Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 76
.fólksí öllum starfsgreinum! STERKTKDRT FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Einum var bjargað annarfórst Akureyri SKIPVERJA af Reyni, sex tonna trillu frá Litla-Arskógssandi, Kristjáni Rafni Sigurðssyni, var bjargað eftir að Reynir sökk í fyrradag i aftakaveðri skammt fyrir utan höfnina á Litla- Arskógssandi. Hinn skipveijinn, tengdafaðir Kristjáns, Svavar Guðmundsson, 46 ára, fórst. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn. Þeir Kristján og Svavar ætluðu, eins og eigendur tveggja annarra báta, að færa bátinn vegna veðurs frá Litla-Arskógssandi ' inn á Hauganes. Þegar Reynir var kom- inn 100—200 metra út lagðist hann á hliðina, hvolfdi og sökk. Næstir m eftir komu feðgarnir Sigurður Konráðsson og Konráð Sigurðsson á Særúnu og tókst þeim að bjarga Kristjáni. Sjá frásögn á bls. 41. Dramaten kemur til Islands GENGIÐ hefur verið frá samn- ingum milli Þjóðleikhússins og Kungliga Dramatiska Teatern í Stokkhólmi um að hingað komi leikhópur með sýninguna „En lit- en ö i havet“ sem sýnd er í Stokkhólmi um þessar mundir. Eins og kunnugt er, er hér um að ræða söngleik eftir Hans Alf- redson, sem byggður er á Atómstöðinni eftir Halldór Kilj- an Laxness. Samningar munu nú hafa náðst við Flugleiðir um að feija hópinn (jtengað til lands og kemur hann þann 22. apríl næstkomandi. Að sögn Signýjar Pálsdóttur, markaðs- stjóra Þjóðleikhússins eru aðeins áætlaðar fjórar sýningar á söng- leiknum. Þann 23. apríl verður sérstök hátíðarsýning í tilefni af 85 ára afmæli Laxness. Önnur sýn- ing verður 24. aprfl og þann 25. apríl verða tvær sýningar, önnur klukkan 16 en sú seinni kiukkan 20. Sala aðgöngumiða hefst næst- komandi mánudag. Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson SEXTÍU OG ÁTTA STAURAR KUBBUÐUST SEXTÍU og átta staurar í háspennulínunni frá Lagarfoss- virkjun til Vopnafjarðar kubbuðust í óveðrinu í fyirakvöld. Viðgerð tekur tíu til tólf daga og er áætlaður kostnaður tíu til fímmtán milljónir króna. Fréttaritari Morgunblaðsins á Egilsstöðum, Björn Sveinsson, fór í gær út í Jökulsárhlíð, þar sem skemmdirnar urðu og á myndinni stendur sonur hans, Sveinn Birkir hjá bútunum af einni staurasamstæðunni. Sjá frásagnir af óveðrinu og afleiðingum þess á blaðsíðum 42 og 43. Hlutabréf í Flugleiðum hafa hækkað um 413% - en lánskjaravísitalan um 18% síðustu 15 mánuði SXSS?unni og Almenn UNDANFARNA 15 mánuði hef- ur gengi hlutabréfa í Flugleiðum margfaldast hjá Hlutabréfa- markaðinum hf. Á sama tima og lánskjaravísitalan hefur hækkað um 18,3% hefur gengi Flugleiða- bréfanna hækkað um 413%. Aðalfundur Hlutabréfamarkað- arins hf. var haldinn í gær og þar komu fram þessar upplýsingar. Gengi hlutabréfa í Eimskip hefur einnig hækkað verulega, eða um 126% frá janúar 1986. Hlutabréfamarkaðurinn hf. tók upp skráningu á kaup- og sölu- gengi hlutabréfa í fjórum fyrirtækj- um í október 1985. Auk Eimskips og Flugleiða voru hlutabréf í Iðnað- arbankanum og Verzlunarbankan- um skráð. Gengi hlutabréfanna í bönkunum hafa hækkað um 13-15% frá ársbyijun 1986. Síðastliðið haust var hafin skráning á hluta- Sjá nánar viðskiptablað: „Gengi hlutabréfa í Flugleið- um og Eimskips margfald- ast...“ á B1 Austur-Húnavatnssýsla: Gamapest í kúm veldur miklu tjóni Blönduósi. VEIKI er komin upp í kúm á nokkrum bæjum í Austur-Húnavatns- sýslu og hafa allmargar kýr drepist skyndilega úr henni. Er talið að hér sé um að ræða garnapest, sem er vel þekkt í sauðfé, en hefur ekki fyrr verið staðfest í mjólkurkúm hér á landi. Þessi veiki er þekkt í nautgripum ei iendis, en fá dæmi munu um hana í mjólkurkúm. Veikinnar hefur orðið vart á sjö bæjum í Austur-Húnavatnssýslu. Tveir nágrannabæir hafa þó mest orðið fyrir barðinu á henni og hafa 8 kýr drepist þar það sem af er þessu ári. Páll Þórðarson í Sauðanesi hefur misst 16 kýr á tveimur árum og segir hann að erfitt sé að fara til kúnna á morgnanna og eiga alltaf von á að finna einhveija dauða. Stefán Á. Jónsson bóndi á Kagaðarhóli hefur misst 6 kýr það sem af er þessu ári, þar af 3 sama sólar- hringinn. Sýkillinn sem veldur garnapest- inni er í náttúrunni en fjölgar sér skyndilega af ókunnum ástæðum og veldur eitrun sem er bráðdrep- andi. Veikin er ekki smitandi. Á tilraunastöð Haskólans í meina- fræði á Keldum er verið að rækta sýkilinn í þeim tilgangi að fram- leiða bóluefni gegn veikinni. Jón Sig. Sjá fréttir og viðtöl á bls. 4. Von um sairniing við Kennarasambandið SAMNINGAMENN ríkisins sátu á fundi með samninga- nefndum Starfsmannafélags rikisstofnana og náttúrufræð- inga í Karphúsinu í gærkveldi. Nýr fundur var boðaður með SFR í morgun en náttúru- fræðingar sátu enn á fundi um miðnættið. Þá var einnig fundað um kjarasamning Kennarasambands íslands, en þeirri deilu hefur ekki verið vísað til ríkissáttasemjara. Samkvæmt heimildum blaðsins er von til að skrifað verði undir samning KÍ og ríkisins í dag. Má búast við að hann verði mjög áþekkur þeim sem Hið íslenska kennarafélaggerði fyrr í vikunni. Þeir fundir sem boðaðir höfðu verið hjá ríkissáttasemjara í dag eru með Starfsmannafélagi ríkis- stofnana, telagi háskólakennara, símamönnum, félagsfræðingum og hjúkrunarfræðmgum. Sjá á bls. 5: „Á von á að við stöndum upp með samning eftir tvo daga.“ Þrjú skip með loðnu ÞRJÚ loðnuskip fengu afla i gær, samtals 1.800 lestir. Önn- ur skip eru hætt loðnuveiðum, en framhald veiða skipanna þríggja er óljóst. Dagfari ÞH var með 530 lestir, Keflvíkingur KE 500 og Hilmir SU 770. Aflinn fékkst sunnan við Reykjanes.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.