Morgunblaðið - 13.10.1987, Page 28

Morgunblaðið - 13.10.1987, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987 + Menningarlíf í Tékkóslóvakíu 20 árum eftir innrás Sovétmanna Annálar óopinberra tékkneskra bókmennta Viðtal Kjell Olafs Jensen við bókmenntafræðinginn Josef Vohryzek og bókmenntagagnrýnandann Jan Lopatka JosefVohryzek, einn afþremur talsmönnummannrétt- indasamtakanna Charta 77 áyfirstandandi ári, er bókmenntafræðingur og gagnrýnandi. Jan Lopatka er bókmenntagagmýnandi. Vohryzek hefur um margra ára skeið verið búsetturí Svíþjóð. Jan Lopatka (t.v.) og Josef Vohryzek. Hinar óopinberu bókmenntir í Tékkóslóvakíu eru langtum athygl- isverðari heldur en hinar opinber- lega viðurkenndu, er ekki svo? Jú. Svo að einungis sé minnzt á eina bók, getum við bent á næstsíð- ustu skáldsöguna eftir Bohumil Hrabals, „Skarð í húsaröðinni" mætti ef til vill kalla hana í þýð- ingu. Þessi bók hefur komið út hjá alls þremur útgáfufyrirtækjum, sem landflótta Tékkar og Slóvakar starfrækja erlendis; í þessum útgáf- um hefur viðkomandi bókaforlag þó hvergi verið gefið upp, þannig að segja má að þar sé um ólöglegar útgáfur að ræða. Það sem er at- hyglisvert við þessar þijár útgáfur er, að textarnir eru frábrugðnir, og það er auðvelt að sjá um hvaða bókaútgáfu er að ræða hveiju sinni, vegna prentvillnanna í textanum. Þetta er einkennandi fyrir Hrabal; hann meðhöndlar textann þannig, að úr þeim verða gjaman mörg mismunandi afbrigði samtímis. Hvaða þtjú útgáfúfyrirtæki voru þetta? ’68 — Publishers í Toronto, Index í Köln og Dialog í Lundúnum. Þær margvíslegu málaflækjur sem sprottið hafa af þessum mismun- andi útgáfum, leiddu til þess að Hrabal lenti á geðsjúkrahúsi, en hann er nú búinn að ná sér aftur núna. Hrabal er ljóslifandi dæmi um það ástand, sem tók að myndast hérlendis eftir að samizdat-útgáf- umar tóku að sjá dagsins ljós, það er að segja eftir 1969. Hrabal hefur þörf á að vera mikið lesinn og verða frægur, og það er jú algjörlega eðlileg þörf hjá rithöfundi — en það er ósk, sem ekki getur ræzt í Tékkó- slóvakíu nú á dögum. Hrabal leysir úr þeim vanda með því að með- höndla texta sína þannig, að úr verði tvískinnungur; það eru ævin- lega til ýmsar mismunandi gerðir af ritverkum hans. Hann er eigin- lega táknrænn fyrir allt ástand rnála hérlendis, tákn samizdat- bókmenntanna. Eru samizdat-bókmenntirnar ekki eldri heldur en frá því eftir 1968—’69 í Tékkóslóvakíu? ---3---------------------- A árunum um og eftir 1950 og fram til 1960 voru líkar gefnar út sam/zdaí-bókmenntir; þar að auki voru líka til á þeim tímum svokall- aðar „skúfftj-bókmenntir", en þær voru þá nær óþekktar með öllu — handritin lágu einfaldlega í skrif- borðsskúffum höfundanna. Það vora rithöfundar, sem ekki fengu leyfi til að láta gefa út bækur sínar. Á árunum milli 1970 og ’80 var ástandið öðravísi, þá tóku samiz- daí-bókmenntimar að blómstra. Hvemig bregðast yfirvöld við til- vist samizdat-bókmenntanna? Yfirvöldin bregðast við á ýmsan hátt. Sumpart með því að láta gera húsleit og láta leggja hald á það sem þeir finna, sumpart með fang- elsisdómum. Þannig vora t.d. útgefendur tímaritsins Vokno settir í fangelsi — opinberlega var látið heita, að ástæðan væri allt önnur, en það var einungis yfírvarp. Og svo verða menn fyrir áreitni, móðg- unum og þess gætt, að þeir fái aldrei frið. Ludvík Vaculík hefur ekki verið látinn í friði í tíu ár sam- fleytt — hann er kvaddur til yfir- heyrslu mörgum sinnum í viku. Og yfírvöldin nota líka „að deila og drottna“-aðferðinni; það kemur oft fyrir að vélritunarfólkið er lagt í einelti á sama tíma og höfundamir era látnir vera í friði. Þá getur það líka gerzt, að þeir sem hafa samiz- daí-bækur undir höndum, séu settir í fangelsi en höfundamir látnir vera óáreittir á meðan og þeim leyft að ganga lausum. Það þykir miklu síður fréttnæmt á Vesturlöndum, þegar óþekkt fólk er handtekið heldur en þegar frægir rithöfundar era