Morgunblaðið - 15.12.1988, Page 42
M
42
nttmnrmin nm; nt ítt rrr* ntt wmt«n • imwwnimtmmwnitnnn tm »titiumw ■ »iiMnn
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
msnsni
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
43
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
BaldvinJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Innantóm orð
frá ráðherrum
Aþeim tíma sem Alþingi
hefur setið nú í haust
hefur ekki enn reynt á það,
hvort ríkisstjórnin getur
komið málum í gegnum
neðri deild þingsins. Þar
skortir hana styrk og hún
þarf að semja við einhvem
eða einhverja úr stjómar-
andstöðunni. Við stjórnar-
myndunina var í því sam-
bandi rætt um huldufólk
Stefáns Valgeirssonar.
Ríkisstjórnin hefur form-
lega styrk til þess að koma
fjárlögum í gegnum þingið,
enda eru þau til meðferðar
í sameinuðu þingi. Fjárlögin
eru hins vegar marklaus ef
þeim fylgja ekki önnur al-
menn lög til dæmis um
skattamál. Hin almennu lög
þarf að ræða og afgreiða í
báðum deildum þingsins. í
umræðum sem Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, stofnaði til
á þingi í fyrradag kom fram,
að engar efnislegar viðræð-
ur hefðu farið fram við
flokkinn um framgang og
efni skattafrumvarpa ríkis-
stjórnarinnar. Kristín Hall-
dórsdóttir sagði, að ríkis-
stjómin hefði ekki átt í nein-
um viðræðum við Kvenna-
listann. Albert Guðmunds-
son tók í sama streng fyrir
Borgaraflokkinn. Þannig
hefur ekkert beinlínis á það
reynt, hver afstaða stjómar-
andstöðunnar er til ein-
stakra brýnna úrlausnar-
efna. Stjómarflokkamir
hafa haft nóg með sjálfa sig
og vandræðin innan eigin
raða.
Skattafrumvörp ríkis-
stjórnarinnar sýnast nú öll
komin fram. Með hliðsjón
af yfírlýsingum sjálfstæðis-
manna eru þeir nú reiðubún-
ir að ræða við ríkisstjórnina
um framgang einstakra
mála og efnislegar forsend-
ur fjárlagafrumvarpsins. A
hið sama vafalaust við um
aðra flokka í stjómarand-
stöðunni. Þá vakna þessar
einföldu spurningar: Koma
stjórnarflokkamir fram sem
ein heild í skattamálunum?
Hefur fjármálaráðherra alla
stjómarliða á bak við sig
þegar hann leggur fram til-
lögur sínar?
Uppákoman í efri deild
Alþingis á þriðjudag, þegar
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra ætlaði að
reyna að tryggja stuðning
við bráðabirgðalög með því
áð afnema þaðan ákvæði,
sem engu skiptir í raun, er
einsdæmi. Hvaða stjómar-
þingmenn eru það sem láta
slíka gervimennsku villa sér
sýn? Eru það einhverjir úr
stjómarandstöðunni sem
falla fyrir markleysu af
þessu tagi? Er það þannig
sem Ögmundur Jónasson,
nýlq'örinn formaður BSRB,
vill að staðið sé að kjarmál-
um af ríkisstjórninni?
A rúmlega klukkustund
var sýnt fram á innihalds-
leysi orða forsætisráðherra.
Yfírlýsingar Ólafs Ragnars
Grímssonar, fjármálaráð-
herra, um hallann á ríkis-
sjóði í ár hafa aðeins staðist
í fáeina daga. Nú á eftir að
sjá, hvort meira er að marka
það sem hann segist ætla
að gera til að ná hallanum
niður og breyta stöðunni í
allt að 1200 milljón króna
tekjuafgang á næsta ári.
