Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 22
22 MOftaUNBlJVDID, FÍMMTUDÁCJÚR 15. tíÉSÉMBEk' 1^88 ICENWOOD ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGOUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN FYRSTA FLOKKS ELDHÍÍSTÆKI GOTT VERÐ-GÓÐ KJÖR-GÓÐ WÓNUSTA KENWOOD CHEF KENWOOD GOURMET KENWOOD MINI KENWOOD CHEFETTE KENWOOD MINI (handþeytari) HBIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD iri HEKLAHF Laugavegi 170 172 Simi 695500 1 ASTARÞRA Békmenntir Jenna Jensdóttir Eðvarð Ingólfsson: Meiriháttar stefnumót! Æskan 1988. Hann heitir Sveinn, er bráðum 16 ára. A heima á Akranesi og er að semja skólaleikrit þegar sagan hefst. Foreldrar hans eru bráðungir og tvíburasystir hans heitir Eva. Svenni nýtur sín vel og er áberandi í menningarlífi skólans. Hann dreymir um stelpur og ást umfram annað. Hann langar til þess að vera á fostu, en er það ekki. Draumadís- in hans, Agnes, er holdi og blóði klædd. Hún spilar með handbolta- deild Fram í Reykjavík. Hann hefur aðeins séð hana keppa (og sigra) og síðan hefur ástarþrá hríslast um saklausan kropp hans allan. Hann trúir skólabróður sínum og frænda, Bjössa, fyrir ofurmagni tilfinninga sinna. Bjössi á líka að fá aðalhlut- verkið í leikritinu, sem fjallar um pör á dansleik og áhorfendur fá að heyra samtal þeirra á dansgólfinu. Eva systir Svenna er á föstu með nokkru eldri pilti sem hefur allt til alls og kaupir Evu alltaf til baka, þegar slæst upp á kærleikann, sem er ærið oft. Leikrit Svenna gerir lukku í skólanum og virðing fyrir uppvaxandi rithöfundi eykst. En ekkert þokast nær því að hann kom- ist í kynni við ástina sína, þar til hann auglýsir í Æskunni eftir bréfaskiptum við stúlku á þeirra aldri í Reykjavík. Það hrífur og Agnes nánast flýgur inn í líf hans, flögrar þar um, en sest aldrei. Ör- lögin taka nú til að skýra mynd Klöru skólasystur hans í vitund hans. Þó er hún hin venjulega stúlka — engin kroppur eins og Agnes. En nú gerir ástarþrá hans sér tvo farvegi og hann ringlast í kollinum, er hann vill ákveða hvorum þeirra hann fylgir. Samt má í sögulok sjá, að með einu heljarstökki ákveður hann sig. Margar persónur koma við sögu, Eðvarð Ingólfsson flestar átakalitlar, nema þá Magga frænka hans, sem er talsvert eldri og miklu reyndari en Svenni. Hún kemur í heimsókn „upp á Skaga“ til skyldfólksins nokkrum sinnum á ári. Nú er hún á leið til Banda- ríkjanna í sálfræðinám, með mis- heppnaða sambúð að baki. Ræður hennar yfír Svenna um tilgang lífsins, fánýti þess og verðmæti gefa talsverða innsýn í lífsskoðanir söguhöfundar. Að lokum: Mig langar til að segja það við höfund tveggja metsölubóka að hrista nú duglega upp í næstu sögupersónum sínum, fá þeim í hendur stærri og dýpri verkefni en eingöngu ástarþrá og ástardrauma. Lífíð sjálft er slungið og stórkost- lega hrikalegt hvort sem er í fegurð sinni eða ljótleika. Hreinlyndar skoðanir höfundar á verðmætum lífsins vega þar þungt á metunum og knýja blátt áfram á um stærri, fjölbreyttari og áhrifameiri ritverk frá hans hendi. Því verður þeirra beðið með nokkurri eftirvæntingu. Eyrarbakki: Slysavarnadeild- in Björg 60 ára Eyrarbakka. Slysavarnadeildin Björg á Eyr- arbakka verður 60 ára þann 21. desember. Jón_E. Bergsveinsson, erindreki SVFÍ boðaði til stofti- fundarins. Fyrstu stjóm deildarinnar skipuðu Þorleifur Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður, formaður, Jón Helga- 20 ATJKAVINNINGAR 50.000.00 kr. yöruuttekt hjá Gunnari Asgeirssyni h.f. I ? ? ? ? ? | (9 Husqvarna SAWO Vinningar eru skattfrjálsir VERÐ KR.-------------1 I 450.00 I Upplýsingar um vinninga f sfmsvara 91-M6S90 og á skritetotu félagsins (sfma 91-84999 Dregiö 24. desember 1988 SIMAHAPPDRÆTTI 1988 STYRKTARFÉLAG LANAÐRAOG FATLAORA Háaleitisbraut 11-13 Reykjavik son skipstjóri, ritari, og Jón Stefáns- son verkstjóri var kosinn gjaldkeri. Fyrir þetta ár hafði Bergsteinn Sveinsson í Brennu verið skipaður umboðsmaður SVFÍ á Eyrarbakka og mun hann hafa unnið að undir- búningi þessa stofnfundar. Starfssvæði deildarinnar Bjargar var í upphafi Eyrarbakki og Þorláks- höfn, en þar er nú starfandi sjálfstæð deild, Mannbjörg. Björg hefur að jafnaði starfað með miklum krafti. Á fyrsta ári urðu félagar 130 talsins. Snemma komst sá siður á að hvert bam, sem fæddist á Eyrarbakka, varð meú fæðingunni félagi í Slysa- varaade : unni, en sá siður mun nú aflagður Nú eru félagar um 330. Tveir for ■ rnn hafa lengst allra verið við stjón . Guðlaugur Eggertsson var formaðu • í 13 ár og Gróa Jakobs- dóttir í 16 ár. Núverandi formaður er Jóhannes Bjamason. Undanfarið hefur aðalstarfíð hvílt á björg’rnarsveitinni, en formaður hennar er Erlingur Bjamason. Félag- ar leggja á sig mikið og óeigingjamt starf, bæði við æfíngar óg einnig til að byggja upp og fjármagna tækja- kost sem nauðsynlegur er. Björgunarsveitin er allvel búin tækjum, á tvo kraftmikla torfæru- bíla, tvo véldrifna slöngubáta, auk Qarskipta- og björgunarbúnaðar. Félagamir í björgunarsveitinni höfðu opið hús um siðustu helgi og buðu gestum upp á kræsingar í tilefni af- mælisins. - Óskar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.