Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 82
82 MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Hvað sögðu
Valsmenn?
Valdimar Grímsson:
Ýmsir töldu það hafa verið vendi-
punktur í leiknum er Valdimar
Grímsson náði frákasti í vöminni í •
fyrri hálfleik þegar staðan var 8-7
fyrir Val og KR-ingar höfðu gert
þijú mörk í röð. Framhaldið var 4
Valsmörk í röð og tveir KR-ingar
reknir af leikvelli. Hvað segir Valdi-
mar „Á þessu augnabliki horfði ég
ekki niður fyrir mig og get ekki
sagt af eða á hvort það var lína á
mig eða ekki, ég sá Jón Kristjáns-
son frían frammi og hugsaði um
það eitt að ná boltanum og koma
honum fram á völlinn til Jóns. Ann-
ars held ég að KR-ingar hafi ein-
faldlega ekki þolað pressuna, því
við reyndumst mun heilsteyptari.
Geir Sveinsson:
„Við erum búnir að leika níu leiki
og erum með fullt hús stiga. Eg
get ekki annað en verið ánægður
með þann árangur og það var sterk-
ari liðsheild, sigurvilji og ódrepandi
barátta sem færði okkur þennan
sigur í kvöld. En það eru níu leikir
énn eftir og við ætlum að halda
okkur á toppnum.
Þótt staða okkar sé góð á þessu
stigi er langt til mótsloka og það
er erfiður tími fram undan þar sem
er Evrópukeppnin og sérstaklega
landsliðið, en gera má ráð fyrir því
að 5 til 7 leikmanna Vals verði
kallaðir í það dæmi. Því fylgir gífur-
legt álag og það mun reyna á Vals-
liðið þegar baráttan byrjar upp á
nýtt. Við eigum eftir að leika gegn
FH í Firðinum og KA fyrir norðan
og svo er Stjaman á stöðugri upp-
leið."
Sigurður Sveinsson:
„Ég er mjög ánægður með sigurinn
og óttast ekki síðari umferðina en
reikna þó með því að leikimir þá
gegn FH og KR verði erfiðustu leik-
imir. Gegn KR í kvöld má segja
að þetta hafi verið öruggt nær allan
tímann. Þeir náðu að vísu smákipp
og minnkuðu muninn úr 8-4 í 8-7
eftir sterka byijun hjá okkur, en
við sigum fram úr aftur fyrir leik-
hlé og náðum svo upp góðum vam-
arleik í seinni hálfleik, héldum þeim
þannig vel frá okkur."
Mrður Sigurðsson formaður
handknattleiksdeildar Vals:
„Ég er auðvitað afar ánægður með
úrslitin í kvöld og leik minna
manna. Ég var aldrei í vafa hvem-
ig þetta færi því það er mín skoðun
að undir öllum venjulegum kring-
umstæðum eigum við að vinna KR
eins og staðan er. Mér fannst vendi-
punktur leiksins vera þegar KR-
ingar misstu tvo leikmenn út af
með stuttu millibili í fyrri hálfleik
og við breyttum stöðunni úr 8-7 í
13-7. Nú tekur við erfiður tími, því
það er langt í að síðari umferðin
byiji aftur og þá verður hún sundur-
slitin. Ég barðist fyrir því bæði hjá
landsliðs- og mótanefnd HSÍ að
fresta þremur fyrstu umferðum
síðari umferðarinnar sem eru á
dagsskrá fyrir B-keppnina, auk
þess sem landsleikjaprógrammið
reynir mjög á marga leikmenn Vals
á sama tíma, en í þessu máli urðum
við Valsmenn að beýgja okkur fyrir
meirihlutavilja, þannig að það er
ekki gott að segja hvernig Vals-
menn koma út úr síðari umferðinni
þótt auðvitað voni maður og trúi
því besta.“
Sigurður Sveinsson, Einar Þorvarð-
arson, Val. Alfreð Gíslason, KR.
Valdimar Grfmsson, Geir Sveinsson,
Jakob Sigurðsson, Val. Leifur Dagf-
innsson, Sigurður Sveinsson, KR.
