Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 80
80
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
ÍÞRffmR
FOLX
■ SPÁNVERJAR hafa hafnað
boði um þátttöku í Rous-bikar-
keppninni í Englandi í maí. Á þessu
móti keppa Englendingar og Skot-
ar, en þriðja þjóðin hefur enn ekki
fundist. Argentínumenn hafa
einnig hafnað tilboði um þátttöku
á þessu móti.
■ JEAN—MARIE Pfaff, mark-
vörður Lierse í Belgiu gefur fyrr-
um félögum sínum hjá Bayern
Munchen ekki háa einkunn. Um
þjálfarann, Jupp Heynckes segir
Pfaff: Hann veit ekki hvernig á
að koma fram við leikmcnn." Og
um eftirmann sinn hjá Bayern,
Raimond Aumann segir hann:
„Þeir sem halda því fram að hann
sé betri en ég hafa ekki hundsvit
á fótbolta."
■ SKOSKA félagið St. Mirren
hefur mikinn áhuga á ungum
sænskum leikmanni, Pontus Ka-
mark frá Vasteras í 2. deild. Tony
Fitzpatrick, framkvæmdastjóri
Hearts fór til Svíþjóðar fyrir
skömmu og fylgdist með U-21 árs
landsleik Svía og Dana. Líklegt er
að Kamark kosti Hearts um
120.000 pund ef af kaupunum verð-
ur.
■ ROMARO, Brasilíumaðurinn í
liði PSV Eindhoven, gifti sig fyrir
skömmu 17 ára stúlku frá Ríó de
Janeiro. Athöfnin fór fram á frekar
óvenjulegum stað — á vítapunkti á
knattspymuvelli í Ríó!
■ STEVE Perryman, fram-
kvæmdastjóri Brentford, keypti
fyrir skömmu knattspyrnumann
ársins frá Möltu. Sá heitir John
Buttigieg og hefur leikið með SIi-
ema Wanderers. Hann er 24 ára
og hefur leikið 26 landsleiki fyrir
Möltu.
■ DUNDEE United og Mother-
well hafa mikinn áhuga á mark-
verði frá Suður-Afríku, Wadu du
Plessis. Hann æfði með Hibernian
fyrir skömmu en liðið hafi ekki
áhuga á að kaupa hann.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Sjö Vals-
menn í
■ ■ ■■ ■ ■
lands-
lioshop
Bogdans?
landsliðshóp, þannig að hann.
bæti við sex leikmönnum sem léku
ekki með í Seoul. Valsmennimir
Valdimar Grímsson, Jón Kristj-
ánsson og Júlíus Jónasson verða
ömgglega valdir, þannig að sjö
leikmenn Valsmanna - bytjunar-
lið þeirra, verði í landsliðinu. Það
er ósköp eðlilegt að landsliðið
verði byggt í kringum Valsliðið,
en það hefur sýnt þó nokkra yfir-
burði í vetur.
Þá er nokkuð víst að línumaður-
inn sterki úr Fram, Birgir Sig-
urðsson, verður valinn í hópinn,
en hann hefur leikið vel með í
vetur. FH-ingurinn Héðinn Giis-
son verður örugglega kallaður til
og einnig hinn ungi markvörður
KR-liðsins, Leifur Dagfinnsson,
sem hefur leikið mjög vel í vetur.
Landsliðshópurinn verður því
líklega þannig:
Markverðir: Einar Þorvarðar-
son, Val, Brynjar Kvaran, Stjörn-
BOGDAN Kowalczyk, lands-
liðsþjálfari íslands, var á
meðal áhorfenda í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi, þeg-
ar KR-ingar og Valsmenn átt-
ust við. Bogdan mun hefja
undirbúning fyrir B-keppnina
í Frakklandi í næstu viku, en
framundan eru tveir lands-
leikir gegn Svfum og tveir
gegn Dönum.
Bogdan mun velja landsliðshóp
sinn nú næstu daga og er
nær öruggt að hann velji alla þá
leikmenn sem léku á Ólympíuleik-
unum í Seoul í
landsliðshóp sinn
- nema Atla Hilm-
arsson, sem er
meiddur og verður
ekki orðinn góður fyrir Frakk-
landsferðina.
Það er líklegt að Bogdan byrji
á því að velja tuttugu manna
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrífar
Blrgir Slgurðsson hefur leikið vel á línunni með Fram.
unni og Leifur Dagfmnsson, KR.
Hornamenn: Guðmundur Guð-
mundsson, Víkingi, Jakob Sig-
urðsson, Val, (vinstri hom) og
Valdimar Grímsson, Val, Bjarki
Sigurðsson, Víkingi og Karl Þrá-
insson, Víkingi (hægri hom).
Linumenn: Geir Sveinsson,
Val, Þorgils Óttar Mathiesen, FH
og Birgir Sigurðsson, Fram.
Útispilarar: Alfreð Gíslason,
KR, Júlíus Jónasson, Val og Héð-
inn Gilsson, FH (vinstri), Páll
Ólafsson, KR, Sigurður Gunnars-
son, ÍBV og Jón Kristjánsson (á
miðjunni), Kristján Arason, Teka,
Sigurður Sveinsson, Val og Stefán
Kristjánsson, KR (hægri).
