Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 41
V
t
°4i
Krabbameinskort af Norðurlöndum:
Magakrabbi algengastur
nyrst í Norður-Evrópu
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
að magakrabbi er lítt þekktur á
Alandseyjum, og ýtir það undir,
að rannsakað verði, hvað Álend-
ingar leggja sér til munns í mat
og drykk. Fæðurannsóknir eru
dýrar og erfiðar, en danska
krabbameinsfélagið hefur þegar á
ptjónunum að láta til sín taka á
því sviði.
Hvítt brauð
Á norræna krabbameinskortinu
sést einnig, hvar húðkrabbi er
algengastur. Að öllum líkindum
eiga yfirdrifín sólböð sinn þátt í
þeirri tegund krabbameins —
einkum hjá bláeygu og ljóshærðu
fólki. Húðkrabbatilfellin eru
langtum fleiri á Kattegat-svæð-
inu, í Kaupmannahöfn ásamt ná-
grenni og á ákveðnum bað-
strandasvæðum heldur en í Norð-
ur-Skandinavíu og Jótlandi. Fólk
á þéttbýlissvæðum fer miklu oftar
í sólböð og á sólbaðsstofur en
landar þess í stijálbýlinu, auk
þess sem það sækir meira í sólar-
landaferðir, að mati Ole Amdrups.
Dönskum karlmönnum er
helmingi hættara við að fá
krabbamein í endaþarm en kyn-
bræðrum sínum annars staðar á
Norðurlöndum. - Það stafar ef til
vill af því, að við héldum okkur
eingöngu við hvítt brauð fyrir
10-15 árum, þegar Finnar neyttu
trefjaríks brauðs, segir Ole Amd-
rup.
Hann segir, að það sé athyglis-
vert að skoða, hverjir það séu
helst, sem nú fá krabbamein í
endaþarm. Þar sé nefnilega um
að ræða kynslóð karla, sem etið
hafi fábreyttan mötuneytismat á
vinnustað og ef til vill drukkið
bjór með, en eiginkonur þeirra
verið heimavinnandi og fengið
fjölbreyttari fæðu.
En Ole Amdrup minnir enn á,
að hér sé fremur um getgátur en
vitneskju að ræða. Og þrátt fyrir
nálægð jólanna segir hann:
- Meðan við vitum ekki meira um
þetta en raun ber vitni, læt ég
nægja að hvetja fólk til að borða
grænmeti og grófmeti, en forðast
feitmeti.
Útverðir Norðurlandabúa í norðri eta mikið af söltuðum og reykt-
um mat. Skyggðu svæðin á kortinu sýna, hversu mjög slík fæða
eykur hættuna á magakrabbameini.
DÖNUM er hættara en öðrum Norðurlandabúum við að fá krabba-
mein, að þvi er fram kemur i niðurstöðum viðamikillar rannsókn-
ar, sem norrænu krabbameinsfélögin hafa staðið fyrir. Þau hafa
látið gera krabbameinskort af Norðurlöndunum og kemur þar
ymislegt athyglisvert í ljós.
Magakrabbamein er sjaldgæf-
ara í Danmörku en annars staðar
á Norðurlöndum, en algengast er
það á íslandi, í Finnlandi og Norð-
ur-Noregi og stendur það ef til
vill í sambandi við þá hefð í þess-
um löndum að salta og reykja
matvæli.
- Verði slímhimnan innan á
magaveggnum fyrir stöðugri ert-
ingu frá mikið saltaðri fæðu, get-
ur afleiðingin orðið magakrabba-
mein, segir Ole Amdrup yfirlækn-
ir hjá danska krabbameinsfélag-
inu í viðtali við Det Frí Aktuelt í
tilefni af útkomu kortsins.
Hann segir enn fremur, að
áfengisneysla Finna (sterkt
áfengi en ekki bjór) kunni að hafa
svipuð áhrif, en leggur áherslu
á, að enn sé mjög lítið vitað um
samband mataræðis og krabba-
meins.
Á kortinu sést meðal annars,
Til og með
16. desember
næstkomandi
getur þú lagt inn á
Afmælisreikning
1 Landsbankans
O
I og fengið
7,25% ársvexti
umfram verð-
tryggingu næstu
15 mánuðina.
\ HEIÐALAMBIÐ í
SB LJÚFFENGA
Bergstaðastræti 37.
í hádeginu á sunnudögum
Yegna Qölda áskorana höfum við nú ákveðið að endur-
taka lambakjötskynninguna næstu sunnudaga.
18. desember: Fylltar lambasneiðar m/kryddjurtasósu
Ávaxtarjómarönd m/karamellusósu
Verð kr. 895.- fyrir fulloröna og kr. 400.- fyrir börn