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari KR:
„Madur gerði sér kannski grillur"
„M AÐUR gerði sér kannski
einhverjar grillur, en í kvöld
sá maður hvernig þetta er.
Valur er einfaldlega með
besta liðið eins og er. Þeir
eru leikreyndastir og jafn-
bestir og til þess að eiga
möguleika f þá, þurfa allir
leikmenn liðsins að leika vel.
Því var ekki að heilsa hjá okk-
ur í kvöld og því verra er það
þegar lykilmenn eru ekki svip-
ur hjá sjón eins og Páll Ólafs-
son, sem hefur átt við veik-
indí að strfða að undanförnu
og var langt frá sfnu besta.
Alfreð getur þetta ekki einn
og yngri mennirnir voru full
taugaóstyrkir," sagði Jóhann
Ingí Gunnarsson þjálfari KR
eftir leikinn í gœrkvöldi.
Jóhann sagði enn fremur
„Hvað leikinn varðar, þá vor-
um við óheppnir í byijun, en náð-
um okkur á strik og náðum góðri
forystu Vals niður í 8-7. Þá misst-
um við leikmenn út af og Vals-
menn refsuðu okkur fyrir það.
Þar með má segja að úrslitin hafi
verið ráðin.“
En hvað segir Jóhann Ingi um
atvik það sem ýmsir töldu hafa
gert gæfumun er KR-ingar voru
búnir að ieika vel og minnka
muninn í eitt mark, er Mörgum
virtist að dæma ætti línu á Valdi-
mar Grímsson er hann náði knett-
inum eftir sókn KR? „Ég segi það
bara, að í heild séð höfðu dómar-
amir góð tök á ieiknum. En hvað
framhaldið í vetur varðar, þá ger-
um við áfram okkar besta og því
má ekki gleyma, að í fyrra var
KR botnlið og margir leikmenn
liðsins eru alls ekki vanir að vera
í toppbaráttu. Ég gæti líka vel
ímyndað mér, að fleiri lið blandi
sér í toppbaráttuna, t.d. FH. Ég
hef líka mikla trú á Stjömunni
sem hefur verið að koma upp
síðari hluta umferðarinnar."
Lelfur Dagfinnsson sést hér veija skot frá Valdimar Grímssyni.
Morgunblaöið/Júlíus
Hvað sögðu KR-ingar?
, ^lólagjöfin í ár
frá KR til Vals!“
Leifur Dagfinnsson:
„Við getum sjálfum okkur um
kennt. Þetta var jólagjöfin í ár —
frá KR til Vals. Við áttum vissulega
möguleika í þessum leik en vorum
ekki nógu ákveðnir.
Við byijuðum illa en náðum svo
að minnka muninn í eitt mark. Þá
kom vendipunkturinn, tvær brott-
vísanir. Ég sætti mig við þá fyrri
[Alfreð Gíslason] en sú síðari [Sig-
urður Sveinsson] var mjög vafasöm.
Annars var sökin fyrst og fremst
hjá okkur og ég var ekki ánægður
með frammistöðu mína. Ég var í
mörgum boltum sem ég missti inn,
sem ég hefði átt að veija.
Það sem var ánægjulegast við
þennan leik var hve margir áhorf-
endur voru í Höllinni. Það var gam-
an að sjá svo marga á deildarleik."
Alfroð Gíslason:
„Það sást best í þessum leik að
okkur vantar reynslu. Við vorum
búnir að ná þeim í 7:8 og þá fóru
tveir menn útaf og þeir náðu fimm
mörkum í röð.
Það sem gerði þó líklega útslagið
var að við nýttum illa færin þegar
við vorum einir gegn markverði.
Uppúr því fengum við á okkur
mörk úr hraðaupphlaupum. Þá
hafði það mikið að segja að Páll
[eldri] hefur verið veikur og verið
rúmliggjandi síðan á laugardag.
Annars var þetta verðskuldaður
sigfur hjá Valsmönnum og þeir
líklega með besta liðið."
Sigurður Sveinsson:
„Við töpuðum þessum leik í síðari
hluta fyrri hálfleiks. Þá fengum við
á okkur fjögur mörk eftir mistök í
sókninni og leikurinn í raun búinn.
