Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 41

Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 41 Trilla sökk við Litla-Árskógssand: Einum bjargað, en annar fórst SVAVAR Guðmundsson, 46 ára, fórst eftir að sex tonna trillu hans, Reynir frá Litla-Arskógssandi, hvolfdi og hún sökk í fyrradag í aftakaveðri, aðeins 100-200 metra fyrir utan höfnina á Litla-Ar- skógssandi. Tveir menn voru um borð og bjargaðist hinn, Kristján Rafn Sigurðsson, fljótlega eftir að slysið varð, en Svavar er talinn af. Ekki var hægt að kafa niður að Reyni i gær vegna veðurs en fjörur voru gengnar í alla fyrrinótt og í gær, en án árangurs. Reynt verður að kafa niður að Reyni í dag. Tveir 28 tonna bátar, Særún og Naustavík, voru ásamt Reyni í höfn- inni á Litla-Árskógssandi í fyrra- dag, en vegna fárviðrisins ákvaðu eigendur þeirra að færa báta sína inn á Hauganes. Blaðamaður Morg- unblaðsins ræddi við Sigurð Konráðsson, skipstjóra á Særúnu, og Konráð son hans á heimili þeirra á Litla-Árskógssandi í gærdag, en þeir voru báðir um borð í Særúnu þegar slysið varð. Sigurður lýsti því sem gerðist þannig: Við ætluðum að færa bátana fyrir róki og ísingu frá bryggjunni inn að Hauganesi. Við töldum ekki óhætt að hafa þá þarna lengur. Reynir var ystur og fór því fyrstur frá bryggjunni. Við vorum svo komnir um 100-200 metra út þegar Reynir ætlaði að snúa undan vindi — vindurinn stóð á bakborðshlið Reynis og það skipti engum togum að báturinn lagðist á hliðina og fór á hvolf. En stefnið stóð upp úr.“ Sigurður hélt áfram: „Okkur fannst líða heil eilífð þar til við sáum Kristjáni skjóta upp. Hann kom upp á milli Særúnar og Reyn- is.“ Aldrei sást til Svavars, tengda- föður Kristjáns, sem fórst. Það var Konráð, sonur Sigurðar, sem náði að bjarga Kristjáni Rafni um borð. Konráð sagði svo fra: „Ég náði í Markúsarnetið. Það var inni í skýli og því engin ísing á því. Bjarg- hringir voru hins vegar allir frosnir fastir. Netið er í tösku. Ég hafði aldrei áður litið ofan í hana en eft- ir að ég kippti lokinu af henni var kastlínan það fyrsta sem ég greip í. Ég kastaði línunni til Kristjáns, hann greip um og ég dró hann að skipshlið. Svavar Sigurðsson og Ólafur Ólafsson hjálpuðu mér við þetta og þegar Kristján var alveg kominn að síðunni köstuðum við netinu til hans.“ Konráð sagði að Sigurður Konráðsson og Konráð Sigurðsson skipveijar hefðu háttað Kristján strax og sett í koju og undir sæng. Varð hann fljótlega hress og var kominn út strax fyrir hádegi í gær til að hjálpa til við leitina, gekk þá fjörur ásamt öðrum. Að sögn Sigurðar Konráðssonar skipstjóra reyndu skipveijar á Sæ- rúnu að ná Reyni upp í fyrradag. „Við náðum að setja tóg í fangalínu Reynis — ætluðum að reyna að draga hann að bryggju — en réðum ekki við neitt, veðurofsinn var svo mikil’..“ • Þeir feðgar, Sigurður og Konráð, tjáðu blaðamanni að ekki hefði náðst í neina björgunarmenn þegar slysið varð því síminn á Árskógs- sandi hefði verið „alveg dauður" eins og þeir sögðu, „en síminn dett- ur yfirleitt út hér þegar vont er. Það er yfirleitt alls ekki hægt að fá són.