teknir á hvalbeinið hjá lögregl- unni. Félagsleg einangran eða tímabundin útskúfun úr samfélag- inu er líka ein af þeim aðferðum, sem beitt er. Það er hægt að dæma vélritara hjá samizdat-ú tgáfu, bókaunnanda eða þann sem fær lánaðar „hættulegar" bækur til tímabundinnar útlegðar frá heimabæ sínum. Yfírvöld gæta þess þá vandlega að gera slíkum sak- bomingum rækilega ljóst, að rithöf- undamir, sem semja þau verk, sem gefín era út ólöglega í samizdat, fái einkar álitlegar greiðslur frá Vesturlöndum á sama tíma og venjulegt fólk þurfí að þola hand- tökur og frelsissviptingu. Er líka gefín út bókmenntagagn- rýni í samizdat? Já, já, bæði í bókarformi, rit- gerðasöfnum og í tímaritum. Þessu efni er dreift sem afþreyingarbók- menntum. Tímaritin eiga sér fremur fasta viðtakendur, jafnvel þótt ekki sé hægt að kalla þá áskrif- endur — það er að segja fólk, sem kaupir reglulega hvert eintak sem kemur út. Kaupendur lána öðram samizdat-heftin og einstaka menn útvega sér sjálfír einhvem til að vélrita þessi hefti og flölfalda með kalkipappír hin uppranalegu samiz- dat-rit. Þess vegna er heldur ekki vitað með vissu hve stór upplögin era eiginlega. Hið sama á við um bækur, sem gefnar era út i samiz- dat. Og þið hafið heldur enga mögu- leika á að ljósrita? Nei, ekki sem nokkra nemur. Það er erfítt að verða sér úti um slíkar vélar og auk þess verða ljósritunar- vélar að standa á einhveijum þeim stað, þar sem engin hætta er á að húsleit verði gerð. Ef farið væri út í að fjölfalda allt of mikið, þá myndi það þegar í stað hafa aukinn vanda í för með sér. Tæknilegar úrbætur myndu sjálfkrafa leiða til fleiri lög- regluaðgerða gegn okkur. Væri ekki gerlegt að smygla handriti til Vesturlanda, láta fjöl- falda það þar og smygla svo afritun- um aftur inn yfir tékknesku landamærin? Við gerðum það í einu tilviki, og þar var um bók að ræða. Það gekk allt saman — en slíkt verður að gerast með varúð, því annars yrði fljótlega bundinn endir á útgáfu allra samizdat-bóka. Hvemig má það vera, að svona margir mikilhæfír rithöfundar skuli vera starfandi með tiltölulega fá- mennri þjóð, þar sem bókmennta- iðja sætirjafn mikilli kúgun af hálfu stjórnvalda og hérlendis? Þetta er spuming, sem leiðir hugann að samhenginu á milli kúg- unar og skapandi starfsemi andans. Það er raunar erfítt að koma orðum að þessu eða segja skoðun sína á því — það er hræðilega gráglettin hugsun sem gerir vart við sig. Ég lagði sömu spurningu fyrir Josef Skvorecký í Toronto fyrir nokkrum árum. — Hann svaraði, að eftir allt það sem hann hafí mátt ganga í gegnum og þola, hemám nasista, lýðræði um tveggja ára skeið, þá valdarán kommúnista, innrás sovézkra hersveita 1968 og svo að vera núna landflótta, þá mætti hann teljast algjör örviti, ef hann gæti svo ekki skrifað góðar skáldsögur um þetta! Það er Skvorecký líkt að svara þannig — og vitanlega er viss sann- leikur fólginn í því, sem hann segir. En það er líka félagsleg hlið á þessu máli. Þær aðstæður, sem við búum við í þessu landi, neyða fólk beinlín- is til að fást fremur við hina veigameiri hluti /vegna ríkjandi ástands. Ef litið er á ástand mála frá sjónarhóli bókmenntasögunnar, þá kemur í ljós, að tímabil kúgunar hafa líka verið þau tímabil þegar sköpuð hafa verið bókmenntaverk, sem lengi hafa lifað og staðizt vel tímans tönn. Þetta er annars margslungin spurning — það er aldrei hægt að geta sér til um, hvað myndi hafa gerzt, ef kúgunin hefði ekki verið fyrir hendi. Aðrar ástæður era líka hugsanlegar. Okk- ur fínnst það vægast sagt dálítið neyðarlegt að sitja hér og ætla að halda því fram, að fólk hafí gagn af því, að hert sé á þumalskrúf- unni. Það er hugmynd sem er anzi erfítt að fallast á. Hvað er það sem einkum ein- kennir tékkneskar bókmenntir nú á dögum? Eitt af séreinkennum þeirra er það fyrirbrigði, sem Roman Jakob- son skrifaði um þegar á árunum milli 1920 og ’30, þegar hann starf- aði í Tékkóslóvakíu. Hann skrifaði um