Um leið og Tíminn, málgagn
Framsóknarflokksins, segir
frá þessu markmiði fjár-
málaráðherra í gær, er þess-
ari setningu bætt aftan við:
„Vaxandi óánægju gætir nú
innan Framsóknar og Al-
þýðuflokks með það mark-
mið fjármálaráðherra að af-
greiða fjárlög með tekjuaf-
gangi, vegna mjög versn-
andi stöðu í efnahagsmálum
þjóðarinnar.“ Ekki bendir
þessi setning til þess að fj'ár-
málaráðherrann hafi gengið
frá öllum hnútum heima fyr-
ir. Er hún ekki þvert á móti
eindregin ábending til fjár-
málaráðherra um að ríkis-
stjómin hafi ekki styrk til
að koma því fjárlagafrum-
varpi í gegn sem er að hans
skapi?
Ur vandræðum á stjóm-
arheimilinu geta þeir einir
leyst sem þar eru. Heimilis-
bölið þar er alls ekki sök
stjómarandstöðunnar. Ef
ráðherrar eða málgögn
þeirra halda það er ekki von
á skjótum heimilisfriði.
Lífeyrissjóðirnir;
Sjáum ekki vaxta-
lækkim framundan
- segir Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ
VAXTALÆKKUN þarf að koma fram á almennum markaði áður en
lífeyrissjóðirnir semja um að lækka vexti af lánum sínum til Hús-
næðisstofiiunar niður í 5%, segir Þórarinn V. Þórarinsson. Hann
hefúr verið í viðræðum um þessi mál fyrir hönd almennra lifeyris-
sjóða sem Vinnuveitendasambandið á aðild að. Hann segir að þau
gögn sem stuðst er við I viðræðunum gefi ekki tilefni til að ætla að
vextir muni iækka á næstunni, einkum styðst hann við spá Seðlabank-
ans í þvi efni.
„Við horfum til þess að í lögunum
segir að ríkissjóður eigi að greiða
þá vexti sem almennt gerast á lána-
markaði í viðskiptum. Það er í sjálfu
sér ekki okkar vilji, sem stöndum
að lífeyrissjóðunum, að knýja á um
vexti sem eru umfram það sem al-
mennt gerist, heldur viljum við
horfa til þess hvaða vextir eru á
markaðnum hveiju sinni. Við sjáum
hins vegar ekki þá vaxtalækkun
framundan sem Qármálaráðuneytið
er að boða. Við teljum að minnsta
kosti eðlilegt að hún komi í ljós
áður en lífeyrissjóðimir taka það á
sig að lækka vexti af lánum til ríkis-
ins til samræmis við hugsanlega
vaxtalækkun.
Almennu lífeyrissjóðimir hafa þá
sérstöðu að þeir verða að bera
ábyrgð á sínum loforðum og lífeyr-
isgreiðslum gangvart sjóðsfélögun-
um, sem og á iðgjöldum og þeim
vaxtatekjum sem af þeim kunna
að fást. Af því leiðir að sjóðastjóm-
imar geta ekkert verið að leika sér
með vextina bara eins og þeim sýn-
ist. Lífeyrissjóðimir verða að fá þá
hæstu vexti sem markaðurinn gefur
tilefni til á hveijum tíma. Það er
engin spuming um það. Málið horf-
ir öðm vísi við með lífeyrissjóð opin-
berra starfsmanna. Þar skipta
vaxtatekjumar nákvæmlega engu
máli af því að ríkissjóður ábyrgist
beint greiðslu lífeyris."
Þórarinn sagði að á fyrsta fundi
um málið hafí verið kynnt spá
Seðlabankans um efnahagslífið á
næsta ári. „í þeirri spá kemur fram
að Seðlabankinn treystir sér ekki
til þess að gera ráð fyrir frekari
raunvaxtalækkun á næsta ári held-
ur en orðin er. Hvert eitt prósentu-
stig í raunvöxtum þýðir einhveijar
400 til 500 milljónir í tekjum hjá
lífeyrissjóðunum í heild. Þegar spá
seðlabankans birtist með þessum
hætti, þá er afskaplega örðugt fyr-
ir okkur að leggja trúnað á spádóma
fjármálaráðuneyt.isins um að það
sé einhver vemleg vaxtalækkun
framundan," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Laxfoss, skip Eimskipafélags íslands, við Kleppsbakka í Sundahöfii
í gær. A myndinni sést eini sérhannaði gámakrani landsins, Jaki, sem
er í eigu Eimskips.
