Morgunblaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987 Meðferðar- stofnun að Fitjum á Kjalarnesi FJÓRIR einstaklingar hafa fest kaup á Fitjum, 850 fermetra ein- býlishúss á Kjalarnesi. Þar ætla þeir að reka meðferðarstofnun fyrir erlenda alkóhólista, aðal- Iega Svía til að byija með. Hilmar Helgason byggði húsið á sínum tíma, en eigandi þess nú var Kristinn Finnbogason. Fjórmenn- ingamir sem kaupa húsið em Brynjólfur Hauksson, Skúli Thor- oddsen, Bjami Steingrímsson og Bergur Guðnason. Kaupverðið fékkst ekki uppgefið í gær. Áætlað er að hefja starfsemi á nýja staðnum 1. maí nk. Aðalfundur Verzlunar- bankansí dag AÐALFUNDUR Verzlunarbank- ans verður haldinn í dag í Súlnasal Hótel Sögu og hefst klukkan 14.00. Á fundinum verður gerð grein fyrir starfi og rekstri bankans á iiðnu ári, en það var bankanum íagstætt. Þá verður lögð fram til- laga bankaráðs um útgáfu jöfnun- arhlutabréfa. Þeir hluthafar sem ekki hafa vitjað aðgöngumiða og atkvæðaseðla geta fengið þá af- henta á fundarstað. Herdís Þorgeirsdóttir ásamt Yoko Ono í híbýlum hennar í Dakota-byggingunni í New York. Einkaviðtal við Yoko Ono í tímaritinu Heimsmynd EINKAVIÐTAL við Yoko Ono, ekkju bítilsins John Lennon, er I tímaritinu Heimsmynd sem kemur út um heigina og er þetta fysta við- talið sem Yoko Ono hefur veitt í langan tíma. Það var Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri Heimsmyndar sem ræddi við Yoko Onö á heimili hennar í New York og töluðu þær saman í nokkrar klukku- stundir. „Þetta var einstök upplifun," sagði Herdís í sam- tali við Morgunblaðið. „Yoko var einlæg, opinská og hlý. Hún ræddi um árin með John Lenn- on, dauða hans, sambandið við Bítlana og líf sitt nú. Yoko ræddi einnig alþjóðastjómmál en hún er virk í baráttunni fyrir friði og hefur ferðast víða um heim undanfarið til að vekja athygli á þeim málstað," sagði Herdís. Morgunblaðið/Einar Falur Frá fundi ASÍ, VSÍ og VMS. Taldir frá vinstri: Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Gunnar J. Friðriks- son, formaður VSÍ, Hjörtur EirSksson, framkvæmdastjóri VMS, og Björn Björnsson, hagffræðingur ASI. Fundur forsvarsmanna ASÍ og atvinnurekenda: Sérfræðingar meta nýgerða samninga NIÐURSTAÐA fundar forsvars- manna Alþýðusambands íslands og atvinnurekenda í gær varð sú að fulltrúar atvinnurekenda töldu sig ekki geta fallist á að tilefni væri til endurskoðunar gildandi kjarasamninga, en ákveðið var að sérfræðingar að- ila skyldu meta þær breytingar sem orðið hafa á kj arasamning- Félag íslenskra nátturufræðinga semur við ríkisvaidið: Byijunarlaun um 40 þúsund FÉLAG íslenskra náttúrufræð- inga og Matvæla- og næringar- fræðingafélag íslands undirrit- uðu kjarasamninga við rikisvaldið í gærmorgun og hef- ur verkfalli félaganna verið frestað fram yfir atkvæða- greiðslu um samningana. Þeir náttúrufræðingar, sem sagt hafa upp störfum á rikisspítölunum frá siðustu mánaðamótum, hafa ekki tekið ákvörðun um að snúa aftur til starfa sinna og munu ekki gera það fyrr en þeir hafa kynnt sér samninginn og bókanir honum meðfylgjandi. Má búast við að ákvörðun þar að lútandi liggi fyrir eftir helgi. Líffræð- ingar hjá