Morgunblaðið - 13.10.1987, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 13.10.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987 41 Þorvaldur Garðar Kristjánsson forseti sameinaðs þings. Karl Steinar Guðnason forseti efri deildar. Jón Kristjánsson forseti neðri deildar. Þorvaldur Garðar Kristjánsson kosinn forseti sameinaðs þings Salome Þorkelsdóttir hlaut níu atkvæði 1 forsetakjöri ÞORVALDUR Garðar Kristjánsson (S.-Vf.) var kosinn forseti sam- einaðs þings á fyrsta fundi Alþingis í gær. Þorvaldur Garðar hlaut 43 atkvæði, Salóme Þorkelsdóttir (S.-Rn.) 9, Valgerður Sverris- dóttir (Kvl.-Ne.) 1, en fimm seðlar voru auðir. Forseti efri deildar var kjörinn Karl Steinar Guðnason (A Rn.) og forseti neðri deildar Jón Kristjánsson (F.-Al.) Fyrri varaforseti sameinaðs þings var kjörinn Guðrún Helga- dóttir (Abl.-Rvk.). Hlaut hún 52 atkvæði en Margrét Frímanns- dóttir (Abl.-Sl.) eitt atkvæði. Fjórir atkvæðaseðlar voru auðir. Annar varaforseti sameinaðs þings var kjörinn Jóhann Einvarðs- son (F.-Rn.). Jóhann hlaut 52 atkvæði, Kristín Halldórsdóttir (Kvl.-Rn.) 1 atkvæði, Ólafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.) fékk 1 at- kvæði, Valgerður Sverrisdóttir (Kvl.-Ne.) 2 atkvæði og 2 atkvæði voru auð. Ólafur Ragnar Grímsson (Abl.Rn.) hlaut eitt atkvæði en var það dæmt ógilt af forseta þar sem Ólafur er varaþingmaður. Sem skrifarar neðri deildar voru kjörin þau Guðni Agústsson (F.- Sl.) og Valgerður Sverrisdóttir (Kvl.-Ne.). Karl Steinar Guðnason var kjör- inn forseti efri deildar, Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.-Rvk) fyrri vara- forseti og Salóme Þorkelsdóttir (S.-Rn.) annar varaforseti. Engir aðrir hlutu atkvæði í atkvæða- greiðslum í efri deild. Skrifarar efri deildar voru kjömir Egill Jóns- son (S.-Al.) og Valgerður Sverris- dóttir (Kvl.-Ne.). Jón Kristjánsson (F.-Al.) var kjörinn forseti neðri deildar. Hlaut hann 34 atkvæði, Ólafur Ragnar Grímsson (Abl.-Rn.) hlaut eitt at- kvæði og auðir seðlar voru fjórir. Fyrri varaforseti var kjörinn Óli Þ. Guðbjartsson (B.-Sl.). Óli hlaut 29 atkvæði, Aðalheiður Bjam- freðsdóttir (B.-Rvk.) 4, Geir H. Haarde (S.-Rvk.) 1 atkvæði og 4 atkvæðaseðlar voru auðir. Sig- hvatur Björgvinsson (A.-Vf.) var kjörinn annar varaforseti. Hlaut hann 30 atkvæði. Kristín Halldórs- dóttir (Kvl.-Rn.) fékk eitt atkvæði og auðir seðlar vom 7. Sem skrif- arar neðri deildar voru kjörnir þeir Geir H. Haarde (S.-Rvk.) og Jón Sæmundur Siguijónsson (A.-Nv.). Yiðbrögð gegn þenslu, viðskipta- og ríkissjóðshalla Hver hafa verið viðbrögð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar til að draga úr þenslu, verðbólgu, viðskiptahalla og ríkissjóðshalla frá því að stjórnin var mynduð 8. júlí 1987 - eða á þriggja mánaða starfs- ferli? Hér á eftir verða tindar til nokkrar stjórnarákvarðanir í þessum tilgangi, sem og til að bæta stöðu þjóðarbúsins út á við og stuðla að jöfnun lífskjara, eins og það hét í rökstuðningi ríkisstjórnarinnar: 1 Undanþágum frá söluskatti var fækkað og ákveðinn sérstakur söluskattur með lægra hlutfalli (10%) af matmælum og nokkr- um greinum þjónustu (bráða- birgðalög 10. júlí 1987). Söluskatturinn á matvæli kemur til framkvæmda um næstu mán- aðamót. Fækkun undanþága er talin auðvelda eftirlit og bæta innheimtu, auk þess að gefa ríkissjóði auknar tekjur. 