Morgunblaðið - 13.10.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 13.10.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987 39 GIFTUSAMLEG BJÖRGUN ÚR SPÆNSKU ÞOTUNNIUM 50 SJÓMÍLUR FYRIR VESTAN LAND Tveir varnarliðs- menn stukku í kaldan sjóinn Eimi og hálfur tími frá nauðlendiugu til björgunar ÞEGAR varnarliðsþyrlan kom á staðinn þar sem Falconvélin hafði nauðlent létu tveir úr áhöfn þyrlunnar, J.S. Jennings og J.D. Bren, sem báðir eru sérþjálfaðir til björgunarstarfa, sig falla í sjóinn og fóru síðan upp í björg- unarbátinn til fólksins úr flugvél- inni. „Við reyndum að koma fólkinu upp í þyrluna en það gekk ekki. Þar sem við vildum ekki eiga það á hættu að fólkið ienti í sjónum við það tók ég þá ákvörðun að bíða eftir skipinu sem ég vissi að var á leiðinni," sagði Jennings i samtali við Morgunblaðið á eftir. „Við gátum ekki náð fólkinu upp í þyrluna af ýmsum ástæðum. Við komum þyrlunni ekki almennilega yfír bátinn; stundum er auðvelt að athafna sig við svona aðstæður en þessi bátur var lokaður með segldúk og auk þess byrjaði báturinn að snúast um leið og við lækkuðum okkur niður að honum,“ sagði W.E. Sarles flugstjóri þyrlunnar Jennings sagði að það hefði síðan gengið erfiðlega að koma fólkinu um borð í skipið. „Þetta var stórt skip og öldurnar voru háar. það var reynt að hífa björgunarbátinn upp um skutrennuna en árangurslaust. Loksins komum við fólkinu um borð með þeim hætti að lína með lykkju var látin síga til okkar sem við brugðum um fólkið og síðan var sætt lagi eftir öldunum til að hífa það upp í skipið þar sem það fékk aðhlynningu og hlý föt. Við tókum síðan slasaða manninn í þyrluna af bátnum," sagði Jennings. Jennings sagði að veðrið hefði verið mjög gott, heiður næturhimin EINN skipverja á Þorláki, Valtýr Ómar Guðjónsson, kvað skip- veija hafa klætt sexmenningana úr blautum fötunum strax og þeir komu í borðsalinn, þurrkað þá og nuddað hita í þá sem voru orðnir kaldir. „Tveir voru það illa kaldir að þeir voru nær ósjálfbjarga," sagði Valtýr Ómar, en það sýndi sig að kvenfólkið bregst ekki, því konan gekk óstudd um borð í togarann og inn í borðsalinn og bar sig best af hópnum. Við vöfðum fólkið inn og tunglskin. Talsverður öldugang- ur hefði þó verið og sjórinn kaldur en þeir hefðu verið sérstaklega út- búnir fyrir volkið. J.D. Bren sagði við Morgunblaðið að þetta hefði verið fyrsta björgun- inin af þessu tagi sem hann tekur þátt í hér á landi. „Þetta var ekki erfítt og allt gekk vel. Við lentum að vísu í smá vandræðum með að koma fólkinu upp í skipið en það var aldrei hætta á ferðum eftir að við vorum komnir á staðinn." Bren vildi taka það fram að áhöfnin á Þorláki ÁR hefði staðið sig mjög vel og ætti hrós skilið fyrir þeirra þátt í björguninni. BJÖRGUN sexmenninganna í Falcon flugvélinni sem fór í sjó- inn suðvestur af Reykjanesi, gekk mjög fljótt og giftusamlega fyrir sig. Aðeins rúmur einn og hálfur klukkutími leið frá því vélin nauðlenti í sjónum þar til allir voru komnir um borð í tog- ayann Þorlák ÁR. Hér á eftir er atburðarrásin rak- in. Upplýsingar um tímasetningar eru fengnar úr dagbókafærslum í teppi og nudduðum það með þurr- um handklæðum og það var öll skipshöfnin í þessu eins og hún lagði sig. Við vöktum síðan yfír fólkinu þar til klukkan fjögur í nótt, en þá var komin ró yfír alla og sérstaklega fylgdumst við vel með þessum tveimur sem var kaldast. Við erum ákaflega hamingjusamir með þennan túr þótt afli hafí verið lélegur, því það er mikil guðsgjöf að geta hjálpað þannig öðrum í nauðum." - á.j Flugmálastjómar, Slysavamafé- lags íslands og Landhelgisgæslunn- ar. Tekið er fram að ekki er alltaf um nákvæma tíma að ræða. 15.14:Falcon farþegaþotan með 6 manns innanborðs leggur af stað frá Goose Bay í Labrador í Kanada. Áfangastaður er Reykjavíkurflug- völlur, á leið til Spánar, varaflug- völlur Keflavík. Flugtími er áætlaður 3 klukkutímar og 15 mínútur. 18.00-18.10:Flugvélin hefur samband við Gufunes þar sem hún er enn utan fjarskiptasvæðis Flug- stjómar. Biður um leyfí til að lækka flugið úr 29 þúsund fetum í 22 þúsund fet en gefur ekki upp ástæðu. Vélin er þá um 200 sjómfl- ur vestur af Keflavík. Þegar gengið er á flugmanninn um ástæður þess- arar lækkunar kemur í ljós að hann er að reyna að spara eldsneyti. 