Morgunblaðið - 11.04.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987
Samstöðuskjali dreift í Póllandi:
Vin blandað hag-
kerfi í Póllandi
Varsjá. Reuter.
SAMSTAÐA, óháðu verkalýðs-
félögin í Póllandi, sem bönnuð
voru með herlögunum, hefur
hvatt stjórnvöld til að losa um
einokunartökin á efnahagslífinu
og greiða fyrir auknu lýðræði í
landinu.
Kemur þetta fram í skjali, sem
dreift var í gær og undirritað er
af Lech Walesa, formanni Sam-
stöðu. Höfundar þess eru nokkrir
hagfræðingar, hlynntir Samstöðu,
og leggja þeir til, að tekið verði upp
blandað hagkerfi í Póllandi, sjálf-
stæðir viðskiptabankar stofnaðir,
frelsi einkarekstrar aukið og einnig
sjálfstjóm verkamanna. Er mikil
áhersla lögð á, að í ríkisfyrirtækjun-
um verði afnumin hin svokallaða
„nomenklatura", bitlingakerfið,
sem sýnir sig í því, að 80% forstjór-
anna fá stöður sínar vegna flokks-
þjónkunar en ekki vegna þess, að
þeir kunni til verka.
Pólska stjómin hefur boðað ýms-
ar umbætur á efnahagslífinu, m.a.
að hlutabréf í ríkisfyrirtækjum verði
boðin út og óarðbæmm og illa rekn-
um fyrirtækjum verði leyft að fara
á hausinn. Samstöðumenn hafa tek-
ið þessum hugmyndum vel en vilja
ganga enn lengra. Segja þeir, að
setja verði afskiptum ríkisins
ákveðnar skorður og tryggja þann
„frumburðarrétt hvers manns að fá
að beita sér í atvinnulífinu".
Reuter
Starfsmenn kjörstjómarinnar á Fyi bera kjörkassa á land eftir bátsferð frá smáeynni Serua, sem er
undan strönd Viti Levu, stærstu eyju Fiji.
Talið að Mara kuniii
að missa völd á Fiji
Spænska-Sahara:
157 hermenn falla í
átökum við skæruliða
Algeirsborg, Reuter.
SKÆRULIÐAR Polisario-hreyf-
ingarinnar, sem beijast fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis í
Spönsku-Sahara, kveðast hafa
fellt 157 hermenn frá Marokkó
á miðvikudag. Barist hefur verið
af hörku undanfarna tvo mánuði
en stríðið hefur staðið í 12 ár.
APS, hin opinbera fréttastofa Alsír,
Suva, Fiji, AP.
RATU Sir Kamisese Mara, for-
sætisráðherra Fiji, sagðist í gær
vera ömggur um að sigra í þing-
kosningunum, sem hófust á
mánudag og lýkur í dag. Búist
er við að talningu atkvæða ljúki
og að úrslit verði kunn á morg-
un, sunnudag.
Fiji hlaut sjálfstæði frá Bretum
fyrir 17 árum og hefur Mara verið
forsætisráðherra síðan. Landsmenn
eru klofnir í afstöðunni til leið-
togans. Innfæddir Fijimenn eru nú
í minnihluta kjósenda í fyrsta sinn,
eða 47% landsmanna. Talið að full-
trúi indverska meirihlutans, Dr.
Timoci Bavandra, eigi mikla mögu-
leika á að ná kjöri og binda þar
með endi á völd Mara.
Búist var við að kjörsókn yrði
um 80% en á kjörskrá voru 331.326
menn í 555 kjördæmum á rúmlega
eitthundrað eyjum Fiji. Kosið er um
52 þingsæti. Flokkur Mara, Banda-
lagsflokkurinn, hefur 29 sæti, en
kosningabandalag Sambands-
flokksins og Verkamannaflokksins,
sem Bavandra stofnaði fyrir tveim-
ur árum, hefur 19. Frá stofnun
Verkamannaflokksins hefur hann
náð meirihlutavöldum í Suva og
Lautoka, tveimur stærstu borgum
Fiji, og fjórir þingmenn flokks Mara
haf gengið til liðs við hann.
