Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 Afmæliskveðja: Guðbjami Sigmunds son frá Ivarshúsum Guðbjami Sigmundsson frá ívarshúsum á Akranesi er 90 ára í dag. Af því tilefni vil ég senda honum innilegustu ámaðaróskir og þakka honum kynnin í þriðjung ald- ar. Það var á vordögum 1954 að leiðir okkar lágu fyrst saman. Bæj- arstjóm Akraness hafði samþykkt 1950 að gefa væntanlegri sements- verksmiðju lóðir undir byggingar og aðra starfsemi yrði verksmiðjan byggð á Akranesi. Verksmiðjunni var valinn staður í landi Ivarshúsa, sem var eignaijörð Guðbjama. Dregist hafði að ganga frá kaupum á landinu og greiðslum, en bygging verksmiðjunnar var að heflast. Guð- bjami var því að vonum orðinn órólegur út af málum sínum. Það féll í hlut nýs bæjarstjóra að taka upp viðræður við Guðbjama um kaup á umræddu landi og greiðslu- skilmála. Margir og strangir fundir voru haldnir fram á haustið 1954, en þá náðist fullt samkomulag, svo ekki þurfti að fara í eignamám né annan málarekstur. Guðbjami hafði að vísu lögfræðing á bak við sig, en sýndi hann aldrei. Hann sótti málið sjálfur. Var fundvís á rök og ódeigur í baráttunni fyrir málstað sínum. Enginn lögfræðingur hefði staðið sig betur en hann og oft sagði ég honum það. Við höfðum þama gagnstæðra hagsmuna að gæta og því varð ekki hjá deilum komist. Það sem mér er svo kannski minnisstæðast frá þessum fyrstu samskiptum okkar er hversu þessi harðsnúni samningamaður var ætíð drengilegur og heilsteyptur. Þegar upp var staðið og samningar höfðu tekist um þessi lóðakaup bæjarins átti Guðbjami fulla virðingu mína og tókst með okkur vinátta, sem aldrei hefur fallið skuggi á. Fyrir þetta hef ég ævinlega verið mjög þakklátur, því svona mál eru ekki líkleg til að tengja vináttubönd. Ég yarð þess fljótlega var að Guðbjami er skarpgreindur, fróður og minnugur. Ég átti þess kost að skrifa niður nokkrar endurminning- ar hans frá fyrstu árum verkalýðs- hreyfingarinnar á Akranesi fyrir blaðið Magna hér í bæ. Ennfremur ferðasögu hans til Detroit í Banda- ríkjunum og þaðan á heimssýning- una í Montreal í Kanada, en þá ferð fór Guðbjami fyrir um 20 árum. Þá kynntist ég betur en áður nákvæmri frásögn og góðri athygl- isgáfu. Slíkur maður hefði átt margra kosta völ hefði hann í æsku notið þeirrar menntunar, sem nú stendur öllum til boða. Slíkur maður verður líka svo mörgum minnis- stæður, þótt árin líði. Guðbjami var einnig líkamlega vel á sig kominn. Hann var hið mesta hraustmenni fram eftir ævi. Dugnaðarforkur að hveiju sem hann gekk og sívinnandi. Auk bú- skaparins stundaði hann sjó- mennsku, fiskimat og verkamanna- vinnu. A þessu fjölmenna heimili var efnahagurinn betri, en almennt gerðist á þeirrí tíð. Mér er sagt að kreppan hafi nánast farið fram hjá ívarshúsum. Hann lét sig ekki muna um það í byijun kreppunnar, eða 1930, að byggja stórt og vand- að steinhús, sem þá var meðal hinna veglegustu á Akranesi. Þannig sá hann alltaf íjölskyldu sinni farborða af miklum myndarskap, þótt stór væri. Félagsmálastörfum sinnti hann talsvert og var þar vel lið- tækur, bæði í verkalýðshreyfíng- unni og samvinnufélögum. Guðbjami er fæddur í Amþórs- holti í Lundarreykjadal 2. apríl 1897. Foreldrar hans voru hjónin Vigdís Jónsdóttir og Sigmundur Guðbjamason, sem um þær mundir bjuggu í Lundarreykjadalnum, en fluttu árið 1900 að Ivarshúsum á Akranesi. Þar er Guðbjami því alinn upp og varð snemma fyrirvinna móður