Morgunblaðið - 20.09.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
5
Formaður Samstarfs auglýsenda:
Líklegt að tölur
um upplag tíma-
rita hafi verið ýktar
Upplagseftirlit nauðsynlegt
„ÞAÐ benda sterk rök til þess að margir útgefendur hafi stórlega
ýkt upplagstölur, en það hefúr sjálfsagt verið gert í þeim tilgangi
að auka auglýsingagildi timaritanna,“ sagði Sigurður B. Sigurðsson,
formaður Samstarfs auglýsenda. Eitt af meginmarkmiðum samtak-
anna er að komið verði á marktæku upplagseftirliti hér á landi.
Að sögn Sigurðar hafa samtökin átt i viðræðum við stærstu útgefend-
ur landsins undanfarna mánuði og farið þess á leit að þeir taki þátt
i virku upplagseftirliti, og hafi útgefendur nokkurra tímarita nú
ákveðið þátttöku. „Við hörmum hins vegar ef einhveijir útgefendur
ætla sér ekki að styðja við upplagseftirlit. Einstaka fyrirtæki verða
þá sjálf að taka ákvarðanir um hvort þau auglýsa hjá þessum útgef-
endum, og þau verða jafnframt að gera það upp við sig hvort upp-
lýsingum um upplag þjá útgefendum sé treystandi,“ sagði Sigurður
B. Sigurðsson i samtali við Morgunblaðið.
Fyrsti félagafundur Samstarfs- þjónusta við auglýsendur, og þar
ms verður haldinn næstkomandi
fimmtudag. Aðild að þessum sam-
tökum eiga um 60 fyrirtæki í einka-
rekstri, en frumkvæði að stofnun
samtakanna átti hópur stjómenda
þessara fyrirtækja ásamt Verslun-
arráði íslands.
Sigurður sagði að á síðustu árum
hefði' myndast mikil tortryggni
varðandi upplýsingar um upplags-
tölur tímarita og þær verið vefengd-
ar. Sterk rök bentu reyndar til þess
að upplagstölumar hefðu verið stór-
lega ýktar.
„Verslunarráð íslands hefur í
mörg ár staðið fyrir upplagseftir-
liti, en þátttaka í því hefur verið
mjög dræm. Það hefur því myndast
hópur auglýsenda sem álítur að
upplagseftirlit sé mjög nauðsynlegt
fyrir ákvarðanatöku um það hvem-
ig fé auglýsenda verði best varið.
Utgefendur sem ekki veita upplýs-
ingar um staðfest upplag eru hugs-
anlega að selja vöm á fölskum for-
sendum. Auglýsendur eiga erfitt
með að kyngja þessu og þess vegna
er þessi ályktunartillaga sem lögð
verður fyrir fundinn á fimmtudag-
inn orðin til, þar sem við hvetjum
fyrirtæki eindregið til að styðja
virkt upplagseftirlit."
Ályktunartillagan sem um er að
ræða er svohljóðandi:
„Samstarf auglýsenda undir-
strikar nauðsyn þess að auglýsend-
ur hafi jafnan áreiðanlegar upplýs-
ingar um útbreiðslu og notkun
þeirra flölmiðla sem birta auglýs-
ingar. Samstarfið styður því af-
dráttarlaust upplagseftirlit og les-
endakannanir á vettvangi dagblaða,
tímarita og annarra prentaðra flöl-
miðla, og samsvarandi upplýsinga-
öflun varðandi ljósvakamiðla. Sam-
starfið telur brýnt að auglýsendur
almennt geri sér grein fyrir mikil-
vægi staðfestra upplýsinga um
markaðsstöðu fjölmiðla til þess að
það fé sem varið er til auglýsinga
komi að tilætluðum notum. Að svo
komnu skortir einkum upplýsingar
um markaðshlutdeild prentaðra
ijölmiðla, að undanskildum tveim
dagblöðum í upplagseftirliti. Sam-
starf auglýsenda leggur því sér-
staka áherslu á að auglýsendur,
auglýsingastofur og útgefendur
sameinist um að gera þennan hluta
auglýsingamarkaðarins aðgengi-
legan og traustan með því meðal
annars að styðja og nýta sér upp-
lagseftirlit og lesendakannanir sem
nú standa til boða fyrir milligöngu
Verslunarráðs íslands."
