Morgunblaðið - 11.04.1987, Side 74

Morgunblaðið - 11.04.1987, Side 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987 „ H vab áttu \/ib rrteS && þú ha-fir eofií yfir {219? (?ctta er þridja. Orrustcw sem pu missiraf i þessurn mdinub'U " V * Jr ást er... .. . /mv- plús tveir = hamingja. Elsku pabbi og mamma. Ég er orðin blankur og væri þakklátur fyrir nokkurn fjárhagslegan stuðning ykk- ar... Með morgunkaffínu Dóttir mín er stungin af með einhveijum manni, en ég skal vekja konuna mína. HÖGNI HREKKVlSI „ NIPUIZ ME€> þ\G, SNATI! " Draumar Helgu Pétursdóttur Heiðraði Velvakandi Draumar Helgu (sem greint var frá í Morgunblaðinu sunnudaginn 5. apríl) eru mjög merkilegir og engin ástaæða til að efast um að allt sé satt sem hún segir frá. Draum sinn um fund leiðtoga stór- veldana hér í Reykjavík gerir hún sér ekki far um að skýra nánar. Gosmökkur úr Heklu. Hvers vegna? Til samanburðar vil ég segja frá draum sem mig dreymdi og var fyrirboði þess að faðir minn dó. Eg var staddur heima við bæ í draumn- um og sá mikinn svartan mökk koma sunan yfír dalinn. Mökkurinn huldi himininn og gerði jörðina svarta og allt leið þetta heim yfír túnið og heim að bæ. Ég vildi fær- ast undan þessu í draumnum og bróðir minn var þama staddur ekki Qarri og fannst mér hann hræddur og hvetja til þess að við forðuðum okkur. Langt er nú liðið síðan þetta var en draumurinn rifjaðist upp fyrir mér á ný er ég las frásagnir Helgu Pétursdóttur í Morgunblað- inu. Hvað merkir svo draumur Helgu um leiðtogafundinn í Reykjavík, sem hún gerir sér ekki far um að skýra nánar. Ég álít að ef draumur- inn tengist leiðtogafundinum þá bendi hann til að okkur stafí mikil hætta að austan og ekkert sé heils- hugar gert í svokallaðri stefnu- breytingu Sovétríkjanna. Þess vegna ættum við að vinna heils- hugar með vestrænum þjóðum þar til við erum viss um að raunveruleg hugarfarsbreyting hafí sýnt sig svo ekki verði um villst. Annar draumur Helgu Péturs- dóttur var óneitanlega bæði draumur og veruleiki — frelsarinn birtist henni, sem bendir til þess að hún sé mjög dulræn. Af því að nokkuð er hægt að líkja saman draumum okkar vil ég nefna að mig hefur einnig dreymt frelsarann. Draumur minn var á þá leið að ég þóttist standa heima við bæ á sama stað og áður getur og sá þá frels- arann standa á flallinu fyrir ofan bæinn. Myndin var mjög skýr og stór, ljóminn og birtan sem umlék hann var ofviða mínu ímyndunar- afli. Þessi draumur hafði djúpstæð áhrif á mig. Ég vil taka fram að ég hef litla eða enga dulræna hæfí- leika en hugsa töluvert um þennan þátt mannlífsins. Þorleifur Kr. Guðlaugsson Bylgjan hefur færst langt til vinstri P.S. skrifar: Kæri Velvakandi. Ég var að hlusta á útvarpsfréttir Bylgjunnar núna eftir hádegið þriðju- daginn 7. apríl. Þá var fyrsta fréttin á Bylgjunni að Svavar Gestsson form- aður Alþýðubandalagsins hefði sagt að viðskilnaður stjómarinnar væri sá versti sem dæmi væru um í sögu lýð- veldisins. En hvaða frétt er það þó Svavar Gestsson ryðji út úr sér ein- hverju nöldri og óánægjuáróðri? Ég verð að segja eins og er, að Bylgjan hefur færst langt til vinstri síðustu vikur eftir að Hallgrímur Thorsteins- son, sem er annar ágætur útvarps- maður, tók við fréttunum og þessi Asta R. Jóhannesdóttir við „Reykjavík síðdegis". Prjálsu út- varpsstöðvamar verða að skilja að Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkur- inn sem hefur haldið yfir þeim hlífí- skildi. Það er beiniínis markmið starfsmanna Ríkisútvarpsins að þvi er virðist að drepa fijálsu stöðvamar með því að fá yfírburðaaðstöðu og nægilegt fjármagn úr almannasjóð- um. Þetta gætu þeir ef vinstri flokkamir komast til valda með full- tingi Alberts Guðmundssonar. Víkverji skrifar að er ástæða til að fagna því framtaki Iðntæknistofnunar íslands að efna til kynningar á mikilvægi framleiðni fyrir atvinn- ulífíð í öllum 9. bekkjardeildum grunnskóla landsins nú á vormán- uðum. Er ætlunin að vekja ungling- ana til vitundar um gildi vinnunar og fræða um uppbyggingu atvinn- ulífs á