Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
í ársbyrjun 1931 minntist stjórn Glímufélags-
ins Ármanns 25 ára afmælis félagsins í fjölsóttu
samsæti í Hótel Borg. Veislustjóri var Hallgrím-
ur Benediktsson, sem annast hafði formennsku
félagsins frá 1907 til 1919. Fjöldi eldri félaga
sat hófið. Meðal þeirra Sigurjón Pétursson á
Alafossi, sem undir borðum kvað einna fyrstur
upp úr með það, að félagið væri 17 árum eldra.
Hann hefði hafið æfingar 1905, hjá Pétri Jóns-
syni og teldi sig frá þeim tíma Armenning.
Fleiri virtust vakna upp við ræðu Siguijóns.
Formaður félagsins frá 1927, Jens Guðbjörns-
son, hét að beita sér fyrir nákvæmari athugun
á söguiegum atriðum um upphaf félagsins.
Það dregsttil ársins 1938, að nefnd sú skil-
aði áliti, sem tók að sér athugun á upphafi
Glimufél. Armanns. Hún náði tali af sex, sem
höfðu æft glímu, sem Ármenningar 1888—1906
og þar á meðal séra Helga P. Hjálmarssyni, sem
í nóvember 1888 hitti Pétur blikksmið Jónsson
á fúndi í stúkunni Einingin í Reykjavík. Þeir
verða þess áskynja að báðir hafa áhuga á glímu.
Þeir koma sér saman um að stofha glímudeild
innan stúkunnar. Fáum dögum síðar eru þeir
komnir út á gólf Templarahússins með nokkra
menn, sem þeir hafa fengið með sér til þess að
glíma. Líkast til hefur verið erfitt að fá inni
fyrir glímuæfingar, því að 15. desember safn-
ast 20—30 manna hópur saman á túnbletti inn
undir Rauðará. Sá nefiiist Skellur og var þar
sem Stjörnubíó er nú við Laugaveg. Þegar hlé
var á viðureignum, ávarpaði Pétur blikksmiður
hópinn og stakk upp á að þeir bindust í félags-
skap og kölluðu hann Ármann. Tillögurnar voru
samþykktar með fagnaðarhrópum. Engin stjórn
var kosin en samin var nafiiaskrá.
Að lokinni fyrstu Skjaldarglímu Ármanns 1908. Standandi fyrir aftan þá sem sitja, þeir 5órir,.sem lengi voru fremstir
glímumanna Ármanns, taldir frá vinstri: Jónatan Þorsteinsson, Hallgrímur Benediktsson, Siguijón Pétursson og Guð-
mundur Stefánsson. Sitjandi lengst til hægri er Guðmundur Guðmundsson frá Eyrarbakka.
Glímufélagið Armann 100 ára
DRÖG
AÐSÖGU
FYRSTU
ÁRANNA
eftir Þorstein
Einarsson
Glímustjórar eða kenn-
arar voru þeir Pétur,
Helgi og Guðlaugur
Guðmundsson, mála-
færslumaður, síðar
bæjarfógeti á Akureyri. Hann var
skólasveinn I Lærða skólanum um
1870, er þar var mikill glímuáhugi.
Á æfíngar hjá Ármanni kom Páll
Melsteð sagnfræðingur og dómari
var hann við tvær fyrstu kapp-
glímumar (1889 og 1890). Helgi
P. Hjálmarsson, sem verður sóknar-
prestur að Helgastöðum í Reyk-
dælahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu
1893 og síðar að Grenjaðarstað
(1911-30) í sömu sýslu, gat þess
við nefndina, sem kannaði sögu
Ármanns, að: „Glímureglur voru
sniðnar eftir glímureglum frá
Bessastaðaskóla enda var Páll Mel-
steð sögukennari oft á æfingum og
dómari við fyrstu kappglímurnar."
Undir þetta tók Sveinn Ámáson,
yfirfískmatsmaður, sem kom í fé-
lagið 1897 og samdi með teimur
öðmm lög fyrir félagið og glímu-
reglur. Vegna þess að fyrstu Ár-
menningamir voru svo hugsunars-
amir að fá öldunginn Pál Melsteð
á æfíngar til sín og í dómnefndir,
þá vinna þeir viðhaldi „réttrar"
glímu ómetanlegt gagn.
