Morgunblaðið - 13.10.1987, Page 57

Morgunblaðið - 13.10.1987, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987 57 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir SUE MASTERMAN Deilur um foríð Kurts Waldheim: Valþröng Wiesenthals Það kom sér mjög illa fyrir Simon Wiesenthal — sem nýtur al- þjóða viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar á stríðsglæpum nazista, þegar einn af starfsmönnum hans lét ítölsku tímariti i té gögn úr skjalasafni hans. Leiddi birting gagnanna til þess að Wiesenthal var sakaður um að hafa haldið leyndum upplýsingum sem hefðu sakfellt Kurt Waldheim núverandi forseta Austurrík- is. í gögnunum kemur fram vísbending um að Waldheim hafi átt þátt í flutningum stríðsfanga í sérstakar fangabúðir Þjóð- veija til pyndinga eða aftöku. Þessi ásökun á ekki við rök að styðjast. En að jafn virtur og mikilsmetinn maður og Wies- enthal — sem hefur unnið betur en nokkur annar að því að koma stríðsglæpamönnum nazista í hendur réttvísinnar — skuli þurfa að bera hönd fyrir höfuð sér i þessu máli sýnir þann fleyg sem málið hefur rekið í raðir þeirra sem harðast hafa barizt fyrir því að koma upp um stríðsglæpi naz- ista. Frá upphafi hefur Wiesenthal verið í erfiðri aðstöðu í Waldheim málinu. í stjórnmálum skiptist samfélag gyðinga í Vínarborg í fylgjendur sósíalista og fylgjendur íhaldsmanna. Wiesenthal, sem er harður andstæðingur kommún- ista, telst til þeirra síðamefndu. Hann er náinn persónulegur vinur Alois Mock núverandi varakanzl- ara og formanns íhaldsflokksins, sem studdi kjör Waldheims í for- setaembætti í fyrra. Þessi persónulegu tengsl hans leiddu til þess snemma í barátt- unni fyrir forsetakosningamar, þegar þær raddir urðu æ hávær- ari erlendis er sökuðu Waldheim um samvinnu við nazista, að Wies- enthal var ásakaður fyrir að hylma yfir með Waldheim. Þegar litið er til baka má hins- vegar með sanni segja að Wiesen- thal hafí verið sá eini sem hélt ró sinni í þessum pólitísku eijum. Hann fylgdi eindregið þeirri grundvallarreglu — sem hann hefur jafnan í heiðri haft — að byggja aðgerðir sínar eingöngu á staðreyndum sem unnt væri að sanna. Þótt ákaft væri leitað eftir stuðningi hans við yfirlýsingu um að Waldheim væri stríðsglæpa- maður lét hann ekki til leiðast, þar sem þá láu ekki fyrir — og liggja ekki enn — neinar sannanir fyrir því að hann hafi átt beinan þátt í stríðsglæpum. Skýrsla Flemings Meðan á kosningabaráttunni stóð barst Wiesenthal bréf og af- rit af skjölum frá brezka sagn- fræðingnum Gerald Fleming, sem nú á sæti í sérstakri nefnd óháðra sagnfræðinga er ríkisstjórn Aust- urríkis skipaði til að rannsaka starfsemi Waldheims á stríðsár- unum. í bréfi Flemings og afritum af heimildum varðandi stríðsglæpi úr skjalasafni Sameinuðu þjóð- anna, er fjallað um þátt hersveitar Waldheims í fangelsunum, yfir- heyrslum og dauða vestrænna stríðsfanga. í bréfi sínu biður hann Wiesenthal um að halda upplýsingunum leyndum og að eyðileggja bréfið. Einn aðstoðar- manna Wiesenthals, Sylvia Konieczny-Origlia félagsfræðing- ur og sérfræðingur í málefnum nýnazista, var þeirrar skoðunar að birta hefði átt þessi skjöl, ekki sízt eftir að Fleming var skipaður í sagnfræðinganefndina. Hún tók gögnin og fór með þau til Rómar þar sem henni fannst, að eigin sögn, ósk Flemings um að halda upplýsingunum leyndum hafi í raun útilokað hann frá sæti í sagnfræðinganefndinni. Aðgerð- ir hennar beindust ekki gegn Wiesenthal, heldur gegn Fleming. Wiesenthal hefur bent á að upplýsingarnar í bréfi Flemings hafi birzt í vestur-þýzka tímarit- inu Der Spiegel hálfum mánuði áður en honum barst þær í hend- ur, og seinna einnig í fjölmiðlum í Austurríki. Rannsóknamefnd brezka þingsins undir forsæti Sir Geoffrey Howe gat ekki fundið neitt sem benti til beinnar aðildar Waldheims að stríðsglæpum. Til að skilja ástæðu þess að Fleming óskaði eftir leynd varð- andi gögnin, verður að líta til baka, aftur til síðari hluta maí- Waldheim ekki áförum Deilur þessar hafa að minnsta kosti leitt eitt gott af sér. Þær urðu til þess að Simon Wiesenthal var fenginn til að koma fram í austurríska sjónvarpinu á bezta tíma. Þar tók hann skýrt fram að hann teldi Waldheim dragbít fyrir Austurríki, og að við svo búið gæti ekki staðið til lengdar. Eftir að nefnd sagnfræðinganna hefði skýrt frá niðurstöðum sínum, sagði hann, og sýnt fram á að Waldheim hafi ekki átt neinn beinan þátt í stríðsglæpum, væri ekkert því til fyrirstöðu að hann gæti með fullri virðingu látið af embætti forseta til hagsbóta fyrir þjóð sína. Wiesenthal er það fullljóst að Waldheim hefur ekki minnstu hneigingu til að segja af sér, hveijar svo sem niðurstöður sagn- fræðinganna eða annarra nefnda heima eða heiman verða. Wald- heim hefur lýst því yfir opinber- lega að hann ætli að gegna embættinu út sex ára kjörtíma- bilið, og hafi jafnvel í hyggju að Nazistaveiðarinn Simon Wiesenthal. AP mánaðar 1986 — tímabilsins milli fyrri og síðari umferða forseta- kosninganna. Þá má sjá að Fleming óskaði ekki eftir þessari leynd í þeim tilgangi að vernda Waldheim, heldur af því hann vildi ekki bæta stöðu hans í kosninga- baráttunni. Kurt Waldheim tókst ekki að fá hreinan meirihluta í fyrri um- ferð kosninganna, sem fram fór 4. maí. Þá var orðið ljóst að allar ádeilur á hann erlendis frá, sérs- taklega frá Alþjóðaráði gyðinga, kynntu undir andúð gegn gyðing- um heima í Austurríki. Kosninga- stjórar Waldheims notfærðu sér óspart þessi áhrif. Gárungar halda því enn fram að það hafi verið Alþjóðaráð gyðinga sem tryggði Waldheim forsetastólinn. Það sem Fleming vildi forðast, og einnig Wiesenthal, var að birta nokkuð það sem gæti enn aukið á gyðingaandúðina og þannig veitt Waldheim aukið brautar- gengi. Báðum var þeim ljóst að í skjölunum var ekkert það sem útilokaði Waldheim frá forseta- kjöri í augum meirihluta landa hans í Austurríki. bjóða sig fram til endurkjörs f sex ár til viðbótar árið 1992. Á stríðsárunum var Waldheim þriðji æðsti yfirmaður hersveitar sinnar og, að sögn Wiesenthals, sá sem hafði bezt yfirlit yfir starf- semina, þar sem hann fékk í hendur öll gögn er hersveitinni bárust, enda hafði hann þann starfa að semja útdrætti úr gögn- unum fyrir foringja sveitarinnar. Hann var einnig túlkur í ensku, frönsku og ítölsku, og hersveit hans annaðist útvegun túlka til starfa við yfirheyrslur. Waldheim heldur því fram að hann hafi ekkert vitað um þau ódæðisverk sem framin voru á vegum hersveitar hans, og að hann hafi aldrei tekið þátt í yfir- heyrslum. Wiesenthal vill ekki kalla for- seta landsins þar sem hann býr og starfar lygara. Hann segir aðeins að ekki geti verið að mað- urinn sé að segja satt. Höfundur er blaðamaður þjá brezka blaðinu The Observer. Hanstmót Taílfélags Seltjarnamess hefstkl. 19.30 íkvöld Teflt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19.30 og á laugardögum kl. 14.00 Tef It veröur í Valhúsaskóla. DULUX' S FRÁ t OSRAM - Ljóslifandi orku- sparnaður - 80% lœgri lýsingar- kostnaður miðað við glóperu. - Fimmföld ending ó við venjulega peru. - Þjónusta í öllum helstu raffœkja- verslunum og kaupfélögum. JÓHANN ÚLAFSSON & C0. HF. 43 Sundaborg 13 - 104 Reykjavík — Sími 688 588 MRfyiOi f\—Gá \RWQR’ fARD o loftfylltu lyftarahjólbardarnir sem endast Umbo&s og beUdvcrtlun Sími 91-685400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.