Morgunblaðið - 15.12.1988, Side 20

Morgunblaðið - 15.12.1988, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DE3EMBER 1988 ews ! & KAUPFELOGIN Mjór er niikils vísir Békmenntir Erlendur Jónsson Steinar J. Lúðvíksson: ÞRAUT- GÓÐIR Á R.AUNASTUND. 204 bls. Örn og Örlygur hf. 1988. Komið er út 19. bindi björgunar- og sjóslysasögu þeirrar sem Steinar J. Lúðvíksson hefur verið að taka saman á síðastliðnum tuttugu árum. Dágott ritsafn það. í formála upplýsir Steinar að þetta hafi í fyrstunni átt að verða þijú eða fjög- ur bindi aðeins. En mjór er mikils vísir; það hefur heldur betur teygst úr verkinu. Árin hafa liðið og nýtt efni orðið til jafnóðum og hið gamla tæmdist. En nú segir höfundur að staðar verði numið, nema hvað nafnaskrá muni koma út á næsta ári fyrir bindin öll. Þó er ekki þver- tekið fýrir að verkið verði hafið aftur einhvem tíma síðar. En sem sagt: ekki verður lengra haldið að sinni. Það eru árin 1972-74 sem Stein- ar tekur fyrir í þessu síðasta bindi. Viðburðarík ár í landi, en varla öðrum minnisstæðari á sjónum. Stormasamt var á ólgusjó stjórn- málanna, þjóðin hélt upp á ellefu alda afmælið og Vestmannaeyja- gosið skall eins og brotsjór á kinn- ungi þjóðarskútunnar. Vestmanna- eyingar urðu að flytja flota sinn til annarra hafna. Eitt strand mun mega rekja til ókunnugleika varð- andi staðhætti á nýjum útgerðar- stað. Annars er náttúruhamfaranna í Vestmannaeyjum að fáu getið í þessari bók; sjóslysum ollu þau ekki. Togaraslys urðu hins vegar mörg á umræddum árum og mun mega rekja það að einhverju leyti til nýrr- ar veiðitækni og breyttra vinnu- bragða: skuttogaramir voru að taka við af síðutogurunum gömlu. Skut- togaramir virðast í fýrstunni hafa reynst hálfgerðar háskafleytur. En þess er getið að sjómenn hafi eigi að síður tekið skiprúm á skuttogara fram yfir gömlu togarana; skuttog- aramir vom nýir, aðbúnaður betri og tekjur hærri. Það bar til tíðinda að Hamranes, gamall síðutogari, fórst á rúmsjó eftir að sprenging hafði orðið í skip- inu. Mannbjörg varð. En ekki fékkst úr því skorið fýrir sjórétti hvað hefði getað orsakað sprenginguna. Síðasta sigling Hamranessins væri því tilvalið efni fyrir þann sem tæki sér fyrir hendur að athuga dular- fullar sjóferðasögur. Slys í höfnum em tíunduð í rit- safni þessu. Sé því flett, bók fyrir bók, blasir við sú staðreynd að sér- hver höfn er hættusvæði. Erlendis er litið á hafnir sem vinnustaði ein- Steinar J. Lúðvíksson ungis og alls engin frílystinga- svæði. Islendingar em hins vegar vanir að líta á höfnina sem almenn- ing, líflegt athafnasvæði, torg þangað sem fara megi til að sýna sig og sjá aðra. Því hygg ég að almenn slys hafí á tímabili því sem saga þessi nær yfir orðið jafnvel fleiri en raunvemleg vinnuslys við hafnir landsins. Vafalaust mun vera erfitt að útiloka óþarfa umferð um hérlendar hafnir; venjan er sterk. Þegar nú samantekt og ritun þessarar sögu lýkur er rétti tíminn til að þakka höfundi mikið og vel unnið starf. Hann hefur meðal ann- ars orðið að fjalla um mál sem hljóta eðli sínu samkvæmt að vera viðkvæm og vand með farin. Því tók hann snemma þann pól í hæð- ina að skrá sögu sína hlutlægt, halda sig við staðreyndir og leggja lítið mat á efnið sjálfur en skírskota gjaman til opinberra aðila ef ástæða hefur þótt til að leggja dóm á orsakir atburða. Lestur þessara bóka getur vakið bæði sorg og gleði. Frá hendi útgefanda hygg ég að ritinu muni meðal annars ætlað að styrkja tiltrú á starfi Slysavamafélags íslands sem hvar- vetna er í sjónmáli í þessari löngu og viðamiklu samantekt. Það tel ég hafi og rækilega tekist. Þó ritun þessarar sögu sé nú lok- ið í bili vona ég að þráðurinn verði tekinn upp aftur einhvem tíma síðar. SpNG- OG PIANOBOK BARNANNA UPPHAF GÓÐRAR MÁLTÍÐAR MOULINEX DJÚPSTEIKINGAPOTTUR DJÚPSTEIKTU AUÐVELDLEGA O G HREINLEGA. STIGLAUS HITASTÝRING O G LYKTEYÐIR. S Söng- og píanóbók Bókaútgáfan Setberg hefur sent frá sér Söng- og píanóbók barnanna. \ \ í bókinni em tólf islensk lög og er bókin með hljómborði sem hægt er að leika á. Lögin em Máninn hátt á himni skín, Nú er súmar, Litlu andamn- gamir, Fyrr var oft í koti kátt, Heims um ból, Göngum, göngum, Kibba, kibba, komið þið greyin, Allir krakkar, Nú er frost á Fróni, Meistari Jakob, Fijálst er í fjallasal og Hann Tumi fer á fætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.