“ Því var það einungis fólkið í húsunum á Árskógssandi sem gekk fjörur strax eftir slysið. „Ég náði svo í formann björgunarsveit- arinnar um áttaleytið um kvöldið i farsímanum um borð þegar við vor- um komnirtil Akureyrar, við vissum að þá hafði hann enn ekki fengið fréttir um slysið," sagði Sigurður. Aðstæður voru það slæmar í Hauganesi í fyrrakvöld að skipin komust ekki að landi þar og fóru því til Akureyrar. Svavar Guðmundsson var 46 ára. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn. Aðalsteinn kjörinn for- maður Þórs AÐALSTEINN Sigurgeirs- son var kjörinn formaður íþróttafélagsins Þórs á aðal- fundi þess síðastliðinn laugardag. Benedikt Guð- mundsson, sem verið hefur formaður í tvö ár, lét af því embætti þar sem hann er nú fluttur úr bænum. Rúnar Gunnarsson var kjörinn varaformaður félagsins, Ragnar B. Ragnarsson gjaldkeri, Páll Baldursson ritari, Gunnþór Há- konarson meðstjórnandi og Kristján Torfason spjaldskrárrit- ari. Varamenn í stjórn voru kjörnir Ámi Gunnarsson, Ævar Jónsson og Reynir Karlsson. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hin nýkjörna stjórn Þórs, frá vinstri: Reynir Karlsson, Kristján Torfason, Ragnar B. Ragnarsson, Rúnar Gunnarsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Páll Baldursson, Gunnþór Hákonarson, Arni Gunnarsson og Ævar Jónsson. Lokaátak fjársöfnunar vegna Sels 2 LOKAÁTAK söfnunar vegna Sels 2 fer fram á laugardaginn, 4. apríl, á Akureyri og í þeim sveitarfélögum er hjúkrunar- deildin þjónar. Gengið verður í hús frá kl. 13.00 til 17.00 og fé safnað. Framkvæmdir við Sel 2 eru nú komnar vel á veg og er þess fast- lega vænst, að nægilegt fjármagn verði fyrir hendi, svo hægt verði að ljúka byggingarframkvæmdum og kaupa allan þann búnað, sem þarf, þannig að þessi tíu rúma hjúkrunardeild geti tekið til starfa eins og fyrirhugað er hinn 1. júní nk. (Fréttatilkynning) Sjónvarp,Akureyri Auk venjulegra aðalfundar- starfa og lagabreytinga var mikið rætt um fyrirhugað félags- heimili á svæði Þórs í Glerár- hverfi. Allt bendir til þess að framkvæmdir hefjist við það snemma á næsta ári og hægt verði að taka að minnsta kosti hluta þess í notkun um haustið. FIMMTUDAGUR 2. apríl 18.00 Knattspyrna. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson. 19.10 Hardy-gengiö. Teiknimynd. 19.25 Morðgáta(MurderSheWrote). Ferð Jessicu til Palm Springs breyt- ist óvænt þegar eiginmaður fyrrum skólasystur hennar er myrtur þrátt fyrir mjög stranga öryggisgæslu. 20.20 í sjónmáli. i þessum þætti er rætt við Gísla Jónsson og Ásdísi Árnadóttur um ferðamál og Brynjar Kvaran og Eriend Hermannsson um handknattleik á Akureyri en þeir eru þjálfarar KA og Þórs. Loks er rætt viö séra Pálma Matthiasson um fermingarnar sem nú eru framund- an. 21.30 Af bæ í borg (Perfect Strangers) Bandarískur gamanþáttur. 22.05 Eiturlyfjavandinn (Toma, the Drug knot). Ný sjónvarpsmynd byggð á sönnum atburðum. David Toma er lögreglu- maður sem hefur starfað mikið óeinkennisklæddur. Mynd þessi er byggö á atburðum úr lifi hans. 22.55 Árásin á Pearl Harbor (Toral Toral Toral). Bandarísk-japönsk bíómynd með Martin Balsam og Soh Yamamura í aðalhlutverkum. Mynd þessi segir frá aðdraganda loftárásarinnar frá sjónarhóli beggja aðila. 01.15 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.