seyðisfirði árið 1922 og lauk í Reykjavík árið 1958. Tók hún því 36 ár og höfðu a.m.k. þrír útgefend- ur glímt við stórvirkið. Sú útgáfa fyllti 16 bindi. Hún var á ýmsa lund ófullkomin og heldur höttótt útlits. Fyrir löngu er sú útgáfa uppseld og ófáanleg. Var því bæði af þeim sökum og gallanna vegna ekki van- þörf á nýrri útgáfu. Hér hljóp hinn mikli velgerða- maður þjóðlegra fræða, Hafsteinn Guðmundsson, forstjóri Bókaútgáf- unnar Þjóðsögu, undir bagga. Eftir að hafa gefíð út á ný í fallegum og vönduðum búningi Þjóðsögur Jóns Ámasonar, Ólafs Davíðssonar, Rauðskinnu, Gráskinnu og Grímu réðst hann nú í þetta stórvirki. Til þess að búa verkið til prentunar fékk hann hinn ágæta fræðimann Óskar Halldórsson. Komu fyrstu fjögur bindin út samtímis árið 1982 og vom þau til fyrirmyndar að öllum búnaði, eins og raunar vandinn hefur verið um útgáfubækur Þjóð- sögu. En Óskari Halldórssyni auðnaðist ekki að búa fleiri bindi af þessu safni til prentunar, því að hann féll frá snemma árs 1983. Að sjálfsögðu hafði Óskar mótað ákveðna útgáfustefnu í þessum §ómm fyrstu bindum. Svo var mál vaxið að Sigfús Sigfússon hafði gert tvö handrit að þjóðsögum sínum, nefnd A- og B-gerð. A- gerðin var hið uppmnalega handrit Sigfúsar, sem hann hélt áfram að bæta í, svo lengi sem honum entist aldur. B-gerðin var endurrit fyrri gerðarinnar. Breytti Sigfús þar töluvert um frásagnarmáta og stundum einnig um efnistök og í einstökum tilvikum breyttist niður- röðun efnis. Þessa endurritun hóf Sigfús um 1914. Hann var þá kom- inn um sextugt, hafði í meira en áratug reynt árangurslaust að fá safn sitt prentað. Var hann orðinn úrkula vonar um að það fengist prentað að honum lifandi. Vildi hann nú tryggja betur varðveislu þess með þessum hætti. Áttu hand- ritin tvö að geymast í ömggri vörslu hvort á sínum stað. — En árið 1922 hófst svo útgáfan á Þjóðsögunum. Ákvað Sigfús að prentað skyldi eft- ir B-gerð, enda leit hann á hana sem hreinritun A-gerðar. En bæði af því að A-gerðin var uppruna- legri og endurspeglaði betur tungutak heimildarmanna og munnmælalegt eðli sagnanna og eins af hinu að B-gerðin var þegar prentuð, var ákveðið að prenta hina nýju útgáfu að mestu eftir A-gerð- inni. Eftir að Óskar Halldórsson féll frá tók Grímur M. Helgason við starfí hans. Kom fimmta bindið út undir umsjón hans árið 1984. Nú hefur svo við útgáfu þessara tveggja síðustu binda annar fræði- maður bæst við, Helgi Gríinsson. Virðist því vel séð fyrir framhaldi útgáfunnar. Ber allur frágangur þess skýr merki að verkið er í góð- um höndum. Þessi tvö bindi sem nú bætast við innihalda níunda og tíunda efn- isflokk safnsins. En efnisflokkar em alls sextán eins og Sigfús gekk frá þeim. Níundi flokkur nefnist Ornefnasögur og er hann sýnu minni en hinn eða rétt liðlega þriðj- ungur sjötta bindis. Tíundi flokkur- inn, sem ber heitið Afreksinanna- sögur, nær yfir nálega tvo þriðju hluta sjötta bindis og sjöunda bind- ið allt. Enda þótt örnefnasagnimar séu allrar athygli verðar er því ekki að neita að þær vekja að líkindum eink- um áhuga þeirra sem em stað- háttum kunnugir. Öðm máli gegnir um Afreksmannasögur. Enda þótt söguhetjurnar séu yfírleitt austf- irskar, eins og raunar mest allt efni þessa safns, hafa þær inni að halda svo mikla mannfræði, mannlýsingar og atvikalýsingar að allir sem á annað borð hafa einhvem áhuga á þess háttar efni hljóta að lesa jiær sér til gleði. Hæst ber þátt af Ama skáldi Gíslasyni og sonum hans, Jóni og Hjörleifi, hinum nafnkunnu Hafnarbræðmm. Sá þáttur er raun- ar heil bók eða á þriðja hundrað blaðsíður. í sjöunda bindinu em svo sagnir af fjölmörgum aflrauna- og íþróttamönnum og raunar oft einnig stórfelldum drykkjumönnum. Er þetta allt einkar fróðleg lesning og þykir mér frásagnar- og ritleikni Sigfúsar Sigfússonar njóta sín bet- ur hér en víðast hvar annars staðar í þeim bindum sem á undan fara. Líklegt er að þetta stafí frá því að efnið er nú nokkuð