Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
Eindaga söluskatts
seinkað um viku
FJÁRMÁLARAÐHERRA hefur ákveðið að færa eindaga söluskatts
aftur um viku, frá 25. hvers mánaðar til 2. dags næsta mánaðar,
þannig að hann sé sá sami og gjalddagi greiðslukortafyrirtækjanna.
Breytingin tekur gildi um áramót og verður eindagi söluskatts fyr-
ir desember því 2. febrúar 1989. Breytingin nær þó ekki til sölu-
skattsskila fyrir nóvember, söluskatti þess mánaðar mun áfram
þurfa að skila fyrir 25. desember.
Ólafur Ragnar Grímsson §ár-
málaráðherra kynnti ákvörðun sína
og ríkisstjómarinnar á fundi með
forystumönnum samtaka verslun-
arinnar, bönkum og greiðslukorta-
fyrirtækjanna. Eftir þann fund
sagði hann að það bil sem verið
hefði á milli eindaga söluskatts og
gjalddaga greiðslukortanna hefði
skapað erfíðleika hjá versluninni og
bankakerfínu um hver mánaðar-
mót. Neyð verslananna hefði leitt
til aukinnar sölu greiðslukortamiða
með afföllum og átt sinn þátt í að
halda vöxtunum uppi.
Már Guðmundsson efnahags-
ráðunautur fjármálaráðherra áætl-
ar að skuld ríkissjóðs við Seðlabank-
ann muni aukast að meðaltali um
500—600 milljónir kr. við þessa
breytingu og það gæti haft í för
með sér 70—100 milljóna kr. út-
gjaldaauka fyrir ríkissjóð vegna
yfírdráttarvaxta. Hann sagði að
vonast væri til þess að þessi breyt-
ing leiddi til lækkunar vaxta og
þyrfti ekki nema 2% lækkun yfir-
dráttarvaxta hjá Seðlabankanum til
að eyða útgjaldaauka ríkissjóðs.
Forsvarsmenn verslunarinnar
fagna ákvörðun fjármálaráðherra:
Jóhann J. Ólafsson formaðurVersl-
unarráðs íslands sagði að ríkið og
atvinnuvegimir geti haft samvinnu
á fleiri sviðum í þeim tilgangi að
lækka kostnað. Magnús E. Finns-
son framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtakanna þakkaði §ár-
málaráðherra fyrir lausn á þessu
baráttumáli kaupmanna. Bilið á
milli eindaga söluskattsins og
greiðslukortanna hefði verið dýrt
að brúa. Einar Ejnarsson fram-
kvæmdastjóri Visa-ísland talaði um
heillavænlega ákvörðun.
Sjá grein um greiðslukortavið-
skipti bls. B 6.
Heimsókn utanríkisráðherra í Póllandi:
Ahersla lögð á sam-
vinnu við Norðurlönd
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, átti í gærmorgun
klukkustundar fund með Miez-
seslaw Rakowski, forsætisráð-
herra Póllands. Síðar ræddi Jón
Baldvin við fulltrúa kirkjunnar í
Varsjá og einn af helstu leið-
togum verkalýðssamtakanna
Samstöðu.
Rakowski sagði Pólveija telja
mikilvægt að endurvekja söguleg
tengsl sín við Norðurlönd. Hann
sagði að kerfi fortíðarinnar væri
gjaldþrota í Póllandi, alræðisstefn-
an hefði beðið skipbrot. Sagði hann
stjómvöld fylgja „lýðræðisjafnaðar-
stefnu" og benti á að ýmis mann-
réttindi væra nú aftur virt s.s.
prentfrelsi.
Utanríkisráðherra svaraði því til
að skildi hann þetta rétt gæti undir-
rót hugmyndafræðilegra deilna
Austurs og Vesturs fljótlega verið
úr sögunni ef þróunin yrði með
slíkum hætti í Áustur-Evrópu. Til
að sýna að um raunveralega lýð-
ræðisþróun væri að ræða yrði hins
vegar ekki undan því vikist að koma
á félagafrelsi, þ.e. leyfa Samstöðu
að starfa.
Síðar átti Jón Baldvin viðræður
við erkibiskup kaþólsku kirkjunnar
i Varsjá, Alojzy Orszulik. Er ut-
anrífeisráðherra hafði lagt blóm-
sveig á leiði foður Jerzy Populiesz-
co, sem lögreglumenn myrtu fyrir
nokkrum áram og nú er orðin þjóð-
hetja, ræddi hann við fulltrúa
verkalýðssamtakanna Samstöðu,
Mezowiecki að nafni, en hann er
einn af tveim nánustu samstarfs-
mönnum Lech Walesa. Ekki reynd-
ist kleift að koma á fundi Jóns
Baldvins og Walesa að þessu sinni.