Blóðbankanum hafa boðist til að vinna um helgina fyrir tímakaup, eins og þörf er á, þannig að skortur á starfsfólki á ekki að koma í veg fyrir eðli- lega starfsemi bankans. Ólafur Jensson, yfírlæknir Blóð- bankans, sagði að þeir reiknuðu með að starfsfólk þeirra sneri til vinnu eftir helgi, en ekki færi allt í fullan gang fyrr en búið væri að semja við Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, þar sem stórar skurðaðgerðir yrðu ekki fram- kvæmdar fyrr en sú deila væri leyst og kröfumar til bankans yrðu ekki verulegar fyrr en þá. Hann sagði að reynt hefði verið að halda við blóðbirgðum í verkfallinu. Ólafur sagði að hann héldi að góður andi væri í starfsliðinu eftir samningana og hann vissi ekki um neitt dæmi ■ þess að fólk hefði ráðið sig annars staðar. Ólafur Karvel Pálsson, formaður samninganefndar FÍN, sagði samn- ingana á svipuðum nótum og saminga annarra ríkisstarfsmanna. Samningurinn er afturvirkur til 1. febrúar og gildir til áramóta 1988. Við gildistöku samningsins verða lágmarkslaun um 40 þúsund krónur og laun taka sömu áfangahækkun- um og samkvæmt öðrum samning- um. Þá eru endurskoðunar- og uppsagnarákvæði í samningnum um það að rými kaupmáttur launa um meira en 6,5% á næsta ári sam- anborið við meðalkaupmátt á þessu ári, sé samningurinn uppsegjanleg- ur náist ekki samkomulag um endurskoðun. Ólafur sagðist ekki ánægður með samninginn en teldi hann þolanleg- an miðað við aðstæður. „Helsti ávinningurinn af samningnum er félagslegs eðlis. Við erum að beita samningsrétti okkar í fyrsta skipti og sýnum með því hvemig við beit- um honum að okkur er full alvara með það að semja sjálfir um okkar laun,“ sagði Ólafur. Hann sagðist ekki búast við öðru en að samning- urinn yrði samþykktur af félags- mönnum. um að undanförnu. Því mati voru ekki sett ákveðin tímamörk. „Af okkar hálfu hljótum við að leggja áherslu á að þetta mat gangi fljótt fyrir sig. Mér kemur ekki á óvart að atvinnurekendur vilji skoða málið áður en þeir fallast á að ganga til endurskoðunar á samn- ingunum," sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ, eftir fundinn í gær. „Ég vil hins vegar minna á það sem ég hef sagt áður, að það er mikið hagsmunamál beggja aðila að við framfylgjum því inntaki samninganna á síðasta ári að færa taxta að greiddu kaupi, en ekki að hið gagnstæða gerist að launaskrið- ið fleyti greidda kaupinu lengra frá töxtunum. Það er alveg ljóst að ef ekki verður samið um þessi mál núna fljótlega, þá mun það leysast með launaskriði og það þýðir að þeir sem eru með lægsta kaupið verða út undan, en hinir sem hafa sterkari aðstöðu munu ná sínu," sagði Ásmundur ennfremur. Asmundur sagði að ekki lægju neinar einhlítar tölur fyrir um hve miklu munaði á samningum opin- berra starfsmanna og samningum ASÍ og VSÍ frá því í desember, en það væri ljóst að talsverðu munaði. „Ég lít ekki á þetta sem afsvar atvinnurekenda og að endurskoðun samninga komi ekki til greina. Sér- fræðingar aðila munu skoða málið og framhaldið hlýtur að ráðast þeg- ar niðurstaða þeirra liggur fyrir,“ sagði Ásmundur að lokum. Frjálst fram- tak kaupir rekstur Fjölnis Útgáfufyrirtækið Fijálst