Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
Landsþing Flugmálafélags íslands:
Ragnar J. Ragnars-
son kjörinn forseti
FLUG
Pétur PJohnson
LANDSÞING Flugmálafélags íslands var haldið fyrir skömmu á
Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Alls mættu fjörtíu og átta fulltrúar
fi-á sautján aðildarfélögum flugmálafélagsins, en alls eru aðildar-
félög félagsins tuttugu og tvö. Þingstörf hófust um morgunin
með aðalfundum hinna ýmsu sérgreinadeilda félagsins, en í þeim
fer aðalstarf Flugmálafélagsins fram.
Landsþingið sjálft hófst að lo-
knu hádegishléi með því að fráfar-
andi forseti Flugmálafélagsins,
Friðrik Pálsson, setti þingið. Þing-
forseti var kjörinn Þorgeir Áma-
son, Svifflugfélagi íslands og rit-
ari þingsins Höskuldur Frímanns-
son úr sama félagi. í skýrslu
stjómar, sem Friðrik Pálsson
flutti, kom fram að margt hefur
áunnist frá því að fimmtíu ára
afmælisþing Flugmálafélagsins
var haldið á Akureyri í október
1986. Á afmælisþinginu voru
gerðar veigamiklar breytingar á
lögum og starfsháttum félagsins
sem gjörbyltu starfsemi þess og
hafa þær auðsjáanlega náð tilætl-
uðum árangri. Starfsemi deilda
er nú vel skipulögð, en þær leystu
af hólmi fagneftidir sem áður voru
starfræktar.
Það kom greinilega fram í
máli Friðriks, að Flugmálafélagið
er í stöðugri sókn. Félagið hefur
sinnt mörgum hagsmunamálum
og félagslegum þáttum þar með
talið nýreist félagsmiðstöð flugá-
hugamanna á Helluflugvelli. Or-
yggismál hafa verið ofarlega á
baugi á tímabilinu og var því ör-
yggisnefnd Flugmálafélagsins
sett á laggimar snemma árs 1987.
Þessi néfnd, sem er undir foiystu
Stefáns Sæmundssonar, hefur
starfað ötullega að ýmsum mál-
efnum er varða auknu öryggi í
öllum greinum áhugaflugs. Stjóm
félagsins lét einnig tii sín heyra
á opinberum vettvangi varðandi
framtíðarskipan flugkennslumála
í landinu.
Aðildarfélög Flugmálafélagsins
eru nú tuttugu og tvö um land
allt með á sjöunda hundrað félags-
manna. Á þeim tveimur árum sem
liðnar eru frá síðasta landsþingi
hafa alls þijátíu og þijár keppnir
verið haldnar í hinum flölbreyti-
legum flugíþróttagreinum þar af
níu íslandsmót og eitt Norður-
landamót.
Flugmálafélagið tekur nú virk-
ari þátt en áður í samstarfi flug-
málafélaganna á Norðurlöndum
og hvatti Friðrik til þess að áfram
yrði haldið á sömu braut en hann
taldi að Flugmálafélagið og aðild-
arfélögin nytu bara góðs af þess-
ari samvinnu.
Friðrik Pálsson lýsti því yfir að
hann gæfi ekki kost á sér til end-
urkjörs sem forseti Flugmálafé-
lagsins, en mælti eindregið með
að fundarmenn styuddu framboð
Ragnars J. Ragnarssonar í það
embætti. í stjóm Flugmálafélags-
ins sitja alls tíu menn, forseti og
Qórir aðrir eru kosnir af lands-
þingi en til viðbótar þeim eru for-
menn sérgreinadeilda. Við stjóm-
arlcjör kom fram að auk Friðriks
Ný stjórn Flugmálafélags íslands, f.v. Ragnar J. Ragnarsson, Höskuldur Frímannsson, Stefan
Sæmundsson, Kristján Víkingsson, Ágúst Ogmundsson, Axel Sölvason og Gunnar Þorvaldsson. í
stjórninni eru einnig Birgir Siguijónsson, Hartmann Guðmundsson og Jóhann ísberg.
gáfu ekki kost á sér Davíð Jó-
hannsson, annar varaforseti og
Kári Guðbjömsson, fjármálastjóri.
Aðeins einn listi var borinn fram
og samþykktu fundarmenn kjör
hans með lófataki. Stjóm Flug-
málafélagsins er því nú þannig
skipuð: Ragnar J. Ragnarsson,
forseti, Stefán Sæmundsson,
fyrsti varaforseti, Kristján
Víkingsson, annar varaforseti,
Ágúst Ögmundsson, ritari, Hart-
mann Guðmundsson, Ijármála-
stjóri, Birgir Siguijónsson, form-
aður Fallhlífasambands Islands,
Axel Sölvason, formaður
flugmódeldeildar, Jóhann ísberg,
formaður svifdrekadeildar, Hös-
kuldur Frímannsson, formaður
svifflugdeildar og Gunnar Þor-
valdsson, formaður vélflugdeildar.
Samþykkt var á landsþinginu
að næst yrði það haldið að tveim-
ur árum liðum«á Egilsstöðum.
Morgunblaöið/PPJ
Fráfarandi forseti Flugmálafélags Islands, Friðrik Pálsson (t.h.),
óskar jiýkjömum forseta, Ragnari J. Ragnarssyni velfarnaðar í
starfi að loknu landsþingi félagsins.
Flugleiðamenn skoða Dash 8
FLUG
Morgunblaðið/PPJ
Elíeser Jónsson flugmaður framan við TF-ERR, Rockwell Turbo
Commander-flugvél Flugstöðvarinnar hf.
Ljósmyndaflug í Mið-
Afríkulýðveldinu
Morgunblaðið/PPJ
De Havilland Canada Dash 8 flugvél sem sýnd var Flugleiðamönn-
um.
FLUG
Pétur PJohnson
ELÍESER Jónsson flugmaður
og aðaleigandi Flugstöðvarinn-
ar hf. lagði af stað frá
Reykjavík snemma dags mánu-
daginn 12. desember á flugvél
sinni TF-ERR áleiðis til Mið-
Afrikulýðveldisins þar sem
hann dvelur fram eftir vetri
við ljósmyndaflugsverkefiii
fyrir kanadíska aðila.
Flugstöðin hf. keypti flugvélina
TF-ERR, sem er skrúfuþota af
gerðinni Rockwell Turbo Com-
mander, árið 1980. Gerðar voru
á vélinni ýmsar kostnaðarmiklar
breytingar til að gera hana hæfa
til Ijósmyndaflugs vegna land-
mælinga en Flugstöðin hf. hefur
um árabil séð um allt ljósmynda-
flug Landmælinga rikisins. Hér-
lendis er einungis mögulegt að
stunda Ijósmyndaflug vegna land-
mælinga yfir hásumarið og því
hefur Elíeser leitað fyrir sér um
verkefni erlendis fyrir flugvélina
sína. Frá því haustið 1981 hefur
Eiíeser flækst víða um lönd við
ljósmyndaflug á TF-ERR og hefur
m.a. verið Qórum sinnum við verk-
eftii austur í Nepal. Hann hefur
einnig verið þrívegis við ljós-
myndaflug í Líberíu í Afríku,
nokkrum sinnum í löndum við
Persíuflóann, í Gfneu í Afríku,
Bretlandi, við Aruba í Karibíuhafi
og sl. vor í vesturhluta Kanada.
Nú í haust fór Elíeser með
TF-ERR til Oklahoma-fylkis í
Bandaríkjunum þar sem vélin var
tekin í stórskoðun, skipt um ýmsa
hluti í hreyflum og vélin öll mál-
uð. Þegar heim var komið í lok
nóvember héldu margir að Flug-
stöðin hefði eignast nýja TF-ERR,
svo glæsileg er vélin orðin. En
ekki var staldrað við lengi hér
heima og verða Elíeser og TF-
ERR því í hlýrra loftslagi um jólin.
- PPJ
Pétur P. Johnson
NÚ STYTTIST óðum í ákvarð-
anatöku Flugleiða um kaup á
væntanlegum arftaka Fokker
F. 27 Friendship á innanlands-
leiðum félagsins. Sölumenn
þeirra þriggja framleiðenda
sem helst koma til greina,
fransk-ítalska samsteypan
ATR, Boeing/de Havilland frá
Kanada og Fokker frá Hol-
landi, eru tíðir gestir i höfuð-
stöðvum Flugleiða og lofsamar
hver sína flugvélategund. Sölu-
mennirnir hafa ekki ládð það
nægja að leggja fram súlurit
og hagkvæmniútreikninga fyr-
ir sinar flugvélar heldur hafa
þeir einnig komið með vélarnar
hingað til lands.
Fyrri skömmu heimsóttu fulltrúar
de Havilland Flugleiðir með Dash
8-vél sína. Þessa tilteknu vél átti
að afhenda flugfélags á Formósu,
en hafði hér viðdvöl og var sýnd
forráðamönnum félagsins og flug-
mönnum innanlandsdeildar.
De Havilland Canada, sem nú
er í eigu Boeing-samsteypunnar,
býður tvær gerðir af Dash 8 vél-
um. Minni gerðin, Dash 8 sería
100, tekur um 37-40 farþega.
Þessi útgáfa er knúin tveimur
2000 hestafla Pratt & Whitney
PW120A skrúfuhverflum og er
farflugshraði vélarinnar um 491
km/klst., sem er ívið meiri en
farflugshraði Fokker F.27. Stærri
gerðin af Dash 8, sería 300, tekur
um 50-56 farþega, en hún er
knúin aflmeiri hreyflum, 2.380
hestafla Pratt & Whitney PW123
skrúfuhverflum. Báðar útgáfur
Dash 8 geta athafnað sig frá þeim
flugbrautum sem flugvélar Flug-
leiða nota í dag.
Farþegarými Dash 8 er bjart
og rúmgott. Skipan sæta í far-
þegarými er svipað því sem er í
Fokker F.27 þ.e.a.s. að sætin eru
fjögur í hverri röð með gangveg
fyrir miðju, en yfir sætunum eru
lokuð hólf þar sem farþegar geta
geymt handfarangur og yfirhafn-
ir. Farþegadyr eru að framan-
verðu, en lestarrými fyrir farang-
ur og vörur, sem tekur um 8,5
rúmmetra, er aftan við farþegarý-
mið og fer hleðsla um sérstakar
dyr. Ef farþegaflutningar eru litl-
ir og vöruflutningar þeim mun
meiri er hægt að stækka lestar-
tými Dash 8 með því að fækka
sætum og færa þilið sem er á
milli farþega- og lestarrýmis fram
eftir þörfum. Þetta fyrirkomulag
þekkja margir farþegar á innan-
landsleiðum Flugleiða frá gömlu
F.27 vélunum, en í þeim er lestar-
rýmið að framanverðu og færist
þilið því aftur eftir vélinni.
Fyrsta flugvélin afhent
íárslok 1984
Fyrsta flugvél af gerðinni de
Havilland Dash 8 var afhent frá
verksmiðju í árslok 1984, en vélin
sem sýnd var Flugleiðum nú er
sú 111. af framleiðslulínunni. Alls
hefur de Havilland selt um tvö
hundruð fimmtíu og tvær Dash 8
flugvélar, en þar af eru fjörutíu
og átta af stærri gerðinni. Kaup-
verð minni útgáfunar af Dash 8
er 7-7,5 milljónir Bandaríkjadala,
eða 318-341 milljón króna, en
meðalverð stærri gerðarinnar er
um 8,8 milljónir dalir, eða um 400
milljónir króna.
Stjómendur Flugleiða eru nú
að yfirfara rekstur innanlands-
flugs félagsins. Verið er að skil-
greina flugvélaþörf innanlands-
flugsins miðað við flutningsmagn
viðkomustaða, ferðatíðni og stærð
flugvéla. Þess er að vænta að nið-
urstöður þessara athugana liggjá
fyrir eftir áramótin og verður
ákvörðun um framtíðar flugvéla-
kost innanlandsflugsins væntan-
lega tekið næsta vor.