Kvennalistinn:
Getur stutt hækkun á tekju-
og eignarskatti fyrirtækja
Efasemdir um gildi þess að hækka tekjuskatt einstaklinga
KVENNLISTINN telur sig geta stutt þann hluta frumvarps um breyt-
ingar á tekju- og eignaskatti, sem lítur að eignaskatti einstaklinga
og fyrirtækja, og einnig breytingar á tekjuskatti fyrirtælqa. Hins
vegar hafa kvennalistakonur efasemdir varðandi 2% hækkun tekju-
skatts á einstaklinga, og telja að það myndi jafiivel skila sér betur
með óbeinum hætti ef ráðstöfunartekjur almenningsmyndu yrðu
ekki skertar á þennan hátt.
Þórhildur Þorleifsdóttir þing-
maður Kvennalistans sagði við
Morgunblaðið að kvennalistakonur
vildu jafnvel ganga lengra varðandi
eignaskatt, en fmmvarpið gerir, og
miða stóreignarskatt við fasteigna-
mat en ekki skuldlausa eign, en
hækka mörkin talsvert um leið.
Neskaupstaður;
Fhnm tonna frystigámur fauk á skip
Neskaupstað.
FRYSTIGÁMUR, fimm tonn að
þyngd, tókst á loft i miklu roki
hér á mánudagskvöld og fauk á
togarann Súlnafell og skemmdi
hann nokkuð. Gámurinn stóð á
hafharuppfyllingunni og fauk
því talsverðan spöl og enda-
stakkst inn á skipið.
Síðastliðið mánudagskvöld gerði
hér mikið vestnorðvestan hvas-
sviðri í einni af snörpustu hryðjun-
um fauk 40 feta langur 5 tonna
þungur frystigámur sem stóð á
hafnamppfyllingunni við Egils-
braut. Hafnaði á togaranum Súlna-
felli frá Þórshöfn sem lá austan
við uppfyllinguna. Talsverðar
skemmdir urðu á brú togarans.
Attaviti eyðilagðist, fremra mastur
lagðist út af, loftnet og rekkverk
Skemmdir kannaðar á
brú Súlnafellsins
daginn eftir óhappið.
og fleira skemmdist. Gámurinn
náðist ekki af skipinu fyrr en
strandferðaskipið Esjan kom nótt-
ina eftir og hífði hann lausan.
Líklega hefði hann ekki náðst öðm
vísi.
Litlar skemmdir munu hafa orð-
ið í bænum í veðrinu. Á vindhraða-
mælum um borð í skipum í höfn-
inni mældist á milli 14 og 15 vind-
stig í næstu kviðunum. Veðrið stóð
stutt yfir. Ágúst
Um skattlagningu fyrirtækja
sagði Þórhildur að Kvennalistinn
gæti stutt ýmis hagræðingarmál
sem sett em fram í fmmvarpinu.
Þar væri að gert ráð fyrir 2% tekju-
skattshækkun, sem yrði raunar eitt-
Hvað meiri vegna breyttra fyrning-
arákvæða, en fyrirtæki þyrftu ekki
að greiða tekjuskatt fyrr en þau
sýndu rekstrarhagnað, og því yrði
ekki um að ræða aukna byrði á
mjög illa stöddum fyrirtækjum.
Þórhildur sagði síðan að Kvenna-
listinn hefði talsverðar efasemdir
um tekjuskatt einstaklinga. For-
sendur útreikninga virtust vera
vafasamar, þar sem svo virtist sem
persónuafslátturinn og barnabæt-
umar næðu því varla að mæta verð-
lagshækkunum. Einnig væm efa-
semdir um gildi þess að auka tekju-
skattinn yfírleitt, og spuming hvort
það kæmi ríkissjóði ekki betur með
óbeinum hætti að skerða ekki ráð-
stöfunartekjur almennings á þenn-
an hátt.