framtak festi í gær kaup á rekstri útgáfufyrirtækisins Fjölnis og tekur þar með við út- gáfu þeirri sem Fjölnir hefur haft með höndum. Fjölnir hefur meðal annars gefið út tímaritin Mannlíf, Viðskipta- og tölvublaðið, Hús og garða, Bóndann og Fréttablað iðnaðarins. Frjálst framtak hefur gefið út 12 tímarit á undanfömum árum. Magnús Hreggviðsson, stjómarformaður og aðaleigandi Fijáls framtaks, sagði að fyrirtæki hans tæki við rekstri Fjölnis næsta þriðjudag. Síðan yrði unnið að því um páskana að taka ákvörðun um framhaldið, til dæmis hvort einhver tímarit Fjölnis yrðu sameinuð sambærilegum tímaritum Fijáls framtaks. Ekki yrði ljóst fyrr en í byijun maí hvemig útgáfu yrði háttað. Magnús kvaðst ekki vilja gefa kaupverðið upp. Þá sagði hann ennfremur að reynt yrði að útvega öllum starfsmönnum Fjölnis starf hjá Fijálsu framtaki. „Við vonum að með þessum kaupum styrkjum við enn stöðu okkar á íslenska tíma- ritamarkaðnum. Grundvöllur fyrir útgáfu íslenskra tímarita er ágæt- ur, til dæmis hefur sala þeirra stóraukist á síðustu ámm og aug- lýsingatekjur hafa síst minnkað með tilkomu útvarpsstöðva og nýrr- ar sjónvarpsstöðvar," sagði Magnús. Samkomu- lag- ekkí í sjónmáli ÞRJÚ félög háskólamenntaðra starfsmanna rikisins, sem hafa verið í verkfalli undanfarnar tvær vikur, sátu á samningafundi hjá ríkissáttasemjara i gærkveldi og er Morgunblaðið hafði síðast fregnir um miðnættið var sam- komulag ekki í sjónmáli og ekki búist við næturfundi. Fundir með samninganefnd ríkis- ins og Félagi háskólamenntaðra hjúkmnarfræðinga, bókasafns- fræðingum og félagsráðgjöfum hófust seinnipartinn í gær og í dag em boðaðir fimdir með sálfræðing- um, iðjuþjálfum og sjúkraþjálfur- um, sem starfa hjá ríkinu. Búist er við að nokkum tíma taki að ganga frá samningum við þessa aðila. Aðalfundur Alþýðubankans í dag: Tapliðinsárs tæpar 11 milljónir Búist við verulegum breytingum á bankaráði Alþýðubankans: TAP Alþýðubankans á síðast- liðnu ári nemur tæpum 11 milij- ónum króna, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Að- aifundur bankans verður haldinn í dag og verða ársreikningar hans lagðir þar fram. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru fyrirhugaðar verulegar breyt- ingar á bankaráði Alþýðubank- ans, en samkvæmt sömu heimildum er enginn ágreining- ur um þær breytingar og stœrstu hluthafar Alþýðubankans hafa í sameiningu undirbúið þær. Telja stærstu hluthafar Alþýðubank- ans að tími sé kominn til þess að gera breytingar á bankaráð- inu, en það hefur setið óbreytt í meira en áratug. Alþýðubankinn náði á sl. ári mun meiri innlánsaukningu en nokkur annar banki. Því kemur þessi rekstrarafkoma nokkuð á óvart, en bendir hins vegar til þess að ekki hafi tekist að haga útlánum þannig að útlánsvextir næðu að fullu að bera uppi mjög háa innlánsvexti. Auk þess færði bankinn út kvíarnar á sl. ári með nýju útibúi á Blöndu- ósi og afgreiðslustöðum á Húsavík og Akranesi. Stærstu hluthafar Alþýðubank- ans eru Verkakvennafélagið Framsókn, Dagsbrún, Alþýðusam- band Islands, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Iðja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.