annars eðlis. I raun er hvorki um þjóðsögur né sagnir að ræða, heldur æviþætti, stundum reyndar ættarþætti. Hefur Sigfús leitað fanga hjá mörgum heimildarmönnum og samið úr þeirri vitneskju sjálfstæða frásö- öguþætti. Fer hann víða á kostum í frásögn sinni, enda hefur efnið verið honum bersýnilega hugleikið. Það er eiginlega fyrst nú í þessum tveimur síðustu bindum, sem manni verður Ijóst hversu góður rithöfund- ur Sigfús Sigfússon var í raun og veru. Mest þykir mér koma til hinn- ar miklu sögu hans af þeim Hafnarfeðgum. Umsjónarmenn útgáfunnar hafa augljóslega lagt mikla alúð við verk sitt. Hafa þeir gert sér allt far um að vísa til annarra rita þar sem frekari vitneskju er að fá. Ættrakn- ingar, tímasetningar og sitthvað fleira er leiðrétt eftir því sem tilefni gefst til. „Að vísa hugsun- arleysinu á bug“ Bókmenntir Vigdís Grímsdóttir Höfundur: Heimir Steinsson Haustregn Útgefandi: Almenna bókafélagið Haustregn er fyrsta ljóðabók Heimis Steinssonar og hefur að geyma „samtíning frá tæpum þrem- ur áratugum" eins og höfíindur segir í formála vandaðrar útgáfu. Hann bætir því við að lengi hafí hann efast um rétt sinn að láta „þessa dreif“ frá sér fara en ljóða- unnendur hljóta að fagna því að hann velkist ekki lengur í vafa held- ur lét „skeika að sköpuðu". í bókinni eru ljóð af ýmsum gerð- um, hefðbundin og óhefðbundin, og einnig ljóð þar sem höfundur tvinn- ur saman foma hætti og nýja. En hversu óiík sem ljóð bókarinnar eru að formi og oft að efni eiga þau það sammerkt að vera góður skáld- skapur, myndríkur, kröftugur og vekjandi og gildir þá einu hvort ort er 1956 eða 83. Heimir skiptir bók- inni í fímm þætti sem allir eiga sameiginleg áðumefnd einkenni. Efnislega eru fyrstu tveir þættimir Merlín í Hliðskjálfinni og Mund- ang tengdir. Hinir þrír þættimir eru sér um efni þótt óbeinn tengill allra þáttanna sé efínn um tilgang manneskjunnar í sundurlausri ver- öldinni. Höfundur sýnir okkur líka hverfulleika lífsins og fáfengileik nútímamannsins andspænis grund- vallarspumingum um heiðarleika og einlæga lífsafstöðu sem vísar hugsunarleysinu á bug en krefst íhygli. Og með myndvísi, háði og markvissum endurtekningum tekur höfundur oft fast í hnakkadramb lesanda síns því ljóðin kafa ekki einungis djúpt heldur hvetja til end- urmats á viðteknum gildum með áleitnum spumingum og fullyrðing- um. Efasemdir og lífsháski birtast hvað áhrifaríkast í þeirri trúarbar- áttu sem „hefst þráfaldlega í myrkri, en leitar sér að jafnaði stað- ar í ljósi“ svo enn sé vitnað í formála bókarinnar og mér er næst að halda að jafn ásæknar spumingar um til- vist og nálægð æðri máttar hafi heyrst í íslenskum ljóðum um langa hríð. Um þessar staðhæfíngu bera mörg ljóð vitni en mér nægir að benda á hið sterka og kjamyrta Ijóð Kveðja sem einkar vel lýsir átökum myrkurs og ljóss. Ljóðið skiptist í þrjá hluta og segir langa sögu. I fyrsta hlutanum ávarpar lotningar- fullur ljóðmælandinn guð sinn, hann er hamingjusamur því hugur hans tilheyrir guði, er allur hans. í öðmm hlutanum rignir og þann dag vill mælandi ekki muna, þann dag sem hann kvaddi guð og fór burt, kom að vísu í heimsókn einu sinni en þá var náivst guðs ekki sú sama og áður. Samt er honum þakklæti efst í huga fyrir „dýrustu perluna" sem er minningin um guð enda mun skuggi hans fylgja honum hvar- vetna. Ef fyrstu tveir hlutar ljóðsins em þátíð en sá síðasti nútíð þá lýsa orð skáldsins þeirri nútíð best sem þrátt fyrir allar efasemdir og van- mátt gefur ljósinu von: En hver veit nema þú takir á móti mér þegar ég dey? guð minn! guð minn! Hver veit? Eins og við saman tókum á móti gömlu mönnunum og litlu bömunum í húsinu þínu heima undir íjallinu þínu heima §allinu okkar heima. Tengsl guðdóms og náttúm em sterk í þessu ljóði eins og svo mörg- um öðrum ljóðum bókarinnar. Lotning höfundar, ást hans og kraftur orða hans sameinast feikn- arvel í náttúmnni og æðri mætti sem ef til vill em hið eina