Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 72
Veiö kr: 3100.-
Tilboðiö gildir til 6. júlí 1987.
Æl
HfíNS PETERSEN HF
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT!
Innanhússmeistara-
(fyrir 35mmfilmur)
C-stigs *
námskeid KSÍ *
Munið að námskeiðið hefstföstudaginn
3. apríl íhúsakynnum íþróttasambands
íslands í Laugardal kl. 18.30.
Tækninefnd KSÍ.
mótið í sundi
'3K
Innanhúsmeistaramót Islands
í sundi verður haldift í Sundhöll
Reykjavíkur nú um helgina. Mótiö
hefst á föstudaginn og þvf Ifkur
á sunnudaginn.
Þetta er eitt af stærri sundmót-
um sem hér eru haldin. Keppt
verður í 20 einstaklingsgreinum
og alls taka þátt 120 sundmenn
frá 14 félögum. Mjög ströng lág-
mörk voru sett fyrir þetta mót
þannig að þar keppir okkar besta
sundfólk.
Mót þetta er haldiö í samvinnu
Sundsambands Islands og Olíufé-
lagsins sem gefur verðlaun til
þeirra sem vinna bestu afrekin á
mótinu.
Mótið hefst klukkan 20 á föstu-
Styrkir til
þjálfara
EINS og undanfarin ár mun
íþróttasamband íslands veita
styrki tii unglingaþjálfara sem
hyggjast sækja námskeið erlend-
^js og verða veittir þrír styrkir að
upphæð 25.000 hver.
Umsóknir um styrki þessa þurfa
að vera á sérstökum eyðublöðum
sem send hafa verið héraös- og
sérsamböndum og fást þau einnig
á skrifstofu ISÍ. Umsóknarfrestur
er til 1. maí.
(Fróttatilkynning)
daginn og verður síðan fram haldið
klukkan 8.30 á laugardagsmorgun
með undanrásum. Klukkan 16 á
laugardaginn verður síðan setning
og úrslitasund í þeim greinum sem
keppt var í um morguninn og á
sunnudaginn verður sami háttur
hafður á.
Körfubolti:
Skólamót
SKÓLAMÓT KKÍ f körfubolta
verður haldið nú um helgina í
Breiðholts- og Setjaskóla og
verða leiknir um 70 leikir.
Síðari leikur Vals og UMFN um
íslandsmeistaratitilinn verður í
Seljaskóla á laugardaginn klukkan
16 og verður gert hlé á skólamót-
inu á meðan þeir leika og hefur
KKÍ ákveðið að bjóða keppendum
í skólamótinu á leikinn.
Leiðrétting
í frásögn okkar af íslandsmeist-
aramótinu í júdó fyrir nokkru
sögðum við að Birgir Björnsson
úr KA hefði unnið í +37 kfló-
gramma flokki pilta 9-10 ára.
Þetta er ekki rótt því það var
Steingrfmur Njálsson úr KA sem
vann f þessum flokki.
MorgunblaÖið/Einar Falur
• Margir koma á skrifstofu Íslenskra getrauna á laugardögum og fylla út kerfi. Á myndinni fylgist Birna
Einarsdóttir með áhugasömum tippurum.
Getraunir:
Verða þrjár
milljónir í pottinum?
SÍÐASTA sprengivikan hjá ís-
lenskum getraunum á þessu
leiktímabili stendur nú yfir. Miðað
við sölu undanfarnar vikur er
líklegt að potturinn á laugardag-
inn verði að minnsta kosti 3
milljónir. Taki tipparar hins vegar
hressilega við sér, verður pottur-
inn að sjálfsögðu hærri, en hann
var um fimm miiljónir f sprengi-
vikunni í nóvember.
'
80daga
gfmœlistilboð
í tilefni af 80 ára afmœli
Hans Petersenhf. bjóöum viö
Kodak mvndavél
á einstaklega hagstœöu veröi.
5áia ábyrgö =====
í mörg undanfarin ár hefur sala
getraunaseðla verið ein helsta
tekjulind íþróttahreyfingarinnar.
Síðan lottóið byrjaði hefur salan
aftur á móti dregist saman, en að
sögn Birnu Einarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra íslenskra getrauna,
er engin uppgjöf hjá fyrirtækinu.
