Morgunblaðið - 20.09.1988, Síða 18

Morgunblaðið - 20.09.1988, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988 Nylon-gúmmí pumpuð Allar stærðir Pouketi Suðuriandsbraut 10. S. 686499. Flexello VAGNHJÓL LITGREINING IVIEÐ CROSFIELD ER LYKILLINN AÐ YANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF Hjúkrunarfiræðingar með listsýningar í sumar: Hjúkrun — gömul list- grein en ung fræðigrein eftirMaríu Pétursdóttur Fyrir þremur árum var gefíð út hjúkrunarfræðilegt sagnfræðirit í Bandaríkjunum sem nefnist „Nurs- ing the Finest Art“. Ritið er í alla staði áhugavert, bæði frá sagn- fræðilegu sjónarhomi svo og list- fræðilegu. Það er prýtt flölmörgum litmyndum og í heild sinni er ritið hreinasta listaverk. Að mínu mati er þessi bók með þeim allra aðgengilegustu vegna þess hvað höfundurinn, M. Patricia Donahue, vefur snilldarvel úr sínum mörgu og góðu heimildum blæ- brigðaríka heildarmjmd. Daglegt mál og orðasmiðir móta nýyrði er fela í sér viss hugtök, en notkun málsins í rasðu og riti mótar okkur engu síður oft eftir því í hvaða samhengi þau eru notuð. Lengi hafa verið notuð í ensku- mælandi löndum hugtökin „scient- ifíc research methods" vísindalegar rannsóknaraðferðir í sambandi við hjúkrunarfræði og þar hljóma þau kunnuglega og sönn. Til skamms tíma þótti í Evrópu, SMÍTH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Gömlu góöu SIEMENS gœöin! (ruooí) SIEMENS VS 9112 Öflug ryksuga • Stillanlegursogkrafturfró 250 W upp í1100 W. • Fjórfjöld síun. • Fylgihlutir geymdir í vól. • Sjálfinndregin snúra og hleðsluskynjari. Málverk eftir Rut Rebekku. að undanskildu Bretlandi, skjóta skökku við þegar talað var um rann- sóknaraðferðir í þessu fagi. Og enn meiri hugsanaskekkja að bæta vísindalegar við. Margir töldu að hjúkrunarkonur væru heldur betur famar að hreykja sér hátt og hættar að sjá eigið hlut- verk í réttu ljósi, þar sem til hjúkr- unarstarfa þyrfti (aðallega) vinnu- þrek, hlýjar hendur, hjartagæsku og nægjusemi. Hjúkrun sem fræðigrein í fyrstu hjúkrunarskólunum í Elvrópu fengu hjúkrunamemar tak- markaða bóklega og verklega til- sögn í sínu sérfagi. Hjúkmn gat þvi varla talist fræðigrein, enda fór oft lítið fyrir kennslubókum um sjálft fagið hjúkmn. Kröfur hjúkmnarstéttarinar um síaukna og bætta menntun bám loks þann árangur að á Norðurlönd- um og víðar urðu hjúkrunarskólam- ir ágætar menntastofnanir og markvissari. Þá var eftir að færa þessa sjálfstæðu en einangmðu hjúkranarskóla inn í það skóla- kerfí, sem hentaði að því er virtist best öðram heilbrigðisstéttum, jafnt gömlum sem nýjum. Með vaxandi menntun hefur hjúkranarstéttin í síauknum mæli sinnt rannsóknar- skyldu sinni sem fræðigrein og er því í dag í öram vexti. Brautryðjandinn Framkvöðull nútíma hjúkranár, Florence Nightingale (1820— 1910), hélt því alltaf fram að hún hefði fengið köllun sem hún gæti með engu móti skorast undan, jafn- vel þótt henni fyndist kvöðin oft lítt bærileg. Það sem fer í og úr tísku er sennilega óútreiknanlegt. Nú heyrast raddir í röðum yngri hjúkriinarfræðinga, sem halda því fram að ekkert annað en hjúkran hafi komið til greina við starfsvalið og köllun sé því réttnefni. Hið sama og gerðist með þetta hugtak gilti raunar um Florence sjálfa. Tísku- sveiflur hafa ýmist komið henni fyrir á háum stalli eða svipt hana sjálfa og verk hennar allri viður- kenningu. Nú vitna mennta- og fræðimenn óspart í ritverk og kenn- ingar hennar, sem era jafnvel í meiri takt við okkar tíðaranda, en hennar eigin samtíð. Nú er talið að Florence Night- ingale hafí fyrst allra sýnt og sann- að hagnýtt gildi tölfræði. Hana notaði hún mikið þegar hún þurfti að sannfæra ráðamenn um knýj- andi nauðsyn á bættum aðbúnaði breska hersins, í stríði og á frið- artímum. Tölfræðin kom henni líka að miklu gagni til að fá fram nýj- ungar og breytingar í sjúkrahúsa- rekstri og til að rökstyðja þjóðfé- lagslegt gildi þess að auka hrein- læti og bæta hollustuhætti. Alla tíð var hún afkastamikill bréfritari og rithöfundur. Minnisblað hennar og bréf hafa reynst ómetanleg þeim sem vilja kynnast henni til hlítar, þessari konu sem var einn mesti mannvinur og sögupersóna allra tíma. Heita má að algjör stefnu- breyting hafi orðið í kjölfar afskipta hennar og baráttu fyrir framföram á hjúkrunarsviðinu. Með því gerði hún hjúkranarstéttinni mikið gott og ekki síður skjólstæðingum hjúkr- unarfræðinga. En hún átti mörg önnur áhugamál sem ríghéldu henni. Hún var ijölhæf og fengu hæfileikar hennar notið sín á mörg- um öðrum sviðum. „Enn er það svo, að hjúkrunarstarfið, held- ur allflestum hjúkr- unarfræðingum föstum tökum. Sérstakir hæfí- leikar á öðrum sviðum verða líka að fá að njóta sín. Þetta sýndu 5 lista- konur úr okkar stétt sem héldu sýningar á verkum sínum í sum- ar.“ Fjölhæfir hjúkrunarfræðingar Enn er það svo, að hjúkranar- starfíð, tekur allflesta hjúkranar- frasðinga föstum tökum. Sérstakir hæfíleikar á öðram sviðum verða líka að fá að njóta sín. Þetta sýndu 5 listakonur úr okkar stétt sem héldu sýningar á verkum sínum í sumar. Allar hafa þær stundað hjúkran um lengri eða skemmri tíma. Rut Rebekka Siguijónsdóttir hélt einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Skemmtilegt viðtal við hana birtist í Lesbók Morgunblaðsins 6. ágúst 1988 undir yfírskriftinni: „Við verð- um að hlýða okkar innri rödd“. í greininni segir hún: „Smám saman hef ég minnkað alla vinnu bæði kennslu og hjúkranarstörf. Ef til vill er listsköpun og hjúkranarstörf skyld. Ég er ekki frá því.“ Rut hefur unnið lengi við hjúkr- un, síðast sem kennari við heilsu- gæslubraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Öll málverk hennar sýndu í þetta skipti hljóðfæraleikara og litaáhrif sem hún skynjar við að hlusta á þá. Nína Gautadóttir sýndi í Gallerí Svart á Hvítu 30. júlí—4. ágúst 1988. Nínabrautskráðist frá Hjúkr- unarskóla íslands vorið 1969, en Rut vorið 1966. „Nína Gautadóttir var við nám í Ecole Nationale, Superieure des Beaux Arts í París árin 1971—1976 og lauk þaðan prófí í málaralist. Næstu árin stundaði hún fram- haldsnám við sama skóla í högg- myndlist og listvefnaði. Hún hefur hlotið námsstyrk frá Evrópuráðinu 1972, frá franska ríkinu 1974-76 og frá ítalska ríkinu 1978-79. Árin 1984 og 1986 fékk hún listamannalaun frá íslenska ríkinu. Nína hefur tekið þátt í fjölda sam- sýninga og unnið til verðlauna á alþjóðasýningum. Annað skemmtilegt viðtal kom í DV laugardaginn 12. júlí sl. Það var við Hrafnhildi (Rabbý) Ágústs-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.