Morgunblaðið - 20.09.1988, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
15
aðlögunarhæfíleikar Péturs skiidu
ekki við hann, þótt hann hefði eigi
íslenzkt land undir fótum. — Heim-
sóknin til grænlenzku fjölskyldunn-
ar sumarið 1968 færir okkur ótví-
rætt heim sanninn um það.
Þegar þennan áttræða bónda ber
að garði, fíjálsmannlegan og svip-
glaðan, þá strýkst burt öll hlé-
drægni hjá grænlenzku fjölskyld-
unni. Á samri stundu er Pétur orð-
inn einlægur heimilisvinur. — í
hreinskilni og hispursleysi er rabbað
um heima og geima, leikið á hljóð-
færi, sýndar myndir og sungið af
lífí og sál, og að skilnaði kvaðzt
með miklum kærleikum.
En í veganesti hefur Pétur hlotið
merkan fróðleik um siði fólksins,
atvinnuhætti, skemmtanalíf, fram-
farir og menningu. Og viðtökum
og gestrisni lýsir Pétur á svo geð-
þekkan hátt i ferðapistli sínum, að
lesendur hljóta að fylgjast hug-
fangnir með hveiju atviki, meðan
staðið er við hjá þessari góðlátlegu,
grænlenzku ijölskyldu.
Mjög var sótzt eftir því að fá
Pétur tii að flytja erindi, þar sem
efnt var til meiriháttar mannfagn-
aðar, bæði heima í héraði og einnig
í nærliggjandi sýslum. Og hann
hefði verið mjög aðþrengdur um
tíma, ef hann hefði látið menn synj-
andi frá sér fara. — Mönnum var
það hreinasta ráðgáta, hvemig Pét-
ur hafði tíma til alls.
hversu mjög var til þeirra vandað
um eftii, málfar og viturlegar og
snjallar ályktanir. Og við þetta
bættist svo það, að ræðumaður blés
í þær í flutningi slíkri lífsglóð með
sínum eldlega áhuga, að áheyrend-
ur hrifust með.
Ef til vill er það gleggsta dæmi
þess, hvílíks álits þessi borgfírzki
bóndi naut sem ræðuskörungur, að
Pétur var til þess kvaddur 1. desem-
ber 1958 að flytja ræðu fyrir alþjóð
í útvarpssal á fullveldisdegi þjóðar-
innar. Ræðan í heild ætti engu síður
nú á tímum, en þá er hún var flutt,
að fínna hljómgrunn í hugum ís-
lendinga.
Pétur var hollvinur hins vinnandi
manns, á hvaða sviði sem hann lagði
hönd á plóginn með elju, árvekni
og nytsemdarstarfí.
En hann var einnig aðdáandi
fagurra iista og unni af alhug bók-
menntum og hvatti einarðlega til
bókaútgáfu, eigi hvað sízt, þegar
um þjóðlegan fróðleik var að ræða
og rímur fomar.
Grein hans: Kjarnakarl og önd-
vegishöldur um meistara Kjarval
sýnir okkur ljóslega hrifningu hans
af málaralistinni í sinni fullkomnun.
Pétur vill, að sem allraflestir fái
omað sér við bókmenntir og fagrar
listir, þegar hlé gefst frá önn dags-
ins, endumýi við lindir þeirra starfs-
orku sína, sæki þangað lífsham-
ingju og víkki sjóndeildarhringinn.
Eg lít svo á, að greinar Péturs
og ritað mál, sem eftir hann hefur
birzt, sé of dýrmætur fjársjóður til
þess að vera falinn almenningi um
aldur og ævi, innilokaður í afkimum
nokkurra bókasafna landsins innan-
um annað efni gamalla dagblaða.
En til þess að láta ritverk Péturs
líta dagsins ljós og njóta sín sá ég
ekki nema aðeins eitt ráð: að leita
þau uppi (í nálega fjörutíu ár-
göngum af Morgunblaðinu), safna
þeim saman í heild og gefa þau
síðan út í bókarformi. — Eg þóttist
sannfærður um, að vart væri unnt
að aðhafast annað, sem sæmdi bet-
ur minningu þessa mikilhæfa og
ástsæla manns. Og það því fremur,
þar eð um þennan glæsilega þátt í
ævistarfí Péturs hefiir, að mér hef-
ur virzt, verið næsta hljótt, og hann
ef til vill tæplega metinn sem skyldi.
Enda nýtur sín betur í bók velsa-
mið efni og fjölbreytt en við skyndi-
lestur dagblaða, sem óðara er svo
fleygt í ruslakörfuna að lestri lokn-
um. — Er það einlæg von mín að
af útgáfu þeirrar bókar geti orðið.
NAMSMENN
ATHUGIÐ!
Ný hraðvirk, létt og
handhæg TA
Tríumph-Adler skríf-
stofuritvél á verði
skólarítvélar.
• Prenthraði 13 slög/sek
• ”Lift off” leiðréttingar-
búnaður fyrir hvern staf eða
orð.
• 120stafa leiðréttingarminni
• Sjálfvirk: miðjustilling
undirstrikun
feitletrun
• Handfang og lok.
auk ýmissa annarra kosta sem
prýða eiga ritvél morgun-
dagsins.
Komdu við hjá okkur eða
hringdu og fáðu frekari
upplýsingar.
Einar J. Skúlason hf.
Sumar af tækifærisræðum Pét- -------------------------------------
urs birtust í Morgunblaðinu. Sýna Höfiindur er fyrrverandimeonta-
þær, svo að eigi verður umvillzt, skólakennari.
Grensásvegi 10, sími 686933
Hinn eini og sanni STORUTSÖLUMARKAÐUR
Á DRAGHÁLSI 14-16 Sími:671296
OPNUNARTÍMI: Laugardaga.kl. 10-16. Aðradaga.kl. 13-19
ASIAVIKA
NÝJAR VORUR DAGLEGA
Gífurlegt vöruúrval
Tískufatnaður - Efni
Herra- og dömufatnaður
Barnafatnaður
Herra-, domu- og 't\\fesV'
barnaskór á 30
Sportvörur - Blóm -
Skartgripir - Hljómplötur -
Kassettur - Hljómtæki -
Sængurfatnaður -
Rúmfatnaður o.m.fl.
* ***"
ít j
Mm
Fjöldi
fyrirtækja:
Karnabær - Steinar
- Hummel - Gefjun
- Radíóbær - Bónaparte
- Milanó - Skóglugginn
- Theódóra - Mæra
- Nafnlausa Búðin -
- Kári - Blómalist - Ánar o.fl
28.078 augljós