„Sölukerfið er í endurskoðun og
vonandi líður ekki á löngu, þar til
allir landsmenn geti tekið þátt í
getraununum aila vikuna. Eins og
ástandið er í dag, verða margir úti
á landi að skila útfylltum seðlum á
fimmtudegi til að öruggt sé að
þeir berist okkur áður en leikirnir
hefjast á laugardögum. Þetta er
of snemmt, því flestir byrja ekki
að hugsa um leiki helgarinnar fyrr
en nær dregur."
50% ívinninga
Hlutfall vinninga í getraununum
er 50%, en íþróttafélögin fá 25%
í sölulaun. 2% fara í sjóð, sem
bætist við pottinn í næstu sprengi-
viku. Að þessu sinni er um hálf
milljón í sjóðnum og ef milljón rað-
ir seljast, verða þrjár milljónir í
pottinum. „Við seldum tæplega
tvær milljón raðir í sprengivikunni
í nóvember, en ég þori ekki að spá
svo mikilli sölu núna, þó ég voni
allra vegna að tipparar taki vel við
sér,“ sagði Birna.
Ný getraunabók
Getraunakerfi eru mjög vinsæl
hjá tippurum og nú hafa islenskar
getraunir gefið út bók með kerfum
til að auka enn þjónustuna. Eiríkur
Jónsson tók efnið saman. Bókin
kostar 100 krónur og fæst hjá öll-
um umboösmönnum íslenskra
getrauna og auk þess hjá fyrirtæk-
inu sjálfu í Laugardalnum.
Hola í höggi
Uppskeruhátíð Einherja á laugardaginn
Á SÍÐASTA ári unnu alls 32
íslenskir kyifingar það afrek að
fara holu f höggi á golfvöllum hér
á landi eða erlendis. Sumir náði
„draumahögginu" f fyrsta sinn á
æfinni en aðrir hafa lagt þetta f
vana sinn undanfarin ár. Þorbjörn
Kjærbo frá Golfklúbbi Suðurnesja
fór til dæmis holu f höggi í sjötta
sinn á síðasta ári.
Þeir sem fara holu i höggi verða
sjálfkrafa meðlimir í Einherjaklúbb-
num sem stækkar stöðugt. Yngsti
meðlimur klúbbsins er nú Þórir
Örn Þórisson úr GR, en hann sló
draumahögg sitt á golfvellinum að
Korpúlfsstöðum í fyrra þá aðeins
9 ára að aldri.
Á laugardaginn verður upp-
skeruhátíð Eiherja og býður þá
Johnie Walker umboðið á Islandi,
Vang hf., til samkvæmis þar sem
Einherjar síðasta árs verða heiðr-
aðir og teknir í félagið. Samkvæmi
þetta er í Húsi Verslunarinnar á
laugardaginn frá 17-19.
Hér á eftir fer listi yfir Einherja
ársins 1986:
Ásgerður Sverrisdóttir, GR
Guðmundur Einarsson, NK
Sigurður Friðriksson, GS
Þorbjörn Kjærbo, GS
Skúli Skúlason, GEE
Alda Sigurðardóttlr, GK
Ólafur Einarsson, GV
Margeir Margeirsson, GS
Guðmundur Orn Guðjónsson, GHH
Árni Jónsson, GA
Þórir Örn Þórisson, GR
Hjalti Pálmason, GV
Gísli Hall, NK
Henning Bjarnason, GK
Eyjólfur Bergþórsson, GR
Davið Helgason, G. Kjölur
Hreinn Jónsson, GH
Stefán Kristjánsson, GR
Þórður Orri Pétursson, NK
Þórður Ólafsson, GL
Leifur Ársælsson, GV
Guðrún Eiríksdóttir, GR
Sævar Gunnarsson, GA
Bragi Ingvason, GG
Sverrir Einarsson, NK
Stefán B. Pedersen, GSS
Hlynur Sigurdórsson, GL
Hannes Hall. NK
Gunnar Jakobsson, GA
Haraldur Sumarliöason, GK
Ólafur B. Jónasson, GR
Jón Ásgeir Eyjólfsson, NK