18.19:Flugstjóm kemst í beint samband við flugvélina. Flugmað- urinn tilkynnir að hann hafí slökkt á öðrum hreyflinum til að spara eldsneyti og áætlar að geta verið á lofti í um 30 mínútur til viðbótar. 18.20:Flugstjóm kallar út flug- menn Flugmálastjómar, og gerir Landhelgisgæslunni, vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli og íilkynninga- skyldu SVFÍ viðvart. 18.25:SVFÍ fer að kalla upp tog- ara sem em að veiðum á þessum slóðum og biður þá að hífa og vera viðbúna. Togaramir á þessum slóð- um vom 7 talsins. 18.30:Fokker Landhelgisgæsl- unnar,TF-SYN, sem var á eftirlits- flugi yfír Snæfellsnesi, heldur af stað á móti Falcon flugvélinni og kallar á skip sem em á þessum slóð- um. Stjómstöð Landhelgisgæslu telur vafasamt að hægt sé að kalla út áhöfn þyrlunnar, TF-SIF. 18.35:Flugvél Flugmálastjómar, TF-DCA, fer í loftið frá Reykjavík. 18.47:Flugmaður Falconvélar- innar tilkynnir að dautt sé á báðum hreyflum. 18.53:Falconvélin lendir í sjón- um, 43 sjómflur vestur af Reykja- nesi. Bæði TF-DCA og TF-SYN em komnar á svæðið og nauðlendingin sést úr báðum vélunum. Úr flugvél- unum sést að fólkið úr Falconvélinni fer frá borði í gúmbjörgunarbát. í ljós kemur að skuttogarinn Þorlák- ur er næstur flugvélinni, eða um 6 sjómflur í burtu, og heldur hann þegar í áttina á nauðlendingarstað- inn. 19.05:Þyrla Vamarliðsins leggur af stað frá Keflavík. 19.27:Vararliðsþyrlan yfír björg- unarbátnum. Áhöfnin á Þorláki sér einnig bátinn á svipuðum tíma en TF-SYN leiðbeindi Þorláki á stað- inn. 19.35:Þyrla Landhelgisgæslunn- ar, TF-SIF, fer í loftið frá Reykjavík með lækni innanborðs. 20.05:TF-SIF komin á vettvang. Læknirinn tilbúinn að síga niður til Spánvetjana ef þörf krefur en vam- arliðsmenn segjast hafa fulla stjóm á öllu. 20.23:Björgunarbáturinn kominn í skutrennuna á Þorláki, en ekki gekk að ná honum þar upp. 20.35:Tilkynnt að allir sem vom í björgunbátnum séu komnir lifandi um borð í Þorlák. 20.46:Þorlákur leggur af stað til Þorlákshafnar. 20.56:Tilkynnt að sennilega muni slasaði maðurinn úr áhöfn flugvél- arinnr ekki þola að vera tekinn um borð í þyrluna. 21.07: Varðskipið Óðinn kemur á slysstað. 21.35:Ákveðið að flytja slasaða manninn með þyrlunni til Reykjavíkur. 21.42:Varðskipsmenn á Óðni ná neyðarbauju Falconvélarinnar upp úr sjónum og slökkva á neyðar- sendi. 21.52:Slasaði maðurinn kominn um borð í varnarliðsþyrluna. 22.04:Vamarliðsvélin leggur af stað til Reykjavíkur. 22.38:Vamarliðsþyrlan lent við Borgarspítalann með slasaða Spán- verjann. U.þ.b.06.00:Þorlákur kemur til Þorlákshafnar. „Vöfðum fólkið í teppi og nudduðum“ Önnur vélin á mánuði sem verður bensínlaus FLUGVÉLIN sem nauðlenti vest- ur af Reykjanesi á sunnudags- kvöld var tveggja hreyfla þota, franskrar gerðar, af tegundinni Dassault-Berguet Mystere-Falc- on 200. Slíkar vélar taka að meðaltali 9 farþega og tvo flug- menn. Vélin er 17,15 metra löng og vænghafið er 16,30 metrar. Gert er ráð fyrir að þessar vélar geti flogið 2370 sjómilur, 4390 km. við venjulegar aðstæður. Flugslysanefnd tók í gær skýrslu af flugmanni vélarinnar en þetta óhapp varð fyrir utan íslenska lög- sögu og því mun Loftferðaeftirlitið ekki rannsaka málið frekar. Ekki er vitað hvers vegna vélin varð elds- Morgunblaðið/Pétur Johnson Flugvél sömu gerðar og flugvélin sem nauðlenti vestur af Reykjanesi á sunnudagskvöld. neytislaus löngu áður en hún átti að lenda í Reykjavík. Samkvæmt reglum átti að vera nóg eldsneyti á flugvélinni við lendingu til 45 mínútna flugs til viðbótar. Flug- maðurinn mun hafa lent í óhag- stæðri flughæð á leiðinni yfír hafíð, vegna annarar flugumferðar og því eyddi vélin meira eldsneyti en hann gerði ráð fyrir. Aðeins mánuður er síðan svipað atvik varð undan íslandsströndum. 10 september nauðlenti vél í sjónum undan íslandi vegna eldsneytis- skorts. Flugmaðurinn var einn í vélinni og var honum bjargað um borð í vamarliðsþyrlu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.