sinnar, því faðir hans andað- ist 1914, mjög fyrir aldur fram. Jónsmessudagurinn 1922 var mikill hamingjudagur í lífí Guð- bjama. Þá kvæntist hann Guðnýju Magnúsdóttur frá Iðunnarstöðum í Lundarrreykjadal. Þau eignuðust 11 böm. Tvö dóu í bernsku, en 9 em á lífí — 4 synir og 5 dætur — sem öll hafa stofnað heimili. Böm- um sínum komu þau vel til manns og gegna þau hinum margvísleg- ustu störfum í þjóðfélaginu. Afkomendahópur þeirra hjóna er orðinn stór og hið mannvænlegasta fólk. Hér er um að ræða mikilsvert framlag til þjóðfélagsins. Guðný var myndarleg húsmóðir, fróðleiksfús og félagslynd, auk þess að vera mikil móðir bama sinna. Hún andaðist 18. nóvember 1984 eftir nokkra vanheilsu og þá hafði farsælt hjónaband þeirra staðið í meira en 62 ár. Um Jónsmessuleyt- ið 1982 héldu þau hjónin veglegan fagnað í tilefni af 60 ára hjúskapar- afmæli sínu. Guðbjami var þá nýlega orðinn 85 ára og stutt í 80 ára afmæli Guðnýjar. Þetta. var fagur hamingjudagur fyrir þau og afkomendur þeirra, sem ýmsir aðrir nutu. Guðbjarni hefur hin síðustu ár búið á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Úr íbúð hans er útsýni gott yfír höfnina og hina gömlu jörð hans — ívarshús — þar sem æskuheimili hans stóð, þar sem lífsbaráttan var háð og margir sigr- ar unnir á löngu æviskeiði. Hann nýtur útsýnisins vel, því þrátt fyrir háan aldur, heldur hann óskertri sjón. Á hillu í stofu hans em mynd- ir af bömunum 9. Þau eru stolt hans og lífshamingja, sem hann yljar sér við á ævikvöldinu, ásamt endurminningum um lífsförunaut- inn góða. Megi hann njóta þess sem lengst. Hjartanlegarhamingjuóskir. Dan. Ágústínusson Hann er 90 ára í dag, kempan hann Guðbjarni í ívarshúsum. Hann er ættarhöfðingi sem situr í önd- vegi stórrar ættar, hún fagnar með honum á þessum merku tímamót- um. Guðbjami fæddist í ívarshúsum, einu elsta býli á Skaga. Það var upphaflega byggt af Brynjólfí bisk- upi Sveinssyni á miðri 17. öld. Hinn hagsýni biskup sá þar góða aðstöðu fyrir verbúðir sínar, fískimiðin vom skammt undan landi og fremur góð landtaka fyrir skip hans. Þannig var lagður gmnnur að atvinnuhátt- um og lífí þeirra sem næstu þijár aldir byggðu Skagann, þar á meðal Guðbjama tengdaföður míns. Hann er af þeirri kynslóð sem sá land sitt rísa úr fomeskju og fátækt til velmegunar og hátækni. Það em meiri breytingar en flest okkar getum gert okkur grein fyr- ir. Á þessu 90 ára tímabili hafa í landinu orðið margar breytingar í atvinnuháttum, en staða þeirra sem við atvinnuvegina störfuðu breyttist líka. Það varð hlutverk Guðbjama og hans kynslóðar að beijast fyrir gmndvallarrréttindum launþega í dag. Almenn réttindi eins og að semja um laun sín sjálfír, að fá matar- og kaffitíma og greiðslu fyrir hálfan eða heilan unninn dag, em talin svo sjálfsögð að flestum fínnst þau hljóti alltaf að hafa verið svona, en svo var ekki. Þessi réttindi sem önnur kostuðu fómir og baráttu og unnust aðeins í áföngum. Kynslóðir í dag sem telja sig bera „þyngstu hundrað pundin“ hafa aðeins fís- bagga á herðum miðað við eldri kynslóðir. Guðbjami var einn af stofnend- um Verkalýðsfélags Akraness árið 1924 og var lengi virkur félagi þess. „Ástandið var algjörlega óviðunandi á þeim ámm,“ svaraði hann er ég ræddi eitt sinn við hann um stofnun félagsins. „Atvinnurekendur ákváðu kaupið að eigin geðþótta og var það mun lægra en greitt var í Reykjavík. Það kom að því að sjó- menn kröfuðust þess að fá að semja um kaup sitt og kjör sjálfír." Barátt- an í verkalýðsmálum kostaði hann atvinnuna eitt sinn er atvinnurek- andinn setti þessum skelegga baráttumanni tvo kosti er hann sagði: „Ég hef ekki hugsað mér að hafa starfandi hjá mér menn sem em í verkalýðsfélagi.