2 Lagt var sérstakt gjald á bifreið- ar - eftir þyngd - 4 krónur á kíló. Hálft gjald verður innheimt 1987 en fullt á næsta ári. Á móti verða felld niður á næsta ári ýmis smærri gjöld, sem nú eru lögð á bifreiðar. 3 Lagður var viðbótarskattur á innflutt kjamfóður, 4 krónur á kíló. 4 Innlendum aðilum var gert að greiða skatt til ríkissjóðs af er- lendum lántökum, fjármagn- sleigum, kaupleigum og hliðstæðum samningum. Skatt- skyldan nemur 1% af höfuðstól lána til 6 mánaða, 2% á höfuð- stól lána frá 6 til 12 mánaða og 3% af samningum til 12 mánaða eða lengri tíma. Greiða verður sérstakt áhættugjald fyr- Einstaklingum og fyrirtækjum heim- ilað að kaupa erlend verðbréf Undanþágnr á matvælum falla niður ÞORSTEINN Pálsson, forsætis- ráðherra, kynnti blaðamönnum í gærkvöldi ráðstafanir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til á næstunni. Hækkun innflutnings- gjalda á bifreiðir, fækkun undanþága frá söluskatti og verðhækkun áfengis og tóbaks eiga að skila ríkissjóði um 680 milljónum króna á næsta ári. Aðgerðir stjórnarinnar í pen- ingamálum miða að því að koma á jafnvægi á lánamarkaði og efla innlendan sparnað. Auk forsætisráðherra voru Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráð- herra, Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, og Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, á fundinum. Yfirlýsing ríkisstjómarinnar um ráð- stafanir í efnahagsmálum fer hér á eftir í heild: Framvinda efnahagsmála að und- anfömu og horfur fyrir næstu misseri sýna vaxandi verðbólgu og viðskiptahalla. Við þessar aðstæður þarf að beita samræmdum ráðstöf- unum á öllum sviðum efnahagsmála gegn þenslu. Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að leggja fram hallalaus fjárlög fyrir árið 1988 og grípa auk þess þegar í stað tii fjölþættra að- haldsaðgerða á sviði fjármála og peningamála. Þessar aðgerðir, sem gerðar eru í framhaldi af fyrri ákvörðunum ríkisstjómarinnar, eru nauðsynlegar til að treysta gengi krónunnar. Með þeim verður ráðstöfunarfé þjóðar- innar beint að spamaði en frá neyslu og innflutningi og þannig dregið úr viðskiptahalla. Brýna nauðsyn ber til að koma á betra jafnvægi á lána- markaði og draga úr innstreymi erlends lánsfjár. Stöðugt gengi er homsteinn efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Ráðstafanir þær, sem hér er lýst, renna frekari stoðum undir gengis- stefnuna. Ríkisfjármál Fjárlagafrumvarp fyrir 1988 verður lagt fram án halla og mjög dregið úr lántökum ríkisins. Ríkis- sjóður mun ekki taka nein ný erlend lán og skuldir ríkisins munu lækka að raungildi og í hlutfalli við lands- framleiðslu. Lánsfjárlagafrumvarp stefnir að miklum samdrætti í er- lendum lántökum. Gripið hefur verið til almennra ráðstafana til að draga úr erlendum lántökum, með lántöku- gjaldi og innlendri fjármögnunar- kvöð. Flýting aðgerða til tekjuöflun- ar mun í senn draga úr innflutningi og bæta stöðu ríkissjóðs á þessu ári og því næsta. • Innflutningsgjald