Það var of mikið um einstaklings-
framtak hjá okkur og menn voru
ekki að leika fyrir liðið. Það var
ekki fyrr en í lokin að við fórum
að spila en þá var það of seint.
Valsmenn eru með sterkasta liðið
í dag og áttu sigurinn skilið miðað
við hvemig við lékum. Ég vil ekki
kenna dómurunum um tapið — þeir
dæmdu vel.“
Valsmenn tóku létta skotæfingu
að var ekki að sjá á leikmönnum Vals að þeir hefðu leikið erfiðan
wÞ Evrópuleik í Sviss um sl. helgi og síðan leikið bikarleik gegn
B-liði Vals kvöldið fyrir leikinn gegn KR. Eftir leikinn gegn B-liðinu
fóm ieikmenn Valsliðsins ekki beint í sturtu, heldur tóku þeir létta
skotæfingu í Valsheimilinu - sú skotæfing stóð í klukkustund.
Valsmenn
náðu 69.4%
nýtingu
ífyrri
hálfleik
Valsmenn náðu 68.4% nýtingu
í fyrri hálfleik gegn KR, sem
er mjög gott. Þeir skomðu þrettán
mörk úr nítján sóknum. Nýtingin
var ekki eins góð í seinni hálfleik
- 38.4%. Þeir skomðu þá tíu
mörk úr 26 sóknum, en alls skor-
uðu þeir 23 mörk úr 45 mörkum,
sem er 51.1% nýting.
KR-ingar náðu 45.6% nýtingu
í leiknum. Þeir skoruðu 21 mark
úr 46 sóknarlotum. í fyrri hálfleik
var nýtingin aðeins 36.8% - þeir
skomðu þá sjö mörk úr nítján
sóknum. I seinni hálfleik skomðu
þeir fjórtán mörk úr 27 sóknum,
sem er 51.8% nýting.
Sigurður Sveinsson hjá Val
náði 58.5% nýtingu. Hann skoraði
7/2 mörk úr tíu skotum, en missti
knöttinn tvisvar. Valdimar
Grímsson náði 62.5% nýtingu.
Skoraði 5 mörk úr sjö skotum,
en missti knöttinn neinu sinni.
Sigurður Sveinsson náði bestri
nýtingu hjá KR. Hann skoraði
fimm mörk úr sjö skotum, sem
er 71.4%. Alfreð Gíslason náði
61.5% nýtingu - skoraði 8/2
mörk úr ellefu skotum, en missti
knöttinn tvisvar.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VALUR 9 9 0 0 243: 179 18
KR 9 8 0 1 233: 201 16
STJARNAN 8 5 0 3 179: 164 10
FH 8 4 0 4 209: 197 8
KA 8 4 0 4 183: 180 8
VÍKINGUR 8 3 1 4 212: 226 7
GRÓTTA 8 2 1 5 165: 183 5
FRAM 8 1 3 4 171: 199 5
ÍBV 8 1 1 6 160: 190 3
UBK 8 1 0 7 168: 204 2
Markahæstir
Alfreð Gíslason, KR..........62/13
Valdimar Grímsson, Val........55/8
Hans Guðmundsson, UBK........55/10
Sigurður Sveinsson, Val.......52/8
Ámi Friðleifsson, Víkingi....49/11
Sigurður Gunnarsson, ÍBV......46/5
Birgir Sigurðsson, Fram.........45
Halldór Ingólfsson, Gróttu...45/25
Héðinn Gilsson, FH..............42
Páll Ólafsson, KR...............42
Bjarki Sigurðsson, Víkingi....41/2
Guðjón Amason, FH._...........41/2
Óskar Ármannsson, FH.........41/24
Stefán Kristjánsson, KR.......40/5
Júlíus Jónasson, Val..........39/7
Erlingur Kristjánsson, KA....39/14
Jón Kristjánsson, Val.........38/2
Gylfí Birgisson, Stjömunni...38/8
Varin skot:
Einar Þorvarðarson, Val.....120/13
Leifur Dagfinnsson, KR.......117/4
Axel Stefánsson, KA...........99/9
Brynjar Kvaran, Stjömunni ...83/10
- í i í \ c i')!. r t c i e v i d t > i; : i H