Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 73 Mikill heiður ef satt er - segirGunnar Einarsson um áhuga Lemgo „ÉG er nú bara að heyra þetta f fyrsta skipti núna og því á ég dálítið erfitt með að tjá mig um þetta,“ sagði Gunnar Einarsson handknattleiksmaður og þjálfari í gær. Morgunblaðið skýrði hon- um þá frá áhuga þýska liðsins Lemgo á að ræða við hann um að þjálfa félagið. „Ég klára skólann í vor og er á leiðinni heim. Ég er búinn að vera hér í þrjú ár og var ákveðinn í að koma heim. Það að þýskt lið vill ræða við mig um þjálfun er auðvit- að mikill heiður fyrir mig ef satt er. Ég hef verið mjög áhugasamur um þýsk lið og þýskan handbolta en hvort ég fer þangað núna eða síðar á lífsleiðinni veit enginn. Auðvitað ræði ég við mennina ef þeir ná í mig en ég er lítið heima um þessar mundir og erfitt að ná i mig en þetta er mikill heiður fyrir mig." - Hefur eittvert lið á íslandi rætt við þig um þjálfun? „Já, ég get ekki neitað því. Það hefur eitt félag rætt alvarlega við mig en þær viöræður eru á algjöru frumstigi og ekkert meira um það að segja." Engiand: Mark Dennis rekinn f rá Southampton MARK Dennis, varnarmaðurinn sterki hjá Southampton, var rekinn frá félaginu í gær, en hann hefur verið upp á kant við Chris Nicholl, framkvæmda- stjóra félagsins. Dennis hefur átt erfitt með að hemja skap sitt og hefur tíu sinn- um verið vikið af vellinum é ferlinum. Hann byrjaði hjá Birm- ingham 1978, en hefur verið hjá Southampton síðan 1983. í vetur hefur hann tvisvar verið kallaður fyrir aganefnd enska Knatt- spyrnusambandsins og á yfir höfði sér leikbann. Þrjú félög höfðu áhuga á að fá Dennis í sínar raðir fyrir skömmu, en hann hafnaði tilboð- unum. Á dögunum gagnrýndi hann Nicholl í blaðagrein, þá var mælirinn fullur og hann var rek- « Mark Dennis var látinn taka inn í gær. poka sinn hjá Southampton. Simamynd/Reuter • Frá leik Belga og Skota í Evrópukeppni landsliða í Brussel í gær- kvöldi. George Grun og Jim Mclnally kljást hér um knöttinn og hefur Grun betur eins og svo oft í leiknum. • íslenska drengjalandsliðið í körfubolta ásamt þjálfurum Körfubolti: Drengjalandsliðið á EM í Englandi Fer fyrst til Portúgal í æfinga- og keppnisferð ÍSLENSKA drengjalandsliðið i körfubolta fer á sunnudaginn til Portúgal í æfinga- og keppnisferð og að henni lokinni tekur liðið þátt í Evrópukeppni drengja- landsliða, sem fram fer í Graves- end í Englandi 21.-25. apríl. Liðið fer fyrst til Faro í Portú- gal, þar sem það tekur þátt í fjögurra þjóða móti 7.-9. apríl. Auk íslands taka þátt Portúgal, Mósambique og Marokkó eða Alsír. Síðan fer hópurinn í æfinga- og keppnisbúðir í Lissabon og loks til Englands. Leikreynt lið í islenska liðinu eru mjög leik- reyndir strákar enda hefur verið unnið markvisst að þátttöku í þessu Evrópumóti í nokkur ár með Í)ví að vera með í mótum erlendis. sland er í riðli með Englandi, Skotlandi, Frakklandi og Belgíu, sem eru allt sterkar körfubolta- þjóðir, en að sögn Jóns Sigurðs- sonar, aðstoðarþjálfara íslenska liðsins, ætti liðið aö standa sig betur, en drengjalandslið fyrri ára. „Sem fyrr vantar okkur hávaxna leikmenn, en strákarnir hafa verið • Herbert Svavar Arnarson, fyr- irliði. lengi saman og hópurinn er vel samstilltur." Að sögn Jóns eru miklar vonir bundnar við Herbert Svavar Arnar- son, fyrirliða liðsins, en hann stundar nú nám í Bandaríkjunum og hefur staðið sig frábærlega með skólaliði sínu. „Þeir komust i úrslitakeppni skólanna í Kentucky- fylki, sem er mjög gott, því körfu- boltinn þar er með því besta sem gerist vestra. MiHi tuttugu Qiev.u þrjátíu þúsund áhorfendur voru ávallt a leikjum liðsins og því er spáð einu af þremur efstu sæt- unum næsta ár,“ sagði Jón. Því má bæta við að Herbert Svavar hefur tvisvar verið kosinn Scania- kóngur í sínum aldursflokki á Scania-mótinu í Svíþjóð, en það er oft nefnt óopinbert heimsmeist- aramót félagsliða. Þess má geta að strákarnir fjár- magna þessa löngu og dýru ferð sjálfir á ýmsan hátt og hafa vélvilja hjá mörgum fyrirtækjum og einstaklingum í því efni. Liðið er annars eftirfarandi: Ari Gunnarsson, Val Brynjar Harðarson, ÍBK FriSrik Pétur Ragnarsson, UMFN Gunnar Öm Örlygsson, UMFN Herbert Svavar Arnarson, ÍR, fyrirliSi HörSur Gauti Gunnarsson, KR HörSur Lindberg Pétursson, Haukum Jón Páll Haraldsson, UMFG Ottó Davíð Tynes, ÍR Skúli Skúlason, ÍBK Sveinbjörn SigurSsson, UMFG Þórir Viðar Þorgeirsson, ÍR Björn Leósson, þjálfari Dick Ross, aðstoöarþjálfari Jón Sigurösson, aðstoöarþjálfari á EM Guðmundur Gylfi Guðmundsson, farar- stjóri á EM Sigurður Valur Halldórsson, dómarl á _ EM Evrópukeppnin íknattspyrnu: Nico Claesen skoraði þrennu NICO Claesen skoraði þrennu, þegar Belgía vann Skotland 4:1 á Heyselleikvanginum í Brussel í gærkvöldi. Þar með fóru heima- menn á toppinn í 7. riðli Evrópu- keppninnar, en vonir Skota um að komast í úrslitakeppnina brustu. „Við lékum vel í fyrri hálfleik," sagði Andy Roxborough, þjálfari Skota eftir leikinn, en skoskir áhorfendur voru ekki á sama máli og vildu að þjálfarinn yrði rekinn. Belgar léku stífan sóknarleik með þrjá menn frammi. Claesen skoraði fyrsta markið á 9. mínútu eftir sendingu frá Enzo Scifo, en Paul McStay jafnaði með skalla fjórum mínútum síöar eftir send- ingu frá James Bett. í seinni hálfleik var sókn Belga mun þyngri, Claesen bætti tveimur mörkum við og Frank Vercauteren innsiglaði stórsigur á 72. mínútu. Lið Belgfu: Pfaff, Grun, Van Der Elst, Clijsters, Vervoort, Vercauteren, Demol, Claesen, Vandenbergh, Scifo, Desmet. STUTTGARTER Kicker vann Fort- una Diisseldorf 3:0 í undanúrslit- um vestur-þýsku bikarkeppninn- ar í gær og leikur til úrslita gegn HSV í Vestur-Berlín 20. júní. Stuttgarter Kicker leikur í 2. deild, en Dusseldorf í þeirri fyrstu Lið Skotlands: Leighton, Gough, Malpas, McStay, McLeish, Narey, Aitken, Mclna- lly, McCoist, Bett, Sturrock. og komu úrslit leiksins mjög á óvart. Frank Elser, Kazimierz Kmi- ecik og Dirk Kurtenbach skoruðu mörkin. Eftir þriðja markið hlupu margir stuðningsmenn Dusseldorf inn á völlinn og varð að stöðva leikinn í fimm mínútur. Þýskaland: Stuttgart er í úrslit
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.