Morgunblaðið - 15.12.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. tDESEMBER 1988
--
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem
glöddu mig á 85 ára afmœli mínu þann 24.
nóvember sl. meÖ heimsóknum, blómum,
kveöjum og gjöfum.
Guö blessi ykkur öll!
MeÖ bestu jólakveÖjum,
Jón Kr. Elíasson
frá Bolungarvík.
Blaðbemr
Síi na r354l )8 og 83033
AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Sóleyjargata o.fl. Kársnesbraut 77-139 o.fl.
Eskihlíð 5-15 Víðihvammur
Laugarásvegur 39-75 Fífuhvammsvegur
Dyngjuvegur
GRAFARVOGUR ■ SELTJARNARNES
Hverafold Hrólfsskálavör
Wm fHttgtnll
Áskriftarsíminn er 83033
Fóstrur og fóstruliðar
eftir Guðmund
Magnússon
Síðastliðinn mánudag, 12. des-
ember, gekk höfundur þessarar
greinar ásamt Selmu Dóru Þor-
steinsdóttur, formanni Fóstrufélags
íslands, á fund Svavars Gestssonar,
menntamálaráðherra, og afhenti
honum niðurstöður svonefndrar
Fósturskólanefndar. Það var Birgir
ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra, sem skipaði
nefndina og fól henni að gera tillög-
ur um framtíðarskipan á menntun
fóstra og annars starfsfólks er vinn-
ur að uppeldisstörfum á dagvistar-
heimilum. Ég var formaður nefnd-
arinnar og auk okkar Selmu Dóru
voru í nefndinni Anna K. Jónsdótt-
ir, formaður stjómar Dagvistar
bama í Reykjavík, Gyða Jóhanns-
dóttir, skólastjóri Fósturskólans,
Jónas Pálsson, rektor Kennarahá-
skólans og skólameistarar Verk-
menntaskólans á Akureyri, fyrst
Bernharð Haraldsson og síðar Bald-
vin J. Bjarnason. Með nefndinni
starfaði Stefán Ólafur Jónsson,
deildarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu, en hann þekkir skólakerfi
okkar betur en flestir aðrir.
Menntamálaráðherra kvaðst
ætla að kynna sér tillögur nefndar-
innar og taka afstöðu til þeirra fyr-
ir áramót.
í fæstum orðum sagt varð niður-
staða meirihluta nefndarinnar sú,
að leggja til að framvegis verði
gert ráð fyrir tveimur starfsstétt-
um til að annast böm á dagvistum.
Annars vegar fóstrum og hins veg-
ar fóstruliðum. Til fyrrnefnda
hópsins teljast þeir sem lokið hafa
námi frá Fósturskóla íslands og
fyrirrennurum hans eða sambæri-
legum skólum erlendis og síðar, ef
farið er að tillögu nefndarinnar,
fóstmdeild Kennaraháskóla ís-
lands. Til síðamefnda hópsins telj-
ast þeir sem ljúka námi á fóstruliða-
brautum framhaldsskóla, verði þær
stofnaðar eins og nefndin leggur til.
Báðum þessum stéttum, fóstrum
og fóstruliðum, er ætlað að sinna
uppeldi og umönnun barna, en hug-
myndin er sú að þær skipti verkum
á milli sín og eftir nánari reglum
svo sem alsiða er á vinnustöðum
þar sem störfin em fjölbreytt. Má
í þessu sambandi benda á vinnustað
eins og sjúkrahús, þar sem fjöl-
margir hópar með ólík starfsheiti
og ólíka menntun hafa með höndum
hjúkmn og umönnun sjúklinga.
Nefndin gerir það að tillögu sinni
að forstöðumenn dagvista og þeir
starfsmenn er sjá um stjórnunar-
og/eða skipulagsstörf hafi hlotið
fóstmmenntun. Fóstmliðum er
síðan ætlað að vinna að afmörkuð-
um uppeldis- og kennsluverkefnum
„Báðum þessum stétt-
um, fóstrum og fóstru-
liðum, er ætlað að sinna
uppeldi og umönnun
barna, en hugmyndin
er sú að þær skipti
verkum á milli sín og
eftir nánari reglum svo
sem alsiða er á vinnu-
stöðum þar sem störfin
eru Qölbreytt. Má í
þessu sambandi benda
á vinnustað eins og
sjúkrahús, þar sem flöl-
margir hópar með ólík
starfsheiti og ólíka
menntun hafa með
höndum hjúkrun og
umönnun sjúklinga."
