Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 30
30
88GÍ 5138M323G .ðí HUOAGUTMMI3 tGIGAJHMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
Neyðarkall frá Súdan
eftirSigríði
Guðmundsdóttur
Eftirvænting og von eru nátengd
aðventunni og jólahaldinu. Suður í
Súdan ríkir annars konar eftirvænt-
ing og annars konar von. Þar um
slóðir hefur stríð geisað um fimm
ára skeið og í kjölfar þess heijar
nú alvarlegasta hungursneyð sem
blasir við mannkyninu um þessar
mundir. Stór landsvæði með íjölda
íbúa, ekki færri en þijár milljónir
manna, hafa verið einangruð og
enga björg getað veitt sér. Þeir sem
geta eru á flótta. Margar milljónir
líða hungur. í byijun nóvember var
tala látinna komin upp í að minnsta
kosti fimmtíu þúsund. Ekkert lát
virtist á hörmungunum.
Flóð í norðri, stríð og
þurrkar í suðri
Eins og oftar þurfti eitt einstakt
atvik til að beina sjónum manna
að þessu stríðshijáða landi. Að
þessu sinni voru það flóð í höfuð-
borginni Khartoum sem urðu um
sjötíu manns að bana og gerði um
hálfa milljón manna heimilislausa í
fátækrahverfunum. Þetta gerðist í
ágúst. í kjölfarið gekk forsvars-
mönnum hjálparstofnana betur en
áður að vekja upp umræðu um
ástandið í landinu almennt. Umræð-
an varð að neyðarkalli og því neyð-
arkalli vill Hjálparstofnun kirkjunn-
ar svara með hjálp íslensku þjóðar-
innar og taka þátt í hjálparstarfi
því sem nú fer fram á vegum lúth-
erska heimssambandsins og al-
kirkjuráðsins.
Gleymda stríðið
En hvaða staðreyndir blöstu við
þegar athygli umheimsins var vakin
á ástandinu í Súdan og borgara-
stríðinu sem oft er nefnt „gleymda
stríðið". í ljós kom að það var ekki
norður í Khartoum sem ástandið
var verst, heldur í suðurhéruðunum,
þar sem stjómarher Súdan og sveit-
ir andvígar stjórnarhemum (undir
nafninu frelsisher súdönsku þjóðar-
Sigríður Guðmundsdóttir
Víst er ég fullorðin
eftir Iðunni Steinsdóttur
Þegar Soffía fermist hefur hún að
eigin dómi náð því marki að verða
fullorðin. En fullorðna fólkið er á
öðru máli, að minnsta kosti þegar það
hentar því.
Metsöluhöfundurinn Iðunn
Steinsdóttir fer á kostum í bók sinni
„Víst er ég fullorðin“ sem fjallar um
eftirvæntinguna, öryggisleysið,
forvitnina og hræðsluna um að vera
örðuvísi en hinir, sem togast á í okkur
meðan við erum að breytast úr barni í
fullvaxta manneskju.
Iðunn, uppá sitt besta, er
gulltrygging fyrir góðum lestri. Bók
fyrir unglinga á öllum aldri.
Barna-oé
„Tómas Guðmundsson
benti okkur á fyrir
löngu hve hjörtum
manna svipar saman í
Súdan og Grímsnesinu.
Látum það minna okk-
ur á meðbræður okkar
í Súdan, í skugga
stríðsins sem gleymdist
oflengi.“
innar) takast einkum á. Framþróun-
in sem var að eiga sér stað á þessu
svæði hefur nú snúist upp í and-
hverfu sfna, landeyðingu og þar
með hungur vegna styijaldar-
ástandsins. Ofan á þetta bætast
óvenju miklir þurrkar og engi-
sprettuplága sem heijað hefur á
svæðið vestanvert. Nú verður að
bregðast skjótt við eigi tala fórnar-;
lambanna ekki að hækka ört. í
augnablikinu þýðir ekki annað en
kalla á neyðarhjálp og miðla henni
eftir þeim leiðum sem best eru fær-
ar. Sem betur fer er það hægt.
Síðan verður að hyggja að upp-
kygfpnfíu > illa förnu landinu. En
að því er ekki hægt að hyggja fyrr
en búið er að bæta úr brýnustu
neyðinni. Og það verður að gerast
nú og er að gerast.
Hjálp sem ber árangur
Þegar sjást merki um að fyrsta
neyðarhjálpin sé farin að bera
árangur. I borginni Juba, syðst í
Súdan, sveltur fólk ekki lengur. Þar
eru miklar flóttamannabúðir og
stutt er síðan ástandið þar var jafn
skelfilegt og enn er í einangraðri
hlutum landsins. En með því að
mynda loftbrú frá Kenya um Juba
er hjálpin farin að berast víðs vegar
um stærstu neyðarsvæðin.
Tveir og hálfur kílómetri
milli lífs og dauða
En við megum þó ekki gleyma
að ástandið er enn alvarlegt víða.
Danskur blaðamaður sem nýverið
var á ferð um neyðarsvæðin lýsir
ástandinu svo: „Tveir og hálfur kíló-
meter af rykugum eyðimerkurvegi
í Súdan skilur milli lífs og dauða
bamanna sem ég hitti. Það er vega-
lengdin frá flóttamannabúðunum
þeirra, næstu neyðarhjálparstöðvar.
Þeir sem hungrið hefur leikið verst
komast ekki þá vegalengd." Leiðin
sem lýst er og liggur þennan stutta
spöl frá búðunum í al Muglad til
Verzlið þægilega
c Cecáúutc