á bifreiðir hækkar frá og með 12. október misjafnlega mikið eftir stærð bifreiða, mest á stærri gerðum. • Fækkun undanþága frá sölu- skatti verður flýtt. Frá 1. nóvember falla niður söluskatt- sundanþágur á matvælum. Frá þeim tíma munu öll matvæli bera 10% söluskatt. Jafnframt verður 75 milljónum króna var- ið til tímabundinna niður- greiðslna á búvörum. • Verð á áfengi og tókbaki hækk- ar um 8% að meðaltali frá og með 12. október. Ráðstafanir til að bæta jafnvægi á lána- markaði og ef la innlendan sparnað Margvíslegar aðgerðir, sem gripið hefur verið til að undanfömu til að bæta hag ríkissjóðs og auka sölu ríkisskuldabréfa sem og hækkun lausafjárhlutfalls, hafa þegar stuðl- að að meira aðhaldi að útlánum banka. Brýnt er að efla spamað á kostnað neyslu og innflutnings í því skyni að draga úr viðskiptahalla. Jafnframt er nauðsynlegt að draga úr innstreymi erlends lánsfjár og koma á bættu jafnvægi á innlendum lánamarkaði. • Bönkum og sparisjóðum verður heimilað að bjóða gengis- bundna innlánsreikninga og gefið svigrúm til að lána út með sambærilegum kjörum, meðal annars mun ríkissjóður bjóða gengisbundin skuldabréf og víxla í þessu skyni. • Einstaklingum og fyrirtækjum verður heimilað að eignast er- lend verðbréf. Heimildir íslenskra fyrirtækja til að íjár- festa í atvinnurekstri erlendis og styrkja þannig viðskipta- stöðu sína verða rýmkaðar. íslendingum verður heimilað að kaupa skuldabréf ríkisins og annarra íslenskra aðila, sem til sölu eru á verðbréfamörkuðum erlendis. Þá verða opnaðar heimildir til kaupa á öðrum tryggum verðbréfúm. • Ríkissjóður mun bjóða gengis- bundin spariskírteini til sölu á innlendum markaði. • Jafnframt því, sem haldið verð- ur óbreyttum kjörum á tveggja ára spariskírteinum, sem selst hafa vel að undanfömu, verða önnur spariskírteini boðin með betri kjörum í samræmi við markaðsaðstæður. • Vextir af ríkisvíxlum verða end- urskoðaðir reglulega, en jafn- framt boðnir ríkisvíxlar til lengri tíma en verið hefur. • Sala og dreifing spariskírteina og ríkisvíxla verður endurbætt. • Til þess að hvetja þá, sem hyggja á erlendar lántökur, til að fresta áformum sínum og draga á þann hátt úr innstreymi erlends lánsfjár á næstunni, verður gjald á erlendum lántök- 10 11 12 ir ríkissjóðsábyrgð: 1,5% af ábyrgðarupphaeð þegar um ein- falda ábyrgð er að ræða, 2% þegar um sjálfskuldarábyrgð er að ræða. Framangreindar aðgerðir em taldar skila ríkissjóði tæpum milljarði króna á þessu ári. Vextir af spariskírteinum ríkis- sjóð vóm hækkaðir um 1,5% til að greiða fyrir sölu þeirra og draga úr lántökuþörf ríkissjóðs erlendis. Endurgreiðsla söluskatts til sjávarútvegs verður lögð inn á bundna reikninga í vörslu Verð- jöfnunarsjóðs og Fiskveiðasjóðs. Akvörðun var tekin um að setja reglur um ^ármögnunarleigu, notkun greiðslukorta og af- borgunarviðskipti í því skyni að draga úr þenslu (að hluta til ekki komið til framkvæmda). Þessar aðgerðir í peningamálum em sagðar koma á betra sam- ræmi milli þjóðarútgjalda og þjóðartekna og draga úr verð- bólgu og viðskiptahalla. Elli- og örorkulífeyrir, tekju- trygging og heimilisuppbót