Morgunblaðið - 20.09.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
9
í>
B.B.BYGGINGAVÖRUR HE
Suðurlandsbraut 4, Slmi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti. Slmi 671440
¥
'AXTARBREF
UTVEGSBANKANS
Vaxtarsjóöurinn er
VERÐBRÉFASJÓÐUR sem
stjórnað er af sérfræöingum
Verðbréfamarkaðar
Útvegsbankans.
Vaxtarbréfin hafa gefið um 12%
ÁVÖXTUN UMFRAM
VERÐBÓLGU að undanförnu.
EKKERTINNLAUSNARGJALD
annan og þriðja afgreiðsludag
hvers mánaðar.
VERÐBRÉFAA/IARKAÐUR
ÚTVEGSBANKANS
SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30
Vinstri og hægri - _ .
Rætt um hugsanlega
sameiningu Arflokka
blokk að myndast eftir faU rítósstjómarinnar:
Miklar sviptingar
Sviptingarnar hafa verið miklar í stjórnmálunum undanfarin
dægur. Eins og menn muna var um það deilt fyrir rúmri viku
eða svo, hvort sambandið væri orðið svo náið milli framsóknar-
manna og alþýðuflokksmanna að þeir væru teknir til við að
mynda sameiginlega nýja stjórn á meðan þeir sætu í samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn. Eftir að upp úr stjórnarsamstarfinu slitn-
aði hefur Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, sagt í sjónvarpi, að hann hafi átt samtöl við ýmsa
menn í síma. Á laugardaginn benti allt til þess að þeir Steingrím-
ur og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, teldu
sig geta myndað stjórn strax næsta dag eða svo. Við þetta er
staldrað í Staksteinum í dag.
0
I vasanum
Sá grunur læddist að
mörgum er fylgdust með
þeim Steingrími Her-
mannssyni og Jóni Bald-
vin Hannibalssyni i sjón-
varpinu á laugardags-
kvöldið, að þeir teldu sig
hafa meirihluta á Alþingi
í vasanum um leið og upp
úr samstarfinu við Sjálf-
stæðisfiokkinn slitnaði.
Var engu líkara en þeir
teldu sig bæði hafit Al-
þýðubandalagið og Borg-
araflokkinn á hendinni
og þingmenn þessara
flokka gætu strax fyllt
skarðið eftir sjálfetæðis-
menn. Það ýtti undir
þessatrú manna, að Ólaf-
ur Ragnar Grimsson,
formaður Alþýðubanda-
lagsins og prófessor i
stjóramálafræði, talaði
um einhvers konar
vatnaskil í stjórnmálun-
um; straumar hefðu snú-
ist frá hægri til vinstri
og framvegis myndu fs-
lendingar lúta föðurlegri
forsjá hans og annarra
felagshyggjuafla út úr
grimmdarlegri veröld
fijálshyggjunnar. Biðu
menn bara eftir því að
hann fieri að boða glasn-
ost og perestrojku undir
leiðsögn Steingríms Her-
mannssonar, sem hefur
íslendinga best kynnt sér
meginþættina f stefiiu
Gorbatsjovs er sætir nú
aðkasti heima fyrir
vegna matarskorts og
vaxandi örbirgðar.
Trú manna á þvf að
Ólafur Ragnar væri að
ganga inn i sfjóra með
þeim Steingrfmi og Jóni
Baldvin óx síðan enn á
sunnudag, þegar skýrt
var frá því að þeir félag-
ar hefðu setið morgun-
fund í skrifstofu
Steingríms f utanríkis-
ráðuneytinu. Við dyr
ráðuneytisins var Ólafur
Ragnar spurður að þvf,
hvort hann yrði utanrík-
isráðherra i þeirri stjóm,
sem þeir legðu nú á ráð-
in um. Svaraði hann
drýgindalega að sér lit ist
vel á skrifetofuna! Fyrir
síðustu kosningar lýsti
Ólafur Ragnar þvf yfir,
að hann væri tilbúinn til
að verða utanríkisráð-
herra og nýir tfmar
myndu renna upp, þar
sem ráðherrann myndi
þáklæðast gráum fötum!
