Morgunblaðið - 15.12.1988, Page 29
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
QO
29
Athugasemd
vegna eftirmála
við grein Þor-
steins Gylfason-
ar, Umbygging
Vegna eftirmála Þorsteins
Gylfasonar við greinina „Um-
bygging", sem birtist í Morgun-
arblaðinu 13. desember sl. vill
undirritaður taka eftirfarandi
fram:
Þegar Þorsteinn Gylfason tók
að sér að skrifa umrædda grein
fyrir BHM-blaðið setti hann
engin skilyrði um að blaðið
þyrfti að koma út fyrir tiltekinn
tíma, enda eru öll atriði greinar-
innar enn í fullu gildi og verða
það án vafa næstu mánuði að
minnsta kosti og sum atriði
verða ætíð í gildi. í lok nóvem-
ber lét Þorsteinn reyndar í ljós
ánægju með að blaðið væri ekki
tilbúið þar sem hann vildi gera
nokkrar breytingar á greininni.
Það er rétt hjá Þorsteini að
útgáfa BHM-blaðsins hefur
dregist um nokkrar vikur.
Astæða þess er ekki fram-
kvæmdaleysi ritstjórnarinnar
heldur dráttur á að allar greinar
sem áttu að birtast í blaðinu
bærust ritstjóm í hendur.
Sú ákvörðun Þorsteinn að
draga fyrirvaralaust umrædda
grein út úr BHM-blaðinu og
birta í Morgunblaðinu hlýtur því
að eiga sér aðrar orsakir en fyrr-
nefnd töf á útgáfu BHM-blaðs-
ins.
Sigmundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Banda-
lags háskólamanna.
Míele
Miele
ryksugur eru
sterkar
liðugar
hljóðlátar
kraftmiklar
hreinlegar
áreiðanlegar
fallegar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89
7 NORDMENDE CV 2201
KVIKMYNDATÖKUVÉLAR
TRAC.
6 UNIDEN GERVI-
>BPfrTAMÓTfAKARAR
2 TOYOTA LANDCRUISER
TURBO DIESEL
ICELANDAiR
11 MITSUBISHI
FARSÍMAR
im
4 GOLDSTAR CBT-4521
14"SJÓNVÖRP
7 NORDMENDE PRESTIGE
29" SJÓNVÖRP
4 GOLDSTAR CBT-4521
20"SJÓNVÖRP
11 MACINTOSH PLUS
EINKATÖLVUR
, 4 GOLDSTAR GHV-1245
MYNDBANDSTÆKI
4 BANG & OLyFSEN
20" SJÓNVÖRT1 OG
VHS-82.2
MYNDBANDSTÆKI
4 GOLDSTAR GCD-60-
HLJÓMTÆKJASTÆÐUR
7 BEOSYSTEM 5000 HLJÓMTÆKI
ÁSAMT PENTA HÁTÖLURUM
GEISLASPILARAR
4 CITIZEN
SJÓNVÖRP
7 NORDMENDE V-1405
MYNDBANDSTÆKI
7 GÖLDSTAR ER-654 D
ÖRBYLGJUOFNAR
Hjálpiö okkur aö bjarga mannslffum I
Athugið ! Allt skattfrjálsir vinningar
Dregið 24. desember 1988
Ef þér óskið að
greiða miðann
með greiðslukorti,
þá hringið
vinsamlegast í síma:
91-12388
FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR