Morgunblaðið - 02.04.1987, Síða 59

Morgunblaðið - 02.04.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 59 Minning: Sölvi Ingólfs- son, sjómaður Fæddur 24. apríl 1958 Dáinn 21. mars 1987 Sölvi skipsfélagi okkar og vinur er nú horfinn okkur frá. Það er erfitt að trúa því að svo ungur og góður drengur sé allur, en þeir deyja ungir sem guðirnir elska og því verðum við að reyna að trúa á svona stundu. Sölvi var elstur af fjórum börnum foreldra sinna, Ingólfs Ólafssonar og Auðar Marisdóttur. Við höfum verið mikið saman áhöfnin á Hersi síðan hann var keyptur til Hafnarfjarðar fyrir um þremur árum og kom Sölvi til okk- ar í mars ’85. Höfum við því staðið saman félagarnir í misjöfnu veðri og veiði á hafinu, sem oft getur reynst erfitt er veður er vont og ísing mikil, þótt við bryggju sé. Og enn kemur sá hörmulegi atburður fyrir að hafið tekur frá okkur kær- an vin og sannar hversu við mennimir emm lítils megnugir er hafið á í hlut. Skipið okkar er ekki stórt og því mennimir ekki margir og kannski er það þess vegna sem hópurinn verður samheldinn og félagsskapur- inn meiri. En eitt er víst að við kveðjum í dag vin og vinnufélaga og munum minnast góðs drengs með hlýju í hjarta um ókomna framtíð. Guð blessi foreldra hans, systkini og hans ástkæm systurdóttur á þessum erfiðu tímamótun. „Svo heyrði ég dauðadóminn, enn dynja heyri’ ég óminn: „Svo stutta, stutta töf.“ Ég geymi margt í minni og mæni fyrsta sinni með veika lund á vinargröf.“ (Einar Ben.) Áhöfnin á Hersi í dag kveðjum við góðan vin. Við hjónin kynntumst Sölva er hann réð sig á sama skip og Gunni og höfum við verið vinir síðan. Foreldrar Sölva em Ingólfur Ól- afsson og Auður Marisdóttir. Hann átti tvo bræður, Maris og Auðunn og eina systur, Asdísi, sem bjó hjá honum ásamt dóttur sinni, Ingu Þóm, sem var augasteinn hans. Þótti honum svo vænt um hana að hver faðir mætti stoltur vera ef hann bæri jafn innilega væntum- þykju og umhyggju til eigin dóttur. Það og svo margt annað sem renn- ur í gegnum hugann á þessum tímamótum lýsir best þeim góða dreng sem við kveðjum nú hinstu kveðju. Þegar fregnin barst um þennan hræðilega atburð varð maður harmi sleginn og fannst lífið jafnvel til- gangslaust, þar sem svo ungur drengur er svo skyndilega frá okkur tekinn. En við leitum á náðir drott- ins og þar sem okkur hefur verið kennt að allt hafí þetta tilgang og þeir deyi ungir sem guðimir elska, leitum við friðar í sálu okkar og reynum að trúa því. Slysin gera ekki boð á undan sér. Það erum við eftirlifandi minnt á og þykir sárt þegar um góðan vin eða ástvin er að ræða. Okkur fannst þessi ungi vinur okkar rétt vera að hefja lífið og hafði hann margt að stefna að og allt var svo bjart framundan er svo skyndilega var klippt á af okkur æðri völdum. Við hjónin munum minnast góðs vinar með einlægni og hlýju allt til enda vorra daga. Eftirlifandi ástvinir, foreldrar, systkini og litla Inga Þóra; Guð varðveiti ykkur og styrki. „Sú heimsvon glæst, sem hjarta manns er næst, er hugartál - og getur sjaldan ræst, og þótt hún mettist eina örskotsstund, hún aðeins kom - og hvarf í sama mund.