Óneitanlega er þetta sterkur
landsliðshópur. Allir þessir leik-
menn hafa leikið undir stjóm
Bogdans, nema Leifur, þannig að
Bogdan þekkir þá út og inn.
-ekk1 bara heppf'
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á laugardögum
50. LEIKVIKA - 17. DES. 1988 1 X 2
leikur 1. Arsenal - Manch.Utd.
leikur 2. Coventry - Derby
leikur 3. Liverpool - Norwich
leikur 4. Luton - Aston Villa
leikur 5. Middlesbro - Charlton
leikur 6. Millwall - Sheff.Wed
leikur 7. Newcastle - South.ton
leikur 8. Q.P.R. - Everton
leikur 9. West Ham - Tottenham
leikur 10. Barnsley - Leicester
leikur 11. Blackburn - Watford
leikur 12. Cr. Palace - Leeds
Símsvari hjá getraunum eftir kl. 17:15 á laugardögum er 91-84590 og -84464. NÚ ER POTTURINN
FJÓRFALDUR HJA
GETRAUNUM
KNATTSPYRNA / ITALIA
Þjálfari Tórínó rekinn
GIGI Radice, þjálfara Tórínó,
hefur verið sagt upp störfum
og í staðinn kemur Claudio Sala,
þekktur knattspymumaður sem lék
með Tórínó um
Brynja nokkurra ára skeið.
Tomer Framundan hjá
skrífar frá Tórínó eru erfiðir
leikir; gegn Napólí,
Juventus og AC Mílanó og kemur
það nú í hlut Salas að undirbúa lið-
ið fyrir þá leiki. Það er afar sjald-
gæft að skipt sé um þjálfara á miðju
leiktímabili á Italíu, en yfirmenn
Tórínó áttu ekki annarra kosta völ,
þar sem Radice var heldur ekki
sáttur við kaup á nokkrum nýjum
leikmönnum. Samstarf hans við
suma leikmenn hefur verið afar stirt
í gegnum árin, meðan það hefur
gengið að óskum við aðra. Hann
yfirgaf íbúð sína á íbúðarhótelinu
snemma í gærmorgun, þar sem
hann hefur búið undanfarin ár og
hefur ekki viljað tala við blaða-
menn.
Claudio Sala þjálfaði liðið í fyrsta
sinn í gær, en menn eru ekki á einu
máli um hvaða áhrif koma hans
muni hafa á liðið, þar sem sumir
leikmenn voru mjög ánægðir með
Radice. Það er því annað hvort
„kúkur eða kleina“ í húsum Tórínó,
eins og fyrir brottför hins umdeilda
Gigi Radice.
Þém
FOLK
■ PAL Csernai, þjálfari Frank-
furt hefur verið rekinn. Hann var
aðeins hjá liðinu í 89 daga en hann
tók við af Kalle Feldkamp sem
■■■■■■I einnig var rekinn.
FráJóni Búist er við að
H. Garðarssyni Hannes Lö-hr,
í V-Þýskalandi fyrrum þjá,farj
Kölnar og núver-
andi þjálfari v-þýska ÓL-landsliðs-
ins taki við liðinu. Hann á þó eftir
að fá samþykki frá v-þýska knatt-
spyrnusambandinu.
■ WILLIE Lemke, forseti
Werder Bremen, segir að Uli
Höness, framkvæmdastjóri Bay-
ern Munchen sé að eyðileggja
v-þýsku úrvalsdeildina. Hann kaupi
nánast allt sem hreyfist. Er Bayern
keypti Jiirgen Kohler frá Köln
varð Lemke æfareiður. „Hann
hættir ekki fyrr en hann hefur keypt
allt landsliðið og meira til,“ sagði
Lemke. „Það nennir enginn að fara
á leiki í deildinni ef eitt lið hefur
svo mikla yfirburði. Maður gæti
haldið að hann ætlaði að láta Bay-
ern verða fyrsta liðið til að leika í
ítölsku deildinni!"
H HEINER Brand, þjálfari
Gummersbach, segist ætla að
hætta cftir þetta keppnistímabil.
Hann segist vera að fara á taugum
og treystir sér ekki til að halda
áfram með liðið. Brand vinnur
einnig hjá tryggingafélagi og dag-
inn eftir að Gummersbach sigraði
Barcelona í Evrópukeppninni,
mætti Brand ekki til vinnu. Hann
var ekki enn búinn að ná sér niður
eftir leikinn.
FRJALSAR IÞROTTIR
Kúluvarparar
í Reiðhöllina
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN hafa
tekið Reiðhöllina á leigu í vet-
ur - til að kúluvarparar fái
tækifæri til að æfa inni.
Allar aðstæður til að æfa kúlu-
varp í Reiðhöllinni eru mjög
góðar, en malargólf er í höllinni.
Það eru Reykjavíkurfélögin KR,
ÍR og Ármann ásamt FH, HSK
og UMSK sem hafa tekið Reið-
höllina á leigu í vetur - tvo daga
í viku, mánudaga og fimmtudaga.
Æfingar hefjast kl. 19.00.
Að sögn Ágústs Ásgeirssonar,
formanns Ftjálsíþróttasambands
íslands, er þessi aðstaða mikil
lyftistöng fyrir kúluvarpara sem
hafa átt erfitt um vik með æfing-
ar innanhúss á vetuma.