undir handleiðslu fóstra. Það þýðir
að sjálfsögðu ekki að fóstmr verði
framvegis aðeins skrifstofumenn
eða eitthvað álíka, enda stendur
hugur þeirra ekki til þess. Nær
sanni er að segja að þetta skipulag
gefi fóstmm fleiri tækifæri en nú
til að huga að og sinna einstaklings-
bundnum þörfum barna. Þetta
skipulag ætti líka að geta gert upp-
eldi og menntun bama á dagvistum
markvissari, bömunum, fjölskyld-
um þeirra og þjóðfélaginu öllu til
heilla.
Fósturskólinn sameinaður
Kennaraháskólanum
Nefndin gerir það að tillögu sinni
að Fósturskóli íslands verði lagður
niður innan fimm ára og sameinað-
ur Kennaraháskóla Islands. Mennt-
un fóstra verði framvegis innan
sérstakrar fóstmdeildar í Kennara-
háskólanum. Til þess liggja ýmis
rök, ekki síst þau að störf kennara
og fóstra em eðlislík og veigamikl-
ir þættir í fræðilegum gmnni
menntunar þeirra í höfuðatriðum
hinir sömu. Að auki skarast störf
þessara stétta nú þegar, þar sem
bæði fóstmr og kennarar hafa rétt
til að kenna 6 ára bömum í gmnn-
skólum. Sameining skólanna ætti
að geta komið Fósturskólanum út
úr faglegri einangmn og leitt til
margvíslegrar hagræðingar vegna
sameiginlegrar nýtingar á húsnæði,
bókasafni, kennumm, námskeiðum,
vinnustofum o.þ.h. Verður að telja
sérstaklega brýnt að hefja vinnu
við sammna skólanna nú þegar, ef
menn em á annað borð samþykkir
tillögunni, þar sem um þessar
mundir er verið að vinna að því að
endurskipuleggja nám og kennslu
í Kennaraháskólanum á gmndvelli
nýrrar löggjafar um skólann.
Rétt er að fram komi að skóla-
nefnd Fósturskóla íslands er ein-
dregið hlynnt sameiningu skólanna
tveggja, sama er að segja um
Fóstmfélag íslands og skólaráð
Kennaraháskólans ályktaði fyrir
skömmu að ekki væri óeðlilegt að
hugsa sér sammna skólanna í
framtíðinni. Ráðið taldi að slík sam-
eining krefðist langs undirbúnings
sem og þess að viðkomandi skólar
fengju tíma til að þróa áfram starf-
semi sína sem nú væri á margan
hátt í endurskoðun. Að mati undir-
ritaðs kemur tillaga fósturskóla-
nefndar um fímm ára aðlögun-
artíma til móts við þessi sjónarmið
skólaráðsins.
Hin jákvæða afstaða allra þess-
ara aðila er mjög gleðileg og hlýtur
að greiða fyrir framgangi málsins
í menntamálaráðuneytinu og á Al-
þingi. Að vísu verður að koma fram
að skólastjóri Fósturskólans er
bæði andvíg sammnanum við Kenn-
araháskólann og stofnun fóstmliða-
brautar í framhaldsskólum, en ætla
verður að þar ráði einkum ferðinni
misskilningur um eigin hagsmuni
skólastjórans. Ég er sannfærður um
að rómaðir hæfileikar hennar
myndu ekki nýtast síður í upp-
Uyggingu fóstmdeildar Kennarahá-
skólans en í Fósturskólanum í nú-
verandi mynd. Annars væri það
mikil skammsýni ef sérhagsmuna-
viðhorf eins einstaklings væm látin
ráða ferðinni, þegar stefnan í þess-
um mikilvæga málaflokki verður
mörkuð í menntamálaráðuneytinu.
Fóstruliðabraut í
firamhaldsskólum
Hin megintillaga nefndarinnar
er að stofnað verði til starfsnáms
fyrir svonefnda fóstmliða í fram-
haldsskólum um land allt. Hér er
um að ræða hóp sem áður hefur
verið nefndur aðstoðarfólk á dag-
vistarheimilum eða ófaglærðir
starfsmenn. Hugmyndir hafa lengi
verið uppi um að koma á fót fram-
haldsskólanámi til uppeldisstarfa,
en ekkert orðið úr framkvæmdum.