hækkuðu. Lágmarksfram- færslueyrir einstaklings með heimilisuppbót hækkaði um 3 þúsund krónur á mánuði. Bamabótaauki hækkaði um 5 þúsund krónur á ári. 13 um fellt niður við lok næsta árs. • Rutt verður úr vegi skattaleg- um hindmnum þess að al- menningur spari í formi hlutafjárkaupa. • Ríkisstjómin mun afnema ríkis- ábyrgð á skuldbindingum opinberra fjárfestingarlána- sjóða. Fylgst verður nákvæmlega með því næstu vikur, hvort þörf sé frek- ari aðgerða frá næstu mánaðamót- um til þess að tryggja nægilegt aðhald í útlánum bankanna út þetta ár. Jafnframt benda áætlanir til þess, að lausaíjárstaða bankakerfis- ins muni batna vemlega í upphafi næsta árs og munu verða gerðar fyrir þann tíma ráðstafanir til þess að tryggja hæfilega þróun í útlánum banka á því ári. Gengisstefna Ríkisstjórnin ítrekar þá stefnu, að gengi krónunnar verði haldið stöðugu, enda er það ásamt aðhaldi í ríkisfjármálum og peningamálum forsenda hjöðnunar verðbólgu. Þessu til áréttingar hefur Seðla- bankinn með samþykki ríkisstjómar- innar ákveðið, að frá og með deginum í dag verði gengi krónunn- ar haldið stöðugu miðað við vægi mynta í viðskiptum þjóðarinnar við útlönd. Með þessari stefnumörkun setur ríkisstjómin efnahagslífinu og þar með aðilum vinnumarkaðarins al- menna starfsumgjörð. Ríkisstjómin lýsir með þessu stefnu sinni, en framvinda efnahagsmála ræðst að öðru leyti af ytri skilyrðum þjóðar- búsins á næstu mánuðum og misserum. Ráðstafanir þessar eyða þeirri óvissu er gætt hefur í efna- hagsmálum að undanfömu. Með þeim er lagður gmnnur að stöðug- leika í efnahagslífinu og áframhald- andi sókn til bættra lífskjara. í ágúst gaf viðskiptaráðuneytið út fréttatilkynningu um að fellt hafi verið niður skilyrði um bankastimplun innflutnings- skjala til þess að tollafgreiðsla fsti farið fram. september eru enn hertar regl- ur um erlendar lántökur og kaupleigu- og fjármögnunar- leigusamninga. Reglumar fela m.a. í sér þrengri viðmiðun lána miðað við heildarfjárþörf og ákvæði um innlenda Qármögnun á móti fjármögnunarleigusamn- ingum. 14 í september gefur Seðlabankinn út fréttatilkynningu um aðgerðir til aðhalds í útlánastarfsemi bankastofnana. 15 Áfengi og tóbak hækkaði öðru sinni á stjómarferlinum í gær, að þessu sinni um 8%. í gær kom og til framkvæmda hækkun innflutningstolla á bif- reiðar, sem hækka þær í verði um 5-15%. Nýr flokkur spariskírteina ríkis- sjóðs til lengri tíma og með hagstæðari kjörum verður gef- inn út. Þá stendur og til að gefa út gengisbundin spariskírteini ríkissjóðs og að heimila bönkum að bjóða gengisbundna við- skiptareikinga. 16 17 * OlafurRagnar í framboði ÓLAFUR Ragnar Grimsson prófessor hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis formanns Alþýðubandalags- ins á landsfundi flokksins sem verður í byrjun næsta mánað- ar. Ólafur Ragnar sagði Morgun- blaðinu í gærkvöldi að hann hefði tekið þessa ákvörðun á fundi með stuðningsmönnum sínum á Neskaupstað á sunnu- dagskvöld. Ólafur sagðist undanfarið hafa haldið fundi viða um land og eftir að hafa fundið viðbrögð manna á þeim ákveðið að bjóða sig fram til þessa embættis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.