íslandi. Þetta er annað árið sem fram- leiðni er kynnt í skólum á þennan hátt en skólaverkefnið er hluti af „Framleiðniátaki í iðnaði" sem stað- ið hefur á annað ár og á að ljúka á þessu ári. í kennslunni er fyrst rakin þróun atvinnulífs á íslandi með skyggnum og atvinnustarfsemi útskýrð. Síðan fá nemendur að spreyta sig á framleiðslu, reikna út frá henni kostnað og arðsemi og hugleiða markaðs- og vöruþró- un, laun og aðbúnað starfsfólks og ýmiss önnur atriði sem snerta at- vinnurekstur. í fréttum i sjónvarpi nýverið var brugðið upp myndum frá þessari kennslu í skóla í Hafnarfírði og var ekki annað að sjá en unglingamir tækju þátt í verkefninu af lífi og sál. Það þarf heldur varla að fjöl- yrða um mikilvægi þess að ungling- ar fái sem fyrst smjörþefínn af ýmsum grundvallaratriðum atvinn- ulífsins og skynji á hveiju lífsgæðin í þessu landi byggist. Þess vegna verður að leggja áherslu á að þessu starfí verði fram haldið, þó að „Framleiðniátakið" sé að renna sitt skeið. XXX að er einatt mikil auðlind fólg- in í því erlenda fólki sem flytst hingað til lands. Einnatt eru þetta „tengdasynir og tengdadætur ís- lands" eins og við köllum í gamni það fólk sem giftist íslendingum og kýs síðan að setjast að á ís- landi. Þetta fólk er ekki síst áberandi í listalífinu þar sem þessir „útlendu íslendingar“ setja víða skemmtilegan svip á listastarfsem- ina. Það fer þó ekki hjá því að maður undrist á stundum hvemig þetta fólk sem margt hvert kemur frá milljónaþjóðum, fer að því að aðlag- ast nýjum aðstæðum í þessu litla þjóðfélagi okkar, sem liggur tals- vert utan þjóðbrautar heimsmenn- ingarinnar. Engu að síður kemur í ljós að margt af þessu fólki kann að meta fámennið og þau nánu vel tengsl sem slíkt skapar, og fínnur sér leiðir til að bijótast út úr ein- angruninni, þegar því er að skipta. Agætt dæmi um þetta er Frank Ponsi, listfræðingur, Bandaríkja- maður að uppruna en sem kom hingað til lands fyrir alllöngu með eiginkonu sinni Guðrúnu Tómas- dóttur, söngkonu. Þau reistu sér hús í Mosfellssveit og þar ræktar Ponsi nú tómata eins og náttúran vill hafa þá, þ.e.a.s. tilbúinn áburð- ur og önnur töfrabrögð efnafræði nútímans til að örva vöxt þeirra á þar ekki upp á pallborðið. Á sama tíma gefur Posni sé þó tíma til að sinna fræðum sínum og er nú í sviðsljósinu fyrir stórmerkan list- sögulegan fund á verki gamals meistara frá endurreisnartímabil- inu. Einhveiju sinni sagði Ponsi Víkveija þessum sögu, sem kann að varpa ljósi á það hvers vegna hann kann svo vel við sig hér á landi, fjarri helstu straumum þeirra fræða sem hann hefur lagt fyrir sig. Sagan er frá þeim tíma er Ponsi var ungur listfræðingur í Banda- rílqunum og starfaði í tengslum við fægt safn í New York. Hann komst þá að því að á vegum safnsins hafði allmörgum árum áður verið ráðist í það verkefni að fá ýmsa helstu samtímalistamenn Bandaríkjanna til að gera kvikmyndir eftir eigin höfði og þar áttu þeir að finna list sinni farveg í þessum nýja miðli, kvikmyndinni. Kvikmyndir þessar voru teknar á afar eldfima fílmu, svo að safnið varð síðan að finna þeim stað í eldtraustu birgi langt utan New York og við það höfðu þessi sérstæðu verk fallið í gleymsku, þar til Ponsi uppgötvaði tilvist þeirra á ný. Hann fékk nú heimild safnstjóm- ar til að fara og kanna hvað þessum merkilegu kvikmyndum liði, skrá þær og koma þeim í aðgengilegra form. Þegar hann kom að geymslu- staðnum tók þar á móti honum gamall vörður sem gætt hafði þessa Jpársjóðs öll árin en án nokkurra tengsla við safnið. Þegar hins vegar Ponsi opnaði fyrstu filmuhylkin, blasti hins vegar við honum duftið eitt — fílmumar höfðu ekki þolað geymsluna og molnað niður. Öll árin hafði þess vegna gamli vörður- inn setið þama í birgi sínu og gætt samviskusamlega fjársjóðs sem var orðin að dufti fyrir löngu. Er furða þótt mönnum með siíka lífsrejmslu þyki gott að kveðja fírr- ingu og skarkala milljónaþjóðfélag- anna og hreiðra um sig hér í fámenninu hjá okkur?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.