eilífa. I ljóðinu Messudagar á hausti getur lesandi meira að segja verið við- staddur messu þar sem náttúran sjálf gengur í hús guðs og um leið kynnumst við lífssátt bókarinnar og akiljum þá togstreitu sem birtist skýrt í þessu ljóði og ljóðinu Cura animarum. í landinu og náttúmnni leynist það sem er ofar fólki og orðum. Og af því að barátta efa- semdarmannsins er mikil lýtur hann engu nema ef vera skyldi þeim guði sem náttúran ein varðveitir. í fyrsta þætti bókarinnar em sex tengd ljóð. Þau em öll geysi mynd- ræn og sterk og höfundur grípur til stefja úr Völuspá um leið og hann notar oftar en ekki endurtekn- inguna sem styrkir boðskap hans. í ljóðinu er Merlín spámaður úr Bretasögum sestur í sæti Óðins, hið fræga Hliðskjálf, en úr því sér „um alla heima og hvers manns athæfí" einsog segir í Snorra Eddu. Þetta ljóð á afar vel við nútímann og seg- ir okkur margt bæði um okkur sjálf og þá sem stjóma ferðinni. Völvu- klæddur ljóðmælandinn leggur áherslu á að goðspekin sé komin í brengl og biður þess að menn hlífi Merlín við rökum. Og á þann hátt byrgir höfundur kunnáttusamlega alla bmnna. Daginn sem Merlín sit- ur í Hliðskjálfínni, en sá dagur er í raun dagur allra daga, verða land- skjálftar og það hriktir í áhrifa- miklum myndum höfundar: Þakhellumar sem fyrr meir höfðu stungizt ofan bærðust í troðinni gólfskáninni líkt og mosavaxnir uggar Heimir Steinsson yfir ótryggu djúpi. Veggbrotin er um sinn höfðu gróið þekkilega nötruðu í hægu falli leystust utan af splundraðri veröld og hurfu til dunandi jarðskorpunnar Merlín minnist tumþaksins og veggjanna fáðu sem löngu skýldu honum og skelfdist loksins til fulls. Meðan hann skelfdist hrandi §allið fyrirvaralítið og lét hann eftir í köldu lofti. Þann dag sat Merlín 1 Hliðskjálfinni og sá of heima alla. Þar situr hann enn og vart er honum rótt nema hvað? Og af þvf að Merlín situr enn í sætinu góða verður honum enginn einn tími yfírsterkari því einungis tákn tímanna breytast annars er allt við það sama. En Merlín þegir yfir því sem hann sér því orð hans hljóta að slokkna á skari hrópand- ans. Engu að síður er okkur lesend- um hollt að huga að eilífðar spumingum hans: Hversu lengi á ég að stíga þennan grimudans við alfaraveg? Hversu lengi að hnuðlast gegnum víkivakann frá hönd til handar með duluna fyrir andlitinu? Hversu lengi að láta sem mér sé hugað um leikfóngin mörgu, er tifa eftir færibandinu daglangt fram úr eldholi vélarinnar, áleiðis til hægfara uppslits [ óvitahöndum? Og myrkrið tekur völdin og fæð- ir af sér óttann og nóttin felur óttanum að koma þeim boðum til Merlíns að guð sé dauður rétt eins- og Zaraþústra uppgötvaði þótt í dag sé það gömul saga sem skipti engan máli því nú munu fæstir hafa hug- mynd um uppgötvun Zaraþústru. Það segir ekki lítið. En Merlín „ríður hvarvetna/ með hugstola fát í aug- um/ Merlín leitar athvarfs/ og guð býður Merlín velkominn . . .en: Andlit guðs era eru vaxbleik, munnar hans stirðnaðir 1 frostglæru brosi. Velkominn liggur Merlín á grúfu á gólfi athvarfsins frammi fyrir afturgöngu guðs draugi guðs. Merlín mun ekki boða Guð að baki Guð, sem Er daginn sem þú loksins skynjar til fulls, að guð er ekki og þú ert ekki, Guð, sem Er en þekkir þó ekki sjálfan sig heldur hrópar í ofboði á krossi við hlið Merlíns í myrkrinu. í öðrum þætti bókarinnar fylgj- umst við enn með úr Hliðskjálfinni og nú er okkur gefíð Hliðskjálfar- auga einsog höfundi ef við viljum ganga veg hans. Við sjáum hina stóru Ameríkana og Sovétmenn eig- ast við um sannleikann og fyllumst fyrirlitningu á slíkri sannleiksleit. En við verðum líka óæskileg og orð okkar „smjör“, samt er enginn hætta á að við sleppum. Og við vegum að guði, þó er baráttan eilífa „borin uppi af einni von“ og fengi sú að ráða yrði sannleiksleit stór- veld.a og sannleiksleit mannsins sjálfs vafalítið með öðrum og ein- lægari hætti: „Menn ættu að hætta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.