Málið hefur tvívegis verið tekið upp
á Alþingi fyrir fmmkvæði Kristínar
Kvaran, en ekki hlotið stuðning.
Hér er sérstaklega um mikið
hagsmunamál landsbyggðarinnar
að ræða, því það er ýmsum erfið-
leikum bundið að þurfa að sækja 3
ára fóstmnám til Reykjavíkur. At-
hugun fósturskólanefndar leiddi í
ljós að dijúgur hluti nemenda Fóst-
urskólans er af landsbyggðinni og
meirihlutinn hefur á undanförnum
ámm átt lögheimili utan Reykjavík-
ur. Því miður er reyndin sú að fáar
brautskráðar fóstmr af lands-
byggðinni snúa aftur til heima-
Stjórn Félags kvikmyndagerðarmanna um seinni fréttir:
Skemmdarverk á kvikmyndum
Kannað hvort hlé brýtur í bága við
höfundarrétt segir útvarpsstjóri
STJÓRN Félags kvikmyndagerð-
armanna hefur ritað útvarps-
stjóra, Markúsi Erni Antonssyni,
bréf með gagnrýni á að útsend-
ing kvikmynda er tíðum rofin í
dagskrá Sjónvarpsins til þess að
skjóta inn seinni fréttum. Þetta
kalla stjórnarmennirnir
skemmdarverk á kvikmyndum.
í bréfínu segir svo: „I síðasta
mánuði hefur borið við hjá Ríkisút-
varpi-Sjónvarpi, að í miðri kvik-
mynd er sýning stöðvuð, kannski í
miðju atriði, til að koma að almenn-
um fréttum og auglýsingum. Um
það bil tuttugu mínútum síðar er
svo tekið til við að sýna afganginn
af myndinni."
Stjóm FK hvetur útvarpsstjóra
til að veita þessu athygli og sagt
er að þetta sýningarrof stríði gegn
hagsmunum bæði áhorfenda og
höfunnda kvikmynda. „Að slíta þær
úr eðlilegu samhengi eða búta þær
í sundur með óskyldu efni flokkast
undir skemmdarverk á kvikmynd-
inni og gerir áhorfendum ómögu-
legt að njóta þeirra á þann hátt sem
höfundur ætlast til.“
Stjóm FK minnir á höfundalög
og segir að þessi sýningaraðferð
bijóti í bága við þau. „Stjóm Félags
kvikmyndagerðarmanna skorar á
þig að fela viðkomandi deild að
endurskoða þetta fyrirkomulag,"
segir í lok bréfsin^ til útvarpsstjóra.
Markús Öm Antonsson útvarps-
stjóri sagði í gær, að hann hefði
vísað málinu til framkvæmdastjóra
Sjónvarpsins til athugunar og af-
greiðslu. Hann hefur ekki skilað
áliti sínu. Markús kvaðst ekki geta
sagt hver niðurstaðan yrði, en at-
huga þyrfti hvort slíkt hlé á sýningu
kvikmynda bryti á einhvern hátt í
bága við samninga eða lög um höf-
undarétt. Hann minnti á að slík hlé
væru á engan hátt einsdæmi, á
Norðurlöndum tíðkist að senda út
fréttir í hléum sem þessum og altítt
sé að kvikmyndahús hafi hlé á sýn-
ingum kvikmynda.
Klukkubók
fyrir börn
Bókaútgáfan Setberg hefur
endurútgefið Klukkubókina.
í kynningu Setbergs segir m.a.:
„Þetta er hai;ðspjaldabók með
klukku og vísarnir hreyfanlegir.
Klukkan átta fer ég á fætur, klukk-
an níu borðum við öll morgunverð-
inn, klukkan þijú leikum við okkur
í sandkassanum og byggjum kast-
ala og mjög falleg hús. Snati horfír
á. Klukkan sjö fer ég í bað og borða
kvöldmatinn. Klukkan átta fer ég
að hátta og sofa. Þannig má stilla
vísa klukkunnar allan sólarhring-
inn.“
Vilbergur Júlíusson fyrrverandi
skólastjóri endursagði.