Morgunblaðið - 12.07.1988, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.07.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988 53 Arný S. Jóhanns- dóttir - Kveðjuorð Fædd 22. mars 1939 Dáin 27. júní 1988 Með þessum fáu orðum langar mig að kveðja Ámý S. Jóhanns- dóttur ,Öddu, sem lést 27. júní sl. eftir erfiða baráttu við skæðan sjúk- dóm sem hún barðist svo hetjulega við og aldrei heyrðum við hana kvarta. í lífínu koma þau atvik stundum fyrir að orðin sitja einhvers staðar föst. Minningarnar skella á manni og hugurinn er altekinn djúpri sorg og söknuði. En þá er huggun í harminum hvað minningarnar eru góðar og kærar. Ég kom fyrst á heimili þeirra hjóna, Hauks og Öddu, fýrir þremur árum er ég kynnist syni þeirra, Jóhannesi. Okk- ur var strax tekið vel, mér og syni mínum, sem var ekki orðinn tveggja ára gamall þá, fannst okkur alltaf mjög gott að koma í Kópavoginn til afa og ömmu. Hún var lífsglöð og henni þótti gott að gleðjast með glöðum. Hún var afskaplega gestrisin og naut þess mjög þegar gestir komu. Svo getur maður látið hugann reika nær endalaust, en allt tekur enda. Þegar leið að lokadegi fann maður hvað hún var í raun og veru sterk. Jafn máttfarin og hún var, þá var hún jafnvel meiri veitandi en þiggjandi. Það er dásamleg minning og hjálpar okkur öllum á erfiðri stund. Þegar líður að kveðju- stund er erfitt að kveðja og orð duga þar lítið. En þakklætið fyrir allt og allt er þar efst í huga. Og ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Þú, Kristar, ástvin alls sem lifir ert enn á meðal vor. Þú ræður mestum inætti yfir og máir dauðans spor. Þú sendir kraft af hæstu hæðum, svo himinvissan kveikir líf í æðum, og dregur heilagt fortjald frá, oss fegurð himins birtist þá. Þú vígir oss sem votta þína að veruleika þeim: að vinir aldrei vinum týna, þótti víki til þín heim. Þú lætur efnisþokur þynnast, svo það sé hægra elskendum að finnast, að jafnvel heljarhúmið svart þín heilög ástúð gjörir bjart. Þín elska nær til allra manna, þótt efinn haldi þeim, og lætur huldar leiðir kanna að Ijóssins dýrðarheim. Vér skulum þínir vottar vera og vitnisburð um stórmerki þín bera, þvi þú ert eilíf ást og náð og öllum sálum hjálparráð. (Vald V. Snævarr.) Anný Elín Bentsdóttir og Ragnar Andri t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför AUÐBJARGAR KÁRADÓTTUR, Ósabakka, Skeiðum. Sérstakar þakkri til læknanna í Laugarási. Jens Aðalsteinsson, börn, tengdabörn og barnabörn hinnar látnu. Alúðarþakkir fyrir auösýnda samúð og vináttu við andlát og jarðar- för móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR KRISTÓFERSDÓTTUR, Kambsvegi 37, Reykjavik, Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Hrafnistu DAS, Reykjavík, fyrir góða umönnun í veikindum hennar. Kristrún Guðmundsdóttir, Agnar Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför NÖNNU KRISTÍNAR JAKOBSDÓTTUR, Ránargrund 5, Garðabæ. Guð blessi ykkur. Þórður Kristjáns- son - minningarorð Fæddur 20. október 1933 Dáinn 1. júlí 1988 Við setjum þessar fáeinu línur á blað til þess að styrkja aðstandend- ur og okkur sjálf á þessum tímamót- um og kveðjustund. Eins og að- standendur vita geta engin orð komið í mannsstað en við eigum minningamar sem eru okkur dýr- mætar þar til við hittumst öll aftur eftir þessa tilveru okkar hér. Þórður Sigurel Kristjánsson — Doddi eins og hann var kallaður í okkar hópi var með okkur í félags- skap sem er kallaður sjóflokkur slysavarnasveitarinnar í Reykjavík og starfar undir merki S.V.F.