Morgunblaðið - 12.07.1988, Blaðsíða 41
Ofc
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988
41
*
Hótel Osk opn-
að á Akranesi
Akranesi.
MIKIÐ er að gera hjá Skaga-
ferðum hf. á Akranesi enda
sumarstarfsemin hafin af full-
um krafti. Starfsemi Skaga-
ferða hf. er að vanda fjöl-
breytt, enda rekur fyrirtækið
sumarhótel og skipuleggur
dagsferðir til Akraness ásamt
annarri ferðaþjónustu. Nýlega
var nýtt hótel opnað í heima-
vist Fjölbrautaskóla Akraness,
Hótel Ósk.
Skagaferðir hf. er sameignar-
fyrirtæki Akranesskaupstaðar og
einstakra hagsmunaaðilia í ferða-
þjónustu á Akranesi og var stofn-
að fyrir þremur árum. Á síðasta
ári færði það út kvíarnar og tók
á leigu heimavist Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi og starf-
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Daniel Ólafsson, framkvæmdastjóri Skagaferða hf., í móttöku
Hótels Óskar.
Hótel Ósk á Akranesi.
rækti þar vistlegt sumarhótel.
Hótelið var opnað 1. júni sl. í
hótel Ósk eins og það nefnist eru
31 tveggja manna herbergi, vel
búin með baði, ísskáp og eldunar-
aðstöðu. Einnig er boðið upp á
morgunverð á hlaðborði. Rekstur
hótelsins er að hluta til samtengd-
ur Skagaveitingum hf. sem eiga
og reka Hótel Akranes.
Nýr framkvæmdastjóri, Daníel
Ólafsson, hefur hefur nú tekið við
starfi hjá Skagaferðum hf. og
mun hann undirbúa og annast
skipulag og framkvæmd þeirrar
þjónustu sem boðið er upp á.
Daníel sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann væri bjartsýnn á
rekstur fyrirtækisins og vonaði
að ferðamenn myndu nota sér þá
þjónustu sem í boði væri. Daníel
sagði að Skagaferðir hf. skipu-
lögðu fyrir ferðamenn dagsferðir
frá Reykjavík til Akraness sem
hafa reynst mjög vinsælar. Komið
er til Ákraness að morgni með
Akraborg, byggðasafnið á staðn-
um skoðað, síðan snæddur hádeg-
isverður og að því loknu farin
skoðunarferð í frystihús og loks
gæfist kostur á að skoða bæjarlíf-
ið og kaupa ullarvörur hjá Akra-
prjóni hf. Daníel Ólafsson sagði
að æskilegt væri að gera starf-
semi Skagaferða hf. fjölbreyttari
og væru ýmsar hugmyndir um
það á lofti, en of snemmt væri
að upplýsa um hvað þær snerust.
Hann sagði að þessar dagsferðir
sem áður er minnst á væru vinsæl-
ar og vissulega mætti auka mögu-
leika á slíkum ferðum.
Daníel sagði að lokum að hann
vonaðist eftir góðu samstarfi við
Akurnesinga. „Bókanir á hótelið
hafa verið mjög góðar í sumar
og það sýnir að Akranes er vax-
andi ferðamannastaður. Við
byggjum ekki upp ferðamanna-
iðnað á Akranesi á nokkrum dög-
um. Þess vegna er það afar mikil-
vægt að heimamenn geri sér grein
fyrir því hvað þetta getur orðið
okkur mikilvægt þegar fram líða
stundir ef vel er á málum haldið,"
sagði Daníel.
- JG
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt.
Hafnarstræti 11,
símar 14824 og 621464.
Helgarferðir 15.-17.júlí:
l. Þórsmörk. Mjög góð gistiað-
staða í Útivistarskálunum Bás-
um. Gönguferðir við allra hæfi
m. a. íTeigstungur. Munið ódýra
sumardvöl f Básum, friösælum
og fallegum stað í hjarta Þórs-
merkur. Tilvalinn staöur fyrir fjöl-
skyldur. Sérstök afslá'ttakjör.
Einnig tilvalið fyrir smærri hópa
að taka sig saman og leigja
minni skálann til sumardvalar i
nokkra daga. Brottför föstu-
dagskvöld, sunnudags- og miö-
vikudagsmorgna.
2. Helgarferð í Lakagfga. Gist
v/Blágil. Kynnist þessari stór-
kostlegu gígaröð og ummerkjum
Skaftárelda. Ekiö heim með við-
komu i Eldgjá og Landmanna-
laugum.
3. Skógar-Fimmvörðuháls-
Básar. Gangan tekur um 8 klst.
Brottför laugard.
8. Dagsferð að Eyjafjöllum og
Skógum laugard. 16. júlf kl. 8.
Dagsferð sunnud. 17. júlí f
Þórsmörk. Uppl. og farm. á
skrifst., Grófinni 1, sfmar:
14606 og 23732. Sjáumst.
Útivist.
M ÚtÍVÍSt, C.o ,n„ .
Sumarleyfiserðir í júlí:
1. Esjufjöll 13.-17. júlf.
Fá sæti laus.
2. Strandir - isafjarðardjúp
16.-20. júlf. Ekið noröur Strandir
og markveröustu staðir skoðaðir
t.d. Eyri v/lngólfsfjörð, Kross-
neslaug og Djúpavík. Síðan farið
um Steingrímsfjarðarheiöi i Inn-
djúp, í fuglaparadisina Æðey,
Kaldalón, Snæfjallaströnd og
Reykjanes. Gist i svefnpoka-
plássi. Fararstjóri Þorleifur Guð-
mundsson.