Morgunblaðið/Ágúst
Fólk hvatttil að
kaupa íslenskar
vörur fyrir jólin
FÉLAG íslenskra iðnrekenda stendur nú fyrir hvatningu til að fá
fólk til að kaupa íslenskar vörur fyrir jólin. Arnþór Þórðarson verk-
fræðingur hjá FÍI sem hefur umsjón með hvatningunni segir að með
henni sé verið að vinna gegn samdrætti og atvinnuleysi í þjóðfélaginu.
Gámurinn endastakkst inn á skipið og skorðaðist þar.
Morgunblaðið/Hallur Gunnarsson
Amþór kallar hvatninguna sem
hófst í nóvember skyndiátak sem
standa mun fram að jólum. Eftir
áramótin er síðan ætlunin að halda
verkinu áfram með langtímamark-
mið í huga, það er fá fólk almennt
til að velja íslenskar vömr séu þær
betri og ódýrari en erlendar.
„Ástæður þess að við fómm af
stað með þetta eru ástandið sem
nú blasir við í þjóðfélaginu, sam-
dráttur og vaxandi atvinnuleysi.
Með þessu viljum við leggja okkar
af mörkum til að minnka viðskipta-
hallann og gjaldeyrisútstreymið og
sýna jafnframt fram á að þetta
ástand og lausnir til að bæta það
em ekki einkamál stjómmálamanna
,“ segir Amþór.
Aðspurður um hvort þeir hafi
þegar orðið varir við einhver við-
brögð almennings, segir Amþór svo
vera. Samkvæmt upplýsingum frá
kaupmönnum em viðskiptavinir
þeirra í auknum mæli farnir að
spuija um hvort íslenskar vömr séu
á borðstólum. Kaupmennirnir sjálfir
em þar að auki famir að auglýsa
sjálfir í meira mæli íslenskar vömr.
Amþór sagði að það væri stórt
atriði hvað varðar íslenskar vömr
að þær væm undir strangara gæða-
eftirliti hérlendis en erlendar vömr
væru oft á tíðum.
Meðal þeirra verslanna sem selja
íslenskar vömr er tískuverslunin
Púnkturinn á Laugavegi. Stefán
Jömndsson einn af eigendum henn-
ar segir að verslunin bjóði upp á
tískufatnað frá saumastofunni
Textíll hf. Fatnaðurinn er hannaður
af þeim Valgerði Torfadóttur og
Björgu Ingadóttur.
„Við yfirtókum rekstur Quadro
og höfum þvi verið að selja þann
fatnað sem til staðar var meðfram
íslenska fatnaðinum. Framtíðar-
stefnan er hinsvegar sú að vera
eingöngu með vömr sem em fram-
leiddar hér heima,“ segir Stefán.
Kleppsbakki í Sundahöfii:
Hægft að losa 2 gáma-
eða ekjuskíp samtímis
KLEPPSBAKKI í Sundahöfii hefiir verið lengdur í 287 metra og
nú er hægt að vinna samtímis að lestun og losun tveggja gáma-
eða ekjuskipa við bakkann, að sögn Gunnars B. Guðmundssonar
hafiiarsljóra Reykjavikurhafiiar. Kleppsbakkinn verður lengdur um
30 metra til viðbótar á næsta ári og að því verki loknu verður
hann lengsti hafnarbakki landsins. Heildarlengd hafiiarbakka
Reykjavíkurhafiiar eftir stækkun Kleppsbakka er 3.811 metrar,
segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurhöfii.
Reykjavíkurhöfn hefur á undan-
fomum tveimur ámm unnið að
stækkun hafnarsvæðis í Vatna-
görðum í Sundahöfn, þar sem Eim-
skipafélag íslands er með aðal-
farmstöð og skipaafgreiðslu sína.
Samhliða lengingu Kleppsbakka
hefur verið unnið að lengingu
skjólgarða út' frá Korngarði til að
skapa viðunandi skjól í hafáttum
við Kleppsbakka. Áætlað er að
ljúka þessum framkvæmdum á
næsta ári. Hafnarstjóm hefur þeg-
ar varið 177 milljónum króna til
þessara framkvæmda og áætlað
er að kostnaður við að ljúka verk-
inu á næsta ári verði um 100 millj-
ónir króna.