Utanríkisráðherra fer frá Póllandi
í dag og kemur heim á morgun
eftir stutta viðdvöl í London.
Grindavík:
Skuttogarínn Snæfugl
í stað gamla Gnúps
ÚTGERÐAR- og fískvinnslu-
fyrirtækið Þorbjörn hf. í
Grindavík hefúr fest kaup á
skuttogaranum Snæfugli SU 20
frá Reyðarfirði, en hann átti
að fara utan í staðinn fyrir
nýjan Snæfúgl SU, sem kom til
Iandsins fyrir skömmu.
Skuttogarinn Gnúpur GK 257,
áður Ásþór RE, sem Þorbjöm hf.
keypti af Granda hf. og gerður
var út til saltfiskvinnslu úti á sjó
fer til skipasmíðastöðvarinnar í
Noregi í stað Snæfugls SU og er
nú beðið eftir samþykkis sjávarút-
vegsráðuneytisins.
Að sögn Eiríks Tómassonar
framkvæmdastjóra Þorbjöms hf.
fá þeir mun stærri togara í stað
Gnúps GK, sem er 297 tonn en
Snæfugl SU 436 tonn.
„Stærsti munurinn liggur í því
að vinnsluaðstaðan á millidekki
mun gerbreytast auk þess sem
hann hefur meira rými í lest sem
eykur til muna á nýtingu skips-
ins,“ sagði Eiríkur og bætti við
að saltfískvinnslan um borð í
Gnúp GK hefði skilað það góðum
árangri að ekki væri vafi á að
þessi vinnsla úti á sjó ætti mikla
framtíð fyrir sér ekki síður en
frystingin.
Snæfugl SU hét áður Guðbjörg
ÍS og hefur verið mikið aflaskip.
Kr.Ben.
Sykurmol-
arnir iéku
fyrir 3.000
Frá Andrési Magnússyni, fréttarítara
Morgunbladsins í London.
Sykurmolamir léku í Kilburn
National Ballroom í London í
gærkvöldi fyrir ríflega 3.000
áheyrendur og vöktu mikla hrifti-
ingu. í kvöld heldur hljómsveitin
síðan aukatónleika í Lundúnum
og verða það síðustu tónleikarnir
í ferð hennar um Evrópu.
Hljómsveitin Risaeðlan hitaði upp
fyrir Sykurmolana og fékk þokkaleg-
ar viðtökur áheyrenda, sem biðu
greinilega Sykurmolanna með nokk-
urri óþolinmæði.
Sykurmolamir hófu leik sinn með
því að syngja „Svangir bræður sitja
hér“ úr bamaleikriti Thorbjorns Egn-
ers og tóku áheyrendur því vel. Ein-
ar Öm Benediktsson og Björk Guð-
mundsdóttir, söngvarar sveitarinnar,
fengu áheyrendur síðan til að endur-
taka íslenskar bamagælur og
klykktu út með „Saltkjöt og baunir,
túkall", sem áheyrendur hrópuðu
fullum hálsi. Lögin sem hljómsveitin
flutti vora mörg ný af nálinni og á
íslensku, en eldri lög vora á sínum
stað. Áheyrendur kærðu sig kollótta
um hvort sungið var á ensku eða
islensku og þorri þeirra dansaði
trylltan_ dans svo að gólf salarins
dúaði. Á morgun leikur hljómsveitin
á um 300 manna stað og þá mun
hljómsveitin Strax hita upp.
Ásmundur Stefansson:
Ætti að hafa
tvö skattþrep
„MÍN skoðun er sú, að það ætti
að setja á tvö ekattþrep, þannig
að það ætti ekkj að hækka skatta
á þvi sem eru almennar launatekj-
ur, heldur einungis á þá sem eru
með hærri tekjur," sagði Ásmund-
ur Stefánsson forseti ASÍ.
Morgunblaðið ræddi við Ásmund
í gær og spurði um afstöðu Alþýðu-
sambands íslands til fyrirhugaðrar
hækkunar tekjuskatts úr 35,2% i
37,2%.
Ásmundur sagði að ekki hefði ver-
ið fjallað sérstaklega um skatta-
hækkun þessa i miðstjóm ASÍ og
því gæti hann ekki kynnt afstöðu
Alþýðusambandsins til málsins.
Vinnuhópur um námslán
leggur tíl 12,5% hækkim lána
Hlustuná
Bylgjuna
hefiir auk-
ist mikið
HLUSTUN á Bylgjuna hefúr
aukist úr 25% f október í 35%
í desember, samkvæmt könn-
un Félagsvísindastoftiunar.
Saman hefúr dregið með vin-
sældum fréttatfma sjónvarps-
stöðvanna og horfá nú álíka
margir á fréttir Stöðvar 2 og
Ríkissjónvarpsins á þvf svæði
þar sem til beggja stöðvanna
næst, eða 28-38%.
