Morgunblaðið - 12.07.1988, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988
Ítalía:
Engir skiptimiðar
Rputer
Nýlega var opnuð óvenjuleg bjórkrá í borg-
inni Osaka i Japan. Tveggja hæða strætisvagn
frá London var keyptur af japönsku bygginga-
fyrirtæki, fluttur til Japans og honum breytt i
bjórkrá með nafninu „Piccadilly Circus." Innan-
stokks mun allt minna á dæmigerða, breska krá.
Hryðjuverka-
menn dæmdír
Bologna á ftalíu. Reuter.
ÍTALSKUR dómstóll dæmdi í
gær 13 manns i fangelsi fyrir
aðild að sprengjutilræði á járn-
brautarstöð i Bologna árið 1980.
Alls misstu 85 lífið i tilræðinu
og 200 særðust.
Þyngstu dómamir voru lífstíðar-
fangelsi en átta af 21 sakborningi
voru sýknaðir. Ákæru um samsæri
gegn ríkinu, sem borin var fram á
hendur 11 mönnum, var vísað frá
vegna skorts á sönnunum. Sam-
kvæmt ítölskum lögum jafngildir
þetta þó ekki fullkominni sýknun.
I hópi ellefu-menninganna vom
fyrrum leiðtogi frímúrarareglunnar
P-2, Licio Gelli, og tveir háttsettir
foringjar í leyniþjónustu hersins
Lögbækumar
umskrifaðar
Montreal. Reuter.
I Sovétríkjunum er nú unnið að
því að gerbreyta gildandi lögum
og rétti og er þessi bylting ekki
þýðingarminni en sú, sem að er
stefnt í stjórn- og efnahagsmál-
um. Var þetta haft um helgina
eftir kanadískum lögfræðingi,
sem átt hefur fundi með frammá-
mönnum í sovéska dómsmála-
kerfinu.
„Breytingunum verður best lýst
með orðinu bylting," sagði Irwin
Cotler, en hann hefur verið lög-
fræðilegur ráðunautur ýmissa sov-
éskra andófsmanna, til dæmis Nat-
ans Sharanskis. Sagði hann, að
sovésk lög bönnuðu nú allt, sem
ekki væri beinlínis leyft, en að
breytingunum loknum yrði allt
leyft, sem ekki væri beinlínis bann-
að. Skilgreiningin „andsovéskur
áróður" verður þurrkuð út úr laga-
bókum og starfsemi andófsmanna
leyfð nema þeir hvetji til valdbeit-
ingar.
ásamt nokkrum leiðtogum ítalskra
nýfasista.
Saksóknarar ríkisins voru sex ár
að semja ákærumar. Þeir gerðu ráð
fyrir því að nýfasistar hefðu staðið
á bak við tilræðið, með stuðningi
leyniþjónustumannanna og Gellis,
og hefði markmiðið verið að valda
upplausn í landinu og auðvelda
þannig öfgasinnuðum hægrimönn-
um að ræna völdum. Eftir réttar-
höld, er staðið hafa í hálft annað,
eru allir málsaðilar sammála um
að ekki séu öll kurl komin til grafar.
Gelli, herforingjarnir og fasista-
leiðtogarnir hlutu allir sjö ára fang-
elsi fyrir að reyna að leiða rann-
sóknaryfirvöld afvega með því að
búa til vísbendingar um þátt er-
lendra öfgasinna í tilræðinu. Gelli
er nú í stofufangelsi þar sem hann
bíður þess að réttarhöld hefjist
vegna ákæru um fjársvik í sam-
bandi við gjaldþrot Ambrosiano-
bankans 1982, stærsta einkabanka
Italíu.
Afganistan:
Skæruliðar herða sókn-
ina gegn innrásarhemum
SJÓVÁ
FerÖa
tryggingar
Setið um sovéskar hersveitir í Kandahar
Islamabad og Lundúnum, Reuter.
SKÆRULIÐAR í Afganistan hafa hert mjög sókn sína gegn sovéska
innrásarhernum og leppstjórn Kremlveija í Kabúl. Að sögn tals-
manna skæruliða hefa árásir þeirra einkum beinst gegn hersveitum
Rauða hersins í austurhéruðum landsins við landamæri Afganistans
og Pakistans, í grennd við Kabúl og umhverfis borgina Kandahar
í suðurhluta Iandsins. Að sögn bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITN
sitja skæruliðar nú um Kandahar og eru svæði þau sem Sovétmenn
ráða yfir sem „eyjar í hafi skæruliða."
„Það hefur verið mikil aukning
[á hernaðinum],“ sagði Ikram
Khan, talsmaður skæruliða. „Og
hann á að líkindum eftir að færast
enn í aukana í næsta mánuði."
Vestrænn stjórnarerindreki í Isl-
amabad, höfuðborg Pakistans,
sagðist telja að afganskir skærulið-
ar hygðust auka þrýstinginn á
Rauða herinn eftir þvi sem hersveit-
ir hans hefðu sig á brott úr landinu.
„Okkur virðist sem skæruliðarnir
hafi á undanfömum vikum reynt
að heija á innrásarherinn á eins
mörgum stöðum og hægt er,“ sagði
hann. „Og það á eftir magnast frek-
ar.“
Breska sjónvarpsstöðin ITN
sýndi á mánudag fyrstu myndirnar
frá Kandahar í sex ár, að því að
talið er. Á þeim mátti sjá hvar her-
sveitir innrásarhersins og Kabúl-
stjómarinnar voru umsetnar af Sov-
étmönnum. Sagði fréttamaður ITN
að skæruliðar hefðu yfirburðavíg-
stöðu og að Sovétmenn og hersveit-
ir leppstjómarinnar gætu lítið ann-
að gert en að halda því sem því sem
hefðu.
Samkvæmt samningum um
brottflutning innrásarhersins verð-
ur helmingum hetja Sovétmanna á
brott úr landinu hinn 15. ágúst.
Allur sovéskur herafli skal vera
farinn úr landinu fyrir 15. febrúar
á næsta ári.
Sovéskar hersveitir eru að mestu
farnar úr austur- og suðaustur-
héruðum landsins að því er Borís
Gromov, hershöfðingi og yfirmaður
Rauða hersins í Afganistan, sagði
í viðtali við dagblað Rauða hersins
á sunnudag.
Bandaríkin:
Byrjað að rigna í
miðvesturríkjunum
Chicago.Reuter.
Á SUNNUDAG tók að rigna í
miðvesturríkjum Bandaríkjanna
eftir mestu þurrka sem þar hafa
verið í 50 ár. Rigningin hefur
viðast mælst um 2.5 cm.
Dale Mohler, talsmaður Accu
veðurstofunnar, sagði í gær að rign-
ingin væri meiri en búist hefði ver-
ið við. Samkvæmt fréttum frá veð-
urstofunni á að rigna fram til dags-
ins í dag en enn er ekki vitað hvort
þurrkunum er þar með lokið.
Matvælastofnun Sþ, FAO, telur
líklegt að þurrkarnir, sem raktir
hafa verið til úrgangsefna í and-
rúmsloftinu, eigi eftir að valda
kornskorti og ef til vill matarskorti
í þriðja heims ríkjum. Kornuppskera
utan Norður-Ameríku er víðast
hvar góð.