“ (Omar Khayyám) Gunni og Kalla t Útför móftur okkar, ömmu og langömmu, ELÍNAR EIRÍKSDÓTTUR KULD SÖEBECH frá Ökrum, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. apríl kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinar látnu er bent á Krabbameinsfélag íslands. Sigríftur Söebech, Kristjana Quinn, Sunna Söebech, barnabörn og barnabarnabörn. t Konan mín og móðir, FREYJA GUÐMUNDSDÓTTIR, Þinghólsbraut 43, lést í Landakotsspítala þann 1. apríl. Reynir Einarsson. Dröfn Hjaltalin. t Eiginkona mín, dóttir okkar, móðir, tengdamóðir og amma, HRAFNHILDUR MARGRÉT VIGGÓSDÓTTIR, Álfhólsvegi 27, Kópavogi, andaðist í Landakotsspítala sunnudaginn 29. mars. Útförin veröur gerð frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 7. apríl kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir eins og hugur þeirra stendur til. Bogi Þórir Guðjónsson, Viggó Guðjónsson, Guðjón Bogason, Aðalheiður Bogadóttir lckes, Sólveig Bogadóttir, Þórunn Bogadóttir Moyer, Heba Bogadóttir, Linda Lea Bogadóttir, Aðalheiður Gestsdóttir, Elín Björk Einarsdóttir, Robert lckes, Páll Einarsson, Sidney C. Moyer, og barnabörn. t Bróðir okkar, OTTÓ KRISTINN BJÖRNSSON, Sólvallagötu 40, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 29. mars. Friðjón Sigurbjörnsson, Þorvaldur Sigurbjörnsson, Gunnar Björnsson, Erlingur Björnsson. t Faðir okkar og tengdafaðir, ÓLAFUR I. ÁRNASON frá Hurðarbaki, fyrrv. yfirfiskmatsmaður, andaðist 31. mars. Börn og tengdabörn. sem stuólar aó auknum námsárangri og eflingu íslenskrar tungu Samin fyrir skólafólk Þessi orðabók kom út ó sl. hausti. Hún er unnin at sjö manna starfsliði orðabókadeildar Arnar og Örlygs með aðstoð fjölda laus- róðinna sérfrœðinga, enda er hún allstór, 760 síður, og ftarleg en jafnframt mjög handhœg. Allt kapp var ó það lagt að gera bókina sem best úr garði, og var hún m.a. unnin í samstarfi við flokk enskukennara. Bókln er sérstaklega samin með þarfir skólafólks í huga, og mun það í fyrsta sinn sem róðist er í slikt hér ó landl. ifiiKuvæg „Mikil þörf hefur verið ó ensk-fslenskri skólaorðabók í grunnskólanum þor sem lögð er óhersla ó að byggja upp nókvoeman orðskilning og virkan orðaforða. Það er mikilvœgt að hafa slíka bók jafnan við höndina í daglegu starfi.' (Jacqueline Friðriksdóltir nómsstjóri I ensku) Lykill að þekkingu Þar sem bókinni er œtlað að vera kennslutoeki í enskunómi, f notkun enskra orðabóka sem og í notkun orðabóka almennt, voru útbúnar kennsluleiðbelningar með bókinni ósamt œfingahefli, og önnuðust enskukennarar það verk í samróði við starfsfólk orðabóko- deildarinnar. Það er höfuðatriði að sú orðabók sem skólafólk notar sé samtíma- bók þar sem leitast er við að gera tœkni- og vísinddmóli góð skil. Lifandi tungumól eins og íslenska og enska taka sífelldum þreyting- um. Með auklnni þekkingu verða til ný orð og með breyttum lífshdltum ný orðatiltœki. Það er nauðsynlegra nú en nokkru sinni fyrr að nómslólk ó Islandi eignist orðabók sem hœfir samtíð þess. Traustur grunnur Höfundar orðabókarinnar hala kappkostað að veifa sem beslar ORNogORLYGUR mólfrœðilegar upplýsingar um beygingar, fieirtölumyndanlr, framburð, orðaskiptingar milli lína o.s.liv. Af þvf sem að framan er sagt mó Ijóst vera að þessi nýja ensk- íslenska orðabók leggur grunn að nókvœmum skilningi og vali réttra orða og orðalags við þýðingu ensks fexta. Efttr ísEenska tungu Orðabókin styrklr þó ekki nemend- ur aðeins í enskunómi heldur einnig og ekki síður f fslensku- nómi. Þetta er sem sagf bók „til eflingar íslenskri tungu ó vólegum tímum þegar dð móllnu er vegið úr öllum óttum.'‘ (Guðni Olgeirs- son, nómsstjóri i íslensku). Stö im voro um tunguna Stuðlið að því að nómsfólk noti bœkur sem auka og auðgo orðaforðann og styrkja mdl- tilfinninguna. Síðumúla 11, sími 84866

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.