Páll var skólasveinn í Bessa-
staðaskóla 1828—1834 og tók virk-
an þátt í íþróttavenjum skólapilta,
enda að eðlisfari leikfús. Hann hélt
þeirri hneigð til dauðadags 1910. í
endurminningum, sem hann skrif-
aði 1887 og 1892 gefur margt að
lésa um glímu, aðrar íþróttir og
leiki. Stórum kafla og merkum fyr-
ir sögu glímunnar lét hann Ólafi
Davíðssyni í té og er hann í: Islensk-
ar gátur, þulur og skemmtanir, en
það rit var gefíð út í Kaupmanna-
höfn í lok síðustu aldar.
Leiðbeiningar Páls Melsteð á
glímuæfingum hins unga Ármanns-
félags og störf á kappglímum þess,
tengir glímuiðkun félagsins við
f • f í , í 'ian-arí
glímuvenjur á biskupssetraskólun-
um í Skálholti og á Hólum. Um
aldamótin 1800 hurfu skólapiltar
frá Skálholti og Hólum, og söfnuð-
ust í Reykjavíkurskóla (Hólavalla-
skóla). Þeir fluttu með sér skóla-
venjur, þar á meðal voru glímuiðk-
anir. Páll Melsteð greindi frá, að
faðir hans, sem útskrifaðist úr
Bessastaðaskóla 1810, hafi getið
þess, „að þá voru þar karlmenni
og glímumenn nokkuð margir,
þangað komnir úr Reykjavíkur-
skóla" (Hólavallaskóla). Af þessu
má greina þráðinn milli glímuæf-
inga Ármenninga undir lok 19. ald-
ar og glímuiðkana skólasveina bisk-
upssetraskólanna í lok 18. aldar,
Hólavallaskóla í Reykjavík og
Bessastaðaskóla á fyrri hluta 19.
aldar.
Affararíkast mun að rekja þráð-
inn inn í nútímann með því að stikla
á annálabrotum úr elsta kafla Ár-
mannssögunnar:
1889: Æft í Templarahúsinu.
Fyrsta verðlaunaglíman. 1.
verðlaun: Helgi P. Hjálmars-
son (Mývetningur) 2. Einar
Þórðarsson (af Fljótsdals-
héraði); 3. Friðrik Gíslason
(Vestmannaeyingur).
1890: Stjórnendur félagsskapar-
ins: Pétur Jónsson og Helgi
P. Hjálmarsson. Æft í
Templarahúsinu. Önnur
kappglíman. 1. verðlaun:
Helgi P. Hjálmarsson; 2.
Friðrik Gíslason; 3. Frey-
steinn Jónsson (sjómaður,
hvaðan ókunnugt). Daníel
Daníelsson, ljósmyndari tók
mynd af þeim þremur vinn-
ingshæstu. Páll Melsteð var
í dómnefnd keppninnar sem
í þeirri fyrstu ásamt Guð-
laugi Guðmundssyni og séra
Einari Þórðarsyni.
1891 og 1892: Æft í Templarahús-
inu tvisvar og þrisvar í viku,
bæði að sumri og vetri.
Stjórnendur Pétur Jónsson
og Helgi P. Hjálmarsson.
1893: Æft í Framfarafélagshúsinu
og efnt til funda. Haldnar
glímusýningar. Helgi P.
Hjálmarsson flutti að Helga-
stöðum í Laxárdal í Suður-
Þingeyjarsýslu og gerðist
prestur. Stjóm og kennsla
hvíldu á Pétri blikksmið.
Ásgeir Gunnlaugsson var þá
14 ára (síðar kaupmaður í
Reykjavík) og í félaginu.
Hann var einn þeirra sex,
Pétur Jónsson (1856—1908)
fæddur og uppalinn í Þingvalla-
sveit. Var blikksmiður í
Reykjavík og dó þar. Stofiiandi
Glimufélagsins Ármanns og gaf
félaginu nafn. Aðalkennari 1906.
sem 1938 greindi frá félags-
störfum í lok 19. aldar. Fé-
lagar þá 40 en urðu fljótlega
60.