Mara vill eiga vingott við Vest-
urlönd en Bavandra vill lýsa jrfír
hlutleysi Fiji og fylgja fordæmi
Nýsjálendinga og banna skipum
með kjamorkuvopn að koma þar í
höfn.
Shultz fer til Moskvu
þrátt fyrir njósnamálið
Washington, Moskvu. Reutcr.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hefur þvertekið fyrir,
að George Shultz, utanríkisráð-
herra, hætti við fyrirhugaða
ísrael:
Stj
jómarsamstarf að
fara út um þúfur?
Jerús&lem, Reuter.
SIMON Peres, utanríkisráðherra
ísraels sagði í dag, að Yitzak
Shamir forsætisráðherra hefði
teflt stjómarsamstarfi Likud og
Verkamannaflokksins f hættu og
hefði ekki fyrr verið jafn grunnt
á því að það fari út um þúfur og nú.
Simon Peres hefur margsinnis
sagt, að hann sé fylgjandi því að efnt
verði til alþjóðlegrar ráðstefnu til að
komast að niðurstöðu um, hvemig
málum skuli skipað í þessum heims-
hluta, svo að friður ríki. Ekki hefur
tekizt að ná samstöðu um slíka ráð-
stefnu, en umræður um málið aukizt
upp á síðkastið. Yitzak Shamir, for-
sætisráðherra, hefur ætíð verið
andsnúinn áformum um slíka ráð-
stefnu. Shamir hefur þó talað hljótt,
þegar málið hefur borið á góma, þar
til á fimmtudag. Þá sagði hann á
fundi að hugmyndir Peres fælu í sér
„ útrýmingu ísraels." Og hann bætti
við „hugmyndir og viðleitni Simon
Peres er geðveikisleg og bijálæðisleg
og til þess fallin að við förumst, ef
við verðum reknir úr Júdeu og Sam-
aríu og Gaza.“
Þegar Simon Peres brást þannig
við að lýsa yfir að stjómarsamstarfið
í hættu vegna ummæla Shamirs,
reyndi talsmaður forsætisráðherrann
Yossi Ahimeir að gera gott úr öllu
og sagði það myndi ekki hvarfla að
forsætisráðherranum að láta umræð-
ur um friðarráðstefnu - umræður sem
ekki væru tímabærar- verða tilefni
stjómarslita.
Moskvuför þrátt fyrir áskorun
öldungadeildarinnar og sína
eigin óánægju með njósnirnar
í bandariska sendiráðinu í
Moskvu. Skýrði embættismað-
ur í Hvíta húsinu frá þessu í
_g»r.________ __________
Öldungadeildin, sem demó-
kratar ráða, samþykkti í fyrradag
ályktun þar sem skorað var á ríkis-
stjómina að aflýsa Moskvuför
Shultz vegna njósnamálsins en að
sögn embættismanns telur Reagan
of mikið vera í húfí til að það sé
réttlætanlegt.
Dagblaðið The Washington Post
sagði í gær, að Shultz myndi m.a.
hafa þá tillögu fram að færa við
Sovétmenn, að geimvamaáætlunin
yrði geymd í fímm ár en á Reykja-
víkurfundinum var Bandaríkja-
stjóm tilbúin til að takmarka hana
við rannsóknastofuna í tíu ár. Þá
sagði í The New York Times, að
Reagan hefði ákveðið að ræða
ekki frekar við Sovétmenn um
bann við kjamorkuvopnatilraunum
fyrr en þeir hefðu fallist á tvær
nýjar aðferðir til að fylgjast með
framkvæmd tveggja samninga þar
að lútandi.
Búist er við, að viðræðumar í
Moskvu geti greitt götuna fyrir
afvopnunarsamningum, einkum
um meðaldrægu flaugamar, og
einnig fyrír þríðja fundi þeirra
Reagans og Mikhails Gorbachev.
Shultz átti í gær viðræður við Sir
Geoffrey Howe, utanríkisráðherra
Breta, og sagði Howe eftir fund-
inn, að hann tryði því, að Sovét-
mönnum væri umhugað um að ná
samningum um afvopnunarmál.
Pravda, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, sakaði í gær
„afturhaldsöfl“ í Washington um
að hafa þyrlað upp njósnamálinu
til að koma í veg fyrir samninga
og gær var einnig sýndur í Moskvu
ýmis búnaður, sem Bandaríkja-
menn eiga að hafa notað við njósnir
í húsakynnum sovéskra sendiráðs-
manna í Bandaríkjunum.
Fréttaskýrendur segja, að
njósnamálið hafi komið upp á afar
óheppilegum tíma fyrir Gorbachev,
sem sæti vaxandi gagnrýni innan-
lands fyrir að hafa ekki náð enn
neinum árangri í utanríkismálum.
birti í gær tilkynningu frá skærulið-
um og kváðust þeir hafa brotist í
gegnum varnir stjómarhers Mar-
okkó suður af Hawsa í norðaustur-
hluta eyðimerkursvæðisins sem
barist er um. Sögðust þeir hafa
rekið stjórnarherinn á flótta, fellt
157 menn og handtekið 17. Sagði
í tilkynningunni að Marokkóher
hefði hafið gagnsókn skömmu síðar
en henni hefði verið hrundið. Þá
var þess einnig getið að flugher
Marokkó hefði fyrir mistök gert
sprengjuárásir á eigin liðssveitir.
Skæruliðar gátu ekki um mannfall
í eigin röðum og stjórnvöld í Ma-
rokkó hafa ekki tilkynnt um átökin.
Harðir bardagar hafa geisað á
þessum slóðum frá 25. febrúar er
skæruliðar hófu stórsókn gegn
vamarlínu stjórnarhersins nærri
landamærum Marokkó og Alsír,
sem er 1.600 kílómetra löng og ligg-
ur þvert yfír eyðimörkina. Báðir
aðilar skýrðu frá blóðugum bardög-
um og er talið að þetta séu
umfangsmestu aðgerðir skæruliða
í tvö ár.
Spænska-Sahara tilheyrði áður
Spánverjum en Marokkó sölsaði
landsvæðið undir sig er þeir gáfu
eftir yfirráð sín. Polisario-hreyfing-
in hefur barist fyrir stofnun sjálf-
stæðs ríkis þar í tæp tólf ár og njóta
þeir stuðnings Alsírbúa. Fréttir ber-
ast sjaldan frá vígstöðvunum og
hafa átökin verið nefnd „styijöldin
gleymda" af þeim sökum.
Stöðvast
sænsku járn-
brautirnar
Stokkhólmi, Reuter.
BENGT Furback, forstjóri sænsku
ríkisjámbrautanna, hótaði í gær að
starfsemi jámbrautanna í Norður-
Svíþjóð yrði hætt ef ríkisstjómin
yki ekki fjárframlag sitt til fyrir-
tækisins.
Furback sagði að reka þyrfti
ríkisjámbrautimar eins og hvert
annað fyrirtæki og ef stjómmála-
menn vildu halda uppi óhagkvæm-
um lestarsamgöngum í stijálbýli
yrðu þeir að veita til þess fjármun-
um.
Sænsku jámbrautimar em rekn-
ar með jafnvirði 1,3 miljarða ísl.
kr. halla á ári. Sagð Furback að
stjómin þyrfti að auka framlag til
þeirra um jafnvirði a.m.k. 640 millj-
óna ísl. kr. á ári ef halda ætti uppi
óbreyttri þjónustu.