visst misgengi, sem yrði á hlut- unum — það sem væri aukaatriði yrði að meginatriði, en meginatriði yrðu að þýðingarminni aukaatrið- um. Dagbækur, bréfaskriftir og þess háttar er að verða að meginfar- vegi innan hinna veigameiri bókmennta okkar. Á áratugnum milli 1940 og 1950 vora starfandi hérlendis samtök, sem kölluðu sig Hópur 42; hann samanstóð bæði af rithöfundum, myndhöggvuram og tónlistarmönnum. Jiri Kolar og Jan Hanc vora tvö ljóðskáld, sem vora í þessum hópi. Jiri Kolar er nú á dögum orðinn þekktur mynd- höggvari á Vesturlöndum. Þeir ortu ljóð, Hanc samdi líka lítil prósa- verk, með dagbókarblæ — úr þéssu varð í reynd veigamikil ljóðlist. Þessi þróun heldur áfram sem all- veralegur þáttur í sköpun bók- mennta. 42-hópurinn og öll þessi stefna einkennist af áköfum „sívil- isma" — það er að segja að horfið er frá viðleitni hinna „háleitari" bókmennta, ljóðlistin beinist inn á mun beinni afstöðu; menn skrifa beinskeyttar um hlutina, krókaleiðir hverfa, myndrænt líkingamál er úr sögunni. Þessi kveðskapur orkar á mann eins og hann sé ekki ljóðlist, en þetta era nú samt ljóð í afar einfaldaðri formgerð. Líka kemur fyrir eins konar upplausn í fram- eindir; það orkar á mann eins og verkin séu limuð í sundur, þau loða í samhengi af einhveiju öðra en hefðbundnum kveðskaparháttum. Oft á tíðum er það einmitt dag- bókarformið, sem heldur verkunum í samhengi. Það era svo sem til fyrri boðberar þessarar þróunar: Henri Michaux og Raymond Quene- au í Frakklandi. Í skáldskap Queneaus er frásögnin ekki hið veigamesta, heldur leikurinn að yrkisefnum. Einkar dæmigerður fulltrúi þessarar stefnu meðal hinna yngri tékknesku rithöfunda er Vlas- timil Tresnak. Bækur hans hafa yfírleitt verið gefnar út hjá útgáfu- fyrirtækinu Index í Köln. Hann skrifar smásögur og ber efnisþráður þeirra einnig sterkan keim af hans eigin, beinu lífsreynslu, án hefð- bundins skáldlegs búnings, verk Tresnaks era gott dæmi um þessar bókmenntir — hann notar skyndileg innskot sem era fjarskalegar ýkjur með útúrsnúningum, og svo getur jafn skyndilega einhver stutt grínsaga eða skrýtla skotið upp kollinum í textum hans. Við aflest- ur orkar þessi höfundur á menn eins og hann sé á leiksviði, leikari sem leikur sín eigin prósaverk. Samt sem áður er það, sem hann er að lýsa, sá veraleiki sem hann hefur sjálfur upplifað. Það er til samizdat-tímarit, sem ber titilinn Efni, en það kemur út í mjög takmörkuðu upplagi. í þessu tímariti birta margir rithöfundar í hveijum mánuði útdrátt úr því, sem þeir era að semja hveiju sinni, hvort • sem um er að ræða ljóðlist eða óbundið mál. Ritið verður að eins- konar verkstæði, en er ekki venju- legt, ritstýrt tímarit. Það verður að einhvers konar reikningsyfirliti um það, sem menn hafa verið að fást við undanfarinn mánuð. Jan Lop- atka hefur gert athuganir á því, um hvað menn era helzt að skrifa I þessum útdráttum úr verkum, sem þeir era með í smíðum. Sameigin- legur þáttur í svo til öllum þeirra, er að þeir láta í ljós skelfingu sína yfír hrottaskapnum. Tresnak er núna ýmist búsettur í Austurríki eða í Svíþjóð; en það sem hann skrifar um er líka skelfingin gagn- vart hrottaskapnum — með því að koma orðum að þessari tilfinningu sinni, er hann að losa sig undan fargi hennar. Það er annars fremur tilviljunar- kennt, hvað menn geta lesið af því sem bókaútgáfur erlendis gefa út á tékknesku eða slóvensku, og þaer tilviljanir era nokkuð, sem taka verður tillit til, þegar verið er að svipast um eftir sameiginlegum þáttum í verkum þessara höfunda- Það er ekki gerlegt að framkværna neina vísindalega rannsókn við þaer aðstæður, sem við búum við núna sem stendur. Annað einkar einkennandi yrkis- efni kemur fram í verkum Edu Krisová (fædd 1941); hún er merk- ur rithöfundur. Fyrír nokkrum áram kom út á Vesturlöndum úrval ljóða og smásagna, „Stunde Nam- ens Hoffnung" („Stund að nafni T

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.