Morgunblaðið - 12.07.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 12.07.1988, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988 NORÐURLANDAMÓTIÐ í VÉLFLUGI Svíar sigurvegarar á NM í vélflugi 1988 NORÐURLANDAMÓT í vélflugi var haldið á Helluflugvelli sl. föstu- dag, 1. júlí. Mótinu lauk með sigri Svía en þeir unnu bæði keppni einstaklinga og landsliðakeppni, en þar var tekinn samanlagður árangur tveggja bestu keppenda úr hverju liði. Þetta er í fyrsta sinn sem milli- landakeppm í vélflugi er haldin hér- lendis, en íslendingar hafa fímm sinnum áður tekið þátt í Norður- landamótum í þessari grein flug- íþrótta. Undirbúningur og fram- kvæmd mótsins var í höndum vél- fiugdeildar Flugmálafélags íslands og sérstakrar móttstjómar sem véi- flugdeildin skipaði. Formaður vél- flugdeildarinnar er Gunnar Þor- valdsson frá Seifossi en mótstjóri NM ’88 var Ragnar J. Ragnarsson varforseti Flugmálafélagsins. Keppendur á NM ’88 voru alls 15, þrír frá hvequ landi. Fyrir ís- iands hönd kepptu þeir Orri Eiríks- son frá Akureyri, Almar Sigurðsson frá Selfossi og Jón E.B. Guðmunds- son frá Reykjavík, en auk þeirra keppti fjórði Islendingurinn, Ágúst Ögmundsson frá Reykjavík, í ís- landsmóti Flugmálafélgs Islands sem haldið var samhliða NM. Mótið hófst kl. átta árdegis með því að tveir keppendur úr hvetju liði drógu fána lands síns að húni. Friðrik Pálsson forseti Flugmálafélagsins setti síðan mótið og að því loknu flutti mótstjórinn Ragnar J. Ragn- arsson stutt ávarp. Keppendur fengu siðan nýjustu upplýsingar um veður og vinda frá Guðmundi Haf- steinssyni veðurfræðingi. Keppnin hófst kl. níu þegar fyrsti þátttakandinn mætti til leiks við gerð flugáætlunarinnar, en þar reynir á nákvæmni manna. Hver keppandi fær í hendur landakort þar sem rásmark, hompunktar og íokamark, eru merkt inn á, en hann verður sjálfur að stika leiðina og reikna út nákvæmlega flugtímann miðað við vinda á lofti og uppgefmn hraða flugvélar sinnar. Fyrsti kepp- andinn hóf sig til flugs kl. korter yfír tíu. Það var Ágúst Ógmundsson á Cessna 172 TF-SPY. í yfírlandsflugshluta keppninnar var flogið 97,6 sjómílna leið sem lá um rásmark við Selsundslæk og þaðan um hompunkta við Tungu- fell í Hrunamannahreppi, Stekkholt í Biskupstungum, Ámarbæli í Grímsnesi, Búðarhólshverfí í Aust- ur-Landeyjum og Reynifell að loka- marki við Strönd á Rangáravöllum. Nákvæmlega var fylgst með kepp- endum af jörðu niðri því tímatöku- stöðvar voru víða á leiðinni. Auk tímastöðva við rás- og endamörk voru tímatökumenn staðsettir á endanna og þar með Íslandsmeist- ari Fmí í vélflugi, þriðja árið í röð. Það vom allir sammála um að ár- angur Orra væri frábær og í raun miklu betri en margir þorðu að vona, þar sem hann áttist við mjög reynda og sterka mótheija. Órri lagði á sig mikla vinnu við æfíngar fyrir Norðurlandamótið og hefur _sú vinna skilað sér vel. Af öðrum ís- lenskum keppendum lenfy Almar Sigurðsson frá Selfossi, íslands- meistari í vélflugi 1985, í ellefta sæti, með 617 refsistig og Jón E.B. Guðmundsson frá Reykjavík, ís- landsmeistari í vélflugi 1971, í fjórt- ánda sæti NM með 3.006 refsistig. Ágúst Ögmundsson frá Reykjavík sem keppti aðeins á íslandsmóti Fmí hafnai í tólfta sæti af öllum keppendum, og í þriðja sæti íslands- mótsins, með 1041 refsistig. í keppni landsliða er tekin sam- anlagður árangur tveggja bestu keppenda úr hveiju liði. Þar sigruðu Svíar með 318 refsistig. Norðmenn voru í öðru sæti með 576 refsistig, Finnar höfnuðu í þriðja sæti með 667 refsistig, íslendingar urðu í fjórða sæti með 874 refsistig