Morgunblaðið - 15.12.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
19
Bók um þróun ullariðnaðar
1
Hið íslenska bókmenntafélag:
ÚT ER komin hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi bókin „Ull verð-
ur gull, ullariðnaður íslendinga á síðari hluta 19. aldar og á 20.
öld. Bókin greinir frá þróun ullariðnaðar á vélaöld. Höfundur
bókarinnar er Magnús Guðmundsson sagnfræðingur. Bók þessi
er annað ritið i ritröðinni Sa&i til Iðnsögu íslendinga sem Jón
Böðvarsson fyrrum skólameistari ritstýrir.
í bókinni er sagt frá brautryðj-
endum sem stofnuðu tóvélaverk-
stæði í lok síðustu aldar og komu
á fót klæðaverksmiðjum. Greint
er frá baráttu fyrir varðveislu
heimilisiðnaðarins og við sögu
koma öll helstu fyrirtæki í klæða-
gerð, ullarþvotti, gólfteppagerð og
ptjónaiðnaði.
Magnús Guðmundsson höfundur
bókarinnar segir að hann hafi unn-
ið við verkið í hlutastarfi undanfar-
in þtjú ár. Áður en hann tók við
verkinu hafi hann lítið þekkt til
ullariðnaðarins. í máli hans kemur
fram að bókin sé að sumu leyti
björgun heimilda um þennan iðnað
og vinnuaðferða sem nú hafa lagst
af. Hvað vinnuaðferðir varðar seg-
ir hann að gert haft verið mynd-
band samhliða bókinni þar sem
þær eru sýndar. Sem dæmi má
nefna ullarþvottinn hjá Garðari
Gíslasyni sem stundaður var
óbreyttur frá fyrsta tug þessarar
aldar þar til í fyrra er hann lagð-
ist af.
Aðspurður um hvað hafi komið
honum mest á óvart við öflun heim-
ilda segir Magnús að það hafi eink-
um verið hve mikil áhrif ullariðnað-
urinn hafði í samfélaginu áður fyrr
og hve hann er tengdur máli og
menningu þjóðarinnar.
Jón Böðvarsson ritstjóri Safns
til Iðnsögu Islendinga segir að hér
sé um annað bindi þeirrar sögu
að ræða, hið fyrsta var um jámiðn-
aðinn. Þriðja bindið sem kemur út
í þessari viku fjallar um bifvéla-
virkjun og ber heitið „Brotin drif
og bílajnenn". Tvö önnur bindi eru
í farvatninu og eiga að koma út á
næsta ári. Fjallar annað um stein-
steypusöguna og hitt er iðnsaga
Austurlands.
í máli Jóns kemur fram að rit-
röðin heyrir beint undir mennta-
málaráðuneytið og hafi þeir þrír
menntamálaráðherra sem við sögu
þess hafa komið sýnt verkinu mik-
inn skilning. Þeir eru Sverrir Her-
mannsson, Birgir ísleifur Gunnars-
son og nú Svavar Gestsson.
Glæsileg
jólatilboð
FLÍSAR Á GÓLF OG VEGGI
TIL AFGREIÐSLU STRAX
GÓLFDÚKAR í ÚRVALI
frá kr. 561,- m2
MÁLNINGARVÖRUR
MIKIÐ ÚRVAL
10% AFSLÁTTURTIL JÓLA
B/aaksi Decken
RAFMAGNSHANDVERKFÆRI
í GJAFAUMBÚÐUM
BOLLASTELL FYRIR SEX
kr. 1.139,-
MATARSTELL FYRIR SEX
kr. 1.990,-
ARCHITECTI
n n ra h
damixa
m
BLONDUNARTÆKI
AFSLATTUR
TIL JÖLA
BYGGINGAVORUVERSLUN
SAMBANDSINS
KRÓKHÁLSI 7 SfMI 8 20 33
Kíkið inn!
Alltaf heitt
á könnunni
Minningarmörk í Hólavallagarði
eftir Bjöm Th. Bjömsson
Glæsileg bók, prýdd pda Ijósmynda um
sögu gamla kirkjugarðsins við Suðurgötu.
Höfundurinnn segir af alþekktri stílfimi og
andríki frá ýmsu því fólki sem þar hvílir.
Hann rekur sögu steinsmíða og leg-
steinagerðar, sem verður jafnframt saga
íslensks handverks, auk þess sem varp-
að erljósi átíðarandann hverju sinni.
Þessi bók er allt í senn: persónusaga,
listasagaog Reykjavíkursaga.
Laugavegi 18. Sími 15199-24240. Sfftumúla 7-9. Sími 688577.