Morgunblaðið - 20.09.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
19
Málverk eftir Nínu Gautadóttur.
dóttur Ragnarsson. Hún var með
sýningu vestanhafs í Hudson River
Museum í NY, fyrsti glerlistamað-
urinn sem fær inni í því safni.
Ifyrstu búsetuárin í Bandaríkjun-
um stundaði hún hjúkrunarstörf.
„Ég var alltaf að velta því fyrir
mér hvort ég ætti ekki aftur að
fara í hjúkrun," sagði hún í þessu
viðtali, „eða vinna við glerlistina
sem ég hafði lengi haft áhuga á
og unnið við í frístundum." „Við
vorum 23 bekkjarsystur og ég held
að aðeins tvær séu ekki starfandi
við hjúkrun í dag.“
Sennilega geta fleiri sagt hið
sama um bekkjarsystur sínar. Við
sem lukum námi vorið 1943 vorum
ellefu og höfum allar unnið meira
og minna flest árin síðan við störf
er byggjast á námi okkar í hjúkr-
unarskólanum.
Samband íslenskra listamanna
vaidi einn fulltrúa frá 5 félögum til
að vera með sýningar á Kvennaráð-
stefnunni í Osló. Af þessum 5 voru
2 hjúkrunarfræðingar, Guðrún
Kristjánsdóttir listmálari og
Bryndís Jónsdóttir frá Leirlistafé-
laginu. Guðrún var í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur 1973—1977,
1977—1979 var hún við nám í Ecole
Form: Keramik eftir Bryndísi Jónsdóttur.
des Beaux Arts í Aix-en-Provence,
Frakklandi, og 1987 við Haystack
Mountain School of Crafts í Maine,
Bandaríkjunum. Hún hefur haldið
4 einkasýningar hérlendis og tekið
þátt í 6 samsýningum. Eitt verka
hennar er í eign Reykjavíkurborgar
og annað hjá Landsbanka íslands.
Hún er með eigin vinnustofu í
Reykjavík og kenndi í fyrra pappírs-
gerð yið Myndlista- og handíða-
skóla íslands.
Listakonan Bryndís Jónsdóttir
var við nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1972—1978.
Hún hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum og listmunir hennar
vakið athygli. Postulínsbijóstnælur
hennar þóttu eftirsóknarverðar.
Reynist það satt að hún sé hætt
að framleiða þær er það miður.
Svona nýstárlegir og fallegir skart-
gripir henta vel sem vinargjafír.
Sennilega vamar auðugt hug-
myndaflug því að Bryndís verði
bundin fjötrum vana og fábreytni.
Hún er með eigið verkstæði eins
og Guðrún.
Hjúkrunarstéttin má svo sannar-
lega vera hreykin af þessum fimm
ágætu listakonum. Ekki má þó
gleyma því að mikil list er líka fólg-
in í góðri hjúkrun.
í bók’sinni Heroism as a Nursing
Value segir höfundurinn Vassiliki
A. Lanara að hjúkrunarfræðingur-
inn þurfi að vera vel fær til að
geta gegnt sínu viðkvæma ábyrgð-
arstarfí. Vísindaleg þekking ein
dugar áreiðanlega ekki, heldur ekki
aðeins tæknikunnátta eða tilfínn-
inganæmi. En vegna þess hve
hjúkrun er margþætt þarf margt
til þess að hún geti líka orðið skap-
andi. Bæði almenn og fagmenntun
hjálpa hjúkrunarfræðingi til að öðl-
ast fæmi í starfí, en hugsjónir, sið-
gæði og gott hjartalag eru ekki
síður mikilvæg.
Það mun óhætt að segja að hjúkr-
unarstéttin vinni sitt krefjandi, van-
dasama en oft ánægjuríka starf af
alúð, samviskusamlega og snilldar-
vel. Hún þyrfti bara að vera fjöl-
mennari, hér sem annars staðar þar
sem vöxtur er í heilbrigðisþjónustu.
Það er því fagnaðarefni að áhugi á
hjúkrunarfræði fer vaxandi og lofar
það góðu.
Höfundur er skólastjóri Nýja
hjúkrunarskólans.
aus og aróbær ávöxbun
Kominn er út nýr flokkur verðtryggðra sparískírteina ríkissjóðs.
Hægt er að velja um: 3ja ára bréf með ársávöxtun 8,0%, 5 ára bréf með árs-
ávöxtun 7,5% og 8 ára bréf með ársávöxtun 7,0%.
Spariskírteini eru í 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000
króna einingum. Þau eru ríkistryggð og fyrir einstaklinga utan
atvinnurekstrar eru þau tekju- og eignarskattsfrjáls og því bæði
örugg og arðbær fjárfesting.
Spariskírteini ríkissjóðs fást á afgreiðslustöðum
Landsbanka íslands og þar er jafnframt séð um
innlausn eldri spariskírteina.
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfaviðskiptum,
Laugavegi 7 og hjá verðbréfadeildum í útibúum
bankans um land allt.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
r
SPECIAL“
Ódýrt en best
ítölsk grænmetissúpa
Italian vegetable soup
kr. 225.-
Humarsúpa
Lobster soup
kr. 395.-
Pasta með hörpuskel
og beikoni
Pasta with scallops
and bacon
kr. 325.-
Skötuselur og rækjur í
sítrónuhlaupi
Monkfish and shrimps in
lemonaspic
kr. 325.-
Reyktur lundi með
piparrótarsósu
Smoked puffin with
horseradish sauce
kr. 695.-
Skötuselur í
súr sætri sósu
Monkfish in sweet and
sour sauce
kr. 810.-
Hámerisbuff með
steiktum lauk
Steak of porbeagle with
fried onion
kr. 695.-
Kryddlegin súla
Marinated gannet
kr.895.-
Að sjálfsögðu er einnig boðið uppá
okkar rómaða „a la carte“.
ARNARHÓU
MSTAUttAKT
opinn á kvöldin frá kl. 18:00,
þriðjud. til laugard.
pantanasími 18833
Hverfisgötu 8—10