Morgunblaðið - 20.09.1988, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
Fontana Musicale
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Það mun hafa hent áður, að til
íslands hafí tónlistarmenn komið
að sækja sér hljóðfæri smíðuð hér-
lendis og svo á við um þann hóp
er stóð fyrir tónleikum í Norræna
húsinu sl. sunnudag. Hér átti hópur-
inn viðdvöl á leið sinni vestur um
haf og mun héðan hafa í pússi sínu
blokkflautur smíðaðar af Adrian
Brown. Hann er búsettur hér á landi
en hefur þegar hlotið þá viðurkenn-
ingu sem hljóðfærasmiður, að tón-
listarmenn telja sig eiga erindi til
íslands, umfram aðra staði nær
sér, til að eignast góðar blokkflaut-
ur.
Fontana Musicali er skipaður
tveimur frábærum blokkflautuleik-
urum, Ulli Mauerhofer og Gerd
Liinenbúrger, gambaleikaranum
Marcy Jean Bölli og aldeilis ágætum
cemballeikara, Wolfgang Zerer er
lék svítu eftir Froberger. Auk Fro-
bergers voru þama tónhöfundar
eins og Dario Costello (d. 1656 eða
58), sem hafði mikil áhrif á þróun
hljóðfæratónlistar í Feneyjum og
gaf út tvö hefti af sónötum, sem
nutu mikilla vinsælda. Þá skal og
geta Fontana og Salamone Rossi
en þeir létust báðir 1630. Rossi
hafði mikil áhrif á þróun tríósónöt-
unnar og reyndar tvenndarforms-
ins. Síðari hluti tónleikanna var svo
helgaður Purcell og franska tón-
skáldinu Marin Marais, sem sagður
er hafa verið einn besti gambaleik-
ari í heimi!
Fontana Musicale er sannarlega
frábær kammerhópur og þó undir-
ritaðan skorti kunnáttu til að segja
nokkuð varðandi ágæti þeirra hljóð-
færa sem Adrian Brown skenkti
hópnum, er það næsta víst, að slíkir
tónlistarmenn sem hér voru að verki
eru trúlega það vandlátir í vali sínu
að ekki tjói annað en að bjóða þeim
hið besta. Það má þá bæði óska
Adrian Brftwn til hamingju og
þakka Fontana Musicale fyrir kom-
una.
fá......................................................................
Ný verðtryggð spariskírteini ríldssjóðs.
Orugg leið til að ávaxta sparifé þitt.
Þér kann að finnast vandasamt að ráðstafa sparifé þínu á sem arðbærastan hátt. En til eru margar
traustar og góðar leiðir til ávöxtunar.
Ný spariskírteini ríkissjóðs.
s Pau fást hjá okkur á öllum afgreiðslustöðum og við innleysum jafnframt eldri spariskírteini. Þú
getur valið um 3 ára bréf með 8,0% ársávöxtun, 5 ára hréf með 7,5% ársávöxtun og 8 ára hréf
með 7,0% ársávöxtun. Spariskírteinin eru ríkistryggð, tekju- og eignarskattfrjáls og fást í 5.000,
10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000 króna einingum.
Verðtryggður sparireikningur og veðdeildarbréf.
Til ávöxtunar sparifjár þíns bjóðum við einnig aðrar hagkvæmar leiðir: Nýjan 18 mánaða verðtryggð-
an sparireikning með 7.5% vöxtum og veðdeildarbréf með 9,5% vöxtum hjá Verðbréfamarkaði
Samvinnubankans.
Hugsaðu þig vel um hvernig þú vilt ráðstafa sparifé þínu, hafðu samband, við ráðleggjum þér heilt.
SAMVINNUBANKI ÍSLANDSHF
Frá námskeiði björgrmarkafara.
Bj örgnnar skóli
LHS:
Fyrstu
björgunar-
kafararnir
útskrifaðir
VIKULÖNGU námskeiði fyrir
þá sem stunda köfún innan
hjálpar- og björgunarsveita lauk
3. september með útskrift björg-
unarkafara. Námskeiðið var
haldið á vegum Björgunarskóla
Landssambands hjálparsveita
skáta og þetta er í fyrsta sinn
sem slíkt námskeið er haldið hér
á landi.
Kennt var samkvæmt kröfum
frá virtum alþjóðlegum björgunar-
samtökum, Intemational Assoc-
iation Of Dive Rescue Specialists
(LADRS) og fá þátttakendumir
sem stóðust kröfumar þá rétt til
að titla sig sem björgunarkafara
(PSD — Public Safety Divers) og
munu starfa sem slíkir innan björg-
unarsveita.
Leiðbeinendur voru Stefán Ax-
elsson, Hjálparsveit skáta Hafnar-
fírði og Kjartan Hauksson, Hjálp-
arsveit skáta ísafírði, en þeir hafa
kennsluréttindi í björgunarköfun
frá IADRS.