Könnun var gerð á fjölda
áhorfenda á sjónvarp dagana
3.-5. desember og hlustun á
útvarp mánudaginn 5. desem-
ber.
SÉRSTAKUR vinnuhópur á veg-
um menntamálaráðherra mun
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins leggja það til við ráð-
herra að námslán hækki almennt
um 7,5% f mars á næsta ári, og
síðan aftur um 5% í september.
Samhliða þessu er gert ráð fyrir
að tekjufrádráttur á námslán
hækki í 50%.
í síðasta mánuði skipaði Svavar
Gestsson menntamálaráðherra sér-
stakan vinnuhóp til þess að skoða
málefhi Lánasjóðs íslenskra náms-
manna. Samkvæmt skipunarbréfí
hópsins er gert ráð fyrir að hann
skili sérstöku bráðabirgðaáliti til
ráðherra fyrir afgreiðslu flárlaga,
en lokaálit komi á næsta ári.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gekk vinnuhópurinn frá
bráðabirgðaáliti í gær. Er í þessu
áliti aðeins tekið á upphæð námsl-
ána og tillit tekið til tekna lánþega.
Önnur atriði eins og fyrirkomulag
endurgreiðslna, Qármögnun sjóðs-
ins og fleira bíður lokaálits. í bráða-
birgðaálitinu er lagt til að námslán
hækki um 7,5% í mars næstkom-
andi, og sfðan aftur um 5% í sept-
ember. Lagt er til að útgjaldaauki
vegna þessa verði fjármagnaður
með því að auka frádrátt lána vegna
tekna námsmanna í 50% úr 35%.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Sveinn Andri Sveinsson, formaður
Stúdentaráðs Háskóla Islands, að
vinnuhópurinn væri tilkominn
vegna mikils þrýstings á ráðherra
um að afnema frystinguna á námsl-
ánin frá 1986. „Tillögur vinnuhóps-
ins era spor í rétta átt fyrir næsta
námsár. Það veldur mér hins vegar
vonbrigðum að sjá ekki meiri breyt-
ingar á yfírstandandi námsári.
Fyrsta hækkunin kemur ekki til
framkvæmda fyrr en á síðasta þriðj-
ungi yfírstandandi námsárs, þannig
að meðalhækkunin fyrir þetta
námsár er ekki nema 2,5%. Það er
að mínu mati alls ekki nægjan-
legt," sagði Sveinn.
Sveinn taldi að námsmenn
myndu fallást á þessar tillögur sem
réttum áfanga fyrir næsta námsár.
„Næsta verk okkar verður að reyna
að þrýsta á að einhvem veginn verði
komið til móts við þá hópa sem
verst era settir, og að það verði
gert á þessu námsári," sagði Sveinn
og kvað það myndu koma í ljós á
næstu dögum og vikum.
Sjálfetæðismenn vilja afiiema
allar hömlur á samningum
UMRÆÐU um bráðabirgðalög ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar frá
liðnu vori var fram haldið i efri deild Alþingis í gær. Þar lýstu sjálf-
stæðismenn þvf yfir að þeir styddu ekki lengur þau ákvæði firum-
varpsins sem bindu kjarasamninga, f ljósi yfirlýsingar forsætisráð-
herra á þingi á þriðjudagskvöld. Halldór Blöndal sagði að yfirlýsingar
Steingríms Hermanssonar hefðu skapað óróa á vinnumarkaði og því
teldu sjálfetæðismenn rétt að afnema allar hömlur á kjarasamningum.
Þingmenn vitnuðu til fundar fjár- lq'aramálum, þar sem samningar
hags- og viðskiptanefndar efri deildar
í gærmorgun með forystumönnum
stærstu verkalýðssamtakanna. Þar
hafí komið fram að forsætisráðherra
hefði villt um fyrir mönnum með yfir-
lýsingu sinni. Afstaða ríkisstjómar-
innar breytti engu um stöðuna í
væra áfram bundnir til 15. febrúar.
Eyjólfur Konráð Jónsson vitnaði
til orða Ögmundar Jónssonar form-
anns BSRB að hann hefði í upphafi
litið svo á að numið væri úr gildi
bann við kjarasamningum og verk-
föllum. Eyjólfur sagði að viðbrög
Ögmundar eftir fundinn með þing
nefndini bentu til þess að honur
hefði þá fyrst orðið sannleikurinn ljóf
að hann hefði verið blekktur.
Halldór Blöndal sagði að forsætis
ráðherra gengi fram af sér með þeir
orðum að ríkisstjómin hyggðist fell
brott þau ákvæði laganna sem vær
tilefni kæra Alþýðusambandsins t
Alþjóða vinnumálasambandsiní
Málsgreinin sem um ræddi breyti
engu um það að samningsrétturin:
væri með lögum af launþegum o
vinnuveitendum tekinn.