“ Guðbjami kaus verkalýðsfélagið þó að önnur vinna stæði honum þá ekki til boða mánuðum saman. Ég spurði hann eitt sinn hvers vegna hann hefði tekið þessa ákvörðun. „Ég gat ekki svikið félaga mína, það kom heldur aldrei til mála,“ svaraði hann. Svar- ið lýsir skapgerð hans best. Hann hefur alltaf verið maður eigin skoð- ana, rökfastur og fylginn sér. Þeir fundu fyrir því ráðamenn, þegar sú dæmalausa ákvörðun var tekin að setja heila sementsverk- smiðju niður í miðjan físki- mannabæ. Sementsverksmiðjan var byggð í landi ívarshúsa, á gömlum uppsátmm Brynjólfs biskups og ráðamenn ákváðu að taka landið eignamámi og vildu greiða lítið fyr- ir. Guðbjama var annt um landið, hann hafði með mikilli fyrirhöfn grætt upp bakkana sem lágu að sjó. Hann sagði það ekki koma til greina, greiða skyldu þeir fyrir landið fullt verð. Það var gert, en ekki baráttulaust. Ráðamenn átt- uðu sig ekki á þessum röska verkamanni frá Skaga, sem sá við öllum brögðum þeirra og fylgdi málum sínum í viðskiptum eftir af festu og rökvísi — og hafði alltaf betur. Hann sagði líka oft, að ef hann hefði fengið tækifæri til náms hefði hann viljað nema lög. Það efar enginn sem hann þekkir að hann hefði orðið mjög góður lög- fræðingur. En kjör hans vom fram eftir ævi hin sömu og flestra þeirra sem bjuggu við sjávarsíðuna, hörð bar- átta fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Sum árin vom gjöful en önnur rýr. Frá Akranesi var farið í ver til Sandgerðis á vetmm og til Siglu- flarðar í síld á summm. Guðbjami starfaði mörg sumur hjá Óskari Halldórssyni frænda sínum sem síldarmatsmaður og líkaði vel. Hann viðurkenndi aðeins fagmann- leg vinnubrögð við söltunina, enda var íslenska síldin á þeim tíma eftir- sótt gæðavara. Þær sögur vom sagðar, að ef slök vinnubrögð vom viðhöfð við söltun á hans síldarplani, hafí hann verið harður í hom að taka. Hann hafí þá umsvifalaust tæmt illa salt- aðar sfldartunnur upp í kassa aftur og urðu stúlkumar að raða í þær upp á nýtt. Hann brosti aðeins er ég spurði hann eitt sinn um sann- Fréttaflutningur Morgun- blaðsins af skoðanakönnun um kjarnorkufriðlýsing’u Söngsveitin The Platters er væntanleg til íslands 21. apríl nk. og mun skemmta í Broadway og Sjallanum. Hljómsveitin the Platt- ers koma til Islands eftirSvavar Sigmundsson Á blaðamannafundi í Norræna húsinu 20. mars sl. var kynnt niður- staða skoðanakönnunar Félagsvís- indastofnunar um afstöðu fólks til samstarfs um að Norðurlönd verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði. Morgunblaðið gerði grein fyrir þessum niöurstöðum inni í blaðinu daginn eftir. I frásögn af niðurstöð- um er blaðið ekki hlutlaust í frétta- flutningi sínum og gerir minna úr fylgi við hugmyndina en skoðana- könnunin sýndi. Þar sem spumingin, sem spurt var í könnuninni, var ekki tilgreind í frétt Morgunblaðsins er rétt að hún komi fram hér. Hún var svo- hljóðandi: Ertu hlynnt(ur) því eða mótfallin(n) að Island gerist aðili að norrænu samstarfi um að lýsa Norðurlöndin kjarnorkuvopna- laust svæði? Blaðið tekur hvergi saman tölu þeirra sem em mjög hlynntir og frekar hlynntir í fréttinni, en hins vegar þeirra sem eru