Morgunblaðið/Þorkell
Laxfoss, hið nýja vöruflutningaskip Eimskipafélags íslands, við Kleppsbakka í Sundahöfii í gær.
Laxfoss er listasjóskip
- segir Hafsteinn Hafsteinsson 1. stýrimaður á skipinu
„LAXFOSS er sterkt og gott
skip og Iistasjóskip,“ sagði Haf-
steinn Hafsteinsson, 1. stýri-
maður á Laxfossi, í samtali við
Morgunblaðið í gærmorgun.
Laxfoss, hið nýja vöruflutninga-
skip Eimskipafélags íslands,
kom i fyrsta sinn til landsins í
gær og lagðist að Kleppsbakka
í Sundahöfh. Laxfoss er næst-
stærsta skip íslendinga. Burðar-
geta skipsins er 12.192 tonn en
burðargeta Brúarfoss, sem Eim-
skip keypti einnig nýlega og
kemur til landsins í næstu viku,
er 9.855 tonn, að sögn Þorkels
Sigurlaugssonar hjá Eimskip.
Burðargeta olíuflutningaskips-
ins Hamrafells, sem selt var til
Indlands árið 1966, var hins
vegar 16.730 tonn, að sögn Ótt-
ars Karlssonar skipaverkfræð-
ings hjá skipadeild Sambands-
ins.
„Laxfoss og Brúarfoss vom
smíðaðir í Vestur-Þýskalandi árið
1977 en keyptir frá Ítalíu. „Skipin
kostuðu samtals 750 milljónir
króna og breytingar á þeim sam-
tals 150 milljónir króna. Ég er
sannfærður um að við höfum gert
góð kaup, þvi að verð á skipum
hefur verið á uppleið og búast má
við áframhaldandi verðhækkun á
næstunni," sagði Þorkell Sigur-
laugsson. Skipin voru afhent í nóv-
Hafsteinn Hafsteinsson, 1. stýrimaður á Laxfossi, á þilfari skipsins.
ember og þeim var breytt í Fred-
rikshavn í Danmörku. „I Brúarfoss
var sett bílaþilfar, gámafestingum
var breytt í báðum skipunum og
aðalvélar þeirra voru gerðar upp.
Einnig voru innréttaðir sex tveggja
manna farþegaklefar í sitt hvoru
skipinu," sagði Þorkell.
Laxfoss er 5.754 brúttórúmlest-
ir. Skipið er 172 metrar að lengd,
21,74 metrar að breidd og 12,28
metrar að dýpt. Brúarfoss er 7.122
brúttórúmlestir. Skipið er 172,95
metrar að lengd, 21,74 metrar að
breidd og 13,55 metrar að dýpt.
Olíuflutningaskipið Hamrafell,
sem keypt var til landsins árið
1956 og selt aftur í desember
1966, taldist vera 11.488 brúttór-
úmlestir. Ef Laxfoss og Brúarfoss
væru hins vegar mældir eins og
Hamrafellið teldist Brúarfoss vera
14.448 brúttórúmlestir og Laxfoss
12.960 brúttórúmlestir, að sögn
Magnúsar Kristjánssonar hjá Sigl-
ingamálastofnun ríkisins.
Hallgrímskirkjuturn,
76m hár
MorgunblaÓHS/ GÓI
BRÚARFOSS, skip Eimskipaiélags islands hf.
Stærsta skip sem íslendingar hafa eignast.
Mesta lengd: 172,95m
Mesta breidd: 21,74m
Dýpt: 13,55m
Brúttólestir: 7.122,19m
LAXFOSS, skip Eimskipafélags íslands hf.
Næststæsta skip sem íslendingar hafa eignast.
Mesta lengd: I72,00m
Mesta breidd: 21,74m
Dýpt: 12,28m
Brúttólestir: 5.754,10m