Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
2Y
73
Yerkalýðssinni feer 25 ára dóm
eftir ÓlafGrétar
Krisijánsson
Mark Curtis er 29 ára gamall
kjötpökkunarmaður í Des Moines í
Iowa-fylki í Bandaríkjunum. Hann
situr í Oakdale-fangelsinu í Iowa,
dæmdur fyrir falskar sakir. Lög-
regla gefur upp að hann hafi reynt
að nauðga fimmtán ára gamalli
blökkustúlku þrátt fyrir að sannan-
ir skorti er geti staðfest verknaðinn
eða tengt Mark Curtis honum, hafi
hann átt sér stað.
Aðdragandi málsins er eftirfar-
andi: 1. mars sl. gerir alríkislögregl-
an (FBI) árás á vinnustað Mark
Curtis og handtekur 16 Mexíkana
og einn mann frá E1 Saldvador og
ásakar þá um að vera ólöglega í
landinu. Verkamenn á staðnum
bregðast ókvæða við og skipuleggja
fundi til þess að mótmæla þessari
árás en lögreglan hafði fengið að-
gang að starfsmannaskrám fyrir-
tækisins til þess að velja þá úr sem
skyldu handteknir. í skrám þessum
hefur FBI að öllum líkindum numið
staðar við nafnið Mark Curtis, sem
er á skrá hjá FBI fyrir pólitíska
starfsemi, m.a. samstöðustarf með
E1 Salvador.
4. mars var haldinn fundur til
þess að mótmæla árásinni. Þar
mættu verkamenn kjötpökkunar-
stöðvarinnar ásamt yfírmönnum
sínum. Mark Curtis tók til máls og
talaði á spænsku vegna þess að
flestir viðstaddra voru frá Róm-
önsku Ameríku. Sagði hann mál
þetta snerta alla starfsmenn á
vinnustaðnum og að verkalýðsfé-
laginu bæri að taka það upp og
veija málstað hinna handteknu.
Um kvöldið fer Mark Curtis á
bíl sínum að versla í stórmarkaði.
A leiðinni stöðvar hann bifreiðina
við umferðarljós. Kona nokkur kem-
ur aðvífandi og biður hann um að
taka sig upp í vegna þess að ókunn-
ur maður veiti sér eftirför. Mark
bregður skjótt við, hleypir henni inn
í bílinn og ekur að heimili hennar.
Hún biður hann um að koma upp
á veröndina og bíða þar meðan hún
fari inn í húsið og ftillvissi sig um
að allt sé í lagi þar. Mark bíður á
veröndinni um stund en veit ekki
fyrr til en á hann ráðast tveir lög-
reglumenn, færa hann inn í svefn-
herbergi hússins og gyrða þar niður
um hann. Hann er handjámaður
og færður niður á lögreglustöð.
Þar er honum misþyrmt á hinn
hrottalegasta hátt, meðal annars
kjálkabrotinn og varð að sauma
hann 15 sporum. Honum verður þar
fyrst ljóst hvers vegna hann hefur
verið handtekinn þegar einn lög-
reglumannanna segir: „Þú ert einn
af þeim sem er vel við Mexíkana,
er það ekki? Alveg eins og þér er
vel við svertingja." Eftir barsmíð-
amar er farið með Curtis á sjúkra-
hús þar sem honum er veitt nauð-
synleg aðhlynning meðan hann
liggur hlekkjaður við rúm. Þá er
farið með hann í fangelsið á ný þar
sem hann fær að dúsa þar til félag-
ar hans ná honum út næsta dag.
Mark Curtis fær nú að vita að
hann er ákærður fyrir að hafa ráð-
ist á og reynt að nauðga ungri
blökkustúlku. Blöð í Des Moines
fara að básúna út sögu lögreglunn-
ar um að Mark hafí verið hand-
tekinn á vettvangi með buxumar
niður um sig. Af „sönnunum" er
þó ljóst að málið er byggt á tilbún-
ingi og Mark vélaður inn í aðstæð-
ur sem hægt var að túlka honum
í óhag.
Við réttarhöldin sem fóru fram
í september kom fram að stúlkan
sem setti fram nauðgunarkæruna
er ekki sú sama og stöðvaði Mark
Curtis á rauðu ljósi og bað um far.