3. Hornstrandir III: Kvfar -
Homvik - Reykjafjörður 14.-22.
júlí. Góö bakpokaferð.
4. Hornstrandir - Reykjafjörður
16.-22. júlf. Tjaldbækistöö.
Skemmtilegar gönguleiðir.
5. Aðalvfk 21.-26. júlf. Frá
isafiröi 22. júlí kl. 14.00. Hús og
tjöld við Sæból. Dagsferöir það-
an m.a. á Rit, að Látrum o.fl.
6. Eldgjá - Þórsmörk 23.-28.
júlf. Spennandi bakpokaferð um
Strútslaug, Hvanngil og Emstrur
til Þórsmerkur. Hús og tjöld.
7. Landmannalaugar - Þórs-
mörk 28. Júlf-1. ágúst. Auka-
ferð. Gist i húsum.
8. Hornstrandaferð 28. júlf-
2. ágúst. Gönguferöir frá tjald-
bækistöð i Hornvik. Þessi sígilda
Útivistarferð um verslunarmanna-
helgi er jafnan vinsæl. Farið 29.7
frá (safirði og til baka 1/8.
9. Hálendishringur 30. júlí-5.
ágúst. (7 dagar). Sprengisand-
ur, Gæsavatnaleið, Askja,
Heröubreiðarlindir, Kverkfjöll,
Mývatn, Kjölur. Tjöld og hús.
Fararstjóri Kristján M. Baldurs-
son. ,
10. 6 daga ferð tll Suður-
Grænlands 4.-9. ágúst. Flug til
Narssarssuaq. Göngu- og skoö-
unarferðir í nágr. Eiríksfjaröar.
Mjög ódýr.
Uppl. og farm. á skrifstofu Gróf-
inni 1, simar: 14606 og 23732.
Sjáumst.
Útívist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 09 19533.
Helgarferðir 15.-17. júlí.
1) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist i sæluhúsi Ferðafélagsins i
Laugum. Ekið i Eldgjá og skipu-
lagðar gönguferðir.
2) Þórsmörk. Gist f Skagfjörðs-
skála/Langadal.
Léttar gönguferðir um Mörkina.
3) Þórsmörk - Teigstungur.
Gist i tjöldum i Stóraenda og
farnar gönguferðir þaðan.
4) Hveravelllr. Gist i sæluhúsi
Ferðafélagsins á Hveravöllum.
Skoðunarferðir um nágrennið.
Brottför i hergarferðirnar er kl.
20.00. Farmiðasala og upplýs-
ingar á skrifstofu Ferðafélags-
ins, Öldugötu 3.
Ferðafélag islands.
m
Útivist,
Miðvikudagur 13. júlí kl. 20.
Strompahellar (Bláfjalla-
hellar)
Skemmtileg hellaskoðun vestan
Bláfjalla. Sérkennilegar hella-
myndanir m.a. i Rósahellinum.
Hafiö Ijós með. Verð 800 kr.,
fritt f. börn m. fullorðnum. Brott-
förfrá BSÍ, bensínsölu. Sjáumst!
Útivist.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Nauðungaruppboð
Eftirgreindar fasteignir verða seldar á uppboði er hefst á sýsluskrif-
stofunni á Blönduósi, miðvikudaginn 13. júli og hefst kl. 14.00.
Fyrri sala:
Fifusund 19, Hvammstanga,
Hjallavegur 10, Hvammstanga,
Brekkugata 4, Hvammstanga,
Efra-Vatnshorn, Kirkjuhvammshreppi,
Brúarholt, Ytri-Torfustaðahreppi,
Breiðabólstaður, Þverárhreppi,
Árbraut 18, Blönduósi,
eignir Skipasmiðastöðvarinnar Mánavarar hf., Skagaströnd.
Sýslumaðurinn i Húnavatnssýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara verður á fasteigninni Hólabraut 27, Skagaströnd,
þinglesinni eign Magnúsar Jónssonar. Uppboðið hefst á sýsluskrif-
stofunni á Blönduósi, miðvikudaginn 13. júlí kl. 14.00.
Sýslumaður Húnavatnssýslu.
Nauðungaruppboð
3ja og síðasta verður á fasteigninni Hlíöarvegi 13, Hvammstanga,
þinglesinni eign Eggerts Karlssonar. Uppboðið hefst á sýsluskrifstof-
unni á Blönduósi, miðvikudaginn 13. júll kl. 14.00.
Sýslumaður Húnavatnssýslu.
Frystiskápur
Til sölu Jackstone frystiskápur með York
pressu í mjög góðu ástandi.
Upplýsingar í símum 92-14462, 92-13362,
92-13883 og 92-14516.
Baader-188
Til sölu Baader 188 flökunarvél í mjög góðu
ástandi.
Upplýsingar í símum 92-14462, 92-13362,
92-13883 og 92-14516.
| atvinnuhúsnæði
Verslunarhúsnæði
Vantar verslunarhúsnæði í miðbænum
- jarðhæð 120-180 fm.
Vinsamlegast sendið tilboð til auglýsingadeildar
Mbl. merkt: „V - 2941“ fyrir 20. júlí ’88.
Laugavegur
Til leigu er 140 fm verslunarhúsnæði við
Laugaveg, vestan Snorrabrautar.
Þeir sem áhuga hafa sendi nafn, símanúmer
og upplýsingar um fyrirhugaðan rekstur til
auglýsingadeildar Mbl. merkt: „U - 3761“.