Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
31
bæjarins al-Meiram hefur verið
kölluð dauðaleiðin í Súdan. En
hjálpin berst sífellt víðar og framlag
hvers og eins getur skipt sköpum,
því ekki þarf háar upphæðir til að
gera mikið. Því fleiri sem eru með,
þeim mun fleiri er hægt að gefa von.
Hjörtu mannanna í Súdan
og Grímsnesinu
Eftirvænting ríkir nú á
stríðshijáðum svæðum í Suður-
Súdan. Sú hjálp sem þegar hefur
borist hefur kveikt von meðal þeirra
milljóna sem vænta þess að þeim
muni einnig berast hjálp, fyrst
margir hafa þegar fengið hana.
Ibúar Suður-Súdan eru kristnir og
ættu við eðlilegar aðstæður að vera
famir að hlakka til jólanna rétt eins
og við. En þeirra eftirvænting er
meiri og vonin stærri, þeir eiga von
um líf nú þegar jólin, hátíð ljóssins
og lífsins nálgast. Hjálparstofnun
kirkjunnar hvetur fólk til að taka
þátt í öflugu hjálparstarfi og leggja
sitt af mörkum.
Tómas Guðmundsson benti okkur
á fyrir löngu hve hjörtum manna
svipar saman í Súdan og Grímsnes-
inu. Látum það minna okkur á
meðbræður okkar í Súdan, í skugga
stríðsins sem gleymdist of lengi.
Gleðileg jól.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Hljómleikar
á myndbandi
MYNDFORM og Heildverslun JB
hafa gefið út myndband með
hljómleikum sem fram fóru í Há-
skólabiói 30. nóvember sl.
Flytjendur tónlistarinnar eru
Hörður Torfa, Bubbi Morthens og
Megas en á tónleikunum fluttu þeir
bæði ný og gömul lög.
Myndbandið er 60 mínútur á
lengd.
að&HmyndhSndséueins?
Spáirþúímyndgæðin?
FEJJl eruhágæða myndbönd,
T J/^j á betra verði en eldri og
Jnf y ófullkomnari myndbönd.
^FUJI
'»ÍEK«æETIc
HighQualityTape
Fáðumeira
fyrir krónurnar þínar, - spáðu í
%
Dfl!aSBCE3:
I
Skipholti31 - Simi 680450
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN HF.
SKÚLAGÖTU 28 SÍMI ll 400
Jól á rroni
Bragðgóðar piparkökur í ljúfri jólastemmningu
Menii eru á einu máli um piparkökurnar frá Frón.