Stúlkan tímasetti nauðgunartil-
raunina um kl. 20 en þá var Mark
Curtis sannanlega staddur á veit-
ingahúsi ásamt nokkmm vinnufé-
lögum sínum. Hann'var ekki hand-
tekinn fyrr en um níuleytið. Nauðg-
unarmaðurinn var samkvaejnt lýs-
ingu fómarlambsins lægri vexti en
Ólaftir Grétar Kristjánsson
„Má af framansögðu
vera ljóst að Mark Curt-
is hefiur verið borinn
röngum sökum og fang-
elsaður fyrir baráttu
sína og fyrir það sem
hann er, en ekki fyrir
neinn glæp sem hann
hefur drýgt.“
Mark Curtis og var reykingalykt
af honum. Mark reykir ekki. Engin
óhreinindi fundust á undirfatnaði
Curtis en samkvæmt vitnisburði
fómarlambsins á hann að hafa velt
sér upp úr óhreinni veröndinni með
buxumar niður um sig. Engin dýra-
hár né hár 'af blökkumanni fundust
á fatnaði Curtis en dýr mun hafa
haft vistarverur á veröndinni.
Læknaskýrslur sýna einnig að Curt-
is hafði ekki samfarir við stúlkuna
sem kveður sér hafa verið nauðgað.
Þrátt fyrir sannanaskort var
Mark Curtis fundinn sekur um
nauðgunartilraun hinn 14. septem-
ber sl. og 18. nóv. var hann dæmd-
ur til 25 ára fangelsisvistar. Sækj-
andinn viðurkenndi mótsagnimar í
málflutningi sínum en sagði að
„fegurð dómkerfís okkar“ fælist í
því að láta kviðdóminn um að jafna
allar mótsagnir.
Mesta þversögnin kemur fram
þegar líf Marks Curtis fram til þessa
er skoðað. Hann hefur aldrei áður
komist í kast við lögin. Hann er
einlægur kommúnisti og hefur verið
það í 11 ár. Hann hefur barist gegn
stríði Bandaríkjamanna í Mið-
Ameríku, gegn hervæðingu, gegn
kynþáttahyggju, gegn kúgun
kvenna og fyrir réttindum innflytj-
enda og blökkumanna. Hann hefur
verið málsvari verkafólks en það
var einmitt vegna afskipta Marks
af verkalýðsmálum sem mál þetta
hófst, þ.e. eftir árás alríkislögregl-
unnar á verkafólk sem er frá öðmm
löndum. Allar persónuleikaskýrslur
sem fram komu við réttarhöldin
staðfestu að Mark Curtis er heiðar-
legur og réttsýnn meðborgari.
Má af framansögðu vera ljóst að
Mark Curtis hefur verið borinn
röngum sökum og fangelsaður fyrir
baráttu sína og fyrir það sem hann
er, en ekki fyrir neinn glæp sem
hann hefur drýgt. Þetta hafa þús-
undir manna út um allan heim skil-
ið og hafa mótmælabréf og orð-
sendingar borist bæði til lögreglu-
stjóra og saksóknara Des Moines
frá fyrstu stundu. Meðal þeirra sem
hafa mótmælt meðferðinni á Mark
Curtis eru Ken Douglas, forseti
Alþýðusambands Nýja-Sjálands,
Arthur Scargill, forseti Landssam-
taka námamanna í Bretlandi, Ron
Rodd, aðalritari sambands flutn-
ingaverkamanna, stærsta verka-
lýðsfélags Bretlands með 1,4 millj-
ón félaga, Jimmy Knapp, aðalritari
Landssambands jámbrautarstarfs-
manna í Bretlandi, Ann Scargill og
Betty Heathfield frá samtökum
kvenna sem berjast gegn lokun
kolanáma í Bretlandi. Ennfremur
hafa eftirfarandi lýst yfír stuðningi
við baráttu Marks Curtis fyrir rétt-
læti: Roberto Ortaiz, aðalritari
KMU, stærsta verkalýðssambands
Filippseyja, Juan Gonzales Rojas,
frá Verkalýðssambandi sandinista
í Nicaragua, Robert White, forseti
verkalýðssambands starfsmanna
bifreiðaverksmiðja í Kanada, Neo
Mnumzana, aðalfulltrúi Afríska
þjóðarráðsins við Sameinuðu þjóð-
imar, Leonard Peltier, fangelsaður
leiðtogi amerískra indíána og Peter
Mahlangu, fulltrúi SACTU, suður-
afríska verkalýðssambandsins í
N orður-Ameríku.
Flokkur Marks Curtis, Sósíalíski
verkamannaflokkurinn, hefur ný-
verið unnið sögulegan sigur yfír
ríkisstjóm Bandaríkjanna. Fékk
hann ríkisstjómina dæmda seka um
■njósnir og eyðileggingarstarfsemi
gagnvart flokknum um fjörutíu ára
skeið og vom athafnir stjómarinnar
skoðaðar sem brot á stjómar-
skránni, þar eð hún tryggir rétt
einstaklinga til pólitísks starfs og
pólitískrar hugsunar án íhlutunar
eða afskipta yfírvalda. Ríkisstjómin
var dæmd til að greiða flokknum
skaðabætur og allan lögfræðikostn-
að vegna málsins, sem staðið hafði
í 15 ár.
Mál Marks Curtis er bæði tengt
þessum sigri Sósíalíska verka-
mannaflokksins og verðbréfahrun-
inu 19. október 1987. í kjölfar þeirr-
ar kreppu sem ríður yfir um þessar
mundir munu árásir á kjör og rétt-
indi verkafólks fara vaxandi hvar-
vetna í heiminum, ekki af ill-
mennsku heldur af nauðsyn. Lýð-
ræði verður munaðarvara sem við
horfum á með eftirsjá. En því harð-
ari sem árásimar verða því fleiri
einstaklingar gæddir eiginleikum
og harðfylgni manna eins og Mark
Curtis munu stíga fram á sjónar-
sviðið og atburðir af þessu tagi
hafa þann tilgang að koma í veg
fyrir að hans líkar hefji afskipti af
stjórnmálum. Ef árásinni á Mark
Curtis verður ekki hmndið veitist
valdastéttinni auðveldara að halda
l^ik sínum áfram. Þetta mál er í
hæsta máta hagsmunamál fyrir
íslenska verkalýðsstétt og íslenska
verkalýðshreyfíngu.
Ken Norland, kjötpökkunarmað-
ur á eftirlaunum, er einn fjölmargra
sem sent hafa mótmæli vegna Mark
Curtis-málsins. Hann segir: „Falsk-
ar nauðgunarkæmr hafa verið not-
aðar gegn yerkalýðshreyfíngunni í
fortíðinni. Ég man persónulega eft-
ir að það gerðist hér í Minnesota á
fjórða áratugnum þegar Frank Ell-
is, einn af upphafsmönnum sam-
taka pakkhússmanna í Miðvest-
urríkjunum, sætti fölskum nauðg-
unarkæmm. Ég hef unnið í Horm-
el-pökkunarhúsinu í Austin, Minne-
sota, -í 40 ár og er nú á eftirlaun-
um. Frank Ellis hjálpaði til við að
skipuleggja verkafólk í Hormel-
verksmiðjunni í Austin á fjórða ára-
tugnum, og þegar þeir reyndu að
bera hann fölskum sökum, komu
fjölmargir fram og vörðu hann. Það
varð ljóst að ákæran var hneykslan-
leg tilraun til þess að koma honum
bak við lás og slá fyrir þá ástæðu
eina að hann stóð alltaf með verka-
mönnum.“
Þeir sem vilja mótmæla aðförinni
að Mark Curtis og því óréttllæti sem
hann er beittur geta skrifað til sak-
sóknara Des Moines. Heimilisfang
hans er:
James Smith, Polk County City
Attomey, 408 Polk County Court-
house, 5th and Mulberry, Des Moi-
nes, Iowa 50309, USA.
Éinnig má hafa samband við
undirritaðan í bóksölu Pathfinder
og Framlags að Klapparstíg 26, 2.
hæð á mánudögum kl. 17.30—19
eða miðvikudögum kl. 19—20.
Höfúndur erjámiðnadarmaður í
Reykjavik.
Féiagsfundur
Almennurfélagsfundurverður haldinn í
félagsheimilinu Víðidal fimmtudaginn
15. desember og hefst kl. 20.30.
Fundarefni:
Félagsstarfið. Ævifélagaskírteini kynnt.
Önnur mál.
Félagar mætið allir.
Stjórnin.
•11
STEINAR HE
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
SMIÐJUVEGI2 • KÓPAVOGI • SÍMI46600
STÓLGÓÐ
JÓLAGJÖF!
- ótrúlega fjölbreyttir stillimöguleikar
- hægt að velja um mjúk eða hörð hjól
-alullaráklæði í mörgum litum
- 5 ára ábyrgð
ARMENÍUSÖFNUNIN - GÍRÓREIKN. 90000-1
w
Rauði kross Islands