mjög eða frek- ar mótfallnir (6,2%). Þegar kemur að því að skýra frá afstöðunni eftir kynjum er einungis getið um þá sem eru mjög hlynntir en ekki frekar hlynntir, sem eru 13,3% kvenna og heil 21,7% karla, svo að samtala hlynntra er alls 94,9% meðal kvenna og 84,2% karla. Um skiptingu eftir aldri er sama aðferðin notuð. Blaðið segir þannig frá: „Þá er mun meiri stuðningur við hugmyndina meðal yngstu kjós- endanna en þeirra sem elstir eru. 77,8% kjósenda á aldrinum 18—24 ára er hlynntur samstarfínu en 59,4% kjósenda á aldrinum 61—75 ára.“ Hér er blaðið einungis að tala um þá sem voru hlynntir, en séu þeir sem voru frekar hlynntir líka teknir með verður útkoman allt önnur. Samtala hlynntra á aldrinum 18—24 ára er 92,7%, en á aldrinum 61—75 ára 84,4%, þar sem 25% þessa eldri hóps er frekar hlynntur. Frásögn blaðsins er því villandi að þessu ieyti. Þessum talnablekkingum heldur Morgunblaðið svo áfram þegar far- ið er að skýra frá niðurstöðum skipingar „eftir því hvað viðkom- andi ætlar að kjósa“ eins og það er orðað í skýrslu Félagsvísinda- stofnunar. Þá segir blaðið niður- stöðuna á þennan veg: „Stuðningsmenn norræns sam- starfs um kjamorkuvopnalaus Norðurland (svo!) eru flestir úr hópi kjósenda Alþýðubandalags eða 91,2%, síðan Kvennalista 90,6%, Alþýðuflokks 76,5%, Sjálfstæðis- flokks 67,2%, en kjósendur Fram- sóknarflokks reka lestina 67,2% (svo!).“ (Á að vera 64,6%.) Hér er látið líta svo út að þessar tölur séu um þá sem hlynntir séu samstarfínu, en hér eru teknar lægri tölur, þ.e. aðeins þeir sem voru mjög hlynntir. Séu þeir sem svömðu að þeir væru frekar hlynntir taldir með verður útkoman auðvitað talsvert önnur. Þá verða stuðningsmenn flestir hjá Kvenna- lista, 96,3%, þá meðal kjósenda Alþýðubandalags 95,6%, síðan Al- þýðuflokks 91,7%, þar næst Framsóknarflokks 88,8%, en kjós- endur Sjálfstæðisflokksins reka lestina eins og við mátti búast með 83,4%. Þannig er röðin rétt þegar talað er um stuðningsmenn norræns samstarfs um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd. Samtala þeirra var líka 89,6% en sú tala sést hvergi á síðum Morgunblaðsins. Þessar leiðréttingar og athuga- semdir við frásögn Morgunblaðsins af skoðanakönnuninni sýna að blað- inu er ekki treystandi til að segja rétt frá niðurstöðum af þessu tagi þegar þær eru ekki að skapi rit- stjómar. Meðferð blaðsins á niður- stöðum fyrri kannana, sem Félagsvísindastofnun hefur gert, hefur yfírleitt verið óaðfínnanleg. Það bendir ekki til sterkrar mál- efnalegrar stöðu andstæðinga hugmyndarinnar um kjamorku- vopnalaus Norðurlönd að þeir skuli telja sig þurfa að grípa til frétta- mennsku af þessu tagi til þess að vinna málstaðnum fylgi. Htífundur á sæti / framkvæmda- nefnd Samtaka um kjarnorku- vopnalaust ísland. THE PLATTERS koma hingað til lands 21. apríl og skemmta í veitingahúsinu Broadway og í Sjallanum á Akureyri. The Platters munu skemmta 22., 23. og 26. apríl í Broadway og helgina 24. og 25. apríl í veitinga- húsinu Sjallanum. Söngsveitina The Platters skipa þau John Davis, Albert Statti, Ray- mond Manson, Monroe Powell og Marcia Robinson og koma þau með eigin hljómsveit með sér. Það verða lög eins og „Only You“, „Great Pretender", „Smoke Gets in Your Eyes", „Harbour Lights“ og „Magic Touch", sem munu hljóma í Broadway og Sjall- anum í apríl, segir m.a. í fréttatil- kynningu frá Broadway.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.