og Danir ráku lestina með 1,366 refsi- stig. Sænsku keppendurnir i vélflugi á NM 88: Frá vinstri Marianne Lindmann, liðsstjóri, Dan Hedström, Jan-Olof Friskman og Ame Nylén. Morgunblaðið/PPJ Keppt samkvæmt alþjóðareglum KEPPNI á Norðurlandamótum í vélflugi fer fram samkvæmt reglum alþjóðsamtaka fiugmálafélaga, Federation Aéronautique Intemati- onale (FAI), fyrir meistaramót í vélflugi. Keppnin skiptist í fjóra meginþætti: gerð flugáætlunar eftir ákveðinni leið sem keppendur verða sjálfir að mæla út á korti, flugleið- saga (þ.e. hvemig flugmönnum tekst að fljúga þessa leiða þar sem halda skal tímaáætlun með ná- kvæmninni +/+ 2 sekúndur), sér- verkefni sem m.a. eru fólgin í því að keppendur verða að þekkja ýmis kennileiti á jörðu niðri eftir ljós- myndum sem þeir hafa meðferðis og einnig verða þeir að koma auga á sérstök dúkmerki á jörðu niðri, en kennileitin og merkin þurfa þeir að staðsetja á leiðsögukorti sínu og að lokum er lendingakeppni. í lend- ingakeppninni eru teknar fjórar mismunandi lendingar: venjuleg Norðurlandamót í vélflugi (NM ’88) Heildarúrslit Ágúst keppti aðeins á íslandsmóti FMÍ í vélflugi. Þjóð Flug- Sérverk- Yfir- Lend- Alls Röð.Nafn áætl. efni landsfl. tngar (refsist.) 1. DanHedström Svi. 1 20 33 78 132 2. Jan Bernt Friskman Sví. 0 0 144 42 186 3. Ensio Aki Suokas Fin. 0 40 117 34 191 4 .KurtTh. Gabs Dan. 1 20 147 32 200 5. Orri Eiríksson ísl. 2 20 141 94 257 6. Bror-Erik Hjulstad Nor. 116 80 51 14 261 7. Steinar Vik Nor. 11 80 114 110 315 8. ArneNylen Sví. 1 60 294 100 455 9. Hannu T. Halonen Fin. 0 60 363 53 476 10. Harri T. Vahamaa Fin. 4 40 489 52 585 11. Almar Sigurðsson ísl. 41 160 300 116 617 12. Ágúst Ogmundsson ísl. 19 160 378 484 •1041 13. Gunnar Hansen Dan. 7 240 876 52 1166 14. Hans Möller Hansen Dan. 0 140 1044 124 1308 15. Jón. E.B. Guðmundss. ísl. 392 160 2328 126 3006 161 Mikael Aksdal Nor. 22 240 2142 1468 3872 marklending þar sem notkun hreyf- ilafls og vængbarða er leyfð, gervi- nauðlending þar sem notkun væng- barða er leyfileg, gervinauðlending án notkunar vængbarða og lending yfír hindrunarlínu sem er í tveggja metra hæð fímmtíu metra frá marklínu. íslensku keppendurnir á ÍM og NM ’88 í vélfugi, talið frá vinstri: Otto Tynes, liðsstjóri, Ágúst Ög- mundsson (keppti á ÍM), Almar Sigurðsson, Orri Eiríksson og Jón E. B. Guðmundsson. Morgunblaðið/PPJ Lendingameistarí Norðurlanda 1988 BROR-ERIC Hjulstad heitir 48 ára gamall norskur tannréttinga- sérfræðingur frá Þrándheimi sem vann glæsilegan sigur í lendinga- hluta NM með aðeins 14 refsistig. í upphafi viðtals sem undirritaður átti við þennan glaðlynda Norðmann vildi hann að það kæmi skýrt fram að hann ætti ættir sínar að rekja til íslands. „Forfaðir minn kom til Þrándheims áið 1552 og fór að búa í Inderoy í Þránd- heimi,“ sgaði Bror-Eric. „Hann kenndi sig við bæ á íslandi sem hét Heiðúlfsstaðir en nafnið breyttist í Hjulstad í kringum 1600. Ég vissi þetta ekki fyrr en á sl. ári en þá hafði bróðir minn látið rekja ætt- ir okkar. Því miður veit ég hvað ekki þessi ágæti forfaðir minn hét þremur hompunktum og þremur Íeynitímastöðvum. Síðdegis fór fram lendingahluti keppninnar sem mjög gaman var að fylgjast með. Óhætt er að full- yrða, að aldrei hefur sést jafngóður árangur hérlendis í lendingakeppni eins og sást á NM. Það var greini- legt að þama voru á ferðinni áhuga- flugmenn sem hefðu fyrir því að æfa sig fyrir keppni. Það var sér- staklega gaman að fylgjast með Norðmanninum Bror-Eric Hjulstad, sem hitti hvað eftir annað beint á strikið. Hann fékk aðeins 14 refsi- stig