Í. Doddi starfaði í land- og sjósveit f fjölda ára en seinni ár var hann aðallega í sjóflokki. Doddi starfaði við viðgerðir 4 vélum og í vélsmiðjum við ýmiss- konar smíði og kom það sér vel í félagsskap sem þessum þar sem ýmisskonar viðgerðir og smíðar eiga sér stað. Ef eitthvað bilaði hjá okkur var Doddi ávallt tilbúinn til að gera við og laga. Þegar við lítum til baka yfir þessi ár sem við í sjóflokki höfum fengið að njóta með honum og rifjum upp ferðir, vinnustundir og bjarganir, þá er of langt mál að telja það upp. Því verður hver félagi að eiga þær stundir í minni sér. Já þær eru margar stundirnar sem við félag- arnir eigum niður í „slysó“ eins og við köllum það. Ef við ættum ekki traustar og skilningsríkar fjölskyld- ur og ættingja að baki væri ekki hægt að hlaupa um miðja nótt í vonsku veðri út í sortann í leit eða til aðstoðar fólki í vanda. Hlaupa úr vinnu sem enginn mun borga. Jú það er eitthvað sem heldur í okkur þessa félaga í 97 sveitum allt í kringum landið. Doddi var svo heppinn að eignast Rúnu sem konu sem hefur með dugnaði haldið stórt heimili og au_k þess starfað í Kvennadeild S.V.F.Í. í Reykjavík í mörg ár af miklum dugnaði og eldmóði. Án hennar skilnings á málefninu hefði Doddi ekki getað starfað í sveitinni af svo miklum krafti sem hann gerði. Við kveðjum Dodda með söknuði og eftirsjá en hann mun ætíð vera í huga okkar sem góður vinur og félagi. Það er einmitt í svona sveit sem myndast sterk tengsl á milli félaga sem skapast af tryggð við hvern annan og trausti jafnt í leik sem á hættustundum. Við vottum Rúnu og fjölskyldu samúð okkar og sendum henni hlýj- an hug. Við stöndum saman og höldum áfram á sömu braut því Doddi hefði spurt: „Hvaða rolugangur er þetta, á ekki að gera neitt?“ Félagar í sjóflokki slysa- varnarsveitarinnar í Reykjavík. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON málari, Þórufelli 14, andaðist í Grensásdeild Borgarspítalans 9. júlí. Ragnheiður Gunnlaug Gestsdóttir, Ester GuAmundsdóttir, Kristjana Guðmundsdóttir, Klara Lind Guðmundsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir, Guðmundur Arnar, Sigurður Kristjánsson, Sigurjón Kristjánsson. Haraldur Ólason, Jóhann Eyjólfsson, Halldór Ágústsson, t Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINARS. EINARSSON skipasmiður, Ljósheimum 20, sem lést 2. júlí verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudag- inn 13. júlí kl. 15.00. Þórunn Waage Guðjónsdóttir, Sigurður G. Einarsson, Bettý Benjamínsdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson, Heiður Þorsteinsdóttir, Bergþór Einarsson, Erna Einarsdóttir, Erla Berglind Einarsdóttir, Jón Kr. Dagsson, barnabörn og barnabarnabörn. Legsteinar MARGAR GERÐIR Mmorex/Gmít Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður Gísli G. Kolbeinsson, Unnur Ingibjörg Gísladóttir, Hildur Gisladóttir, Jakob T ryggvason, Sofffa G. Jakobsdóttir, Tryggvi K. Jakobsson, og aðrir aðstandendur. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, ÁRNÝJAR S. JÓHANNESDÓTTUR, Álfhólsvegi 125. Haukur H. Eiríksson, Jóhannes Hauksson, Anný E. Bentsdóttir, Kristfn Hauksdóttir, Gunnar Björnsson, Kolbrún Hauksdóttir, Jón Þór Jónsson, Heimir Hauksson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÖGNU INGIMUNDARDÓTTUR, Stórholti 26, Reykjavík. Ingimundur Helgason, Svava Björgólfs, Davíö Helgason, Auður Ragnarsdóttir, Þórður Helgason, Þórunn Óskarsdóttir, barna- og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför ÞÓRÐAR SIGUREL KRISTJÁNSSONAR, Lindargötu 54. Sérstakar þakkir til Slysavarnafélags íslands og Björgunarsveitar- innar Ingólfs fyrir þá ómetanlegu aðstoð sem þeir veittu. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Jónsdóttir, Sara Vilbergsdóttir, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Arnfríður Olga Arnfinnsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Þórður Sigurel Arnfinnsson, Magnús Kristjánsson, Þorsteinn Rúnar Stefánsson, Kristján Kristjánsson, Þorbergur Svavar Stefánsson, Ingimundur Kristjánsson, Arnfinnur Jón Guðmundsson. Birting afmælis- og minningargreina Morgnnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.