1894: Æft í Framfarafélagshúsinu
og þar fundir, en einnig æft
í pakkhúsi austur í bæ, fisk-
húsi niður við sjó og vestur
í Hlíðarhúsasandi. Sýningar.
Pétur Jónsson aðalstjórn-
andi. Helgi P. Hjálmarsson
kom að norðan til að taka
prestsvígslu. Hann spurði þá
uppi félagið og komst að því
að það var vel starfandi.
1895: Æfingar í pakkhúsi, fisk-
húsi, fjörusandi og á grasflöt
Sverris steinsmiðs Runólfs-
sonar á Melunum. Dauft yfir
félaginu.
1896: Æft aftur í Framfarafélags-
húsinu. Glímusýning.
1897: Æft þrisvar í viku að vetrar-
lagi en tvisvar að sumrinu
og þá á grasflötinni á Melun-
um. Um haustið fékkst inni
í Breiðfjörðshúsi (Fjalakett-
inum) en þar var upphitað.
Á sunnudögum var æft í
tvær til þtjár klukkustundir.
Sveinn, síðar yfirfiskmats-
maður, einn sexmenning-
Guðmundur Þorbjörnsson
(1878—1955) fæddur á Akranesi.
Byggingameistari á Akranesi, í
Reykjavík og á Seyðisfirði. Aðal-
kennari Ármenninga 1905—1907,
þó einkum þeirra yngri, t.d. Sig-
uijón Pétursson, Hallgrím Bene-
diktsson og Guðmund Stefáns-
son.
anna sem nefndin átti viðtöl
við, lét hafa það eftir sér:
„ .. .fjöldi manns sem æfði.“
Glímusýningar við og við.
Þorgrímur Jónsson frá Skip-
holti í Hrunamannahreppi,
síðar veggfóðrari og bóndi í
Lauganesi, gerist félagi og
mjög virkur glímumaður.
Einn sexmenninganna, sem
greindi frá sögu Ármanns
um aldamót. Kappglíma: 1.
Þorgrímur Jónsson; 2. Guð-
mundur Guðmundsson, Eyr-
bekkingur; 3. Sigfús Einars-
son (?); 4. Einar Þorgilsson,
Hafnfirðingur. Efnt til
bændaglímu. í fyrsta sinni
kosin stjórn. Formaður: Pét-
ur Jónsson; Valgarður 0.
Breiðfjörð, Þorgrímur Jóns-
son. Samþykkt árgjald (kr.
2.00). Áður kostnaði jafnaði
á félaga. Ráðinn ritari og
gjaldkeri. (Sá hinn sami
fluttist 1899 til Ameríku og
þá glötuðust bækur félags-
ins.)
1898: Æft í Breiðfjörðshúsi tvisvar
í viku (þar upphitað) og þar
fundir. Stjóm sú sama og
1897. Erlendur Erlendsson
Guðmundur Guðmundsson
(1876—1967). Var kosinn formað-
ur Glímufélagsins Ármanns
1906. Kaupmaður á Eyrarbakka
og Selfossi, þar sem hann lést.
frá Miklaholti (hvaða
hreppi?), góður glímumaður,
verður 1938 til þess að
greina frá starfi Ármanns
fyrir sl. aldamót. í félaginu
70—80. Kappglíma á þjóð-
minningardegi 2. ágúst: 1.
Þorgrímur Jónsson; 2. Chr.
Ziemsen (Reyvíkingur); 3.
Jón Gíslason (hvaðan?).
„Medalíur" fengu: Magnús
Hannesson (hvaðan?) og Er-
lendur Erlendsson.
1899: Æft í Breiðfjörðshúsinu að
vetri tvisvar í viku en um
sumarið oftar og þá úti við.
í stjórn: Bjamhéðinn Jóns-
son, Jónatan Þorsteinsson
og Sveinn Árnason.
Þorgrímur Jónsson fer aust-
ur til sinna heimkynna um
sinn. Pétur Jónsson heldur
enn um stjórnvölinn og er
glímustjóri. Glímusýning.
Kappglíma 2. ágúst: 1. Guð-
mundur Guðmundsson frá
Eyrarbakka; 2. Valdimar
Sigurðsson, sjómaður og 3
Erlendur Erlendsson. Félag-
inu samin lög og settar
glímureglur, sem voru í sam-
ræmi við þær sem Helgi P.