í Dagblaðinu-Vfsi f
gær er svo skýrt frá því,
að þeir Ólafur Ragnar
og Jón Baldvin hafi snætt
saman kvöldverð á heim-
ili Jóns á sunnudagskvöld
og rætt um að sameina
Afþýðuflokk og Alþýðu-
bandalag. Rennir það
enn stoðum undir það að
Alþýðubandalagið sé f
þann mund að ganga f
nýja stjóm, þvf að varla
renna þeir saman í einn
flokk kratar og kommar
með það fyrir augum að
aðeins kratar starfi með
framsókn?
Fundaðí
Valhöll
Lengi hefur legið f
loftinu að Steingrímur
Hermannsson teldi sig
hafa betri aðgang að Al-
bert Guðmundssyni en
forystumenn annarra
flokka og hefiir sú skoð-
un verið o&rlega í um-
ræðum um þróun stjórn-
mála frá því að Borgara-
flokkurinn varð til, að til
samstarfe hans og Fram-
sóknarflokksins kynni að
koma. Benti altt til þess
á fyrstu klukkutfmunum
eftir að ráðuneyti Þor-
steins Pálssonar baðst
lausnar, að Borgara-
flokkurinn væri gefin
bráð að mati þeirra
Steingrims og Jóns Bald-
vins. Fyrir þá sök kom
það þeim vafalaust báð-
um á óvart, þegar Albert
Guðmundsson gekk á
fiind Þorsteins Pálsson-
ar, formanns Sjálfetæðis-
flokksins, f ValhöU. Hef-
ur Friðrik Sophusson,
varaformaður Sjálfetæð-
isflokksins, lýst þessum
fundi sem sögulegum
sáttum, en eins og lesend-
um Morgunblaðsins ætti
að vera kunnugt hefur
hingað til verið talað um
slfkar sættir, ef samstarf
tækist á milli Alþýðu-
bandalags og Sjálfetæðis-
flokks. Kom fram, að
þeir Þorsteinn og Albert
væru til þess búnir að
standa saman að myndun
minnihlutastjóraar, er
hefði 25 þingmenn á bak
við sig, en samtals hafa
kratar og framsóknar-
menn 23 þingmenn.
Albert Guðmundsson
lét orð falla á þann veg
þegar hann skýrði ástæð-
una fyrir samtali sinu við
Þorstein Pálsson, að
hann gæti nú rætt við
Sjálfetæðisflokkinn, þar
sem formaður hans hefði
lagt til lækkun á matar-
skatti, en gegn þeim
skatti hefði Borgara-
flokkurinn alltaf staðið.
Úr því að sjálfetæðis-
menn hefðu þannig nálg-
ast sjónarmið Borgara-
flokksins í þessu efiii
værí unnt að ræða um
önnur mál. Hitt hefur
einnig komið fram að
borgaraflokksmenn eiga
í viðræðum við þá felaga
Steingrím og Jón Bald-
vin. Ber matarskattínn
þar á góma? Eins og
menn muna sprakk
stjóra Þorsteins Pálsson-
ar á þvi á föstudaginn
að Þorsteinn vildi lækka
matarskattinn. Það ætti
þó ekki eftir að gerast,
að ný sfjóra verði mynd-
uð án Sjálfetæðisflokks-
ins af þvi að kratar og
framsóknarmenn reyn-
ast tílbúnir til að hrófla
við matarskattinum?!
Metur þú
ofar öllu?
Ef svo er, eru spariskírteini ríkissjóðs besti fjárfest-
ingarkosturinn fyrir þig. Spariskírteini ríkissjóðs
eru öruggustu verðbréfin sem eru á markaðnum.
Þau gefa auk þess góða ávöxtun, frá 7-8% yf'ir
verðbólgu og af þeim þarf ekki að greiða eignar-
skatt!
Kynntu þér kosti spariskírteina ríkissjóðs hjá
starfsfólki VIB.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF.
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími68 15 30