Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
lOLMl'JL'O
IbLANUÍD
mmmsmmmmmmmmm.
SKAMM
TÍMABREF
Sennilega hefurðu alltaf lagt
þigfram um að hugsa vel um
eigur þínar oggœtt þeirra vel. En gildir það sama
um lausafé þitt? Hefurðu athugað hvar það er
best geymt eða lælurðu vanann ráða og stitigur
því undir kodda eða inn á bankabókina? Peir
þeningar sem þú hefur til umráða í skamman
tíma, geta líka borið umtalsverða vexti á
Skammlímabréfum Kauþþings. Pannig geturðu
nýtt til hins ýtrasta lágar sem háar uþþhœðir, sem
þú þarft að gríþa til innan skamms. Og það án
þess að binda féð eða greiða hið mimista
innlausnargjald eða annan koslnað.
Skammtímabréf henta öllum, því þau eru til í
einingum alltfrá 10.000 kr. til 500.000 kr.
Bréfin erhœgt að innleysa nœrri fyrirvaralaust og
þau eru fyllilega örugg, eingöngu ávöxtuð í
bönkum, sparisjóðum og hjá opinberum
fjármagnsstofnunum. Aœtluð ávöxtun fjár á
Skamrntímabéfum er 8—9% umfram verðbólgu,
en það þýðir í raun allt að Jjórfalt hcerri
raunvexti en fá má á venjulegum bankareikningi.
Látlu verða meira úr peningunum þínum, á
Skammtímabréfum.
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 15. DES. 1988
EININGABRÉF 1 3.394,-
EININGABRÉF 2 1.928,-
EININGABRÉF 3 2.213,-
LlFEYRISBRÉF 1.706,-
SKAMMTlMABRÉF 1.184,-
Framtíðaröryggi ífjármálum
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar, sími 91-686988 og
Ráðhústorgi 5 á Akureyri, sími 96-24100
Orðagjálfur
í kvöldfréttum hljóð-
varps ríkisins í fyrra-
kvöld var töluvert upp-
nám, þegar skýrt var frá
yfirlýsingu sem
Steingrímur Hermanns-
son hafði gefið á Alþingi
nokkrum mínútum fyrir
fréttatímann og gekk út
á það að þvf er skilja
mátti, að ríkisstjórain
ætlaði að falla frá þeim
ákvæðum í bráðabirgða-
lögum fyrrverandi ríkis-
sfjórnar, er binda alla
kjarasamninga til 15.
febrúar næstkomandi.
Samkvæmt því yrðu þá
kjarasamningar ýmissa
launþega lausir 1. janúar
næstkomandi. Var ekki
unnt að skilja Ogmund
Jónasson, nýkjörinn
formann BSRB, á annan
veg en þann, að mikill
sigur hefði unnist og lét
hann að þvi liggja að þar
hefði fundur BSRB á
laugardag ráðið miklu.
Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, taldi það
„stórkostlegt" að stjóra-
málamenn sæju þannig
að sér.
Um ldukkan átta þetta
sama kvöld hittust þeir
Steingrímur Hermanns-
son og Ásmundur Stef-
ánsson í beinni útsend-
ingu á Stöð 2. Umræð-
uraar hófúst á þvf að
Ásmundur endurtók orð-
ið „stórkostlegt" en þeg-
ar leið á þær kom annað
hljóð f strokkinn. Það
kom nefhilega f ljós, að
Steingrimur vissi ekki
gjörla hveiju hann hafði
verið að lofa eða hveiju
hann ætlaði að breyta.
Var helst að skilja orð
hans þannig að með þvf
að fella á brott ákvæði
um bann við verkfidli og
verkbanni gætu hafist
viðræður við launþega-
hreyfinguna um kaup og
kjör en á hinn bóginn
gætu engar breytingar á
kjarasamningum orðið
fyir en eftir 15. febrúar.
í ljós kom sem sagt,
að það sem Ogmundur
Jónasson hafði talið sig-
ur í mannréttindabaráttu
BSRB var ekki annað en
Ögmundur Jónasson Steingrímur Hermannsson Ásmundur Stefánsson
Sérkennileg uppákoma
Sérkennileg uppákoma var á Alþingi í fyrradag, þegar Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra, sagðist ætla að breyta bráða-
birgðalögum fyrrverandi ríkisstjórnar og heimila samninga um kaup
og kjör án þess að gera síðan nokkra tillögu um slíka breytingu.
Ástæðan fyrir þessari uppákomu var sú, að forsætisráðherra sá
fram á, að stjórnarliðar ætluðu ekki að greiða atkvæði með lögun-
um. Vildi hann reyna að friða alþýðubandalagsmenn og krata. í
sjónvarpsumræðum á Stöð 2 kom svo fram, að forsætisráðherra
virtist meina allt annað en hann sagði.
pólitískur skollaleikur,
orðagjálfur sem engu
breytti. Ásmundur Stef-
ánsson hætti einnig að
nota orðið „stórkostlegt"
og fyrir seinni fréttir
rfkisútvarpsins hafði
hann breytt yfirlýsingu
sinni og dregið úr fiign-
uði sínum.
Engin lög hafa bannað
launþegum og atvinnu-
rekendum að ræða sam-
an um kaup og kjör.
Rfkisstj órninni er f sjálfs-
vald sett þrátt fyrir
bráðabirgðalögin að
ræða við forystu BSRB
um laun _ opinberra
starfemanna. Á hinn bóg-
inn er að óbreyttum lög-
um ekki unnt að hreyfa
við kjarasamningum fyrr
en 15. febrúar og við þvf
ætlaði Steingrfmur Her-
mannsson ekki að hrófla.
Óðagot
Efhishlið þessa máls
hefur verið rakin f stór-
um dráttum hér að ofiui.
Þegar hún er skoðuð er
ekki unnt annað en undr-
ast óðagotið á höfúð-
persónum þessarar uppá-
komu. Svo virðist sem
þær hafi allar farið fram
á Qölmiðlasviðið án þess
að vita, hvað var þar til
umræðu, og samt haft
afdráttarlausa skoðun á
umræðuefhinu.
Þátttaka f störfúm á
opinberum vettvangi
hvort heldur þar eru
stjómmálamenn eða aðr-
ir á ferð tekur nú orðið
svo mikið mið af þvf að
slá sér upp í fiölmiðlum,
að alltof algengt er að
menn láti þann þátt leiks-
ins ráða meiru en efni
málsins. Ef til vill má
rekja óðagot forsætis-
ráðherra til þess að hann
dvaldist f útlöndum f
sfðustu viku og þess
vegna hafi hann talið
nauðsynlegt fyrir sig að
„komast á ný inn í um-
ræðuna", svo að notuð
séu orð sem Ólafi Ragn-
ari Grímssyni, Qármála-
ráðherra, hafh lengi ver-
ið töm. Réðu þau ekki
minnstu um að Alþýðu-
bandalagið fór með óða-
goti inn f rfkisstjórnina.
Og nú keppist Ólafúr
Ragnar við að demba
frumvörpum inn á þing
að þvf er virðist til þess
eins að hann geti sagt,
að haim hafi lagt þau
fram, þvf að hann hefúr
ekki tryggt framgang
neins þeirra.
Léleg sljórn
í Morgunblaðsgrein á
þriðjudag vék Halldór
Blöndal, þingmaður
Sjálfetæðisflokksins, að
starfeháttum ríkisstjóra-
arinnar með þessum orð-
um:
„Ríkisstjórnin er þeirr-
ar skoðunar, að skattar
hér á landi séu almennt
of lágir af þvf að þeir séu
hærri f kringum okkur.
Ég hef ekki borið það
saman, en ókunnugir eru
þeir menn fslenskri
pólitfk, sem halda, að
þetta sjónarmið geti fall-
ið saman við grundvall-
armarkmið sjálfetæðis-
stefhunnar. Það er auð-
vitað skylda þingmanna
Sjálfetæðisflokksins að
beijast fyrir þvf að ríkis-
stjórnin fari eins fljótt
frá og kostur er. Hún
hefúr á sér öll einkenni
vinstri stjóma: Hún er
ldofin í a&töðunni til
öryggis landsins. Hún
nær ekki áttum f stóriðju-
málum. Hún sést ekki
fyrir f skattheimtu og
lætur atvinnumálin
danka. Hún er fjandsam-
leg landsbyggðinni. Hún
er hættuleg fólkinu f
landinu."
wm
■HHH
■Hi
VARASJOÐUR
LÍFEYRIR
Hvert eiga minni atvinnurekendur að leita í skakkaföllum?
Geta sjálfstæðir atvinnurekendur komið sér upp varasjóði?
Vaxtarsjóðsbréf Útvegsbankans gefa þér möguleika á því að búa til
lífeyrissjóð eða varasjóð, sem þú getur notað þegar mikið liggur við.
Dæmi: Ef þú kaupir Vaxtarsjóðsbréf hjá Útvegsbankanum fyrir 6000
krónur á mánuði verður varasjóðurinn þinn, án tillits til verðhækkana
orðinn 480.000 krónur eftir aðeins fimm ár. Miðað er við 11% ávöxtun.
Láttu okkur aðstoða þig við uppbyggingu eigin varasjóðs.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
ÚTVEGSBANKANS
SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30