fyrir sínar fjórar lendingar og er það besta útkoman úr lendingar- keppni hér á landi. Það var óneitanlega nokkur spenningur sem fylgdi því að bíða eftir að úrslit yrðu kunn, og það vakti enga undmn þegar tilkynnt var að Svíamir Dan Hedström og Jan-Olof Friskman skipuðu efstu tvö sæti keppninnar með 132 og 186 refsistig. í þriðja sæti varð Finninn Aki Suokas með 191 refsi- stig og Kurt Gabs frá Danmörku varð §órði með 200 refsistig. Fast á eftir, í fímmta sæti, með 257 refsi- stig, var Orri Eiríksson frá Akur- eyri. Orri varð efstur íslensku kepp- fullu nafni.” Aðspurður kvaðst Bror-Eric hafa tekið einkaflugmannspróf árið 1967 og verið virkur í flugkeppnum og félagsstarfi áhugafíugmanna í Nor- egi síðan 1977, t.d. var hann vara- formaður vélflugdeildar Norska flugmálafélagsins um fímm ára sleið. Fyrsta millilandamót sem hann tók þátt í var NM 1984 sem haldið var í Finnlandi. Lenti hann þar í sjötta sæti sem verður að telj- ast góður árangur hjá manni sem hafði aldrei áður keppt utan heima- lands síns. Sfðan hefur Bror-Eric tekið þátt í fjómm Norðurlandamót- um í vélflugi, tveimur Evrópumót- um og tveimur Heimsmeistaramót- um með ágætum árangri. Hann á sína eigin flugvél sem er af gerð- inni Cessna 150 sem hann flýgur um 100 klukkustundir á ári og þá aðallega í flugkeppnum. Bror-Eric sagðist vera hrifínn af því hvemig íslendingar nota flug- vélar og líkti okkur saman við Ástr- alíubúa hvað þetta snerti en hann bjó þar um tveggja ára skeið og ferðaðist víða með flugvélum um landið meðan á dvölinni stóð. „Hér á landi virðast stjómvöld vera skilningsríkari en í Noregi hvað varðar flugmálin í heild sinni. Það er mjög þrengt að einkaflugi heima þrátt fyrir að mörg svæði séu afskekkt og hafi litlar sem eng- ar flugsamgöngur og einkaflugvél- ar því nauðsynleg samgöngutæki. Einnig hefur reynst erfítt að fá nýtt fólk til starfa við flugíþróttir en það er mjög kostnaðarsamt að stunda flug í Noregi í dag og að- staða tii flugiðkana víða bágborin," sagði Bror-Eric. Bror-Eric lýsti ánægju sinni yfir því að Reykjavík skildi eiga góðan flugvöll í hjarta borgarinnar, en hann kvaðst eiga sæti í nefnd sem berst fyrir því að gerður verði flug- völlur fyrir flugvélar sem nota stutt- ar flugbrautir, s.k. „STOL“ eða „short take-off and landing" flug- vélar, í námunda við miðborg Þrándheims. „Okkur hefur lítið orð- ið ágengt þar sem borgatyfirvöld halda að slíkur fiugvöllur yrði að- eins leikvöllur fyrir einkaflugmenn eins og mig. Borgarstjórn okkar vill ekki horfast í auga við það að góðar og greiðar samgöngur, og þar með flugsamgöngur, em nauð- synlegar í nútíma þjóðfélagi. Flug- vellir Þrándheims em staðsettir langt frá borginni í öðmm byggða- lögum og njóta þessi byggðalög góðs af og hafa vaxið fyrir bragð- ið. En við sem búum í Þrándheimi verðum að ferðast langar leiðir til að komast í flugvél þrátt fyrir að leiðin sem við ætlum að fara sé stutt.“ Um mótið sagði Bror-Eric að sér hafi fundist það takast mjög vel. „Kortin sem við fengum vom góð og leiðin var skemmtileg. Ég var hissa að það var ekki meiri ókyrrð á leiðinni vegna vindsins, en ég verð að viðurkenna að mér líkar ekki að fljúga í ókyrm lofti sérstak- lega þar sem fjöll eru í nánd,“ sagði Bror-Eric. „Einnig fannst mér flug- völlurinn á Hellu mjög góður, en við eigum ekki eins góða og skemmtilega grasflugvelli í Nor- egi.“ Næsta Norðurlandamót í vélflugi verður haldið í Skien í Noregi að ári og vonaðist Bror-Eric til að sem flestir íslendingar létu sjá sig þar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.