Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988 49 Jólablús á Borginni Eina starfandi blússveit á landinu er Centaur. Centaur hefur sent frá sér eina plötu, Blúsdjamm, sem á var að finna ýmsa gamla blúsa sem sveitin hafði þá verið að leika á tónleikum á pöbbum og í vínveitingahúsum lengi vel. Stuttu fyrir síðustu jól hélt sveitin blúsveislu sem hún kaii- aði Jólablús í troðfullri Hótel Borg. Nú er aftur Jólablús á ferðinni og í kvöld troða Centaurar upp í Hótel Borg með ýmsum gestum. Centaur leikur þó meira en blús, því fyrir stuttu kom frá sveitinni fyrsta frumsamda lagið sem sveitin á á plötu. Centaurar segja og að þessir blústónleikar á Borginni verði síðustu blústón- leikar sveitarinnar um skeið, því framundan só vinna að frum- sömdu efni. Rokksíðan hitti Cen- taura í æfingarhúsnæði sveitar- innar á Álftanesi, þar sem menn voru að hefja undirbúning Jólabl- úsins. Þið eruð aðalsveitin á Jólabl- úsnum, en svo verða'gestir, er það ekki? Jú. Magnús Guðmundsson syngur með okkur og Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríks- son koma einnig fram. Svo verð- ur einnig leynigestur, eða leyni- sveit, sem ekki er tímabært að segja meira frá. Eruð þið búnir að æfa upp einhverja nýja blúsa fyrir kvöld- ið? Það verða allir blúsar nýir á dagskránni hjá okkur. Við erum búnir að velja blúsa úr ýmsum áttum og tökum okkur góðan tíma í að æfa þá. Við erum svo með tvo frumsamda blúsa, en annar þeirra er reyndar á plöt- unni Frostlög, þó hann sé aldrei spilaður. Af þeirri plötu og okkar samstarfi við Steinar er reyndar mikil harmsaga sem ekki borgar sig að rekja hér. Þess má þó geta aö ekki gátu þeir einu sinni haft nafnið á laginu rétt á plöt- unni. Lagið heitir Betra en í gær að einhvern veginn tókst þeim að klúðra því í Veturinn í gær! Hvað hafið þið verið að gera undanfarið? Við erum búnir að vera að spila blús síðan Blúsdjamm kom út í pöbbum og á böllum. Það er þó rólegt núna, en þetta fer aftur af stað eftir áramót. Hvað með frumsamin lög? Við erum komnir með töluvert af frumsömdum lögum. Þau lög eru nokkuð öðruvísi en lagið sem er á Frostlögum, þó í þeim sé mikill blús. Það má segja að þetta sé bara einfalt rokk. Stefnan hjá okkur er að þetta verði síðustu blústónleikarnir að sinni, því það fer svo mikill tími í þetta ef maður er að spila kannski tvisvar eða þrisvar í viku. Við verðum að hafa tíma til að sinna okkar eigin hugarfóstrum. Við förum í hljóðver i janúar/fe- brúar og koma plötunni út í apríl, áður en sumarpoppið fer að streyma á markaðinn. Við viljum láta reyna á það hvort hægt sé að gefa út al- mennilega tónlist á íslandi, eða hvort allt þurfi að vera sálarlaust blöðrupopp. Það er illt í efni ef ísland á bara að vera blöðrupop- pland. Verðið þið ekki að hafa á plöt- unni svo sem eitt poppiag til að selja hana og til að fá STEF- gjöld? Nei, þetta hlýtur að ganga upp án einhvers vændis. Hvað varðar STEF-gjöldin, þá eru útgáfu- samningar orðnir þannig í dag að það er allt tekið af þér. Útgef- andinn fær höfundarréttinn og helminginn af STEF-gjöldunum og hann á síðan lagið í tvö ár og má gera við það hvað sem honum þóknast. Þetta komast menn upp með vegna þess að nýjar hljómsveitir samþykkja svona svínarí til þess að komast á framfæri. Ljósmynd/BS Fáið þið einhvern útgefanda að plötunni? Menn virðast vera tregir til að gefa út plötu nema um sé að ræða eitthvað popp- þótt sölupopp. Við eru starfandi hljómsveit sem myndi fygja plötu vel eftir og því má ekki gleyma að við höfum unnið okkur markað með því að spila þetta mikið upp á síðkastið. Við neitum svo aö trúa því að íslendingar vilji ekki kaupa annað en gleðipopp og ef við spilum nógu mikið um land allt þá hljótum við að ná eyrum fólks. Við erum stærsta neðanjarða- hljómsveit landsins og það er kominn tími til að hætta að starfa neðanjarðar og koma upp á yfir- borðið. Við erum búnir að vera að spila svo mikið saman að sveitin er orðin feikna þétt, en menn verða leiðir á því að hanga inni í bílskúr og æfa. —. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Hverfafélagið í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi Félagar, vinsamlega greiðið heimsenda gíróseðla fyrir árgjaldið 1988 sem fyrst. Ef gíróseðillinn hefur glatast, þá hafið samband við skrif- stofuna í Valhöll i sfma 82900 (Þórdis). Stjómin. Hverfafélagið í Bakka- og Stekkjahverfi Félagar, vinsamlega greiðiö heimsenda gíróseöla fyrir árgjaldiö 1988 sem fyrst. Stjórnin. IIFIMDALI.UK Jóladansleikur Jólaknall félaga ungra sjálfstæðismanna á höfuðborgarsvæöinu verð- ur haldið laugardagskvöldið 17. desember. Staður: Vetrarbrautin 3. hæð í Þórscafó. Húsið opnað kl. 22.00. Skemmtiatriði og léttar veitingar. Dansað fram eftir nóttu. Leynigestur og undarlegar uppákomur. Ætlunin er að þetta verði eftirminnilegasta ball ársins. Mætum öll. Stjóminar Borgarmálaráðstefna: Starfshópurinn um atvinnumál og nýsköpun atvinnulífs heldur opinn fund í dag, fimmtudaginn 15. desember kl. 17.30, í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Fundurinn er opinn öllu sjálfstæðisfólkl. Starf hópsins er liöur I undirbúningi fyrir borgarmálaráðstefnu og kynningu sem haldin verður 28. janúar nk. Hópstjórl er Ragnar Guðmundsson. Fulltrvaróð sjálfstæðisfólaganna i Reykjavik. Borgarmálaráðstefna: Starfshópurinn um skipulags- og umhverfismál heldur opinn fund i dag, fimmtudaginn 15. desember kl. 17.30, í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Fundurínn er opinn öllu sjálfstæðlsfólki. Starf hópsins er liöur i undirbuningi fyrir borgarmálaráðstefnu og kynningu sem haldin veröur 28. janúar nk. Hópstjórí er Þórhallur Jósepsson. Fulltrúaróð sjálfstæðisfélagnna i Reykjavik. | smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar félagslíf U-JU Nýkomnar jólaplötur m.a. mjög fjölbreytt unglinga- plata frá Sparrow. Steve Taylor, Deniece, Winans o.,fl. flytja. Auk þess nýjar plötur með Rez Band, Stryper, Petra o.fl. Kassettan „Jata kynnir“ á 100 krl Gott úr- val bóka og gjafavöru. Næg bflá- stæöi, heitt á könnunni. H?rslunir]Jþ^j Hátúni 2. I.O.O.F. 5 = 17012158’As 9.0. ffl FREEPORTKLÚBBURDSN Jólafundurinn verður haldinn fimmtudaginn 15. desember kl. 20.30 f félagsheimili Bústaöa- kirkju. Jólahugvekja. Kaffiveitingar. Stjórnin. AD-KFUM Fundur i kvöld kl. 20.30 á Amt- mannsstig 2b. Jólin nálgast. Fundur i umsjá Ástráðs Sigur- steindórssonar. Kaffi eftir fund. Allir karlar volkomnir._ Hjálpræóis- herínn Kírkjustræti 2 I kvöld kl. 20.30 Ijósvaka meö veitingum og happdrætti. Börn sýna helgileik og syngja. Allir velkomnir. támhjólp í kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma í Þribúðum, Hverfisgötu 42. Mikill almennur söngur. Samhjálparkórinn tekur lagiö. Nýju skírnþegarnir gefa vitnis- burði. Orð hefur Kristinn Ólason. Allir velkomnir. Samhjálp. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almennur biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Skipholti 50b, 2. hæð. Samkoma i kvöld kL 20.30. Bækur, kassettur og „videó“. Allir velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferð sunnudaginn 18. des.: Kl. 10.30 Esja - Kerhóla- kambur Ekið að Esjubergi og gengið þaðan. Fólk á eigin blium er vel- komið með í gönguna. Verð kr. 500.00. Næsta dagsferð varður sunnu- daginn 8. jan., kl. 13. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin. Farmiðar við bll. Ferðafélag fslands óskar far- þegum fólagslns gleðilegra jóla og góðs ferðaárs 1989. Ferðafélag Islands. Góðtemplarahúsið Hafnarfirði Fólagsvistin f kvöld fimmtud. 15. desember. Verið öll velkomin. Fjölmennið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.