Að sögn Sigurðar er ein helsta
ástæðan fyrir því að ákveðnir útgef-
endur veiti ekki staðfestar töiur um
upplag sú, að þeir telji að flestir
auglýsendur hafi ekki yfir að búa
nægjanlega faglegri þekkingu til
að geta metið upplagstölur og beri
þær þvi saman hráar. Hann segir
að nú sé hins vegar orðið mikið um
starfandi lærða fagmenn í markaðs-
fræðum hjá fyrirtækjum, þannig
að þessi röksemdafærsla fái ekki
staðist.
„í öllum nágrannalöndum okkar
er upplagseftirlit álitið sjálfsögð
þarf hvert tímarit að veita upplýs-
ingar um upplagstölur, sem þurfa
að vera staðfestar af hlutlausum
aðila, en við leggjum til að hér á
landi verði það Verslunarráð íslands
sem hafi það með höndum. Þá þurfa
tímarit jafnframt að gefa upplýs-
ingar um markhópa, dreifingu
þeirra og alls konar upplýsingar
aðrar, sem gera auglýsendum kleift
að taka faglegar ákvarðanir.
Þjónustan §em útgefendur veita
auglýsendum hér á landi er sem
stendur fyrir neðan allar hellur, og
á þetta fyrst og fremst við um tíma-
ritaútgefendur. Þetta er meðal ann-
ars ástæðan fyrir stofnun Samtaka
auglýsenda, en við viljum starfa á
faglegan máta og við þurfum á
faglegum upplýsingum að halda.
Við krefjumst þess að allir útgef-
endur veiti okkur þær upplýsingar
sem auðvelda okkur ákvarðanatök-
ur,“ sagði SigurðurB. Sigurðsson.
Bíl stolið
o g hann
brenndur
BÍL VAR stolið frá bUasölu að-
faranótt sunnudagsins, honum
ekið að Vatnsenda og hann
brenndur þar til kaldra kola.
Snemma á sunnudagsmorgun
barst lögreglu tilkynning um log-
andi bíl við Vatnsenda. Bfllinn var
brunninn til kaldra kola þegar að
var komið. Skömmu síðar var til-
kynnt um innbrot í bflasölu í Borg-
artúni. Þaðan hafði verið stolið lykl-
um að þessum bfl. Óvíst er hveijir
þama voru að verki.
Vitni
vantar
Slysarannsóknadeild lög-
reglunnar í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að eftirtöldum
umferðaróhöppum þar sem
tjónvaldar fóru af vettvangi
án þess að gera eigendum
þeirra bíla sem þeir
skemmdu vart um óhappið.
Ekið var á vínrauða Mazda
929 í Armúla við Hollywood
um klukkan 3.30 aðfaramótt
sunnudags.
Á bflastæði við Ármúla 26
var ekið á bláan Honda-bfl milli
klukkan 15 og 17 föstudaginn
16. þm..
FRAMTIÐ!
Með TEAM, hillu- og skápaeiningakerfinu,
getur þú byggt upp hillusamstæðu eftir
þínum eigin hugmyndum.
TEAM hentar alls staðar, því þú getur hengt
TEAM beint á vegginn, staflað TEAM eða
hengt TEAM á krómgafla.
TEAM hengt á vegg
TEAM hengt á krómgafla
TEAM hengt á krómgafla
TEAM staflað
TEAM fæst í svörtu, svörtu/gráu og hvítu.
Einfalt fallegt stflhreint.
húsgagna höllin
HLSGOG\
REYKJAVÍK